
Matvara er 55% dýrari á Íslandi en ESB-ríkjum og verð á þeim hefur hækkað hraðar en í samanburðarlöndum síðustu ár. Hagnaður Haga og Festi, sem eiga Bónus og Krónuna, hefur meira en tvöfaldast frá árinu 2020. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að samfélagið allt hafi brugðist. Lega landsins, sérstakur gjaldmiðill og tollavernd spili inn í, en ekki síður eigi öflug hagsmunagæsla matvörumarkaðarins sinn þátt í hækkunum. Þá megi löggjafinn líta í eigin barm, aðstæður hér á landi ýti undir fákeppni frekar en samkeppni. Frekar sé keppt í þjónustu en verði á matvörum.

Það hefur gustað hraustlega um matvörumarkaðinn að undanförnu og hver greiningin á fætur annarri verið birt sem sýnir að Ísland er dýrasta land í heimi og hefur aldrei verið eins dýrt. Stéttarfélagið Viska reið á vaðið með greiningu á verðlagi í maí síðastliðnum. Verðlag á Íslandi mælist nú 84% hærra en í 27 löndum Evrópu að meðaltali, sem er sögulegt met horft til 30 ára. Þar kemur einnig fram að Ísland er dýrara en önnur Norðurlönd þegar litið er á flesta flokka neyslunnar. Landið er orðið 44% dýrara í matvörum heilt yfir miðað við önnur Norðurlönd, þar með talið 71% dýrara í kjötvörum og 75% dýrara í mjólkurvörum og eggjum.
Samkeppniseftirlitið birti nýlega greiningu á matvörumarkaðnum og þar kemur fram að matarverð hér á landi er 55% dýrara að meðaltali en í ESB-ríkjunum. Í greiningunni kemur fram að talsverður munur er á dagvöruverði á Norðurlöndum, þar sem dagvöruverð á Íslandi sker sig úr, en dagvöruverð í Svíþjóð og Finnlandi er einungis 6% yfir meðaltali ESB-landa. „Fyrir rúmum tuttugu árum var verð á matvöru á Íslandi 42% hærra en meðaltal í ESB, sbr. umfjöllun á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins í lok árs 2005. Ísland hefur því fjarlægst meðaltal Evrópu verulega á síðustu tveimur áratugum,“ segir í greiningunni.
Samkeppniseftirlitið fékk fyrr á árinu aukna fjárveitingu, eða 30 milljónir króna til að rannsaka matvörumarkaðinn og boðar allsherjarúttekt á honum næstu mánuði.
Gímaldið birtir í dag fréttaskýringaþátt í hlaðvarpsformi þar sem fjallað er um hátt verð á matvöru hér á landi, hagsmunagæslu matvörurisanna og þátt eftirlitsstofnana og neytendaverndar.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan og á helstu hlaðvarpsveitum.
Meðal þess sem fjallað er um í þættinum:
Viðmælendur í þættinum eru Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá stéttarfélaginu Visku, Pál Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri Verðlagseftirlits ASÍ og Brynhildur Pétursdóttur, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna.
„Ég held að samfélagið hafi klikkað,“ segir Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins í viðtali við Gímaldið spurður um ástæður þess að matvöruverð hér á landi hefur hækkað hraðar en í samkeppnislöndum.

„Við búum í litlu hagkerfi þar sem samkeppni á alltaf á brattann að sækja vegna þess að við erum með miklar aðgangshindranir við legu landsins, sérstakan gjaldmiðil, tollvernd sem stundum á sér einhver rök en stundum alls ekki og gríðarlega öfluga hagsmunavernd, sérstaklega stærri fyrirtækja, síður neytenda, sem gera aðstæður mjög erfiðar fyrir samkeppni.“
Afleiðingin sé sú að samkeppnin láti undan og keppt sé í einhverju öðru en vöruverði til neytenda. „Fákeppni, hún leiðir til þess að samkeppni slævist. Fyrirtæki búa ekki við nógu mikla hvata til þess að hagræða í rekstri,“ segir Páll Gunnar. „Í fákeppnisumhverfi þá gerist það stundum að fyrirtæki vissulega upplifa sig í samkeppni þegar það er verið að keppa í öðru heldur en verði. Það er verið að keppa í fleiri afgreiðslustöðvum, betri framsetningu, flottara húsnæði og svo framvegis,“ segir hann og bætir við að löggjafinn þurfi líka að líta í eigin barm í þessum efnum.
Mestar hækkanir hafa verið á verði á mjólkur- og kjötvörum og í þeim vöruflokkum er mestur munur á verði hér á landi og í ESB-löndum. Engin samkeppnislög ná yfir afurðastöðvarnar sem vinna kjötið frá bændum, sem mega því hafa samráð um verð. Páll Gunnar bendir á að hægt hefði verið að fara aðra leið en að víkja samkeppnislögum til hliðar.
„Í kjölfarið af samráðsmáli hérna um síðustu aldamót ákváðu stjórnvöld, eftir tilmælum samkeppnisyfirvalda, að fella niður tolla, draga úr innflutningsvernd og breyta stuðningi við bændur, þannig að hann var þá ekki eins markaðstruflandi heldur svona beinn stuðningur af ýmsum toga. Þetta leiddi síðan af sér að sú grein styrktist í samkeppnisumhverfi þar sem að innlend fyrirtæki þurftu bara að standa sig – og þau stóðu sig. Framboð jókst, eftirspurn jókst. Í kjötinu þá höfum við farið þveröfuga leið og í mjólkinni líka og það getur ekki til lengri tíma komið þessum greinum til góða, vegna þess að það sem að gerist þá er að verð hækkar, bændur sitja við skarðan hlut. Bændur sem við tölum við, þeir eru ekki ánægðir með þetta ástand,“ bendir hann á.
Samkvæmt Verðlagseftirliti ASÍ er nánast enginn verðmunur milli Bónuss og Krónunnar, aðeins örfáar krónur upp eða niður sem munar. Eina lágvöruverðsverslunin sem sker sig úr, Prís í Kópavogi, er um 4% ódýrari en allar hinar.

Á sama tíma eru hagnaðartölur í hámarki. Hagar, sem reka Bónus, högnuðust um 7,4 milljarða króna árið 2025 og Festi, sem rekur Krónunar, hagnaðist um 6,2 milljarða króna. Þar af er hagnaður af rekstri Krónunnar 2,9 milljarðar en hagnaður Bónuss er ekki gefinn upp sérstaklega í ársreikningum Haga.
Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri Verðlagseftirlits ASÍ, bendir á að neytendur geti gert sitt með því að beina viðskiptum þangað sem verð er lægst á hverjum tíma.
„Við erum alltaf að biðja um virkari samkeppni á þessum markaði og þá þurfum við líka sem neytendur að vera virkari á þessu sviði og akkúrat hampa þeim sem gera vel. Þá er það að leita til þeirra sem eru að bjóða upp á besta verðið og veita öðrum aðhald. Það gerist fyrst og fremst með buddunni.“
Á vef Verðlagseftirlits ASÍ má finna samanburð á verði á dagvöru og einnig samanburð á kílóverði á ýmsum vöruflokkum.

Síðastliðin sex ár hefur verðbólga hér á landi verið yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands, sem er 2,5%. Verðbólga í maí mældist 5,1%.
Há verðbólga til lengri tíma, eins og hér á landi, getur haft mikil áhrif á það hvernig neytendur skynja verðlag almennt, segir Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna.
„Við eigum alltaf að vera duglegir neytendur. Neytendur eiga ekki sök á því að það er langdýrast í Evrópu að kaupa mat á Íslandi. Þess vegna er verðbólga alvarleg að svo mörgu leyti. Í þeim löndum þar sem verðbólga er lág og stöðug þá færðu betri verðvitund,“ segir Brynhildur í þættinum.

Stéttarfélagið Viska hefur sýnt ákveðið frumkvæði í því að hefja umræðu um hátt verðlag hér á landi. Verðlag á Íslandi hækkar nú tvöfalt hraðar en verðlag innan Evrópska efnahagssvæðisins á sama tíma og krónan helst tiltölulega sterk, samkvæmt úttekt félagsins. Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku, kallar eftir meiri umræðu um hátt verðlag og áhrifum þess á íslenskt efnahagslíf.
„Við hjá Visku höfum aðeins verið að súma svona inn á verðlagsmálin á Íslandi og svona kannski hina hliðina á kaupmættinum, sem er álagningin í til dæmis versluninni og á öllum mörkuðum hvað fólk fær fyrir launin.
Ég ætla bara að leyfa mér að segja það að mér finnst þetta þáttur sem hefur svona skort hjá verkalýðshreyfingunni heilt yfir. Við tölum alltaf um að auka kaupmátt í gegnum launahækkanir, meðan við hjá Visku viljum líka fara að tala um að auka kaupmátt í gegnum neytendaaðhald og minni álagningu,“ segir Vilhjálmur í þættinum.
„Hér þarf neytendabyltingu þar sem að fólk er frætt um hvað það þýðir að sýna aukið aðhald. Þú getur skapað þér meiri kaupmáttarhækkanir heldur en sem nemur einhverjum launahækkunum bara með því að sýna aðhald, ekki láta bjóða þér hvað sem er. Heimilin þurfa að taka valdið aftur til sín. Ég held það þurfi stundum bara þjóðarátak í nísku. Á einhverjum tímapunkti þurfa neytendur bara að rísa upp,“ segir Vilhjálmur.
Spurningunni um hvaða áhrif það hefði á matvöruverð hér á landi ef Ísland gengi í Evrópusambandið er velt upp í þættinum.
„Það er hægt að segja með nokkurri vissu að mínu mati að það væri í raun og veru lítið sem ekkert Samkeppniseftirlit á Íslandi ef ekki væri fyrir EES-samninginn. Íslensk samkeppnislög, þau byggja og eiga rót sína í EES-samningnum. Hagsmunabarátta á Íslandi er með þeim hætti að það væri mjög erfitt að reka Samkeppniseftirlit, það væri mjög erfitt líka fyrir stjórnmálin að koma á samkeppnisreglum ef að við þyrftum þess ekki í raun og veru út af EES-samningnum,“ segir Páll Gunnar í þættinum.
Hann segir sjálfa aðildarspurninguna fjölþætta og að mörgu leyti utan sviðs eftirlitsins. Samkeppniseftirlitið hafi engu að síður það hlutverk að benda á leiðir til þess að draga úr aðgangshindrunum og opna markaði. „Það að við búum við sérstakan gjaldmiðil hjálpar ekki í samkeppni, skapar hindranir fyrir fjárfestingu til dæmis annars staðar frá, skapar hindranir í því að erlend fyrirtæki bjóði þjónustu sína hér. Að vera með sama gjaldmiðil eins og viðskiptalöndin myndi alveg klárlega opna markaði fyrir Íslendinga og efla samkeppni. Aðrar aðgangshindranir, hindranir fyrir ný fyrirtæki að koma hér inn en líka bara hindranir, tollamúrar og fleiri hindranir myndu lækka við aðild að Evrópusambandinu.
Þannig að ef að er verið að horfa á hvata til þess að draga úr verði á Íslandi og efla samkeppni, þá er það bara eðli máls samkvæmt, er aðild að ESB eitthvað sem að íslensk stjórnvöld eða íslenskt samfélag ættu að skoða mjög alvarlega,“ segir hann.

Og myndi matarverð lækka? „Það er allt sem segir okkur og reynslan sýnir okkur að samkeppni myndi aukast, markaðir myndu opnast og það er til þess fallið að lækka verð,“ segir Páll Gunnar.
Að sögn Vilhjálms er óhjákvæmilegt að endursamið verði um tolla ef Ísland gengi í Evrópusambandið og það eitt og sér muni hafa áhrif til lækkunar á matvöruverði. „Það sem mun líka gerast og er ekki nógu mikið í umræðunni er sko, að samkeppnin mun aukast, ekki bara á matvörumarkaði, á tryggingamarkaði, á bankamarkaði og svo framvegis. Og það eitt og sér mun líka, sem sagt, lækka matvöruverð á Íslandi. Það er alveg óumdeilt. Þannig að við erum að horfa á það að það mun, já, matvöruverð mun lækka á Íslandi ef við förum inn í Evrópusambandið. En, það eru náttúrulega kostir og gallar í þessu,“ segir hann og bætir við: „En um leið og allt hagkerfið, ekki bara heimilin, heldur fyrirtækin líka, ef við gætum nú sparað einhvern ákveðinn hluta af landsframleiðslunni sem við núna erum að verja í að borga fyrir of háa álagningu og getum veitt því í þarfari hluti, að það eitt og sér er til hagsbóta fyrir alla,“ segir Vilhjálmur.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan og á helstu hlaðvarpsveitum. Þessi grein er útdráttur úr því sem fram kemur í þættinum.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.