
Bréfritari er staddur í Lissabon og vildi að María væri þar með sér, að horfa yfir tígulsteinsþökin og á skipin sem sigla um ána Tagus. Hann sér henni bregða fyrir á götum borgarinnar, sólin er svo heit, og púrtvínið kallar fram undarlegustu myndir. Í löngu bréfi til Maríu skrifar hann um allt sem sækir á hugann, leiftur úr bókmenntum og mannkynssögunni og það sem verður á vegi ferðalangs á framandi slóðum.
Eiríkur Guðmundsson lést í ágúst árið 2022, 52 ára gamall. Meðal þess sem hann skildi eftir sig voru nokkur handrit. Það eina sem var fullbúið var bréfaskáldsagan Maríuklefinn, sem kemur fyrst út núna, fjórum árum eftir andlát höfundar.
Bókaklúbbur Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Eiríkur Guðmundsson (f. 1969, d. 2022) var landskunnur þáttastjórnandi á Rás 1 og rithöfundur, búsettur í Reykjavík. Fyrsta skáldsaga hans, 39 þrep á leið til glötunar, kom út árið 2004 og síðar sendi hann frá sér hann skáldsögurnar Undir himninum, Sýrópsmáninn, 1983 og Ritgerð mín um sársaukann. Samhliða skrifaði Eiríkur ljóð, tímaritsgreinar, ritdóma, fræðibækur og útvarpspistla. Hann var tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir skáldsöguna 1983.
„Allt rann saman: sagan, hugleiðingar, persónur og stíllinn, þannig að lesandanum fannst hann vera að upplifa eitthvað alveg nýtt. Það var þetta sem Eiríkur reyndi í sínum verkum. Hann var ekki að reyna að segja sögu; heldur að ölva heiminn með skáldskap.“
Úr eftirmála Jóns Kalmans Stefánssonar
Benedikt 2026. ⎮ Kilja, 272 bls. ⎮ Verð: 6.290,-
Ég vildi að þú værir hér. En ég er hér. Nei, það er ég sem er hér í borginni Lissabon, og ég vildi að þú værir hér til að horfa með mér yfir tígulsteinsþökin og á skipin þar sem þau sigla um ána Tagus, í seilingarfjarlægð, líkt og maður þurfi ekki annað en rétta fram handlegginn til að taka þau í lófa sér. Annars býst ég við því að Mahler hljómi vel á Stokkseyri eða hvar sem þú kannt að vera niður komin í heiminum.
Ég hef verið hér í þrjá daga en um leið miklu lengur, þessir þrír dagar voru í raun ekki annað en flugur á vegg. Það var nótt þegar ég kom en ég mun fara héðan í miklu sólskini um hábjartan dag, fari ég á annað borð. Ég var umkringdur af íþróttafólki og tollvörðum, fannst mér, alla leiðina frá borginni Amsterdam þar sem hasstaumarnir liggja yfir síkjunum og himinninn minnir einna helst á opnu úr gömlu klámblaði. Ég sat þar eitt síðdegi, við heljarmikið torg og hugleiddi hvort þú hefðir einhvern tímann komið til Amsterdam, hugsanlega með dökk sólgleraugu, María, svo dökk að þau minntu á dimmleitan hug, þann hug sem ég geng út frá að sé sá hugur sem við berum hvort til annars. Þú verður að leiðrétta mig fari ég með rangt mál, ég er ekki vanur að ferðast öðruvísi en á úlfalda meðfram hafinu þótt einhverjir kynnu að segja að ég hefði alla tíð verið á fyrsta farrými. Og allar borgir koma mér á óvart. Láttu þér samt ekki detta í hug að ég muni eyða löngum tíma í að lýsa borginni Amsterdam, ef satt skal segja þá fer hún í taugarnar á mér og svo hífaður var ég þessar fáu klukkustundir sem ég dvaldi þar að ég hafði varla fyrir því að hafa augun hjá mér, eins og sagt er, og sólgleraugun svo dökk að á tímabili fannst mér eins og ég væri staddur á hinum myrku miðöldum sem svo eru stundum kallaðar, að innan skamms yrði ég gerður að biskupi, sendur heim þar sem einhver myndi skrifa um mig byskupasögu með yfsiloni eftir dauðann og frægð mín þar af leiðandi tryggð til eilífðar, til eilífðar, María – það er nákvæmlega sá tími sem líður frá því að ég hitti þig fyrst og þangað til yfir lýkur.
Þrátt fyrir örðuga sjón er ég þó viss um að hafa heyrt í regninu, rétt eins og morgundagurinn ætti eftir að bera eitthvað rosalegt í skauti sínu og hugur minn leitaði til hafs. En það hlýtur að hafa verið misskilningur því þú varst víðsfjarri, rétt eins og lög gera ráð fyrir, býst ég við, og líkurnar á því að ég hitti þig á morgun algerlega og óralangt fyrir neðan frostmark – svo langt fyrir neðan núllpunktinn að til þess að komast þangað þarf maður árabát, sléttan sjó, eitthvað sem nagar hnúana til að koma í veg fyrir óhæfuverk, og maður nefnir ekki, en er ævinlega baðað miklu tunglskini.
En María, ég vildi að þú værir hér, ég hef stundum séð þér bregða fyrir, sólin er svo heit, og púrtvínið kallar fram undarlegustu myndir sem virðast svífa eins og flatbotna skip í órafjarlægð um himininn – ég veit ekki hvar maður lætur framkalla þær – en það hefur ævinlega verið einhver önnur. Ég er einn á ferð, eins og djöfull í klaustri, og ég sé þig í hverjum einasta sporvagni sem líður hjá. Þessi til dæmis, númer 28, er á leiðinni yfir í Alfama-hverfið, og þarna ertu í glugganum. Nei, þetta er hún Mónica Silva, sú sem selur mér ávaxtasafa og púrtvín, hún er á leið heim eftir vinnu úr stórmarkaðnum við götuna 1. desember, örþreytt, varla gædd lífi, best að ég vinki henni engu að síður.
En María, skelfing sem þú varst falleg innan um krossana í kirkjugarðinum. Og skáldin okkar tvö, eða voru þau kannski þrjú? Nánast hlið við hlið, og tóbakslyktin eins nálægt því að vera óbærilega himnesk og mögulegt er við slíkar aðstæður, mun meira en maður á að venjast í kirkjugörðum. Ég er ekki frá því að annarlegur strókur hafi staðið upp úr grasinu, líklega langt að kominn, en María, það kann að vera ímyndun. Svo falleg, María, að mig langaði til að gera eitthvað sem maður skrifar helst ekki niður, til dæmis kyssa þig og segja þér eins og fífl að ég elskaði þig, hefði alltaf gert, og myndi alltaf gera, en nei, María, ég ætla ekki að orða þetta svona, ég orða þetta bara hreint ekki neitt. Þetta er eins og þeir segja og ég hef lesið í gamalli bók, Sögu skipanna, rómantík Mississippibátanna er löngu dauð, og ég bæti við: Ég gef ekkert fyrir ástarsögur og kertastjaka, þessi orð eru ef til vill þægileg í stuttar ferðir en þau verða vart sambærileg við stóru farþegaskipin, ég efast stórlega um að þau myndu fljóta á söltu vatni.
En þú faðmaðir mig, þetta hlaut að vera draumur og ég rataði bara alls ekki heim, jafnvel þótt ég reyndi að fylgja ljóskerunum eins og mér hafði verið kennt í bernsku. Ég ók bara eftir vegunum og hlustaði á útvarpið. Þar var verið að segja frá söngkonunni Patti Page, þeirri sem spurði svo eftirminnilega um verðið á hundinum sem gelti eins og langlegusjúklingur í glugganum, það var sagt að hún hefði í seinni tíð snúið sér að því að auglýsa pönnukökudeig – í hvert sinn sem sírópsdósin er opnuð heyrist söngur Pattíar Page og við verðum öll kát, sagði þulurinn, rámur eins og hann hefði gleypt heilan aðventukrans í maí eða svo sem eins og tvo kalkúna með kúlusveppum.
En María, ég er ekki beint kátur en það er heldur enginn hundur í mér og þegar ég byrja að hugsa dettur mér einna helst í hug hálf sokkið ankeri og draumarnir – ja, þú veist allt um þá og vötnin sem falla alla leið til Dýrafjarðar með viðkomu í sundlauginni á Seltjarnarnesi þar sem hvítt miðstéttarfólk viðrar krossfiskana sína á kvöldin. Ég veit að ár og vötn víða um heim eru oft þakin skipum í ýmsum stærðarflokkum, og ég veit að ég hefði viljað sigla á einu slíku hingað. Ég get heldur ekki neitað því að kirkjugarðar hafa alltaf heillað mig, einkum ef þeir koma fyrir í bókum, án þess að ég sé nokkuð að væflast þar í einhverri andskotans leiðslu að auglýsa rafhlöður eða grafskriftir á kvöldin – ég er fjandakornið ekki svo viðkvæmur – og enn síður að næturlagi, eftir að tunglið er komið á loft og starfsmenn 10-11 verslananna búnir að taka niður flöggin sem sveifla sér allan liðlangan daginn í vindinum eins og rokkstjörnur og segja fyrir örlög okkar. Allar götur frá því að ég fylgdist með pósthússtjóranum fara á milli leiða í garðinum heima hafa þeir heillað mig, legsteinarnir, eins og um væri að ræða ósóttar póstkröfur, stílaðar á fólk sem á varla heimangengt úr þessu og hlustar allan liðlangan daginn á rás eitt neðanjarðar – ég vissi það síðar að hann hafði misst konuna sína úr voveiflegum sjúkdómi, nafn hennar var þjált, það var þægilegt að bera það fram og auðvelt að muna sagði presturinn, hún var af erlendu bergi brotin þótt ég geti með engu móti munað það nú hvaðan hún var. Það er þannig sem fólkið fellur og deyr rænulaust og svo er einhver aleinn eftir á gíralausu reiðhjóli með flaggstöng upp úr bögglaberanum, ekki einu sinni með regnhlíf í snjókomunni og kannski skammt til jóla – ég finn til með slíku hjólreiðafólki og get ég þó alls ekki með nokkru móti talist viðkvæmari en gengur og gerist, ég efast til dæmis um að ég skæli oftar en hann Jóhannes hérna í kjallaranum, hann á hund sem er farinn að tapa heyrn en er engu að síður fullur af lífi, ég fylgist oft með hundinum þar sem hann hleypur um túnið eins og fjörkálfur að ólmast í köttunum og sá gamli haltrandi á eftir gólandi eitthvað út í loftið eins og línuvörður, algerlega utangátta, ég hef alltaf á tilfinningunni að hann sé nýkominn úr einhvers konar borgarastríði.
En María, af hverju kemurðu ekki, missir stjórn á skapi þínu eins og krossfiskur eða skjannahvít miðstéttarkona af Seltjarnarnesinu, kastar mér í höfnina – marhnútarnir þeir bíta á allt, jafnvel blýanta – þú getur svo híft mig aftur upp, votan af regni jarðarinnar, hárið eins og illa strekktur tjalddúkur, og síðan drekkurðu bara með mér eins og einn drykk í hverfinu Alfama? Ég veit ekkert um það hverfi. Komdu, ég er að verða ógæfulegur. Ég sit hér einn, ef ég sæist með lottómiða væri út um mig, ógæfan myndi umlykja mig eins og myrkrið umlykur ljóskerin á stígnum hérna fyrir utan gluggann, bráðum er fullt tungl, sjáðu hvernig geislar þess strjúka myrkrið með ósýnilegum fingrum.
En sjáðu rauðu húsþökin, María, og hvernig þau kyssa nóttina, sjáðu ána, sjáðu mig – ég fer um borgina, aleinn, eins og djöfull í klaustri og það rýkur upp úr hausnum á mér eins og ég sé í þann veginn að gera stóra uppgötvun: þarna er náunginn sem fann upp tunglið, segja viðstaddir, byggði þar hús úr múrsteinum, málaði það hvítt og setti á það skorstein, lagði símalínur yfir þver og endilöng höfin, fjarstýrði rottum í frístundum, fóðraði hrafna og ræktaði harðfisk og lök inni í gömlu hesthúsi, það snjóaði ógurlega, það var kalt ljós skömmu fyrir dögun, úlfaldalestin silaðist áfram í flæðarmálinu, Camel-pakki útreyktur í gluggakistunni. Spilastokkur? Nei, bara enn einn eirðarlaus vesalingurinn á glórulausri reisu og ekki einu sinni á reiðhjóli, með höfuðið fullt af bréfum frá stöðumælasjóði og seglskútum í léttum og hlýjum sólskinsvindi – þetta er blár Saab, blár eins og mjólkurferna eða næturhiminninn í júní, ljóðmæli eftir Vicente Aleixandre – núna er hún að þvo bílinn sinn, segir útvarpsþulurinn og það rýkur úr viðtækinu, ég er enn á heimleið, það er nóvember, mánuðurinn sem ég óttast að muni ganga af mér dauðum og hefur að vissu leyti gert það nú þegar með snjókornum úr himnarifflinum, ég er fæddur á ísjaka og alinn upp í spiladós og í hvítu lystihúsi innan í fótstignu orgeli, grindverkið rennur saman við öldurnar á hafinu sem við köllum bárur, grængolandi bylgjurnar falla upp á gráa fjöruna, þær hjaðna hljóðlega niður í heitan sandinn og væta hann. Ég er alinn upp í spiladós og hef horft á eftir mörgum sómamanninum hverfa fjarri öllu sólskini inn í náhvíta eilífðina, á snjósleða.
Veturinn kveður með regni. Regninu fylgir myrkur. Vorsólin verður til í þessu regni og í þessu myrkri. Það heldur áfram að rigna vegna þess að ég er dapur. Vorsólin verður til í þessari depurð. Veturinn hverfur með regni sem fellur mjúklega til jarðar og ofan í hafið. Margs er að minnast þegar rignir og með regninu verða tímamót.
Ég biðst afsökunar á þessu, María, það er haus á skrifborðinu mínu, hann veltir vöngum, hann safnar yfirvaraskeggi, hann heldur á karavellu, með gleraugu á nefinu, það eru eintómir fáráðlingar um borð. Það vorar, það birtir af degi. Orðin koma upp úr hausnum.
[Þetta er fyrri hluti fyrsta kafla Maríuklefans, eftir Eirík Guðmundsson. Benedikt gefur út, 2026.]
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.