Virði í stjórn­mála­starfi að gufa upp

Lestími: 5 mínútur

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn standa á krossgötum. Kynslóðaskipti hafa orðið í forystu Samfylkingarinnar sem er á mikilli siglingu eftir langa eyðimerkurgöngu. Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins tekur við flokki í tilvistarkreppu eftir 15 ára valdatíð Bjarna Benediktssonar. Rúmum áratug eftir upplausn fjórflokkakerfisins hefur orðið grundvallarbreyting á skipulagi íslenskra stjórnmála og eðli og hlutverki stjórnmálaflokka.  

1E1A8Alþingishúsið 6

Það hef­ur ver­ið lengi ver­ið sér­kenni ís­lenskra stjórn­mála hvað hægri væng­ur­inn hélst vel sam­an á með­an vinstr­ið var meira og minna tvístr­að í ára­tug­i. Nú er kom­inn klofn­ing­ur á hægri vængn­um og þeir ólíku hug­mynda­straum­ar sem áð­ur héld­ust all­ir sam­an í Sjálf­stæð­is­flokkn­um eiga sér nú málsvara í þrem­ur hægri flokk­um á Al­þing­i.

Þess­ar breyt­ing­ar á ís­lensku stjórn­mála­lands­lagi og staða meg­in­flokk­anna á vinstri og hægri vængj­um eru til um­ræðu í fyrstu stjórn­mála­grein­ingu Gímalds­ins sem birt­ist á morg­un, föstudag.

Tví­stíg­andi og óreynd í stjórn­ar­and­stöðu

Sjálf­stæð­is­menn velkj­ast ekki í nein­um vafa um erf­iða stöðu flokks­ins. Þeir sem rætt var við voru ein­læg­ir og op­in­ská­ir og aug­ljós­lega hugsi yf­ir stöð­unni og leit­andi um bæði skýr­ing­ar og lausn­ir. Þeim ber sam­an um tog­streitu í flokkn­um milli frjáls­lynd­is í anda Við­reisn­ar og íhalds­ins í Mið­flokkn­um. Gras­rót­in sé óþreyju­full en for­yst­an tví­stíg­and­i.

„Sum­ar­ið fór rosa­lega illa með okk­ur,” sagði einn við­mæl­andi úr þing­liði flokks­ins og vís­ar til mál­þófs sem flokk­ur­inn stóð fyr­ir langt fram á sum­ar. Það hafi skað­að ímynd flokks­ins. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var síð­ast í stjórn­ar­and­stöðu fyr­ir rúm­um ára­tug og flest­ir þing­menn flokks­ins reynslu­litl­ir á því svið­i.

Hirð Kristrún­ar held­ur fast um stjórn­ar­tauma

Eft­ir þrjú ár á for­manns­stóli Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og tæpt ár í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra telja flest­ir við­mæl­end­ur Gímalds­ins Kristrúnu Frosta­dótt­ur njóta trausts með­al flokks­fé­laga og eru al­mennt ánægð­ir með störf henn­ar út á við og gott gengi flokks­ins.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar hefur tekið flokkinn í nýjar hæðir eftir langa eyðimerkurgöngu.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar hefur tekið flokkinn í nýjar hæðir eftir langa eyðimerkurgöngu. Mynd/Jón Aðalsteinn

Öll­um ber þó sam­an um að for­mað­ur­inn og hirð henn­ar haldi fast um stjórn­ar­taumana og sum­um þyk­ir nóg um. Til að halda stjórn á flokks­starf­inu beiti hóp­ur­inn í kring um for­mann­inn ung­liða­hreyf­ingu flokks­ins, sem fjöl­menni á fundi og við­burði sem ætl­að­ir eru til lýð­ræð­is­legr­ar ákvarð­ana­töku gras­rót­ar­inn­ar.

Samtök frambjóðenda taki við keflinu

Flokk­arn­ir eru ekki leng­ur sömu fjölda­hreyf­ing­ar sem þeir eitt sinn vor­u, að sögn Ei­ríks Berg­manns pró­fess­or­s. „Þannig að öfl­ug­ir yf­ir­töku­hóp­ar geta bara náð yf­ir­töku­valdi á flokk­un­um,“ seg­ir hann.

„Í eina tíð var lit­ið á stjórn­mála­flokka, sem ekki bara sam­keppn­is­að­ila um að fá kosna fram­bjóð­end­ur inn í þing og sveit­ar­stjórn­ir held­ur líka sem lýð­ræð­is­leg­an vett­vang í sjálfu sér. Lýð­ræði væri ekki bara iðk­að í kosn­ing­um á fjög­urra ára fresti held­ur í alls­kon­ar sam­tali og fé­laga­sam­tök­um.“

Eiríkur Bergmann, prófessor í Stjórnmálafræði (Mynd/Bára Huld Beck)
Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði. Mynd/Bára Huld Beck

Þar hafi stjórn­mála­flokk­arn­ir ver­ið í lyk­il­hlut­verki sem lýð­ræð­is­leg­ur vett­vang­ur þar sem fólk kom sam­an, tókst á um hug­mynd­ir sín­ar, ræddi sig til nið­ur­stöð­u, mynd­aði banda­lög og þjálfað­ist til lýð­ræð­is­starfa. „Þetta var gríð­ar­lega mik­il­vægt og í raun grunn­ur­inn að hinu frjáls­lynda lýð­ræð­is­kerfi Vest­ur­landa. Þetta er mik­ið breytt nún­a,“ seg­ir Ei­rík­ur.

Upp hafi runn­ið tíma­bil þar sem gert var lít­ið úr starfi inn­an stjórn­mála­flokka. „Það var upp­nefnt þannig að fólk væri bara að raða stól­um til þess að fá þing­sæti að laun­um seinna. Þetta væru bara klík­ur og að sumu leyti hleg­ið út af borð­inu sem al­var­leg­ur vett­vang­ur.“

Ei­rík­ur seg­ir að þetta kerfi stjórn­mála­starfs í land­inu hafi byrj­að að brotna upp á eft­ir­hrunsár­un­um „þeg­ar fjór­flokk­ur­inn var skor­að­ur á hólm af nýj­um sam­tök­um fram­bjóð­enda,“ seg­ir hann. Í kjöl­far­ið hafi hið rót­gróna flokka­kerfi byrj­að að brotna. Virð­ið í öfl­ugu stjórn­mála­starfi inn­an flokk­anna gufi í raun­inni upp og við kefl­inu taki ný sam­tök fram­bjóð­enda und­ir for­ystu öfl­ugs leið­toga.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 24. desember, 2025, 13:30

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link