Áskrift
- Áskrift kostar 3.490 kr. á mánuði og fæst aðgangur að öllu útgefnu efni Gímaldsins gegn því gjaldi.
- Áskrift má segja upp hvenær sem er á „Mínum síðum“ eða með því að senda póst á [email protected].
- Við skráningu og greiðslu áskriftar hjá Gímaldið ehf. mun áskriftin þín halda áfram frá mánuði til mánaðar eða frá ári til árs þangað til henni er sagt upp af þér eða Gímaldinu.
- Segja þarf upp áskrift eigi síðar en degi áður en nýtt áskriftartímabil hefst. Áskriftartímabil telst hafið á þeim degi sem kaup áskriftar fara fram. Hefjist nýtt tímabil áður en uppsögn berst tekur uppsögnin gildi að því tímabili loknu. Áskriftartímabil er annað hvort mánuður eða ár.
- Með því að gerast áskrifandi fæst aðgangur að öllu efni sem birt er á gimaldid.is og notandi samþykkir að netfang sé skráð á póstlista Gímaldsins. Unnt er að afþakka póstsendingar hvenær sem er.
- Áskilinn er réttur til breytinga á áskriftarverði án fyrirvara en þær skulu tilkynntar í tölvupósti til áskrifenda.
- Áskilinn er réttur til breytinga á áskriftarskilmálum þessum. Breytingar skulu kynntar áskrifendum með að minnsta kosti eins mánaðar fyrirvara í tölvupósti. Kynnt skal í hverju breytingarnar felast og tryggt að réttur áskrifanda til þess að segja samningi upp án frekari fyrirvara vegna breytinganna sé skýr.
Stuðningur
- Þegar þú skráir þig í stuðningsmannaliðið ertu að samþykkja að veita stuðning við uppbyggingu Gímaldsins.
- Engar kvaðir fylgja því að ganga í stuðningsmannalið Gímaldsins. Um er að ræða frjáls framlög án þess að þjónusta eða vara komi á móti framlagi.
- Stuðningur við Gímaldið er óháður áskrift.
- Stuðningur við Gímaldið er stakt framlag og endurnýjast því ekki sjálfkrafa.
- Með því að veita stuðning í formi framlags samþykkir þú að netfang sé skráð á póstlista Gímaldsins. Unnt er að afþakka póstsendingar hvenær sem er.
Almennt
- Gímaldið ehf. áskilur sér einhliða rétt til þess að segja upp eða takmarka notkun notenda á þjónustunni ef Gímaldið hefur ástæðu til þess að ætla að notandi hafi brotið gegn skilmálum Gímaldsins og/eða gildandi lögum, reglum og reglugerðum. Þetta á einnig við ef þjónustan er notuð á sviksamlegan hátt eða á þann veg að það geti valdið Gímaldinu eða þriðja aðila tjóni.
- Áskriftarskilmálar þessir gilda frá 7. október 2025
- Ágreiningsmál vegna þessara skilmála skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.