Um Gímaldið

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Á Gímaldinu birtast fréttaskýringar, dýpri greiningar og vönduð hlaðvörp auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin. 

Við gerðum kynningu á Gímaldinu sem má fletta með því að smella hér að neðan. Upplýsingar flæða fram og við höfum aðgengi að öllum mögulegum og ómögulegum fréttum, en það þýðir ekki endilega að við séum upplýst. Gímaldið vill reyna að vera lausn við upplýsingaþreytu og veita skýringar af yfirvegun í stað þess að bæta við upphrópunum. Við höfum trú á því að hægt sé að byggja upp vandaðan fjölmiðil, en það gerist ekki án áskrifenda. Vertu með!

Af hverju nafnið Gímaldið?

Gímald þýðir rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál. Þá komst orðið gímald nýverið í almenna notkun í tengslum við áberandi fréttamál. Tengingin við það sem er efst á baugi býr þannig í því.

Aðstandendur Gímaldsins

Erla Hlynsdóttir

Um Erlu

Erla Hlynsdóttir hóf störf sem blaðamaður árið 2007 á DV og hefur síðan unnið til að mynda á Heimildinni, Vísir.is, Stöð 2, og Bylgjunni auk þess að ritstýra bæjarblöðum. Erla var einnig fréttastjóri og síðar aðstoðarritstjóri DV, og veffréttastjóri Heimildarinnar.

Erla hefur þrisvar verið tilnefnd til Blaðamannaverðlauna Íslands, annars vegar fyrir rannsóknarblaðamennsku vegna skrifa um eftirlaunafrumvarp þingmanna og hins vegar fyrir viðtal ársins vegna viðtals við Elísabetu Ronaldsdóttur um ofbeldi í nánu sambandi og viðtal við Agnesi M. Sigurðardóttur fyrrverandi biskup Íslands.

Hún er með BA-gráðu í félags- og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og leggur stund á meistaranám í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun við Háskólann á Bifröst. Hún hefur einnig lokið námslínunni Stafræn markaðssetning og viðskipti á netinu í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík.

Erla er einnig þekkt fyrir að hafa í þrígang lagt íslenska ríkið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu þar sem tekist var á um tjáningarfrelsi. Vegna baráttu sinnar fyrir tjáningarfrelsi fékk hún húmanistaviðurkenningu frá Siðmennt og hugrekkisviðurkenningu frá Stígamótum.

Árið 2021 kom út bókin 11.000 volt – þroskasaga Guðmundar Felix, sem Erla skrifaði. Hún var ennfremur hluti af teyminu á bak við Stóru brauðtertubókina sem kom út 2024.

Eyrún Magnúsdóttir

Um Eyrúnu

Eyrún hefur starfað við fjölmiðla meira og minna frá 2001 þegar hún gerðist sumarstarfsmaður á Viðskiptablaði Morgunblaðsins. Undanfarin ár hefur hún verið sjálfstætt starfandi og meðal annars framleitt hlaðvarpsþætti fyrir RÚV um gervigreind. Áður gegndi hún stöðu framkvæmdastjóra Kjarnans, ritstýrði Sunnudagsblaði Morgunblaðsins og var þáttastjórnandi í Kastljósi á RÚV. Auk fjölmiðlastarfa hefur Eyrún unnið sem ráðgjafi og sinnt stefnumótun, markaðs- og útgáfumálum og verkefnastjórnun. Hún er með BA-gráðu í hagfræði og sagnfræði og meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands, auk náms í gagnablaðamennsku við Columbia-háskóla í New York.

Aðalheiður Ámundadóttir

Um Aðalheiði

Aðalheiður er reyndur blaðamaður sem starfaði árum saman á Fréttablaðinu þar sem hún gegndi meðal annars stöðu fréttastjóra. Hún er þekkt fyrir ítarlegar fréttaskýringar um dómsmál og Mannréttindadómstól Evrópu og hlaut blaðamannaverðlaun fyrir umfjöllun sína um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Aðalheiður hefur einnig verið tilnefnd í flokki rannsóknarblaðamennsku og er vel kunn fyrir fréttir og greiningar á sviði stjórnmála. Aðalheiður er menntaður lögfræðingur og hefur auk þess starfað við kennslu og rannsóknir í lögfræði, unnið á Alþingi og tekið þátt í ýmsum nefndarstörfum á sviði stjórnarskrár-, tjáningar- og upplýsingafrelsis.

Georg Gylfason

Um Georg

Georg hefur starfað við blaðamennsku um árabil, á Fréttablaðinu og síðan Heimildinni. Hann hefur einkum fjallað um efnahagsmál, menntamál og stjórnmál, og er þekktur fyrir upplýsandi og gagnrýnin skrif. Georg hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði fréttaskrifa og rannsóknarblaðamennsku og starfar sem lausapenni hjá Gímaldinu. Hann er sagnfræðimenntaður frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í hagsögu frá London School of Economics and Political Science.

Helga Arnardóttir

Um Helgu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link