
Þingmaðurinn Víðir Reynisson hefur víðtæka reynslu á sviði almannavarna og þjóðaröryggis. Hann ræðir við Gímaldið um viðbúnað á Íslandi ef til stríðsátaka kæmi og um nýja stefnu í öryggis og varnarmálum.

Meðal þingmála sem verða til umræðu á Alþingi nú á vorþingi er stefna utanríkisráðherra í öryggis- og varnarmálum. Ráðherra mælti fyrir stefnunni í haust og var henni svo vísað til meðferðar í utanríkismálanefnd þingsins. Fjöldi gesta hefur komið fyrir nefndina til að ræða á þriðja tug umsagna sem borist hafa um stefnuna.
Gímaldið rýndi í stefnuna og umsagnir sem bárust utanríkismálanefnd og ræddi við Víði Reynisson alþingismann um áskoranir og viðbúnað sem efla þarf innanlands.

Víðir starfaði við almannavarnir í rúma tvo áratugi áður en hann tók sæti á þingi, síðast sem sviðsstjóri almannavarna hjá embætti ríkislögreglustjóra. Þá hefur hann setið í almannavarnanefnd ESB og verið formaður vinnuhóps EFTA um almannavarnir ásamt því að hafa setið í fjölda nefnda og ráða hins opinbera um almannavarnir og öryggismál.
Víðir bendir á að þegar fyrstu almannavarnalög voru sett hér á landi árið 1962 hafi þau nær alfarið verið miðuð út frá hernaðarógn fyrstu árin, enda hafi Kalda stríðið, Kúbudeilan og kjarnorkuógn verið hluti af veruleika þess tíma. Það hafi ekki verið fyrr en árið 1967 að kafli um náttúruhamfarir var tekinn inn í lögin, en mest hefur reynt á þann hluta undanfarna áratugi.
„En það er alveg ljóst að síðustu misserin hefur orðið gjörbreyting á því hvernig við þurfum að hugsa þetta og það hefur verið reynt að endurspegla það í samstarfi stofnana og skipulagi mála. Þessi stefna á að vera vegvísir í því hvernig við höldum áfram með þau verkefni og jafnvel tökum upp ný sem, sem endurspeglar bara þá þörf okkar að geta brugðist við mismunandi aðstöðu í heiminum hverju sinni.“
Viðtalið við Víði Reynisson má hlýða á í heild sinni í spilara að ofan og það er einnig aðgengilegt á helstu hlaðvarpsveitum.
Öryggis- og varnarmál hefa sjaldan verið til jafnmikillar umræðu og undanfarna daga, í kjölfar innrásar Bandaríkjastjórnar í Venesúela og spurningar hafa vaknað um framtíð Atlandshafsbandalagsins (NATO) þegar öflugasta ríki bandalagsins hefur yfirtöku Grænlands í flimtingum.
Utanríkisráðherra hefur hins vegar hvergi hvikað í þeirri afstöðu að aðild að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin séu meginstoðir í öryggis- og varnarstefnu Íslands. Þessi afstaða er einnig mjög skýr í þeirri stefnu sem til meðferðar er í þinginu.

Hins vegar er ljóst að mikil og aukin áhersla er orðin á þátttöku Íslands í svæðisbundnu samstarfi um varnar- og öryggismál við nágrannaríki, önnur Evrópuríki og Kanada. Nokkrar ástæður eru fyrir stóraukinni áherslu á varnarmál bæði á Íslandi og í Evrópu. Fyrst er að nefna landvinningastríð sem geisar í álfunni og aðrar ógnir sem taldar eru stafa af Rússlandi. Nýjar áherslur Bandaríkjastjórnar hafa þó einnig áhrif. Annars vegar kröfur hennar, sem öflugasta aðildarríkis NATO, um jafnari byrðar allra bandalagsríkja en hins vegar hlýtur óvissa um vegferð þarlendra stjórnvalda í utanríkismálum að hafa áhrif. Gildir einu hvort litið er til breyttra áherslna í milliríkjaviðskiptum eða breytinga sem orðið hafa á viðhorfum Bandaríkjastjórnar til vestrænnar samvinnu almennt á undanförnum misserum.
Ákvörðun leiðtoga allra aðildarríkja NATO síðastliðið sumar um stóraukin fjárframlög til varnarmála og varnartengdra verkefna, á án efa sinn þátt í að ráðist var í mótun íslenskrar stefnu á sviði öryggis- og varnarmála.
Sem herlaust land er Ísland undanþegið kröfu um bein framlög til varnarmála en það mun þurfa að mæta kröfu um framlag sem samsvarar 1,5 prósenti af vergri landsframleiðslu til varnartengdra verkefna.
Þau verkefni sem ráðast þarf í samkvæmt stefnunni varða annars vegar eflingu innlends viðbúnaðar og getu landsins til að takast á við mögulegar hernaðarógnir og hins vegar aukna ábyrgð Íslands í samstarfi við NATO og önnur samstarfsríki.
Í stefnunni segir að framlag Íslands til sameiginlegra varna bandalagsríkja taki ekki síst mið af landfræðilegri legu landsins. Ísland hafi með höndum rekstur ratsjárkerfis og annarra varnartengdra innviða og veiti gistiríkjastuðning þegar önnur aðildarríki hafi viðveru á Íslandi til dæmis í tengslum við loftrýmisgæslu, kafbátaleit og æfingar.
Af stefnunni má sjá mjög aukinn vilja Íslands til að efla þrótt sinn sem gistiríki bæði vegna fyrirbyggjandi aðgerða á borð við eftirlit og æfingar en einnig ef kæmi til viðveru herliðs á landinu vegna stríðsátaka.
Aukin þátttaka Íslands í æfingum með samstarfsríkjum á varnarsvæði Íslands er liður í stefnunni. Þátttaka í æfingum stuðli ekki eingöngu að aukinni þekkingu og þjálfun innlendra aðila heldur aukist með slíkum æfingum þekking samstarfsríkja á íslenskum aðstæðum og varnarumhverfi Íslands.
Með virkri þátttöku stjórnvalda og innlendra viðbragðsaðila reyni einnig á samspil hernaðarlegra þátta, vernd borgara og ákvarðanatöku stjórnvalda.
Til að Ísland geti byggt varnir sínar á eigin forsendum, þarf að auka getuna, eins og það er orðað í skýrslunni. Í því felst meðal annars fjárfesting í mannauði til að skapa forsendur til sjálfstæðrar og upplýstrar ákvarðanatöku stjórnvalda á sviði varnarmála. Efla þurfi landhelgisgæsluna og lögregluna sem þurfi að geta brugðist við öryggisógnum, sinnt greiningum, komið sér upp nauðsynlegum tæknibúnaði og eflt tækniþekkingu sína, verndað mikilvæga innviði og fleira. Að sama skapi þurfi að styrkja starfsemi netöryggissveitarinnar og tryggja virkari vöktun og viðbragð gagnvart alvarlegum netógnum.
Ísland hefur sérstökum skyldum að gegna gagnvart NATO en gefin hafa verið út getumarkmið fyrir öll bandalagsríkin. Þau eru hernaðarlegar lágmarkskröfur bandalagsins alls. Dæmi um getumarkmið Íslands er að tryggja eldsneytisbirgðir er geta nýst jafnt í borgaralegum sem hernaðarlegum tilgangi og uppbygging á aðstöðu til að geta tekið á móti herafla bandalagsríkja vegna loftrýmisgæslu og varnaræfinga.
Á Íslandi er ekki starfrækt öryggisstofnun sem hefur það hlutverk að afla og greina upplýsingar um hernaðarlega ógn. Í greinargerð með stefnunni segir að þetta geti torveldað samvinnu við erlend ríki sem vilja eiga í upplýsingaskiptum við íslensk stjórnvöld og þannig grafið undan getu stjórnvalda og lýðræðislega kjörinna fulltrúa til að taka upplýstar ákvarðanir um varnar og öryggismál.
Í stefnunni er lögð áhersla á úrbætur í þessum efnum. Styrkja þurfi upplýsingaöflun og getu til að miðla gögnum og upplýsingum samhliða því að styrkja getu íslenskra stjórnvalda til að samþætta og greina með virkum og heildstæðum hætti þau gögn sem safnað er á Íslandi. Slík vinna gagnist ekki aðeins á Íslandi heldur einnig öðrum bandalagsríkjum.
Töluvert er vikið að greiningargetu í umsögnum um stefnuna. Erlingur Erlingsson bendir á í sinni umsögn að þótt hvorki sé ráðlegt né nauðsynlegt að stofna her í landinu sé „mikilvægt og áríðandi að efla innlenda getu til þess að afla upplýsinga er varða öryggi ríkisins, greina þær og móta stefnu og viðbragð á sviði öryggis- og varnarmála á grundvelli þeirra.”

Víðir Reynisson tekur í sama streng í samtali við Gímaldið. Hér sé ekki verið að leggja til að leyniþjónustu verði komið á laggirnar. Greiningarvinna fari nú þegar fram, til að mynda hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra og ekki víst að það þurfi sérstaka lagabreytingu eða auknar heimildir til að efla það starf. „En aftur á móti þarf að auka getuna og samstarf við aðra til þess að við getum gert okkar sjálfstæðu greiningar á þeim ógnum sem við teljum að standi að okkur.“ Víðir bendir á að þetta sé eitt af því sem auknar fjárveitingar í varnartengd verkefni nái yfir, að ríkin hafi getu til þess að leggja sjálfstætt mat á þá hættu sem að þeim steðjar og hvernig þau bregðast við.
Öflugt áfallaþol hefur mikinn fælingarmátt. „Ólíklegra er að samfélag sem býr yfir miklu áfallaþoli hafi veikleika sem mögulegir andstæðingar geti nýtt sér,” segir í greinargerð með stefnunni. Af þessu leiði að áfallaþol borgaralegra innviða, auðlinda og samfélagslega mikilvægrar þjónustu sé fyrsta varnarlína hvers samfélags.
Áfallaþol samfélags er í rauninni mælikvarði á hvort og hversu vel samfélag getur fúnkerað þrátt fyrir áföll og jafnvel stríðsátök. Með eflingu þess megi tryggja að ekki verði rof á mikilvægri samfélagsþjónustu, fjarskiptum og samgöngum. Vatns og fæðuöryggi þurfi einnig að tryggja og aðgengi að orku. Þá þurfi heilbrigðiskerfið að hafa getu til að takast á við meiriháttar manntjón og heilbrigðisáföll og innviðir og áætlanir um skyndilega fólksflutninga að vera til staðar.
Styrking almannavarnakerfisins er einnig þáttur í áfallaþoli, en það þarf að geta tekist á við hvers kyns áföll sem ógna eða kunna að ógna lífi og heilsu almennings, umhverfi eða eignum. Sömuleiðis þurfi að styrkja samfélagslega innviði eins og sýnilega löggæslu og aðra nærþjónustu.
Innan Atlantshafsbandalagsins hafa verið lögð fram sjö grunnviðmið um áfallaþol sem ríkin hafa sammælst um að innleiða sem aftur styrkir sameiginlegt öryggi og varnir. Á grundvelli þessara viðmiða hafa bandalagsríkin verið hvött til að móta eigin stefnu með markmiðum og aðgerðum sem styrkja áfallaþol samfélagsins. Vinna í þessa veru stendur nú yfir hjá íslenskum stjórnvöldum og tekur sú vinna meðal annars til samgönguinnviða, fjarskiptainnviða, orkuinnviða, fæðuaðfanga og heilbrigðisþjónustu.
Í kafla stefnunnar um áfallaþol er einnig vikið að aðstöðu fyrir erlendan herafla. Fyrir hendi þurfi að vera birgðir, neyðarskýli og allskyns búnaður. Með hliðsjón af því að þessi aðstaða er einkum staðsett á Reykjanesi þurfi að horfa til þess hvort innviðir kunni að vera í hættu vegna náttúruhamfara, skemmdarverka eða átaka.
Í stefnunni er sérstaklega vikið að mikilvægi rannsókna, fræðslu, upplýsingamiðlun til almennings og opinnar umræðu í samfélaginu um öryggis- og varnarmál.
Upplýsingaóreiðuherferðir eru ein birtingarmynd fjölþáttaógna. Lögð er áhersla á viðnám gegn þeim og varnir „gegn erlendri íhlutun í lýðræðislega ferla og tilraunum til að hafa áhrif á þjóðfélagsumræðu.” Fjölmiðlar eru þó ekki nefndir í stefnunni. Aðspurður segir Víðir mikilvægt að velta fyrir sér hlutverki fjölmiðla á þessu málefnasviði enda skipti upplýsingagjöf stjórnvalda til almennings miklu máli á krísutímum.
Íslenskir fjölmiðlar hafa ekki mikla reynslu af umfjöllun um öryggis- og varnarmál og kúltúr í kringum öflun og meðferð viðkvæmra upplýsinga á þessu sviði langt frá því eins þróaður og víða annars staðar.
Víðir segir íslenska stjórnmálamenn í svipaðri stöðu. Ráðherrar og þingmenn séu varkárir og jafnvel of varkárir í samskiptum við fjölmiðla af því þeir vita ekki hversu langt þeir mega ganga í upplýsingagjöf. Mikilvægt sé að samtal um þetta verði tekið og þekkingar aflað sem nýst gæti bæði fjölmiðlum, stjórnmálamönnum og stjórnsýslunni og orðið til þess að efla traust samskipti um þessi mál.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.