
Hlutfall erlendra ríkisborgara sem sættu ákæru vegna brota gegn almennum hegningarlögum árið 2023 var 25,5 prósent, en ekki 34,2 prósent líkt og segir í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn þingmanns. Um er að ræða reiknivillu í einföldum prósentureikningi.

Í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá þingmanni Sjálfstæðisflokksins, Diljá Mist Einarsdóttur, um hlutfall erlendra ríkisborgara sem hafa sætt ákæru hér á landi eru mistök í prósentureikningi. Hlutfall erlendra ríkisborgara sem sættu ákæru vegna almennra hegningarlaga árið 2023 er sagt vera 34,2 prósent. Miðað við uppgefnar tölur um fjölda má hins vegar sjá að hlutfallið er 25,5 prósent.
Í fyrirspurninni frá Diljá Mist er spurt um hve margir einstaklingar með erlent ríkisfang hafi verið ákærðir á hverju ári árin 2019-2024, sundurliðað eftir tegund brota og þjóðerni. Brotum er skipt niður í fjóra flokka: brot gegn almennum hegningarlögum, brot gegn umferðarlögum, brot gegn ávana- og fíkniefnalögum og brot gegn sérrefsilögum. Í svari ráðherra er fjöldi ákærðra talinn upp fyrir hvern brotaflokk fyrir hvert ár og skipt niður í fjölda erlendra ríkisborgara, fjölda íslenskra ríkisborgara og svo hlutfall erlendra ríkisborgara.
Jafnan hluti/heild=prósenta virðist hafa skolast til í meðförum ráðuneytisins á gögnunum. Villan felst í því að nota fjölda útlendinga deilt með fjölda Íslendinga, í stað þess að deila með heildarfjölda eins og kennt er í grunnskólastærðfræði. Svo virðist sem villan sé aðeins á þessum eina stað í svarinu.

Til að reikna út hlutfall erlendra ríkisborgara sem brutu gegn almennum hegningarlögum á árinu 2023 ætti að nota jöfnuna 228/(228+667)=0,255 sem gerir 25,5 prósent.
Í svari dómsmálaráðherra virðist hins vegar sem hlutfall erlendra ríkisborgara af íslenskum ríkisborgurum hafi verið reiknað í þessu tilviki og jafnan sem notuð var hafi verið einfaldlega 228/667=0,342 eða 34,2 prósent. Sú tala er því röng.
Dómsmálaráðuneytið staðfestir við Gímaldið að um mannleg mistök sé að ræða. Fjöldatölur séu réttar en að útreikningur á prósentu í þessu tilviki sé rangur. Alþingi muni leiðrétta svarið og birta hið rétta.

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.