Ungar konur notaðar sem ódýrt vinnuafl: Hætta á misneytingu í au pair-kerfinu

Lestími: 8 mínútur

Au pair frá Filippseyjum koma til Íslands á forsendum menningarskipta en enda á heimilum án verndar. Í lokuðum Facebook-hópi gestgjafafjölskyldna auglýsir fólk opinskátt eftir au pair annarra til að þrífa og gæta barna. Saga Kjartansdóttir hjá ASÍ segir skýr merki um misnotkun á kerfinu.

Skýr merki eru um að vistráðningarkerfið á Íslandi sé í reynd notað til að útvega ódýrt vinnuafl. Þetta segir Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá Alþýðusambandi Íslands. Hún hefur deilt skjáskotum úr Facebook-hópi gestgjafafjölskyldna með Gímaldinu sem hún telur varpa ljósi á hvernig kerfið er misnotað. Ungu konurnar, einkum frá Filippseyjum, séu háðar gestgjafafjölskyldum sínum, án verndar stéttarfélaga og nánast engum möguleikum á að leita réttar síns. „Við erum ekki að sjá nema toppinn á ísjakanum,“ segir Saga og telur tímabært að stjórnvöld skoði hvort kerfið eigi yfir höfuð rétt á sér.

Skjáskot

Standa utan allra kerfa

Vistráðningakerfið, eða au pair-kerfið eins og það er almennt þekkt, er byggt á hugmyndinni um menningarskipti. Ungt fólk kemur til landsins, býr hjá íslenskri fjölskyldu, sinnir léttum heimilisstörfum og kynnist menningu og tungumáli. Í staðinn fær viðkomandi fæði, húsnæði og vasapeninga. Samkvæmt Starfsgreinasambandi Íslands er lágmarksfjárhæð vasapeninga 15 þúsund krónur á viku. Au pair vist fylgir ekki atvinnuleyfi, og dvalarleyfi þeirra er skilgreint sem námsmannaleyfi.

„Þetta er ekki skilgreint sem vinna og þetta á ekki að vera vinna,“ segir Saga í samtali við Gímaldið. „En það er alveg greinilegt að fjölskyldur eru að nýta þetta til þess að leysa umönnunarvanda, til þess að létta undir á heimilinu.“

Verkalýðshreyfingin hefur takmarkaða aðkomu að málum au pair-stúlkna á Íslandi. Þær eru ekki hluti af íslenskum vinnumarkaði í formlegum skilningi, eru ekki í stéttarfélagi og njóta ekki þeirrar verndar sem íslenskir kjarasamningar veita. Saga segir að ef kvartanir komi upp eigi þær samkvæmt ferlinu að fara til Útlendingastofnunar en hún telur ólíklegt að þær leiti þangað. „Það þarf ansi mikið til og við vitum að fólk í þessari stöðu er ólíklegt til að kvarta yfir fjölskyldunni sem það býr inn á og á vist sína í landinu undir.“

Vísbendingar á samfélagsmiðlum

Skjáskotin sem Saga deildi með Gímaldinu eru úr lokuðum Facebook-hópi sem gestgjafafjölskyldur á Íslandi nota til samskipta sín á milli. Þar auglýsir fólk eftir aðstoð au pair annarra fjölskyldna, spyr hvort þeirra au pair sé til í að koma og þrífa eða gæta barna á öðru heimili gegn aukapeningi. Saga segir þetta varpa ljósi á hvernig sumt fólk umgengst kerfið og þá eftirspurn sem er til staðar.

Skjáskot

Saga lýsir einnig dæmi um að tvær fjölskyldur hafi deilt einni au pair. Stúlkan var á öðru heimilinu aðra vikuna og á hinu heimilinu hina. Ástæðan var vaktavinna annars gestgjafans sem þurfti umönnun heima á ákveðnum dögum en ekki öðrum.

„Þetta eru allt dæmi um að það sé verið að misnota kerfið,“ segir Saga. Reglurnar séu skýrar; au pair eigi ekki að vinna utan heimilisins, eigi aðeins að sinna léttum heimilisstörfum og barnagæslu og megi að hámarki vinna 30 klukkustundir á viku.

Skjáskot

Hún segir sumar au pair-stúlkur jafnvel drýgja tekjur sínar, vasapeningana, með því að þrífa heima hjá öðrum fjölskyldum, sem Saga bendir á að sé svört og ólögleg vinna. Hins vegar sé ljóst að það sé bæði eftirspurn hjá fjölskyldum sem leita eftir þessu, og au-pair stúlkurnar sjái þarna tækifæri til að afla tekna. „Það er líka alltaf mikilvægt að benda á okkar ábyrgð sem samfélags,“ segir Saga, og vísar til þeirrar ábyrgðar að íslenskar fjölskyldur nýti sér ódýrt og óverndað vinnuafl.

Valdaójafnvægi og varnarleysi

Vandinn er að mati Sögu fólginn í valdaójafnvæginu. Au pair frá löndum utan Evrópu þurfa dvalarleyfi sem er bundið við gestgjafafjölskylduna. Húsnæði þeirra, fæði, vasapeningar, allt er á hendi fjölskyldunnar, og dvöl þeirra í landinu er alfarið háð samningnum.

„Þegar þú ert komin með þessa valdadýnamík og þessa stöðu, þetta varnarleysi, að þá er þetta bara orðið svo miklu alvarlegra og hættan á alvarlegri misneytingu bara mun meiri,“ segir Saga.

Skjáskot

Saga bendir á mikilvægan greinarmun á stöðu au pair-stúlkna. Þegar þær komu áður fyrst og fremst frá Þýskalandi eða öðrum Evrópulöndum var staðan önnur, þær höfðu ríkari rétt til farar og dvalar og voru síður háðar gestgjafafjölskyldunni. Saga segir verkalýðshreyfinguna ekki hafa verið hrifna af kerfinu þá heldur, en þegar um er að ræða filippeyskar stúlkur sem hafa búið við fátækt séu þær mun berskjaldaðri. 

Látin gista í geymslu

Þau tilvik sem hafa ratað í opinbera umfjöllun staðfesta áhyggjur Sögu. Árið 2022 felldi kærunefnd útlendingamála úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli ungrar konu frá Filippseyjum sem hafði starfað sem au pair hjá íslenskri fjölskyldu. Konan lýsti óviðunandi aðstæðum; hún hafði meðal annars verið látin gista í lítilli geymslu með bráðabirgðatjaldi í stað hurðar og vinnuframlagið var langt umfram það sem samningur gerði ráð fyrir. Þegar hún kvartaði voru henni gefnir úrslitakostir; að sætta sig við aðstæðurnar eða fara af heimilinu tafarlaust og endurgreiða allan kostnað. Hún fór, og Útlendingastofnun afturkallaði dvalarleyfi hennar. Kærunefndin sneri þeirri ákvörðun við og taldi hana ólögmæta, en málið varpaði ljósi á kerfi þar sem eftirlitið var nánast ekkert.

Í kjölfarið hóf dómsmálaráðuneytið skoðun á eftirlitsheimildum og árið 2023 var lögunum breytt. Nú er Útlendingastofnun heimilt að fela sérstökum aðilum að hafa eftirlit með vistráðningum, þar á meðal með óboðuðu eftirliti á heimilum. Saga hefur hins vegar efasemdir um hvort það dugi þar sem ekkert reglulegt eftirlit sé til staðar í raun.

Þá bendir hún á að gestgjafafjölskyldan sé ekki skyldug til að greiða íslenskunámskeið, þrátt fyrir að kerfið sé formlega byggt á hugmyndinni um menningarskipti, og vasapeningarnir dugi heldur ekki til slíks. 

Skjáskot

Breytingar í Noregi

Saga vísar ítrekað til Noregs þar sem sambærileg vandamál komu upp og voru vel skjalfest. NRK Brennpunkt heimildarmyndin „Herskap og tenarar“, sem þýða má sem Herrar og þjónar, frá 2014 sýndi hvernig au pair-stúlkum frá Filippseyjum var þrælað út á norskum heimilum. Könnun meðal au pair-stúlkna í Noregi leiddi í ljós að þriðjungur vann meira en leyfilegar 30 stundir á viku, fimmtungur vann meira en átta tíma á dag og ein af hverjum tíu vann alla daga vikunnar.

Norsk yfirvöld hættu að lokum að gefa út sérstök dvalarleyfi vegna vistráðninga frá löndum utan EES-svæðisins. Saga segir röksemdina hafa verið skýra; yfirvöld gátu ekki tryggt öryggi au pair inni á heimilum fólks og ákváðu því að hætta að gefa út leyfin.

Skjáskot

„Þetta er inni á heimilum fólks, það er afskaplega erfitt að hafa nægilegt eftirlit með þeirra kjörum,“ segir hún.

Saga segir að á Íslandi hafi orðið sams konar þróun og áður í Noregi, aukin eftirspurn eftir filippeyskum au pair sem sjái tækifæri til tekjuöflunar og sendi peninga heim til fjölskyldna sinna, og jafnframt vaxandi eftirspurn frá íslenskum fjölskyldum sem vilji ódýra lausn á umönnunarvanda. 

Atvinnuleyfi í stað vistráðningar

Saga segir verkalýðshreyfinguna ekki krefjast þess að ungu fólki sé meinað að koma til Íslands, en ef vilji sé til þess að bjóða ungmennum tækifæri til dvalar og vinnu verði að gera það með réttum hætti. „Ef það er vilji stjórnvalda til þess að gefa ungmennum tækifæri til að koma til Íslands og vinna, þá er alveg hægt að gera það bara með atvinnuleyfum,“ segir Saga. „Af því að þegar þú ert á atvinnuleyfi þá hefurðu ákveðna vernd, þá þarf að greiða þér samkvæmt kjarasamningum. Þú getur verið í stéttarfélagi.“

Skjáskot

Hún ber kerfið saman við gamla vinnukonukerfið á Íslandi, þar sem konur fengu herbergi og smá pening fyrir heimilisstörf. „Ég sé ekkert mikinn mun þarna á,“ segir hún.

Saga segir fulla ástæðu til að stjórnvöld taki málið til alvarlegrar skoðunar eins og gert var í Noregi. Þetta sé orðið vinnumarkaðsmál og verkalýðshreyfingin láti sig það varða. „Það er verið að misnota leyfi sem eru ekki ætluð fyrir vinnu,“ segir hún.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 4. mars, 2026, 10:47

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link