Hver á að fara með ruslið? ­– Kostn­að­ur við út­vist­un van­met­inn og eft­ir­liti ábóta­vant

Lestími: 12 mínútur

Hvaða flokk­ar vilja fela einka­að­il­um verk­efni borg­ar­inn­ar og hvaða flokk­ar vilja að borg­in vinni öll verk sjálf? Kostn­að­ur við út­vist­un verk­efna er oft van­met­inn og eft­ir­liti ábóta­vant, seg­ir pró­fess­or í stjórn­mála­fræð­i. Hún seg­ir of lít­ið vit­að um þessa leið í op­in­ber­um rekstri.

Hver á að vinna verk­efni Reykja­vík­ur­borg­ar og veita borg­ar­bú­um þá þjón­ustu sem þeim ber? Flokk­arn­ir sem bjóða fram í Reykja­vík hafa mjög skipt­ar skoð­an­ir á því hvort fela eigi einka­að­il­um fram­kvæmd verk­efna borg­ar­inn­ar.

Sorp­hirða, snjó­mokst­ur, við­hald á veg­um, rekst­ur skóla og jafn­vel verk­efni tengd skipu­lag­i, bygg­ing­ar­eft­ir­liti og heil­brigð­is­eft­ir­lit­i; allt eru þetta verk­efni sem til greina kem­ur að einka­að­il­ar taki að sér gegn greiðslu frá Reykja­vík­ur­borg. Hægri flokk­arn­ir vilja fara þessa leið á ýms­um svið­um en vinstriflokk­arn­ir eru því mjög mót­falln­ir.

Af hverju leggja flokk­arn­ir þetta til, hverj­ir eru kost­ir út­vist­un­ar og hvað ber að varast? Fjall­að er um mál­ið í kosn­inga­þætti Gímalds­ins, Börn og bíla­stæð­i. Stefn­ur flokk­anna eru reif­að­ar og rætt við Evu Mar­ín Hlyns­dótt­ur, pró­fess­or í stjórn­mála­fræði við Há­skóla Ís­lands, en hún hef­ur sér­hæft sig á sveit­ar­stjórn­ar­stig­in­u.

Hér fyr­ir neð­an er að­eins fjall­að um brot af efni þátt­ar­ins en hægt er að hlusta á hann í spil­ar­an­um hér að ofan og á öll­um helstu hlað­varpsveit­u­m.

Lít­il yf­ir­sýn og eft­ir­lit ekki nógu gott

„Við höf­um mjög litla yf­ir­sýn yf­ir þessa stöðu á Ís­landi og vit­um í raun­inni allt of lít­ið um það hvaða verk­efn­um er út­vi­stað, hvern­ig þeim er fylgt út­vi­st­uð og hvern­ig þeim er fylgt eft­ir,“ seg­ir Eva Mar­ín. Hún seg­ir skorta á yf­ir­sýn yf­ir þenn­an þátt í rekstri sveit­ar­fé­lag­anna. „Sem er dá­lít­ið sér­stakt vegna þess að þarna eru nátt­úru­lega ansi mikl­ir pen­ing­ar í spil­inu og við í raun­inni þyrft­um að hafa miklu betri yf­ir­sýn yf­ir þessi mál,” seg­ir hún.

Eva Mar­ín seg­ir hag­kvæmni eina helstu ástæðu þess að verk­efn­um sé út­vi­stað. Hún tek­ur snjó­mokst­ur sem dæmi, sem krefst mik­ils tækja­kosts auk þess sem álag­ið sé ófyr­ir­sjá­an­leg­t. Einka­að­il­inn eigi þá tæk­in, sjái um við­hald, starfs­manna­hald, geymslu tækj­anna og ann­að sem þeim fylg­i.

Al­gengt er að snjó­mokstri sé út­vi­stað hjá sveit­ar­fé­lög­um. MYND/Ró­bert Reyn­is­son/Reykja­vík­ur­borg.

Eva Mar­ín bend­ir líka á að minnstu sveit­ar­fé­lög­in hafi ekki bol­magn til að sinna öll­um verk­efn­um og fari því oft þá leið að semja við einka­að­ila eða ná­granna­sveit­ar­fé­lög um fram­kvæmd þeirra.

Eva Mar­ín var­ar við því að verk­efn­um sé út­vi­stað í því skyni að spara pen­inga eða til að ein­falda stjórn­sýsl­una. Því með út­vist­un verk­efna þurfi að efla eft­ir­lits­kerf­ið. „Þú losn­ar ekki við starfs­fólk, það fær­ist bara til. Þú þarft alltaf að vera með fólk til þess að fylgj­ast með því að það sé í lagi með þessa þjón­ust­u,“ seg­ir Eva og bæt­ir við:

Eva Mar­ín seg­ir eft­ir­lit með samn­ing­um við einka­að­ila ekki nógu gott og yf­ir­sýn skorti um fram­kvæmd­ina hér á land­i. MYND/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge.

„Það litla sem við vit­um um þetta í ís­lenskri stjórn­sýslu, og þá er ég ekki bara að tala um sveit­ar­fé­lög­in, er að eft­ir­lit með samn­ing­um og þeirri þjón­ustu sem er ver­ið að kaupa er ekki alltaf nógu gott og mjög oft er þessi end­ur­mats­þátt­ur van­met­inn.“

Eva seg­ir sjálf­sagt að stjórn­mála­menn tak­ist á um hvort stjórn­sýsl­an eigi að vera að­eins minni eða stærri en stjórn­sýsl­an þurfi sér­þekk­ingu sem hverfi ekki með út­vist­un verk­efna.

Af því leiði að það felist ekki alltaf sparn­að­ur í út­vist­un verk­efna, enda kosti pen­inga að fylgja eft­ir samn­ing­um „Það kost­ar að vera með fólk í vinnu við það að fylgj­ast með því að verk­efn­in séu unn­in og þau séu unn­in rétt.“

Áhersl­ur flokk­anna

Þótt út­vist­un verk­efna hins op­in­bera sé lítt rann­sök­uð á Ís­land­i, hef­ur hún ver­ið mik­ið rann­sök­uð er­lend­is. Rann­sókn­ir benda til að á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu sé verk­efn­um frek­ar út­vi­stað þar sem að­eins einn flokk­ur er í meiri­hluta í sveit­ar­stjórn. Eft­ir því sem fleiri flokk­ar koma að meiri­hluta­sam­starf­i, því ólík­legra verð­ur að verk­efn­um sé út­vi­stað.

Rann­sókn­ir sýna einnig að miðju­- og hægri­flokk­ar eru lík­legri til að að­hyll­ast út­vist­un verk­efna en vinstri­s­inn­að­ir flokk­ar. Ís­lensk­ir stjórn­mála­flokk­ar eru ekki und­an­tekn­ing frá þessu.

Nokk­ur fram­boð sem bjóða fram til borg­ar­stjórn­ar hafa út­vist­un verk­efna á stefnu­skrá sinn­i.

Út­vist­un á skipu­lags­sviði

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geng­ur lengst í slík­um fyr­ir­ætl­un­um. Flokk­ur­inn vill kanna mögu­leika á að fyr­ir­tæki reki leik­skóla fyr­ir starfs­menn sína og að end­ur­semja eigi við sjálf­stætt starf­andi leik-­ og grunn­skóla svo styrkja megi rekstr­ar­grund­völl þeirra.

Þá vill flokk­ur­inn bjóða út sorp­hirðu borg­ar­inn­ar og nýta gervi­greind og út­vista verk­efn­um í aukn­um mæli við staf­ræna þró­un. Flokk­ur­inn ætl­ar að selja mal­bik­un­ar­stöð­ina Höfða og þjón­ustu­væða emb­ætti skipu­lags­full­trú­a, bygg­inga­full­trúa og heil­brigð­is­eft­ir­lits og skoða þar mögu­leika til auk­inn­ar út­vist­un­ar.

Viðs­reisn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vilja selja Mal­bik­un­ar­stöð­ina Höfða og láta einka­að­il­um að sjá um vega­fram­kvæmd­ir og við­hald í borg­inn­i. Sós­í­alist­ar eru því mjög mót­falln­ir. MYND/Ró­bert Reyn­is­son/Reykja­vík­ur­borg.

Ým­is­legt á líka að byggja í sam­starfi við einka­að­ila, kom­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn til valda, þjóð­ar­höll og þjóð­ar­leik­vang, hjúkr­un­ar­heim­il­i, skóla­ og leik­skóla­bygg­ing­ar og upp­bygg­ingu skíða­iðk­un­ar og úti­vist­ar í Skála­felli, allt í sam­starfi við einka­að­ila og eft­ir at­vik­um einnig við rík­ið.

Einkaaðilar reki bíla­stæða­húsin

Við­reisn vill að borg­in bjóði út rekst­ur sem aug­ljóst er að einka­að­il­ar geti sinnt bet­ur. Flokk­ur­inn styð­ur fjöl­breytt rekstr­ar­form í leik­skól­um og vill bjóða út rekst­ur bíla­stæða­húsa.

Þá seg­ir flokk­ur­inn að val­frelsi sé horn­steinn góðr­ar vel­ferð­ar­þjón­ust­u. Starfs­fólk í barna­vernd og vel­ferð­ar­þjón­ustu hafi lengi kall­að eft­ir fleiri úr­ræð­um og í því skyni vill Við­reisn auka sam­starf við fé­laga­sam­tök og sjálf­stætt starf­andi að­ila.

Þá seg­ir flokk­ur­inn að efla þurfi sam­starf við einka­að­ila í sorp­mál­u­m.

Þjón­usta við aldr­aða í fjöl­breyttu rekstr­ar­formi

Mið­flokk­ur­inn nefn­ir í sín­um áhersl­um auk­ið svig­rúm fyr­ir sjálf­stætt starf­andi leik­skóla og er op­inn fyr­ir hug­mynd­inni um fyr­ir­tækja­leik­skóla.

Flokk­ur­inn styð­ur fjöl­breytt rekstr­ar­form í þjón­ustu við eldri borg­ara og í öðr­um mála­flokk­um.

Einka­að­il­ar reki skemmti­garð

Fram­sókn er á svip­aðri línu og áð­ur­nefnd­ir flokk­ar þeg­ar kem­ur að leik­skól­um og dag­gæslu, en nefn­ir út­vist­un ekki að öðru leyt­i, fyr­ir ut­an að flokk­ur­inn vill efla Hús­dýra­garð­inn og skoða hvort hægt sé að styrkja hann sem skemmti­garð í sam­vinnu við einka­að­ila.

Vinda eigi ofan af útvistun

Vinstr­ið og Sós­í­alist­ar eru al­far­ið á móti út­vist­un verk­efna og vilja vinda of­an af sam­starfi við einka­að­ila í þjón­ustu borg­ar­inn­ar.

Borgin beri sjálf ábyrgð á eigin þjónustu

Vinstr­ið tel­ur að borg­in eigi ekki að út­vista verk­efn­um eða störf­um. Fram­boð­ið tel­ur að með því að halda lyk­il­verk­efn­um í rekstri borg­ar­inn­ar sé hægt að tryggja betri kjör, starfs­ör­yggi og auk­in gæð­i.

Þessi áhersla Vinstr­is­ins gild­ir ekki bara um fram­tíð­ina held­ur vill fram­boð­ið vinda of­an af út­vist­un verk­efna. Borg­in eigi að bera ábyrgð á eig­in þjón­ustu og fólk­inu sem vinn­ur fyr­ir hana.

Vist­heim­ila­klúð­ur og fjár­aust­ur

Sós­í­alist­ar hafa ít­ar­lega stefnu á þessu svið­i. Flokk­ur­inn dreg­ur fram ým­is klúð­ur sem orð­ið hafa í tengsl­um við út­vi­st­uð verk­efn­i, með­al ann­ars í tengsl­um við áfanga­heim­il­i, fóst­ur­heim­ili og barna­vernd. Þar hafi eft­ir­liti borg­ar­inn­ar ver­ið klúðr­að og best fari á því að borg­in sinni þess­um verk­efn­um sjálf.

Flest­ir flokk­ar hafa skoð­un á mötu­neyt­um í Reykja­vík. Bæði hver eigi að sjá um þau og hver mat­ar­stefn­an skuli ver­a. MYND/Reykja­vík­ur­borg

Sós­í­alist­ar nefna líka snjó­mokst­ur og telja ekk­ert vit í því að borg­in greiði há­ar fjár­hæð­ir fyr­ir þjón­ustu sem sé illa veitt og gagn­rýna einnig að greiða þurfi verk­tök­um þótt ekk­ert hafi snjó­að. Flokk­ur­inn ræð­ir líka mál­efni mal­bik­un­ar­stöðv­ar­inn­ar Höfða sem þurfi að vera í sam­keppni á mark­aði um verk­efni borg­ar­inn­ar. Best fari á því að fyr­ir­tæki borg­ar­inn­ar sinni vega­við­hald­i.

Þá vilja Sós­í­alist­ar að borg­in reki eig­in eld­hús fyr­ir leik-­ og grunn­skóla. Fjár­út­lát til staf­rænn­ar þró­un­ar sem einka­að­il­ar sinna eru gagn­rýnd enda hafi þau ekki skil­að öðru en há­um kostn­aði og lé­leg­um hug­bún­að­i. Er þró­un Klapps­ins, greiðslu­apps Strætó, nefnd sem dæmi. Að lok­um seg­ir í stefnu Sós­í­alista að kostn­að­ur við þró­un bíla­stæða­apps sé smá­vægi­leg­ur og verk­efn­ið hag­kvæmt. Hér tala Sós­í­alist­ar af reynslu, því þeir hafa sjálf­ir þró­að app­ið Rósa Park­s, sem þeir vilja gefa borg­inn­i.

Hér að fram­an er að­eins fjall­að um brot af því sem fram kem­ur í þætt­in­um. Hægt er að hlusta á hann í spil­ar­an­um hér fyr­ir neð­an og á öll­um helstu hlað­varpsveit­u­m.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 14. maí, 2026, 08:22

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link