„Það þarf kjark til að mynda bandalög þvert á flokka“

Lestími: 25 mínútur

Þær hafa verið í forystu fyrir ólíka stjórnmálaflokka og segjast stundum rífast við sjónvarpið þrátt fyrir að vera hættar í pólitík. Í viðtali við Gímaldið ræða þær Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir um konur í pólitík, um erfiða en viðburðaríka tíma í borgarstjórn skömmu eftir hrun og það hvernig samvinna þvert á flokka skilar meiri árangri en átök.

Þær hafa báðar setið í ríkisstjórn, báðar verið í forystu stjórnmálaflokka og báðar átt sæti í borgarstjórn. Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi ráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi ráðherra og formaður Vinstri grænna, kynntust í borgarstjórn fyrir tuttugu árum. 

Þegar efnahagshrunið skall á haustið 2008 var Hanna Birna borgarstjóri, síðasti borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins á undan Hildi Björnsdóttur. Hennar helsta samstarfsfólk við stjórn borgarinnar kom ekki aðeins úr hennar eigin flokki og úr meirihlutanum, heldur einnig úr minnihlutanum þar sem Svandís sat sem borgarfulltrúi Vinstri grænna. Og þær tvær áttu gott samstarf, þrátt fyrir að vera ekkert endilega mikið sammála.

Hanna Birna og Svandís settust niður til viðtals við Gímaldið. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan eða á helstu hlaðvarpsveitum. 

Í viðtalsþættinum kemur meðal annars fram:

  • Hanna Birna og Svandís kynntust í borgarstjórn fyrir 20 árum og byggðu upp traust þvert á flokkslínur.
  • Þegar efnahagshrunið skall á 2008 var Hanna Birna borgarstjóri og staða borgarinnar slæm. Meirihluti og minnihluti unnu náið saman að lausn mála og traust á borgarstjórn rauk upp í kjölfarið.
  • Þær áttu gott samstarf og sameinuðust um breiðar línur: engar skattahækkanir, engan niðurskurð á grunnþjónustu, engar uppsagnir starfsmanna.
  • Konur í stjórnmálum fá harðari gagnrýni og endast að meðaltali eitt kjörtímabil á meðan karlar endast þrjú.
  • Nútíminn gerir stöðu kvenna enn erfiðari: samfélagsmiðlar verðlauna hraða og gífuryrði frekar en yfirvegun og málefnaleg rök.
  • Þær hafa áhyggjur af bakslagi í jafnréttismálum „Bakslagið er að þurfa að útskýra hluti sem við héldum að við værum komin með. Það er bakslagið“.
  • Réttur kvenna yfir eigin líkama eigi að vera í stjórnarskrá: „Það er nákvæmlega þetta sem er fyrst sótt að þegar bakslag kemur“.
  • Þær kalla eftir umræðu án upphrópana í Evrópumálum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Báðar telja þær þó að hagsmunum Íslands sé betur borgið í EES en ESB.
  • Það er skortur á vinstri sjónarmiðum á Alþingi, segir Hanna Birna.
  • Pólitíkin fer aldrei úr þeim: Svandís fylgist með óundirbúnum fyrirspurnartímum og Hanna Birna horfir stundum á borgarstjórnarfundi í beinni.

Þrátt fyrir að vera hættar í pólitík segjast þær báðar fylgjast vel pólitískri umræðu. „Það sem ég hef verið að gera núna undanfarna mánuði er bæði svona svolítið að núllstilla tilveruna og hausinn en líka að fara í nám, skrifa svolítið, ég er að reyna svona að ná utan um þennan tíma og kannski það hvað skipti mestu máli á þeim tíma og reyna kannski aðeins að skoða það í samhengi við pólitíkina og samfélagsstraumana sem voru í gangi yfir það tímabil. Svo er líka bara ágætt að gefa sér meiri tíma í að hvíla sig heldur en maður hefur gert. Það hefur nú ekki verið efst á blaði í gegnum árin og áratugina. Svo er lífið líka fullt af áskorunum, heilsufari og alls konar hlutum sem þarf að huga að og spyr ekki um stað né stund og bara kemur í fangið á manni og maður þarf að finna út úr því og setja þá allt annað til hliðar,“ segir Svandís í viðtalinu.

Það hljómar svolítið eins og það sé bók í bígerð?

„Það gæti verið, ég er allavega búin að skrifa svolítið. Það er allavega byrjunin og sjá svo hvað verður úr því, það er, það er önnur saga. Og Hanna Birna kemur við sögu.“

Svandís og Hanna Birna kynntust í borgarstjórn árið 2006 en leiðir þeirra beggja áttu síðar eftir að liggja á þing og inn í ráðuneyti.

„Það er náttúrulega lengra síðan að ég fór út úr pólitíkinni heldur en Svandís. Ég fór fyrir sex árum út og hef bara ekki komið nálægt pólitík síðan. En ég hef verið að vinna fyrir Sameinuðu þjóðirnar sem sérstakur ráðgjafi hjá UN Women. Svo stofnaði ég Heimsþing kvenleiðtoga sem ég er búin að reka hér á Íslandi í níu ár og hefur vaxið bara mjög hratt og örugglega og var svona minn draumur alltaf. Þetta er eitthvað sem mig langaði alltaf að gera, það er að ná saman konum úr ólíkum geirum og úr ólíkum flokkum sem höfðu bara eitt markmið sameiginlegt, sem er að fjölga konum í áhrifastöðum.

Þannig ég lét þann draum rætast og gerði það sem Svandís er að segja að maður eigi ekki að gera, sem er að vaða í jafnmikla vinnu og maður var í áður. Þetta er pínu svona kækur sem er erfitt að venja sig af, þannig ég hef ekki ennþá fundið leiðina alveg í kyrrðina. Mér finnst frábært að heyra Svandísi byrja að skrifa eitthvað. Ég gerði eitthvað smá rétt eftir að ég hætti. Ég þóttist vera að fara að skrifa bók sko, það eru komnir einhverjir þrír kaflar, það er nú allt og sumt. Við vorum nú samferða í að fá krabbamein hérna fyrir tveimur árum síðan, þannig að við gátum svona deilt þeirri reynslu aðeins, þannig að lífið einhvern veginn svona tekur upp á ýmsu. Nú á maður ekki að segja þetta, en heilt yfir er ég bara hrikalega hrifin af að vera hætt og komin inn í eitthvað annað“ segir Hanna Birna.

Samstarf þvert á flokka

Þær kynntust í borgarstjórn og þær lýsa því hvernig meirihluti og minnihluti störfuðu náið saman á þeim tíma. Nokkuð sem skilaði til að mynda auknu trausti á borgarstjórn.

1E1A8Alþingishúsið 6
Hanna Birna og Svandís störfuðu báðar á Alþingi, en kynntust fyrst í borgarstjórn þar sem þær áttu farsælt samstarf. Þær segja samvinnu skila meiru en átök.

Hanna Birna lýsir því hvað dró þær saman: „Mér fannst bara Svandís ógeðslega töff. Mér fannst hún bara klár, mér fannst hún hugrökk.” Og Svandís var, að hennar mati, „þannig stjórnmálamaður að hún var aldrei með falið agenda.” Svandís bendir á að „þess vegna skipti eiginlega engu máli hvor okkar, ég eða Hanna Birna, vorum formaður skipulagsráðs, vegna þess að við vorum algjörlega með sama planið.”

Þegar efnahagshrunið skall á haustið 2008 var Hanna Birna borgarstjóri og staða borgarinnar alvarleg. Hún vissi að hún gat ekki brugðist við ein. „Annaðhvort gerum við þetta saman eða þetta gerist bara ekki,” sagði hún. Meirihluti og minnihluti sameinuðust um breiðar línur: ekki hækka skatta, ekki koma við grunnþjónustu og vernda starfsfólk borgarinnar. Þau leituðu jafnframt til allra starfsmanna borgarinnar og íbúanna. „Traust á borgarstjórn rauk upp. Það var ekkert einum borgarstjóra að þakka. Það er ákveðnu samstarfi, það er ákveðnu vinnulagi að þakka,” segir Hanna Birna.

Árið 2008, árið sem Hanna Birna tók við borgarstjórastólnum, naut borgarstjórn 9% trausts en árið 2010 sögðust 22% treysta borgarstjórn Reykjavíkur.

Svandís minnist á að minnihlutinn hafi verið „þátttakandi í undirbúningsfundum fyrir skipulagsráð, vegna þess að við vildum saman ákveða niðurstöðu málanna en ekki skilja minnihlutann eftir fyrir utan.” Þetta vinnulag hafi byggt á trausti og sameiginlegri sýn.

„Þetta voru náttúrlega súrrealískir tímar. Við vorum einmitt stödd á skrifstofu borgarstjóra þegar Geir Haarde er á skjánum að biðja guð að blessa Ísland að skrifa undir aðgerðaáætlun,“ rifjar Svandís upp. Áætlunin var plagg sem bæði minnihluti og meirihluti komu að og unnu að í sameiningu. 

„Við ákváðum bara að við ætluðum að gera þetta saman og það ríkti fullt traust á milli okkar. … Ég vildi ekki hækka skatta og þau féllust á það. Þau vildu ekki með neinum hætti koma við grunnþjónustu, við féllumst á það. Við vildum ekki að neinu starfsfólki yrði sagt upp vegna þess að við vildum vernda starfsfólkið okkar, við gerðum það. Þau vildu ekki hækka gjaldskrár, segir Hanna Birna. 

„Við fórum bara inn í svona ákveðinn ramma sem við unnum eftir og svo bara töluðum við hvert við annað þegar eitthvað kom upp. Þetta var auðvitað biluð vinna, við sátum saman nótt eftir nótt eftir nótt. Það hefði verið miklu auðveldara fyrir Svandísi að segja bara, heyrðu, ég er farin heim, ég er ekki borgarstjóri.“ Og Hanna Birna segir samstarfið hafa skilað sér. „Ég fullyrði að borgin hefði lent í brjálæðislegum erfiðleikum ef við hefðum ekki gert þetta.“ 

Sjáið þið fyrir ykkur að þetta gerist í dag?

„Ég veit það ekki, umhverfið er náttúrlega mjög breytt. Þetta var mikið drama og mikil spenna sem lá í loftinu og við höfðum öll á tilfinningunni að þarfir samfélagsins væru svo gjörsamlega efst á blaði. Okkar pólitíska tilvera hvers og eins, að ég tali nú ekki um flokkanna okkar, lak svolítið niður forgangslistann,“ segir Svandís. 

Ráðhús Reykjavíkur hefur verið vinnustaður bæði Svandísar og Hönnu Birnu. Þær segja það vonbrigði að ekki sé skilningur á því stóra verkefni sem Samgöngusáttmálinn hafi verið. Endurskoðun á honum í heild geti tafið framvæmdir um 10-15 ár. Mynd/Róbert Reynisson/Reykjavíkurborg.

Þær eru sammála um að margt hafi breyst nú þegar nýr borgarstjóri tekur til starfa, ekki síst sé umræðan orðin óvægnari. 

„Þegar ég er að byrja í pólitík þá erum við ennþá á þeim stað að það eru bara nokkrar fyrirsagnir á dag, þær eru ekki á 10 mínútna fresti allan sólarhringinn eins og er núna í hennar tilveru. Hildur er náttúrlega búin að vera borgarfulltrúi í átta ár og hún kann borgina mjög vel sem sást á hennar framgöngu í kosningabaráttunni og skilaði þessu fylgi, tel ég vera, en hún er að glíma við þennan nútíma sem verðlaunar gífuryrði og verðlaunar þennan hraða og verðlaunar ekki ígrundun og yfirvegun. Þannig að það mæðir örugglega mikið á hennar reynslu og það sem mig langar bara að nefna sem svona gott ráð hérna út í hérna veröldina er að það þarf oft kjark til þess að mynda bandalög og tengsl þvert á flokka og þvert á hópa. Það er svolítið öðruvísi heldur en feðraveldið vinnur. Þetta er oftar en ekki aðferðir kvenna. Að búa til kvennasamstöðu þvert á flokka. Og ná fram raunverulegum breytingum,“ segir Svandís.

„Maður er auðvitað alltaf að vona að staðan sé önnur en ég tók til dæmis eftir því, þegar var tilkynnt um meirihlutann og allir svona kenningasmiðir samfélagsins og helstu álitsgjafar byrja einhvern veginn að rýna í hlutina, að þá er auðvitað leiðin sem hún fór við myndum meirihluta kennd við karla. Allt í einu er þetta kallað einhver Friðjónsleið, einhver Dagsleið. Ég sá að Gísli Marteinn var nefndur, alls konar fólk sem hefur enga aðkomu að þessu máli. Jú jú, Friðjón er varaborgarfulltrúi og er örugglega vinur hennar og þetta eru allt fínir menn, ég er ekki að gera lítið úr því, en hún gerði þetta. Þetta er Hildarleið. Þegar við vorum í stjórnmálunum og maður gerði eitthvað og náði einhverjum árangri, þá var það oft kennt við klíku einhvers karls í flokknum. Þá var það ekki okkar sigur eða okkar tap, heldur sigur einhverra arma í einhverjum flokkum sem alltaf eru kenndir við karla.“

Svandís Svavarsdóttir og Hanna Birna Kristjánsdóttir hafa unnið náið saman í pólitík, þrátt fyrir að hafa starfað í ólíkum flokkum. Þær segja stjórnmálin og umræðuna illskeyttari en áður. Myndir/Davíð Þór Guðlaugsson.

Sameiginlegur skilningur á þróun borgar varð til

Þær segja að á kjörtímabilinu 2006-2010 hafi orðið til ákveðinn sameiginlegur skilningur á þróun borgarinnar, þvert á flokka. Stór mál hafi verið rædd og grunnur lagður að breyttri hugsun í skipulagi, ekki bara borgarinnar heldur einnig höfuðborgarsvæðisins í heild. 

„Það yrðu ákveðin straumhvörf í skipulagsmálum á þessum tíma. Stjórnmálaskýrendur tala oft um þetta sem óróleikatímabil, vegna þess að á þessum tíma var iðulega skipt um meirihluta, skipt um borgarstjóra og það voru sannarlega pólitísk átök innan borgarstjórnar sem rötuðu í fréttir og svo framvegis. Það var REI-málið og það var Orkuveitumálið og það var allt mögulegt. En undir þessu öllu saman var það að gerast að hópur af fólki í borgarstjórn eignaðist sameiginlegan skilning á því hvernig væri gott að þróa borgina. Skipulagsráð Reykjavíkurborgar fór saman í ferðir til Berlínar, til Barcelona, til Stokkhólms, Kaupmannahafnar og Helsinki. Með þessu eignuðumst við sameiginlegan svona viðmiðunargrunn til þess að ræða málin út frá. Og ekki bara sameiginlegan skilning heldur sameiginlega framtíðarsýn fyrir þróun borgarinnar í skipulagsmálum,“ segir Svandís. 

Á þessum tíma fór fram umræða um Vatnsmýrina og þróun hennar, um vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins og mikilvægi almenningssamgangna auk þess sem unnið var að nýju aðalskipulagi. „Allt í einu þá varð til einhver svona sameiginlegur, mjög sterkur grunnur sem var byggður á trausti og ákveðinni vináttu sem hefur líka bara varað öll þessi ár, það eru 20 ár síðan þetta var. Vegna þess að ég held að við höfum öll svona áttað okkur á því að við vorum að búa til eitthvað mikilvægt. Og þess vegna skipti eiginlega engu máli hvor okkar, ég eða Hanna Birna, vorum formaður skipulagsráðs. Vegna þess að við vorum algjörlega með sama planið. Og reyndar að þá var það innleitt á þessum tíma að minnihlutinn var þátttakandi í undirbúningsfundum fyrir skipulagsráð, vegna þess að við vildum saman ákveða niðurstöðu málanna en ekki skilja minnihlutann eftir fyrir utan og taka hann svo að borðinu þegar meirihlutinn var búinn að ákveða hvað ætti að koma út úr málinu. Og þetta var vinnulag og verklag sem byggði á trausti og sameiginlegri sýn, segir Svandís og bætir við að það hafi verið mikill kjarkur í ákveðnum hópi Sjálfstæðismanna á þessum tíma og nefnir sérstaklega Gísla Martein Baldursson og Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur. 

Þær segja kjörtímabilið 2006-2010 hafa verið róstursamt en árangursríkt í borgarstjórn. Á þeim tíma hafi hugrekki og sameiginleg sýn á þróun höfuðborgarsvæðisins ráðið ríkjum. Mynd/Róbert Reynisson/Reykjavíkurborg.

„Þetta var ungt fólk sem var svolítið djarft og hugsaði í öðrum línum heldur en svona kannski þessi gamalgróni Sjálfstæðisflokkur hafði gert og sýndi mikið hugrekki í raun og veru í að spyrna sér svona einn reit áfram eða jafnvel marga í því hvernig ætti að hugsa um góða borg,“ segir Svandís.

Samgöngusáttmálinn og skipulagsmál voru áberandi í aðdraganda nýafstaðinna kosninga til sveitarstjórna og átökin sem fram komu í kosningabaráttunni sneru ekki síst að þeim. Hanna Birna segir það hafa verið ákveðin vonbrigði að fylgjast með því hvernig var rætt um þessi stóru mál í kosningabaráttunni.

„Svona af því að við erum að tala um að auka samtal og samráð í stjórnmálum og allir þurfa að gefa eftir. Svo kemur eitthvað risastórt verkefni, eins og samgöngusáttmálinn, sem ríki og sveitarfélögin eru búin að reyna að vinna saman að, ekki í áratug heldur meira en áratug. Allir hafa reynt að sameinast um það og á endanum kemur eitthvað sem enginn er hundrað prósent ánægður með en allir geta lifað með og er gott fyrir þetta samfélag sem er höfuðborgarsvæðið. Við höfum ekki fengið peninga í samgönguumbætur, en við erum að fá þá þarna. Það er enginn að fá allt en það eru allir að fá eitthvað. Það eru allir flokkar búnir að koma að þessu, þetta er búið að vera samráð og samtal í langan tíma. En þá koma kosningar og allt í einu er öllu hrint einhvern veginn upp á einhvern byrjunarstað og allir byrja að tala um við þurfum bara að eiga meira samráð. Stundum lýkur samráði og samtali og stundum er það að fara til baka sem setur það allt aftur í upplausn, þannig að mér fannst það svona pínu vonbrigði í umræðunni í flestum sveitarfélögum og það var meira gert af aðilum sem eru pínu að koma nýir kannski inn í málið og átta sig ekki á því hversu rosalega orku þetta hefur tekið í stjórnmálunum í langan tíma. 

Reykjavík getur breytt ákveðnu deiliskipulagi innan borgarinnar og aðlagað hluti, en þú veist, að ætla að rífa þetta allt saman upp frá rótum getur þýtt önnur 10 til 15 ár í samtal og samráð,“ segir Hanna Birna.  

Konur í pólitík og bakslag í jafnréttismálum

Báðar hafa þær áhyggjur af stöðu kvenna í stjórnmálum og benda á að um sé að ræða mælanleg fyrirbæri, ekki bara tilfinningu. „Þetta er ekki bara einhver tilfinning kvenna sem eru við völd, heldur eru bara raunverulegar tölur sem sýna það að konur endast eitt kjörtímabil á meðan karlar þrjú, sem sýna það að konur fá miklu harðari krítík, hvort sem það er á netinu eða annars staðar. Þeim er ógnað meira heldur en körlum. Það er einhver harðari veruleiki,” segir Hanna Birna.

„Klausturmálið var mjög svona afhjúpandi veruleiki um það að konur eru ekki öruggar í sínu umhverfi. Þó að þær séu í æðstu embættum. Þær eru ekki öruggar frá kvenfyrirlitningu og kvenhatri á köflum og jafnvel meðal sinna kollega,” bendir Svandís á og segir nauðsynlegt að við séum óhrædd við að tala um þessi mál.

Hanna Birna bendir á að viðfangsefni á ráðstefnu hennar beri þetta með sér. „Viðfangsefnið er meira um það hvernig tryggjum við að konur haldi áfram, heldur en hvernig fáum við þær inn. Þær koma inn en þær fara. Þeim líður ekki vel.” Stjórnmálin þurfa að laga sig, segja þær. „Það er alltaf sagt við okkur: þið þurfið nú bara að herða ykkur. Bíddu, stjórnmálin þurfa bara að mótast að okkar þörfum eins og þeirra þörfum,” segir Hanna Birna.

Báðar tala þær um bakslag í jafnréttismálum. „Bakslagið er að þurfa allt í einu að fara að útskýra eitthvað sem er forsenda og grundvallarþáttur í ákveðnum hlutum,” segir Svandís og Hanna Birna bætir við að staðan í jafnréttismálum sé þannig að nú fari mikil orka í að verja árangurinn í stað þess að sækja fram.

Evrópumálin og þjóðaratkvæðagreiðslan

Báðar segja þær sig vera þeirrar skoðunar að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Þær kalla þó eftir málefnalegri umræðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu, án upphrópana og uppnefna.

blue and yellow flag on pole
Svandís og Hanna Birna vonast eftir sanngjarnri umræðu um Evrópumál án upphrópana. Þær telja hag Íslands betur borgið í EES en í ESB. Mynd/ Unsplash

Svandís segist ekki telja það hlutlaust skref að sækja um aðild en mikilvægt sé að fólk fái ráðrúm til að gera upp hug sinn. „Mér finnst mikilvægt að stjórnvöld umgangist svona skref af virðingu fyrir báðum hliðum, að það sé hægt að segja að það sé eðlileg og rökrétt niðurstaða hjá fólki að segja nei í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, rétt eins og það getur verið rökrétt niðurstaða að segja já. … Ég myndi vilja að það væru meiri hlustunarskilyrði fyrir djúpa umræðu núna.“

„Ég veit ekkert hvernig þetta fer, ég er ekki í pólitík og ég ætla ekkert frekar en Svandís að blanda mér inn í já eða nei, en ég tel okkur ekki eiga að vera í sambandinu og mér finnst mjög mörg önnur brýn verkefni á Íslandi. Þetta veldur einhverri sundrungu sem er pínu svekkjandi, eins og við séum að búa til ágreining sem við þurfum ekkert á að halda núna,“ segir Hanna Birna.

Veganesti fyrir nýja borgarstjórn

Ný borgarstjórn er tekin við taumunum í ráðhúsi Reykjavíkur og þær eru sammála um að þar sem annars staðar á hinu pólitíska sviði sé brýnt að leiða saman ólík sjónarmið og leggja áherslu á samvinnu.

„Pólitíkin er til þess að leiða saman ólík sjónarmið, ólíka hagsmuni, ólíkar hugsjónir, og taka síðan lýðræðislegar ákvarðanir á grundvelli þess sem kjósendur vilja,” segir Svandís.

En viljið þið spá í framtíðina í lokin? Hvernig verður Evrópusumarið mikla og hvernig verður pólitíkin á næstunni? Við tölum um bakslag, það er líka mikil pólarísering og öll þessi samvinna sem þið eruð að lýsa, þetta er ekki það sem maður upplifir núna í gegnum svona pólitíska umræðu.

„Nei, en ég held að vonin liggi í þessu, vonin liggur í samtali og betri hlustunarskilyrðum og ég held að fólk eigi að tala um þetta sem part af pólitík. Fólk á að tala um pólitík, ekki bara hvað fólk er að segja, heldur líka hvernig það segir það. Og ég held að stjórnmálaflokkarnir eigi að fjalla meira um það, vegna þess að það er gott fyrir samfélagið og það er gott fyrir lýðræðið að leysa ekki öll mál í gegnum átök, heldur líka í gegnum samtal og hlustun. Ekki til þess að allir verði sammála og ekki til þess að búa til einhverja moðsuðu eða einhvern lægsta samnefnara, heldur til þess að skerpa einmitt á því að fólk kemur úr ýmsum áttum og pólitíkin er til þess. Hún er ekki til þess að búa til eina skoðun. Pólitíkin er til þess að leiða saman ólík sjónarmið, ólíka hagsmuni, ólíkar hugsjónir, og taka síðan lýðræðislegar ákvarðanir á grundvelli þess sem kjósendur vilja,“ segir Svandís. 

Hún bendir á að mikil nýliðun í borgarstjórn verði líka áskorun fyrir stjórnkerfið í borginni. „Ég held að endurnýjun í borgarstjórn hafi sjaldan verið eins mikil eins og núna og ekki síst bara í meirihlutanum. Þau tala um það að að taka til í stjórnkerfinu og það er náttúrlega eitt af því sem er vinsælt að segja þegar fólk velst til valda. Þau eru í þeirri stöðu að þau þurfa á stjórnkerfinu að halda til að taka til í stjórnkerfinu, vegna þess að þau mörg hver hafa ekkert verið þarna áður.“

„Ég veit að það hljómar skringilega frá fyrrverandi fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, en ég sakna vinstri flokka á Alþingi,“ segir Hanna Birna.

Varðandi landsmálin nefnir Svandís að það verði áhugavert að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslu. „Hvað þýðir jáið og hvað þýðir neiið? Hvert er hlutverk Viðreisnar til dæmis ef það verður nei? Hvað gerir þá flokkur sem er fyrst og fremst búinn til utan um það að sækja um ef að þjóðin segir við viljum það ekki? Hvað þýðir það þá fyrir hlutverk eða erindi þess flokks? Hvað þýðir það fyrir hlutverk og erindi ríkisstjórnar sem tekur þessa ákvörðun að fara af stað með þessa þjóðaratkvæðagreiðslu ef að svarið verður nei? … Verður þá mögulega aukið ákall eftir kosningum? Verður þá sagt, heyrðu, þetta var ykkar stóra mál. Þjóðin er búin að segja nei við því. Eigum við þá ekki bara að stokka og gefa upp á nýtt? … Það er ofboðslega mörgum spurningum ósvarað en ég held að þetta reki sig svolítið upp þegar við sjáum hver verður afstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni. En ég myndi svo mikið vilja að við gætum sagt að það sé hægt að rökstyðja bæði já og nei og gera það án þess að gera lítið úr fólki,“ segir Svandís.

Hildur Björnsdóttir er tekin við sem borgarstjóri. Hún fær að líkindum næði í sumar til að skipuleggja störfin framundan, meðan landsmenn einbeita sér að þjóðaratkvæðagreiðslu. Mynd/Ragnar Visage/RÚV.

„Ég vona að þetta verði málefnaleg umræða og við tökum hana öll af skynsemi. Nú er dagsetningin komin og við þurfum að ræða okkur í gegnum þetta. Varðandi borgarstjórn, ég held eins og Svandís segir, að þau fái ágætis frið. Það er svona hefð fyrir því alveg jafnt í borginni eins og í landsmálum að það séu einhverjir svona hundrað dagar þar sem allir fá tíma til að setjast. Mér finnst oddvitar þessa hóps fínir, ég held þau geti unnið vel saman. Ég held að margir þarna í borgarstjórn hafi góða sýn á borgina og langi mjög mikið að gera vel. Mér finnst þetta allt búið að snúast pínu um að þessi samgöngusáttmáli sé að þrengja að okkur og segja hvar ég held við eigum að nálgast þetta aðeins öðruvísi. Ég myndi reyna það ef ég væri þau að nota allt sumarið til að byggja upp traust á milli allra. Ég myndi bara vinna í því eins og verkefni. Að ná saman um breiðar línur. Lýðræðið er ekkert hugsað bara þannig að fólk sé alltaf að slást. Það er búið til til að fólk einmitt setjist niður og ræði málin. Ég myndi reyna að leggja áherslu á það. 

Ég held að fyrir ríkisstjórnina, sem hefur auðvitað að mörgu leyti siglt dálítið lygnan sjó, forsætisráðherra hefur verið vinsæl, henni er treyst, fólk er ánægt með hana og hún er algjörlega að fylgja, virðist vera sínu prógrammi. Nú er komin pínu meiri ókyrrð og það er bara spurning hvernig þau leysa það og vinna með það og hvernig þau vinna með minnihlutanum í því,“ segir Hanna Birna.

Hún bætir við að hún sakni vinstri sjónarmiða af þinginu. „Ég veit að það hljómar skringilega frá fyrrverandi fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, en ég sakna vinstri flokka á Alþingi,“ segir hún og bendir á að mótstaða við ríkisstjórnina sé aðeins frá öðrum væng stjórnmálanna. „Það er ekki ýtt mikið á Samfylkinguna frá vinstri og ég sakna þess. Af því það eru ákveðnir hlutir sem þurfa að vera til að samtalið verði gott. Það er oft besta niðurstaðan þegar einhvern veginn margir koma að henni og mér finnst það dálítið vanta á þinginu. Ég er ekkert að segja að ég vilji stóran vinstri flokk, en mér finnst þarna vanta inn í og umræðan verða lakari fyrir vikið,“ segir Hanna Birna. 

„Ég held að það skipti bara mjög miklu máli fyrir lýðræðislegar og góðar niðurstöður í máli að það sé búið að svona sigta málin í gegnum öll þessi sjónarmið. … Fyrir lýðræðisríki eins og okkar, þá er best að sjónarmiðin séu öll við borðið,“ segir Svandís. 

Viðtalið í heild má hlusta á í spilara hér að neðan og á helstu hlaðvarpsveitum. 

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 3. júní, 2026, 17:05

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link