Aðalheiður Ámundadóttir: Skýrleiki í pólitíska glundroðanum

Lestími: 3 mínútur

Haustlitirnir leggjast yfir og Gímaldið fer af stað inn í nýtt tímabil. Í hlaðvarpsþætti er fjallað um pólitíska umfjöllun Gímaldsins, línur lagðar fyrir veturinn og farið yfir hvers áskrifendur mega vænta.

Gímaldið er á fleygiferð. Sífellt fleiri hlusta og lesa, og við finnum fyrir vaxandi áhuga á því sem við höfum fram að færa. Núna í haust viljum við segja betur frá því sjálf fyrir hvað Gímaldið stendur, hvert við stefnum og hvers vegna. Af því tilefni verða birt nokkur viðtöl sem við sem stöndum að Gímaldinu tökum hvert við annað. 

Í nýjum þætti, sem er aðgengilegur í spilaranum að ofan og á hlaðvarpsveitum, ræðir Eyrún Magnúsdóttir við samstarfskonu sína, Aðalheiði Ámundadóttur, stjórnmálaskýranda Gímaldsins. Aðalheiður er lögfræðimenntuð, starfaði um árabil sem blaðamaður og fréttastjóri á Fréttablaðinu, hefur kennt og stundað rannsóknir í lögfræði og starfað á Alþingi.

Aðalheiður Ámundadóttir er stjórnmálaskýrandi Gímaldsins.

Þær ræða hugmyndina á bak við Gímaldið, fjölmiðil sem vill hugsa fréttaflutning fyrst og fremst sem þjónustu við áskrifendur, frekar en kapphlaup um að vera fyrst með fréttirnar. Aðalheiður segir frá því hvers vegna áskriftarlíkanið skiptir svona miklu máli fyrir efnistök og fréttamat, hugmyndum sínum um Gímaldið sem samfélag með viðburðum, morgunkaffi og beinu samtali milli blaðamanna og lesenda. Loks ræðir hún áform fyrir pólitíska umfjöllun vetrarins: vikulegan þátt með viðtali og greiningu, reglulegan þingpistil og þróun fréttabréfs Gímaldsins.

  • Aðalheiður og Eyrún fundu fljótt samhljóm þegar þær fóru að ræða framtíð íslenskrar fjölmiðla
  • Þjónusta sem kjarni Gímaldsins: að hugsa umfjöllun út frá því hverju hún skilar lesandanum, ekki hv mörgum smellum hún skilar
  • Hvernig tekjumódel fjölmiðils, auglýsingar, styrktaraðilar eða áskrifendur, hefur bein áhrif á fréttamat og efnistök
  • Draumurinn um Gímaldið sem samfélag: viðburðir, morgunkaffi og milliliðalaust samtal milli blaðamanna og áskrifenda
  • Hvað varð um gömlu, líflegu Facebook-umræðuna á Íslandi og er hægt að endurskapa hana í minni og markvissari mynd?
  • Áform Aðalheiðar fyrir stjórnmálaumfjöllun vetrarins: vikulegur þáttur með viðtali og dýpri greiningu á einu máli
  • Reglulegur þingpistill sem gefur yfirsýn yfir stöðuna á Alþingi, stemningu og átök á bak við tjöldin
  • Af hverju erlend stjórnmál, sérstaklega í Evrópu, eru orðin órjúfanlegur hluti af umfjöllun um íslensk stjórnmál
  • Hvernig lesendur og áskrifendur geta haft beint samband við Aðalheiði og af hverju hún vill endilega heyra frá þeim

Hefur þú ábendingu eða skoðun á því sem Aðalheiður fer yfir í þessum þætti? Sendu henni línu á [email protected] — eða almennar ábendingar á [email protected].

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 8. september, 2026, 08:47

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link