Hlaðvarp: Pólitísk ábyrgð og eftirmál baráttunnar

Lestími: 3 mínútur

Þjóðin sagði nei, en báðar fylkingar sitja uppi með niðurstöðuna. Á Kristrún að henda inn handklæðinu og skilja stjórnarandstöðuna eftir í súpunni? Hvað gerði Áfram Ísland best og á hverju klikkuðu Evrópusinnar? Og hver verður lærdómurinn og eftirmálin?

Í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins gera Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir upp þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þær ræða hliðstæðurnar við Brexit, pólitíska ábyrgð stjórnar og stjórnarandstöðu og allt sem ekki má gleymast í uppgjörinu.

Öxar við ána og tilfinningarnar

Þegar litið er um öxl blasa hliðstæður Brexit við. Áfram Ísland hafði Brexit-handbókina á náttborðinu en Evrópusinnar týndu sínu eintaki og urðu af dýrmætum lærdómi. Tilfinningarökin gleymdust og ákvörðun um að starfa ekki meira saman kann að hafa komið þeim í koll.

Áfram Ísland nýtti hins vegar öll trixin í bókinni nema útlendingaandúðina. Þjóðræknin var þó aldrei langt undan og Öxar við ána ómaði út í eitt.

Pólitísk ábyrgð

Ólíkt því sem gerðist í Bretlandi, með afsögn Davids Cameron og stjórnarskiptum, situr íslenska ríkisstjórnin áfram og engin krafa er uppi um annað.

Aðalheiður bendir þó á að báðar fylkingar sitji uppi með niðurstöðuna: já-hliðin og ríkisstjórnin með því að hafa sett málið á dagskrá og tapað því, og nei-hliðin og stjórnarandstaðan með málflutning sinn.

Hún veltir upp hver beri ábyrgð á upplýsingaóreiðu og óheiðarlegum fullyrðingum, ef ekki stjórnmálamennirnir sem tóku þátt, og veltir því upp hvort réttast væri fyrir forsætisráðherra að segja af sér og bjóða stjórnarandstöðunni að taka við og standa við eigin málflutning.

Uppgjör og eftirmál

Efst á lista Eyrúnar í uppgjöri sumarsins eru fjármál herferðanna. Ekki liggi fyrir hvaðan fjármagnið kom eða hvernig því var varið. Gera þurfi kröfu um upplýsingar og elta peningana.

Rýna þurfi í þátt fjölmiðla í umræðunni og birtingarmynd baráttunnar á samfélagsmiðlum, meðal annars hvort greitt hafi verið fyrir herferðir þar sem ósannindum og óhróðri var dreift.

Loks sé sjálfstætt rannsóknarefni hvernig skoðanir mótast hjá yngstu kjósendunum og hvað valdi þeim sveiflum sem fram komu í könnunum.

Þótt viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði áfram á ís er ekki víst að umræðan leggist í dvala. Samtal landsmanna um lífskjör og öryggi lands og þjóðar deyr tæpast út að óbreyttu þótt þjóðaratkvæðagreiðslunni sé lokið.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 1. september, 2026, 11:29
Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link