
Hvaða flokkar vilja fela einkaaðilum verkefni borgarinnar og hvaða flokkar vilja að borgin vinni öll verk sjálf? Kostnaður við útvistun verkefna er oft vanmetinn og eftirliti ábótavant, segir prófessor í stjórnmálafræði. Hún segir of lítið vitað um þessa leið í opinberum rekstri.

Hver á að vinna verkefni Reykjavíkurborgar og veita borgarbúum þá þjónustu sem þeim ber? Flokkarnir sem bjóða fram í Reykjavík hafa mjög skiptar skoðanir á því hvort fela eigi einkaaðilum framkvæmd verkefna borgarinnar.
Sorphirða, snjómokstur, viðhald á vegum, rekstur skóla og jafnvel verkefni tengd skipulagi, byggingareftirliti og heilbrigðiseftirliti; allt eru þetta verkefni sem til greina kemur að einkaaðilar taki að sér gegn greiðslu frá Reykjavíkurborg. Hægri flokkarnir vilja fara þessa leið á ýmsum sviðum en vinstriflokkarnir eru því mjög mótfallnir.
Af hverju leggja flokkarnir þetta til, hverjir eru kostir útvistunar og hvað ber að varast? Fjallað er um málið í kosningaþætti Gímaldsins, Börn og bílastæði. Stefnur flokkanna eru reifaðar og rætt við Evu Marín Hlynsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, en hún hefur sérhæft sig á sveitarstjórnarstiginu.
Hér fyrir neðan er aðeins fjallað um brot af efni þáttarins en hægt er að hlusta á hann í spilaranum hér að ofan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
„Við höfum mjög litla yfirsýn yfir þessa stöðu á Íslandi og vitum í rauninni allt of lítið um það hvaða verkefnum er útvistað, hvernig þeim er fylgt útvistuð og hvernig þeim er fylgt eftir,“ segir Eva Marín. Hún segir skorta á yfirsýn yfir þennan þátt í rekstri sveitarfélaganna. „Sem er dálítið sérstakt vegna þess að þarna eru náttúrulega ansi miklir peningar í spilinu og við í rauninni þyrftum að hafa miklu betri yfirsýn yfir þessi mál,” segir hún.
Eva Marín segir hagkvæmni eina helstu ástæðu þess að verkefnum sé útvistað. Hún tekur snjómokstur sem dæmi, sem krefst mikils tækjakosts auk þess sem álagið sé ófyrirsjáanlegt. Einkaaðilinn eigi þá tækin, sjái um viðhald, starfsmannahald, geymslu tækjanna og annað sem þeim fylgi.

Eva Marín bendir líka á að minnstu sveitarfélögin hafi ekki bolmagn til að sinna öllum verkefnum og fari því oft þá leið að semja við einkaaðila eða nágrannasveitarfélög um framkvæmd þeirra.
Eva Marín varar við því að verkefnum sé útvistað í því skyni að spara peninga eða til að einfalda stjórnsýsluna. Því með útvistun verkefna þurfi að efla eftirlitskerfið. „Þú losnar ekki við starfsfólk, það færist bara til. Þú þarft alltaf að vera með fólk til þess að fylgjast með því að það sé í lagi með þessa þjónustu,“ segir Eva og bætir við:

„Það litla sem við vitum um þetta í íslenskri stjórnsýslu, og þá er ég ekki bara að tala um sveitarfélögin, er að eftirlit með samningum og þeirri þjónustu sem er verið að kaupa er ekki alltaf nógu gott og mjög oft er þessi endurmatsþáttur vanmetinn.“
Eva segir sjálfsagt að stjórnmálamenn takist á um hvort stjórnsýslan eigi að vera aðeins minni eða stærri en stjórnsýslan þurfi sérþekkingu sem hverfi ekki með útvistun verkefna.
Af því leiði að það felist ekki alltaf sparnaður í útvistun verkefna, enda kosti peninga að fylgja eftir samningum „Það kostar að vera með fólk í vinnu við það að fylgjast með því að verkefnin séu unnin og þau séu unnin rétt.“
Þótt útvistun verkefna hins opinbera sé lítt rannsökuð á Íslandi, hefur hún verið mikið rannsökuð erlendis. Rannsóknir benda til að á sveitarstjórnarstiginu sé verkefnum frekar útvistað þar sem aðeins einn flokkur er í meirihluta í sveitarstjórn. Eftir því sem fleiri flokkar koma að meirihlutasamstarfi, því ólíklegra verður að verkefnum sé útvistað.
Rannsóknir sýna einnig að miðju- og hægriflokkar eru líklegri til að aðhyllast útvistun verkefna en vinstrisinnaðir flokkar. Íslenskir stjórnmálaflokkar eru ekki undantekning frá þessu.
Nokkur framboð sem bjóða fram til borgarstjórnar hafa útvistun verkefna á stefnuskrá sinni.
Sjálfstæðisflokkurinn gengur lengst í slíkum fyrirætlunum. Flokkurinn vill kanna möguleika á að fyrirtæki reki leikskóla fyrir starfsmenn sína og að endursemja eigi við sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla svo styrkja megi rekstrargrundvöll þeirra.
Þá vill flokkurinn bjóða út sorphirðu borgarinnar og nýta gervigreind og útvista verkefnum í auknum mæli við stafræna þróun. Flokkurinn ætlar að selja malbikunarstöðina Höfða og þjónustuvæða embætti skipulagsfulltrúa, byggingafulltrúa og heilbrigðiseftirlits og skoða þar möguleika til aukinnar útvistunar.

Ýmislegt á líka að byggja í samstarfi við einkaaðila, komist Sjálfstæðisflokkurinn til valda, þjóðarhöll og þjóðarleikvang, hjúkrunarheimili, skóla og leikskólabyggingar og uppbyggingu skíðaiðkunar og útivistar í Skálafelli, allt í samstarfi við einkaaðila og eftir atvikum einnig við ríkið.
Viðreisn vill að borgin bjóði út rekstur sem augljóst er að einkaaðilar geti sinnt betur. Flokkurinn styður fjölbreytt rekstrarform í leikskólum og vill bjóða út rekstur bílastæðahúsa.
Þá segir flokkurinn að valfrelsi sé hornsteinn góðrar velferðarþjónustu. Starfsfólk í barnavernd og velferðarþjónustu hafi lengi kallað eftir fleiri úrræðum og í því skyni vill Viðreisn auka samstarf við félagasamtök og sjálfstætt starfandi aðila.
Þá segir flokkurinn að efla þurfi samstarf við einkaaðila í sorpmálum.
Miðflokkurinn nefnir í sínum áherslum aukið svigrúm fyrir sjálfstætt starfandi leikskóla og er opinn fyrir hugmyndinni um fyrirtækjaleikskóla.
Flokkurinn styður fjölbreytt rekstrarform í þjónustu við eldri borgara og í öðrum málaflokkum.
Framsókn er á svipaðri línu og áðurnefndir flokkar þegar kemur að leikskólum og daggæslu, en nefnir útvistun ekki að öðru leyti, fyrir utan að flokkurinn vill efla Húsdýragarðinn og skoða hvort hægt sé að styrkja hann sem skemmtigarð í samvinnu við einkaaðila.
Vinstrið og Sósíalistar eru alfarið á móti útvistun verkefna og vilja vinda ofan af samstarfi við einkaaðila í þjónustu borgarinnar.
Vinstrið telur að borgin eigi ekki að útvista verkefnum eða störfum. Framboðið telur að með því að halda lykilverkefnum í rekstri borgarinnar sé hægt að tryggja betri kjör, starfsöryggi og aukin gæði.
Þessi áhersla Vinstrisins gildir ekki bara um framtíðina heldur vill framboðið vinda ofan af útvistun verkefna. Borgin eigi að bera ábyrgð á eigin þjónustu og fólkinu sem vinnur fyrir hana.
Sósíalistar hafa ítarlega stefnu á þessu sviði. Flokkurinn dregur fram ýmis klúður sem orðið hafa í tengslum við útvistuð verkefni, meðal annars í tengslum við áfangaheimili, fósturheimili og barnavernd. Þar hafi eftirliti borgarinnar verið klúðrað og best fari á því að borgin sinni þessum verkefnum sjálf.

Sósíalistar nefna líka snjómokstur og telja ekkert vit í því að borgin greiði háar fjárhæðir fyrir þjónustu sem sé illa veitt og gagnrýna einnig að greiða þurfi verktökum þótt ekkert hafi snjóað. Flokkurinn ræðir líka málefni malbikunarstöðvarinnar Höfða sem þurfi að vera í samkeppni á markaði um verkefni borgarinnar. Best fari á því að fyrirtæki borgarinnar sinni vegaviðhaldi.
Þá vilja Sósíalistar að borgin reki eigin eldhús fyrir leik- og grunnskóla. Fjárútlát til stafrænnar þróunar sem einkaaðilar sinna eru gagnrýnd enda hafi þau ekki skilað öðru en háum kostnaði og lélegum hugbúnaði. Er þróun Klappsins, greiðsluapps Strætó, nefnd sem dæmi. Að lokum segir í stefnu Sósíalista að kostnaður við þróun bílastæðaapps sé smávægilegur og verkefnið hagkvæmt. Hér tala Sósíalistar af reynslu, því þeir hafa sjálfir þróað appið Rósa Parks, sem þeir vilja gefa borginni.
Hér að framan er aðeins fjallað um brot af því sem fram kemur í þættinum. Hægt er að hlusta á hann í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.