Ísland taki aukna ábyrgð á eigin vörnum

Lestími: 16 mínútur

Þing­mað­ur­inn Víð­ir Reyn­is­son hef­ur víð­tæka reynslu á sviði al­manna­varna og þjóðar­ör­ygg­is. Hann ræð­ir við Gímald­ið um við­bún­að á Ís­landi ef til stríðs­á­taka kæmi og um nýja stefnu í ör­ygg­is­ og varn­ar­mál­u­m.

Með­­al þing­­mála sem verða til um­­ræðu á Al­­þingi nú á vor­­þingi er stefna ut­­an­­rík­­is­ráð­herra í ör­ygg­is­­- og varn­­ar­­mál­u­m. Ráð­herra mælti fyr­­ir stefn­unni í haust og var henni svo vís­að til með­­­ferð­­ar í ut­­an­­rík­­is­­mála­­nefnd þings­ins. Fjöldi gesta hef­­ur kom­ið fyr­­ir nefnd­ina til að ræða á þriðja tug um­­­sagna sem borist hafa um stefn­una.

Gímald­ið rýndi í stefn­una og um­­sagn­­ir sem bár­ust ut­­an­­rík­­is­­mála­­nefnd og ræddi við Víði Reyn­is­son al­þing­is­mann um áskor­an­­ir og við­­bún­­að sem efla þarf inn­­an­lands.

Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingarinnar er í viðtali við Gímaldið. Hann segir að breyttar aðstæður í heiminum geri það mikilvægt fyrir Ísland að byggja upp getu til að takast á við áföll. Mynd/Gímaldið.

Víð­ir starf­aði við al­manna­varn­ir í rúma tvo ára­tugi áð­ur en hann tók sæti á þing­i, síð­ast sem sviðs­stjóri al­manna­varna hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Þá hef­ur hann set­ið í al­manna­varna­nefnd ESB og ver­ið for­mað­ur vinnu­hóps EFTA um al­manna­varn­ir ásamt því að hafa set­ið í fjölda nefnda og ráða hins op­in­bera um al­manna­varn­ir og ör­ygg­is­mál.

Víð­ir bend­ir á að þeg­ar fyrstu al­manna­varna­lög voru sett hér á landi ár­ið 1962 hafi þau nær al­far­ið ver­ið mið­uð út frá hern­að­arógn fyrstu ár­in, enda hafi Kalda stríð­ið, Kúbu­deil­an og kjarn­orkuógn ver­ið hluti af veru­leika þess tíma. Það hafi ekki ver­ið fyrr en ár­ið 1967 að kafli um nátt­úru­ham­far­ir var tek­inn inn í lög­in, en mest hef­ur reynt á þann hluta und­an­farna ára­tug­i.

„En það er al­veg ljóst að síð­ustu miss­er­in hef­ur orð­ið gjör­breyt­ing á því hvern­ig við þurf­um að hugsa þetta og það hef­ur ver­ið reynt að end­ur­spegla það í sam­starfi stofn­ana og skipu­lagi mála. Þessi stefna á að vera veg­vís­ir í því hvern­ig við höld­um áfram með þau verk­efni og jafn­vel tök­um upp ný sem, sem end­ur­spegl­ar bara þá þörf okk­ar að geta brugð­ist við mis­mun­andi að­stöðu í heim­in­um hverju sinn­i.“

Við­talið við Víði Reynisson má hlýða á í heild sinni í spil­ara að of­an og það er einnig að­gengi­legt á helstu hlað­varpsveit­u­m.

Breytt heims­mynd

Ör­ygg­is-­ og varn­­ar­­mál hefa sjald­­an ver­ið til jafn­­­mik­ill­­ar um­­ræðu og und­an­farna daga, í kjöl­f­ar inn­­rás­­ar Banda­­ríkja­­stjórn­­­ar í Venes­ú­ela og spurn­ing­­ar hafa vakn­að um fram­­tíð Atlands­hafs­­banda­lags­ins (NATO) þeg­­ar öfl­­ug­asta ríki banda­lags­ins hef­­ur yf­­ir­­töku Græn­lands í flimt­ing­­um.

Ut­­an­­rík­­is­ráð­herra hef­­ur hins veg­­ar hvergi hvik­að í þeirri af­­stöðu að að­­ild að NATO og varn­­ar­­samn­ing­­ur­inn við Banda­­rík­­in séu meg­in­­stoð­­ir í ör­ygg­is-­ og varn­­ar­­stefnu Ís­lands. Þessi af­­staða er einnig mjög skýr í þeirri stefnu sem til með­­­ferð­­ar er í þing­in­u.

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir, ut­an­rík­is­ráð­herra hvik­ar ekki frá þeirri af­stöðu að Banda­rík­in séu helsti banda­mað­ur Ís­lands í ör­ygg­is­- og varn­ar­mál­u­m. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Hins veg­­ar er ljóst að mik­il og auk­in áhersla er orð­in á þátt­­töku Ís­lands í svæð­is­bundnu sam­­starfi um varn­­ar-­ og ör­ygg­is­­mál við ná­granna­­rík­­i, önn­­ur Evr­­ópu­­ríki og Kanada. Nokkr­­ar ástæð­­ur eru fyr­­ir stór­auk­inni áherslu á varn­­ar­­mál bæði á Ís­landi og í Evr­­ópu. Fyrst er að nefna land­vinn­inga­­stríð sem geis­­ar í álf­unni og að­r­­ar ógn­­ir sem tald­­ar eru stafa af Rús­s­land­i. Nýjar áhersl­­ur Banda­­ríkja­­stjórn­­­ar hafa þó einnig áhrif. Ann­­ars veg­­ar kröf­­ur henn­­ar, sem öfl­­ug­asta að­­ild­­ar­­rík­­­is NATO, um jafn­­­ari byrð­­ar allra banda­lags­­ríkja en hins veg­­ar hlýt­­ur óvissa um veg­­ferð þar­­lendra stjórn­­­valda í ut­­an­­rík­­is­­mál­­um að hafa áhrif. Gild­ir einu hvort lit­ið er til breyttra áherslna í milli­­­ríkja­við­­skipt­­um eða breyt­inga sem orð­ið hafa á við­horf­­um Banda­­ríkja­­stjórn­­­ar til vest­rænn­­ar sam­vinnu al­­mennt á und­an­­förn­­um mis­s­er­­um.

Aukn­­ar fjár­­veit­ing­­ar til ör­ygg­is­- og varn­­ar­­mála

Ákvörð­un leið­­toga allra að­ild­ar­ríkja NATO síð­­ast­lið­ið sum­­­ar um stór­auk­in fjár­­fram­lög til varn­­ar­­mála og varn­­ar­tengdra verk­efna, á án efa sinn þátt í að ráð­ist var í mót­un ís­­lenskr­­ar stefnu á sviði ör­ygg­is­- og varn­­ar­­mála.

Sem her­­laust land er Ís­land und­an­þeg­ið kröfu um bein fram­lög til varn­­ar­­mála en það mun þurfa að mæta kröfu um fram­lag sem sam­svar­­ar 1,5 pró­­senti af vergri lands­fram­­leiðslu til varn­­ar­tengdra verk­efna.

Þau verk­efni sem ráð­­ast þarf í sam­­kvæmt stefn­unni varða ann­­ars veg­­ar efl­ingu inn­­­lends við­­bún­­að­­ar og getu lands­ins til að takast á við mög­u­­leg­­ar hern­að­arógn­­ir og hins veg­­ar aukna ábyrgð Ís­lands í sam­­starfi við NATO og önn­­ur sam­­starfs­­rík­­i.

Í stefn­unni seg­­ir að fram­lag Ís­lands til sam­eig­in­­legra varna banda­lags­­ríkja taki ekki síst mið af land­fræð­i­­legri legu lands­ins. Ís­land hafi með hönd­­um rekst­­ur rat­­sjár­­kerf­­is og ann­­arra varn­­ar­tengdra inn­­viða og veiti gist­i­­ríkja­­stuðn­­ing þeg­­ar önn­­ur að­­ild­­ar­­ríki hafi við­veru á Ís­landi til dæm­­is í tengsl­­um við loft­­rým­is­­gæslu, kaf­báta­­leit og æf­ing­­ar.

Öfl­­ugra gist­i­­ríki og auk­in þátt­­ur her­æf­inga

Af stefn­unni má sjá mjög auk­inn vilja Ís­lands til að efla þrótt sinn sem gist­i­­ríki bæði vegna fyr­ir­­byggj­andi að­­­gerða á borð við eft­ir­lit og æf­ing­­ar en einnig ef kæmi til við­veru her­liðs á land­inu vegna stríðs­á­­taka.

Auk­in þátt­­taka Ís­lands í æf­ing­­um með sam­­starfs­­ríkj­­um á varn­­ar­­svæði Ís­lands er lið­­ur í stefn­unn­i. Þátt­­taka í æf­ing­­um stuðli ekki ein­­göngu að auk­inni þekk­ingu og þjálf­un inn­­­lendra að­­ila held­­ur auk­ist með slík­­­um æf­ing­­um þekk­ing sam­­starfs­­ríkja á ís­­lensk­­um að­­­stæð­­um og varn­­ar­um­hverfi Ís­lands.

Með virkri þátt­­töku stjórn­­­valda og inn­­­lendra við­bragðs­að­ila reyni einnig á sam­­spil hern­að­­ar­­legra þátta, vernd borg­­ara og ákvarð­ana­­töku stjórn­­­valda.

Auk­in geta inn­­an­lands

Til að Ís­land geti byggt varn­­ir sín­­ar á eig­in for­­send­um, þarf að auka get­una, eins og það er orð­að í skýrsl­unn­i. Í því felst með­­al ann­­ars fjár­­­fest­ing í mannauði til að skapa for­­send­­ur til sjálf­­stæðr­­ar og upp­­lýstr­­ar ákvarð­ana­­töku stjórn­­­valda á sviði varn­­ar­­mála. Efla þurfi land­helg­is­­gæsl­una og lög­­regl­una sem þurfi að geta brugð­ist við ör­yggisógn­um, sinnt grein­ing­um, kom­ið sér upp nauð­­syn­­leg­­um tækn­i­­bún­­aði og eflt tækn­i­þekk­ingu sína, vernd­að mik­il­væga inn­­viði og fleira. Að sama skapi þurfi að styrkja starf­­semi net­ör­ygg­is­sveit­­ar­inn­­ar og tryggja virk­­ari vökt­un og við­bragð gagn­vart al­var­­leg­­um netógn­­um.

Ís­land hef­­ur sér­­­stök­­um skyld­­um að gegna gagn­vart NATO en gef­in hafa ver­ið út get­u­­mark­mið fyr­­ir öll banda­lags­­rík­­in. Þau eru hern­að­­ar­­leg­­ar lág­­marks­­kröf­­ur banda­lags­ins alls. Dæmi um get­u­­mark­mið Ís­lands er að tryggja elds­­neyt­is­birgð­­ir er geta nýst jafnt í borg­­ara­­leg­­um sem hern­að­­ar­­leg­­um til­­­gangi og upp­­­bygg­ing á að­­­stöðu til að geta tek­ið á móti her­afla banda­lags­­ríkja vegna loft­­rým­is­­gæslu og varnaræf­inga.

Efl­ing grein­inga á hern­að­arógn­un

Á Ís­landi er ekki starf­­rækt ör­ygg­is­­stofn­un sem hef­­ur það hlut­verk að afla og greina upp­­lýs­ing­­ar um hern­að­­ar­­lega ógn. Í grein­­ar­­gerð með stefn­unni seg­­ir að þetta geti tor­veld­að sam­vinnu við er­­lend ríki sem vilja eiga í upp­­lýs­inga­­skipt­­um við ís­­lensk stjórn­­völd og þannig graf­ið und­­an getu stjórn­­­valda og lýð­ræð­is­­lega kjör­inna full­­trúa til að taka upp­­lýst­­ar ákvarð­an­­ir um varn­­ar­ og ör­ygg­is­­mál.

Í stefn­unni er lögð áhersla á úr­­bæt­­ur í þess­­um efn­­um. Styrkja þurfi upp­­lýs­inga­öfl­un og getu til að miðla gögn­­um og upp­­lýs­ing­­um sam­hliða því að styrkja getu ís­­lenskra stjórn­­­valda til að sam­þætta og greina með virk­­um og heild­­stæð­­um hætti þau gögn sem safn­að er á Ís­land­i. Slík vinna gagn­ist ekki að­­eins á Ís­landi held­­ur einnig öðr­­um banda­lags­­ríkj­u­m.

Tölu­vert er vik­ið að grein­ing­­ar­­getu í um­­­sögn­­um um stefn­una. Er­l­ing­ur Er­l­ings­­son bend­­ir á í sinni um­sögn að þótt hvorki sé ráð­­legt né nauð­­syn­­legt að stofna her í land­inu sé „mik­il­vægt og áríð­andi að efla inn­­­lenda getu til þess að afla upp­­lýs­inga er varða ör­yggi rík­­is­ins, greina þær og móta stefnu og við­bragð á sviði ör­ygg­is­- og varn­­ar­­mála á grund­velli þeirra.”

Er­ling­ur Er­lings­son, hern­að­ar­sagn­fræð­ing­ur, tel­ur áríð­andi að efla grein­ing­ar­getu á sviði ör­ygg­is-­ og varn­ar­mála. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Víð­­ir Reyn­is­­son tek­­ur í sama streng í sam­tali við Gímald­ið. Hér sé ekki ver­ið að leggja til að leyn­i­­þjón­­ustu verði kom­ið á lagg­irn­­ar. Grein­ing­­ar­vinna fari nú þeg­­ar fram, til að mynda hjá grein­ing­­ar­­deild rík­­is­lög­­reglu­­stjóra og ekki víst að það þurfi sér­­staka laga­breyt­ingu eða aukn­­ar heim­ild­­ir til að efla það starf. „En aft­­ur á móti þarf að auka get­una og sam­­starf við aðra til þess að við get­­um gert okk­­ar sjálf­­stæðu grein­ing­­ar á þeim ógn­­um sem við telj­­um að standi að okk­­ur.“ Víð­­ir bend­­ir á að þetta sé eitt af því sem aukn­­ar fjár­­veit­ing­­ar í varn­­ar­tengd verk­efni nái yf­­ir, að rík­­in hafi getu til þess að leggja sjálf­­stætt mat á þá hættu sem að þeim steðj­­ar og hvern­ig þau bregð­­ast við.

Áfalla­þol sam­­fé­lags­ins

Öfl­­ugt áfalla­þol hef­­ur mik­inn fæl­ing­­ar­mátt. „Ó­lík­­­legra er að sam­­fé­lag sem býr yf­­­ir miklu áfalla­þoli hafi veik­­leika sem mög­u­­leg­­ir and­­stæð­ing­­ar geti nýtt sér­­,” seg­­ir í grein­­ar­­gerð með stefn­unn­i. Af þessu leiði að áfalla­þol borg­­ara­­legra inn­­viða, auð­linda og sam­­fé­lags­­lega mik­il­vægr­­ar þjón­­ustu sé fyrsta varn­­ar­lína hvers sam­­fé­lags.

Áfalla­þol sam­­fé­lags er í raun­inni mæli­kvarði á hvort og hversu vel sam­­fé­lag get­­ur fún­­ker­að þrátt fyr­­ir áföll og jafn­­vel stríðs­á­tök. Með efl­ingu þess megi tryggja að ekki verði rof á mik­il­vægri sam­­fé­lags­­þjón­ust­u, fjar­­skipt­­um og sam­­göng­­um. Vatns­ og fæð­u­ör­yggi þurfi einnig að tryggja og að­­­gengi að orku. Þá þurfi heil­brigð­is­­kerf­ið að hafa getu til að takast á við meiri­hátt­­ar mann­tjón og heil­brigð­is­á­­föll og inn­­við­­ir og áætl­­an­­ir um skynd­i­­lega fólks­­flutn­inga að vera til stað­­ar.

Styrk­ing al­­manna­varna­­kerf­is­ins er einnig þátt­­ur í áfalla­þoli, en það þarf að geta tek­ist á við hvers kyns áföll sem ógna eða kunna að ógna lífi og heilsu al­­menn­ings, um­­hverfi eða eign­­um. Söm­u­­leið­­is þurfi að styrkja sam­­fé­lags­­lega inn­­viði eins og sýn­i­­lega lög­­­gæslu og aðra nær­­þjón­ust­u.

Inn­­­an Atl­ants­hafs­­banda­lags­ins hafa ver­ið lögð fram sjö grunn­við­mið um áfalla­þol sem rík­­in hafa sam­­mælst um að inn­­­leiða sem aft­­ur styrk­­ir sam­eig­in­­legt ör­yggi og varn­­ir. Á grund­velli þess­­ara við­miða hafa banda­lags­­rík­­in ver­ið hvött til að móta eig­in stefnu með mark­mið­­um og að­­­gerð­­um sem styrkja áfalla­þol sam­­fé­lags­ins. Vinna í þessa veru stend­­ur nú yf­­­ir hjá ís­­lensk­­um stjórn­­völd­­um og tek­­ur sú vinna með­­al ann­­ars til sam­­göng­u­inn­viða, fjar­­skipta­inn­viða, orku­inn­viða, fæð­u­að­fanga og heil­brigð­is­­þjón­ust­u.

Í kafla stefn­unn­­ar um áfalla­þol er einnig vik­ið að að­­­stöðu fyr­­ir er­­lend­­an her­afla. Fyr­­ir hendi þurfi að vera birgð­ir, neyð­­ar­­skýli og allskyns bún­­að­­ur. Með hlið­­sjón af því að þessi að­­­staða er eink­­um stað­­sett á Reykja­­nesi þurfi að horfa til þess hvort inn­­við­­ir kunni að vera í hættu vegna nátt­úru­ham­fara, skemmd­­ar­verka eða átaka.

Sam­tal­ið um varn­­ar­­mál og ís­­lenskt reynslu­­leysi

Í stefn­unni er sér­­stak­­lega vik­ið að mik­il­vægi rann­­sókna, fræðslu, upp­­lýs­inga­mið­l­un til al­­menn­ings og op­inn­­ar um­­ræðu í sam­­fé­lag­inu um ör­ygg­is-­ og varn­­ar­­mál.

Upp­­lýs­inga­óreið­u­her­­ferð­­ir eru ein birt­ing­­ar­­mynd fjöl­þáttaógna. Lögð er áhersla á við­­nám gegn þeim og varn­­ir „gegn er­­lendri íhlut­un í lýð­ræð­is­­lega ferla og til­­raun­­um til að hafa áhrif á þjóð­­fé­lags­um­ræð­u.” Fjöl­mið­l­­ar eru þó ekki nefnd­­ir í stefn­unn­i. Að­­­spurð­­ur seg­­ir Víð­­ir mik­il­vægt að velta fyr­­ir sér hlut­verki fjöl­miðla á þessu mál­efna­sviði enda skipti upp­­lýs­inga­­gjöf stjórn­­­valda til al­­menn­ings miklu máli á krís­u­­tím­­um.

Ís­­lensk­­ir fjöl­mið­l­­ar hafa ekki mikla reynslu af um­­­fjöll­un um ör­ygg­is-­ og varn­­ar­­mál og kúltúr í kring­­um öfl­­un og með­­­ferð við­­kvæmra upp­­lýs­inga á þessu sviði langt frá því eins þró­að­­ur og víða ann­­ars stað­­ar.

Víð­­ir seg­­ir ís­­lenska stjórn­­­mála­­menn í svip­aðri stöð­u. Ráð­herr­­ar og þing­­menn séu var­kár­­ir og jafn­­vel of var­kár­­ir í sam­­skipt­­um við fjöl­miðla af því þeir vita ekki hversu langt þeir mega ganga í upp­­lýs­inga­­gjöf. Mik­il­vægt sé að sam­­tal um þetta verði tek­ið og þekk­ing­­ar afl­að sem nýst gæti bæði fjöl­mið­l­u­m, stjórn­­­mála­­mönn­­um og stjórn­­­sýsl­unni og orð­ið til þess að efla traust sam­­skipti um þessi mál.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:50

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link