# Gímaldið > Lýsum upp samfélagið ## Posts - [Segjum hræðilegar sögur í myrkri](https://gimaldid.is/segjum-hraedilegar-sogur-i-myrki/): Skáldaparið Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson eru bæði þekkt fyrir magnaðar skáldsögur, óhrædd við að beita rödd sinni. - [Hlaðvarp: Vandræðalega leyndarmál fátæktarannsókna](https://gimaldid.is/hladvarp-vandraedalega-leyndarmal-fataektarannsokna/): Áætlað er að eitt af hverjum tíu börnum á Íslandi búi við fátækt, ef marka má nýlega tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Talan vakti mikla athygli og rataði víða í fréttir en hvaðan kemur hún? Rýnt er í fátæktartölur í nýjasta þætti af Sirkabát. - [Al­þingi kall­ar eft­ir hug­mynd­um fyr­ir af­mæl­ið sitt](https://gimaldid.is/althingi-kallar-eftir-hugmyndum-fyrir-afmaelid-sitt/): For­sætis­nefnd Al­þing­is kall­ar eft­ir hug­mynd­um um hvern­ig fagna beri 1100 ára af­mæli Al­þing­is ár­ið 2030. - [Fimm verstu augna­blik rík­is­stjórn­ar­inn­ar](https://gimaldid.is/fimm-verstu-augnablik-rikisstjornarinnar/): 1. Þeg­ar Ást­hild­ur Lóa sagði af sér 2. Þeg­ar mennta­mála­ráð­herra tal­aði ensku 3. Þeg­ar for­seti Al­þing­is stöðv­aði um­ræð­ur 4. Þeg­ar efna­hags­á­föll­in dundu yf­ir 5. Þeg­ar bar­átt­an gegn vernd­ar­toll­um tap­að­ist - [Fimm bestu augna­blik rík­is­stjórn­ar­inn­ar](https://gimaldid.is/fimm-bestu-augnablik-rikisstjornarinnar/): 1. Þegar ríkið spurði þjóðina hvernig mætti spara 2. Þeg­ar hlut­ur rík­is­ins í Ís­lands­banka var seld­ur 3. Þeg­ar Fram­sókn sprengdi borg­ar­stjórn­ina 4. Þeg­ar stjórn­ar­and­stað­an fór í mál­þóf 5. Þeg­ar samn­ing­ur um rétt­indi fatl­aðs fólks var lög­fest­ur - [RÚV sem burðarstoð fjölmiðla frekar en keppinautur](https://gimaldid.is/ruv-sem-burdarstod-fjolmidla-frekar-en-keppinautur/): Að hverfa niður í hefðbundnar skotgrafir í umræðu um RÚV er gagnslaust. Vörpum frekar fram nýjum hugmyndum og skoðum lausnir sem eru til þess fallnar að skapa heilbrigðara fjölmiðlaumhverfi. Hér er tilraun til þess. - [Stað­an í stjórn­mál­um einu ári frá kosn­ing­um](https://gimaldid.is/stadan-i-stjornmalum-einu-ari-fra-kosningum/): Í til­­efni af því að eitt ár er nú lið­ið frá kosn­­ing­­um lít­ur Gímald­ið yf­­­ir far­inn veg hjá stjórn­­­mála­­flokk­un­um; skoð­­ar þró­un fylg­­is þeirra í könn­un­­um og það sem á daga þeirra hef­­ur drif­ið á ár­in­u. - [Seinkun barneigna flækir frjósemismælingar](https://gimaldid.is/seinkun-barneigna-flaekir-frjosemismaelingar/): Það skiptir ekki einungis máli að spyrja hversu mörg börn fæðast hverju sinni. Það þarf líka að skoða náið hvenær mæður eignast sín fyrstu börn á lífsleiðinni og sömuleiðis hvenær fólk tímasetur næstu barneignir. Um þetta eru sérfæðingar þáttastjórnendur Sirkabát sammála. - [Hlaðvarp: Verða landsmenn 700 þúsund talsins árið 2075?](https://gimaldid.is/hladvarp-verda-landsmenn-700-thusund-talsins-arid-2070/): Íslendingar hafa lengst af verið fremur fámenn þjóð. Landsmönnum hefur þó fjölgað hratt á undanförnum árum og samkvæmt mannfjöldspá Hagstofu Íslands gæti mannfjöldi nálgast hálfa milljón á næstu tveimur áratugum og allt að 700 þúsund eftir hálfa öld. Hversu nákvæm er þessi spá og hvernig ber túlka hana? - [Ráð­herra íhug­ar rann­sókn­ar­nefnd um kvenna­morð](https://gimaldid.is/radherra-ihugar-rannsoknarnefnd-um-kvennamord/): Raf­rænt eft­ir­lit með ger­end­um, fang­elsi fyr­ir vændis­kaup, þyngri refs­ing­ar og hærri bæt­ur. Þetta og fleira er til skoð­unn­ar í fyrstu Lands­á­ætl­un dóms­mála­ráð­herra gegn kyn­bundnu of­beldi gegn kon­um. - [Lán eða ekki lán? – Ný fjármögnunarleið til skoðunar hjá Neytendastofu og Seðlabankanum](https://gimaldid.is/lan-eda-ekki-lan-ny-fjarmognunarleid-til-skodunar-hja-neytendastofu-og-sedlabankanum/): Félög sem bjóðast til að eiga hluti í íbúðum fólks segjast ekki veita lán. Stofnanir sem hafa eftirlit með lánastarfsemi á fasteignamarkaði eru að skoða málið. - [Nýlendan Ísland](https://gimaldid.is/nylendan-island/): Var Ísland nýlenda? Líflegar umræður kviknuðu um þessa langlífu spurningu eftir að fyrrverandi ráðherra danska íhaldsflokksins tjáði sig um málið á samfélagsmiðlinum X. Jón Kristinn Einarsson, doktorsnemi í sagnfræði við Chicago háskóla, setur spurninguna í sögulegt samhengi. - [Byggingarsagan birtir okkur tíðarandann](https://gimaldid.is/byggingarsagan-birtir-okkur-tidarandann/): Bók þarf mikilvægt erindi til að hafa skriðþunga, segir Andri Snær Magnason í viðtali við Bókapressuna, bókahlaðvarp Gímaldsins. Bók hans Jötunsteinn hefur fengið góða dóma. - [Óvæntur vinafundur í Hvíta húsinu](https://gimaldid.is/ovaentur-vinafundur-i-hvita-husinu/): Nýjasta hetja bandarískra stjórnmála, Zohran Mamdani verðandi borgarstjóri í New York, hélt til fundar við Donald Trump forseta í Hvíta húsinu. Vel fór á með þessum meintu fjandmönnum í pólitík og engu var líkara en gamlir vinir kæmu saman. - [Rafræn skilríki auka öryggi – nema fyrir fatlað fólk](https://gimaldid.is/rafraen-skilriki-auka-oryggi-nema-fyrir-fatlad-folk/): Formaður ÖBÍ, Alma Ýr Ingólfsdóttir, segir sorglegt að aðgengi fatlaðs fólks að stafrænum lausnum sé enn ekki tryggt. Hún fagnar lögfestingu Samings sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og segir mikilvægt starf unnið innan ÖBÍ réttindasamtaka í víðum skilningi. - [„Komu hingað að orðlausu landi” – sögur innflytjenda þá og nú](https://gimaldid.is/komu-hingad-ad-ordlausu-landi-sogur-innflytjenda-tha-og-nu/): Mynd sem sjá má hér við þessa grein sýnir fyrrum íslenskan útgefanda, Halldór Guðmundsson, ásamt Salman Rushdie sem segja má að sé ein af táknmyndum þess að vera rithöfundur tveggja heima, um leið og hann er töframaður tungumálsins. - [Tvær leiðir til að mæta Evrópusambandinu](https://gimaldid.is/tvaer-leidir-til-ad-maeta-evropusambandinu/): Þegar Ísland og Noregur mæta ESB í dag þrammar Ísland inn með hnefann á lofti, meðan Noregur læðist inn með pókerfés. Í Noregi getur þetta líka verið upptaktur að nýrri aðildarumræðu. - [Ára­tug­ir erf­ið­leika í for­ystu­mál­um Fram­sókn­ar](https://gimaldid.is/aratugir-erfidleika-i-forystumalum-framsoknar/): Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hef­ur tvisvar kjör­ið sér for­mann sem ekki sat á þing­i. Þá líkt og nú glímdi flokk­­­ur­inn við fylg­is­hrun og óá­­­nægju í gras­rót­inn­i. - [Fram­sókn og tím­inn: Þol­in­móð­asti flokk­ur lands­ins bíð­ur fær­is](https://gimaldid.is/framsokn-og-timinn-tholinmodasti-flokkur-landsins-bidur-faeris/): Nú er hægt að hlusta á um­fjöll­un Gímalds­ins um móral­inn í Fram­sókn í til­efni af for­manns­kjöri í flokkn­um um helg­ina. ­ Fram­­­sókn­­­ar­­­fólk seg­­­ir kjós­­­end­­­ur hafa feng­ið nóg af flokkn­­­um og for­ystu hans. Nú þurfi bara að bíða eft­­­ir réttu tæki­­­færi til inn­­­komu á ný. Það gæti skap­­­ast með nýrri for­yst­u. - [Hlaðvarp: Af hverju frestar fólk barneignum?](https://gimaldid.is/hladvarp-af-hverju-frestar-folk-barneignum/): Hvaða áhrif hefur hækkandi meðaldur frumbyrja á þróun frjósemi? Í öðrum þætti Sirkabát er rætt við tvo sérfræðinga sem hafa rannsakað frjósemi náið frá ólíkum sjónarhornum. - [Dulbúa sprengjur sem leikföng – Zaki lifir enn hrylling á Gaza](https://gimaldid.is/dulbua-sprengjur-sem-leikfong-zaki-lifir-enn-hrylling-a-gaza/): Vopnahlé það sem Trump lagði til á Gaza hófst þann 10. október síðastliðinn – en hefur eitthvað breyst? Er raunverulegt vopnahlé? Rætt er við fjölskylduföðurinn Zaki sem býr í tjaldi í Deir al-Balah ásamt fjölskyldu sinni og segir að þau lifi „tímabundið“ – á Gaza sé engin framtíð. - [Vill end­ur­bætta stjórn­ar­skrá í af­mæl­is­gjöf ár­ið 2030](https://gimaldid.is/vill-endurbaetta-stjornarskra-i-afmaelisgjof-arid-2030/): Fyrr­ver­andi for­seti tel­ur stríð­andi fylk­ing­ar, deil­ur um auð­lind­ir og al­gera kröfu um víð­tæka sátt, hafi stað­ið breyt­ing­um á stjórn­ar­skrá fyr­ir þrif­um. - [Hvað verður um blessuð börnin?](https://gimaldid.is/hvad-verdur-um-blessud-bornin/): Margir hafa áhyggjur af minnkandi frjósemi hér á landi og víða annars staðar, enda birtast reglulega fréttir um að of fá börn fæðist. Í fyrsta þætti Sirkabát ræddu þáttastjórnendur um hvernig hún er mæld og báru saman kosti og galla ólíkra mælikvarða notaðir eru til skilja fyrirbærið. - [Hlaðvarp: Eru í alvöru að fæðast of fá börn á Íslandi?](https://gimaldid.is/sirkabat-1-thattur-frjosemi/): Frjósemi hefur verið mikið til umræðu hér á landi undanfarið. Hagstofa Íslands tilkynnti fyrr á þessu ári að að frjósemi kvenna búsettra á Íslandi hafi haldið áfram að dragast. Hvað segja þessar tölur í raun og hversu miklar áhyggjur þurfum við að hafa af þessari þróun? - [Flokks­hest­ar eða frjáls­ir fram­bjóð­end­ur: Fræð­in á bak við val á ­lista](https://gimaldid.is/flokkshestar-eda-frjalsir-frambjodendur-fraedin-a-bak-vid-val-a-lista/): Þótt próf­kjör­in séu lýð­ræð­is­leg og gegn­sæ eru þau ekki galla­laus. Upp­still­ing get­ur opn­að dyr fyr­ir hæfu fólki sem ann­ars hefði aldrei far­ið í stjórn­mál. En hegða fram­bjóð­end­ur sér með ólík­um hætti eft­ir því hvað­an um­boð þeirra kem­ur? - [Hlaðvarp: Mismikil ánægja með oddvitana í borginni](https://gimaldid.is/flokksfolk-misjafnlega-anaegt-med-sina-oddvita-i-borginni/): Flokkarnir í Reykjavík velta nú vöngum yfir því hvaða leið er best til að velja fólk í efsti sæti á lista. Margir eru ósáttir við núverandi oddvita sína og óvíst hverjir halda sætum sínum. - [„Við erum öll íslenskukennarar“](https://gimaldid.is/vid-erum-oll-islenskukennarar/): Tungumálakennsla snýst um að fólk eignist samfélag, að mati Sólveigar Jónasdóttur sem hefur kennt útlendingum íslensku síðustu ár. Hún telur valdeflingu og sjálfstyrkingu skipta mestu máli. - [Ungt fólk tengir ensku við skemmtun en íslensku við leiðréttingar](https://gimaldid.is/ungt-folk-tengir-ensku-vid-skemmtun-en-islensku-vid-leidrettingar/): Yngri kynslóðum er orðið tamara að hugsa á ensku en íslensku og viðhorf til ensku er jákvæðara en til íslenskunnar. Hið ástkæra ylhýra er tengt við leiðréttingar, reglur og skyldur en enskan við afþreyingu og skemmtun. Ef við missum tungumálið þá missum við tengsl við okkar innra líf. - [Sanna á eng­an sama­stað og fleiri odd­vit­ar í óvissu um stöðu sína](https://gimaldid.is/sanna-a-engan-samastad-og-fleiri-oddvitar-i-ovissu-um-stodu-sina/): Ýms­um að­ferð­um verð­ur beitt við val á lista í Reykja­vík. Gott gengi í könnunum gæti dreg­ið úr Guð­laugi Þór. Heiða tal­in lík­leg til for­ystu áfram þrátt fyr­ir skipt­ar skoð­an­ir. Vin­sæl­asti borg­ar­full­trú­inn er heim­il­is­laus í stjórn­mál­um og von­ast enn eft­ir sam­starfi vinstri flokka. - [Margir strákar lesa fótboltabækurnar](https://gimaldid.is/margir-strakar-lesa-fotboltabaekurnar/): Rúm tuttugu ár eru síðan Tómas Hermannsson fékk þá hugmynd að stofna bókaútgáfu – Sögur útgáfu – og hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan. Hann hefur gefið út fjölda fótbolta- og körfuboltabóka sem njóta mikilla vinsælda, sérstaklega hjá drengjum, og segir hann mikilvægt að gefa út bækur sem börn hafa sjálf áhuga á að lesa. - [Hefur nýjasta stjarna bandarískra stjórnmála – Zohran Mamdani – áhrif á stjórnmál á Íslandi?](https://gimaldid.is/hefur-nyjasta-stjarna-bandariskra-stjornmala-zohran-mamdani-ahrif-a-stjornmal-a-islandi/): Zohran Mamdani er stjarna bandarískra stjórnmála og eins ólíkur Trump forseta og hugsast getur. Talið er að áhrifa af hans pólitík muni gæta langt út fyrir landsteina Bandaríkjanna. - [Hækkandi fæðingartíðni fjölmiðla](https://gimaldid.is/haekkandi-faedingartidni-fjolmidla/): Sjöundi dagur Gímaldsins er runninn upp. Við horfum björtum augum fram á veginn en hvetjum öll og ömmu þeirra til að gerast áskrifendur. Það er besta leiðin til að koma fjölmiðli á legg. - [Treystum miðlunum til að skilgreina okkur – Árni Helgason ræðir fyrstu skáldsögu sína í Bókapressunni](https://gimaldid.is/treystum-midlunum-til-ad-skilgreina-okkur-arni-helgason-raedir-fyrstu-skaldsogu-sina-i-bokapressunni/): Fyrsti bókaþáttur Gímaldsins er farinn af stað. Hann heitir Bókapressan og verður reglulega á dagskrá fyrir áskrifendur. Árni Helgason rithöfundur og lögmaður er gestur fyrsta þáttar. - [Dag­ur leið­ir vinnu um þörf fyr­ir breyt­ingu á stjórn­ar­skrá](https://gimaldid.is/dagur-leidir-vinnu-um-thorf-fyrir-breytingu-a-stjornarskra/): Þörf fyr­ir breyt­ingu á stjórn­ar­skránni er meg­in­verk­efni sér­nefnd­ar þing­manna und­ir for­ystu Dags B. Egg­erts­son­ar. Hlut­verk nefnd­ar­inn­ar er að íhuga við­brögð við dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu um al­þing­is­kosn­ing­arn­ar 2021. Kall­að verð­ur eft­ir við­horf­um breiðs hóps sér­fræð­inga. - [Fólk í valdastöðum tekur sig alvarlega – líka þegar það er fáránlegt](https://gimaldid.is/folk-i-valdastodum-tekur-sig-alvarlega-lika-thegar-thad-er-faranlegt/): Hvíta húsið gerir nú blaðamönnum enn erfiðara fyrir að sinna störfum sínum - á vakt hins háæruverðuga talsmanns þess að grípa í píkur. Með því er kynt undir fáránleika sem við hlæjum að – sífellt dofnari fyrir gildum og merkingu. - [Zohran Mamdani – Reynsluleysi eða ný tegund leiðtoga?](https://gimaldid.is/zohran-mamdani-nytt-andlit-valdsins-i-new-york/): Zohran Mamdani er talinn líklegastur til að verða næsti borgarstjóri New York. Hann er langt því frá hefðbundinn stjórnmálamaður og nái hann kjöri markar það tímamót á ýmsan hátt. Hann vill fría leikskóla, fríar almenningssamgöngur og þak á leiguverð. Hann segir New York ekki eiga að vera undir hæl milljarðamæringa heldur sé tími fólksins runninn upp. - [Iðn­að­ar­krat­ar ráða ríkj­um í Sam­fylk­ing­unni](https://gimaldid.is/idnadarkratar-rada-rikjum-i-samfylkingunni/): Sam­­fylk­ing­in er á mik­illi sigl­ingu eft­­ir langa eyð­i­­merk­­ur­­göng­u. Flokks­fólk lýs­ir gleði með góð­an ár­ang­ur en finn­ur fyr­ir vaxta­verkj­um og hef­ur áhyggj­ur af mál­efn­um sem kom­ast ekki leng­ur að hjá flokkn­um. Flokks­starf er út­rým­ing­ar­hættu seg­ir pró­fess­or. - [Símalína á milli akademíu og almennings](https://gimaldid.is/breytt-hugarfar-er-thad-mikilvaegasta/): Eftir öflugt ævistarf titlar Eiríkur Rögnvaldsson sig uppgjafaprófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands á netsíðu skólans, þar sem hann var prófessor. Samt loðir engin uppgjöf við hann þegar hann skrifar af þrótti um íslenskuna, hvort sem það er í greinum, pistlum eða færslum á samfélagsmiðlum. Á sinn hátt hefur hann verið símalína á milli almennings og akademíunnar í þessum efnum. - [Íslendingar ekki vanir að heyra útlenskan hreim](https://gimaldid.is/mikilvaegt-ad-islendingar-haldi-afram-ad-skapa-a-islensku/): „Íslendingar tala eða skilja víst flestir ensku en það ætti aldrei að vera skylda fyrir þá. Heldur ekki á ferðamannastöðum,” segir franski þýðandinn og íslenskukennarinn Jean-Christophe Salaün sem starfaði við afgreiðslu á Íslandi þegar hann var að læra málið. - [Sjálf­stæð­is­menn í nafla­skoð­un: „Sum­­­ar­ið fór rosa­­lega illa með okk­­ur”](https://gimaldid.is/sjalfstaedismenn-i-naflaskodun-sumarid-for-rosalega-illa-med-okkur/): Nýr for­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins tek­ur við flokki í til­vist­ar­kreppu eft­ir 16 ára valda­tíð Bjarna Bene­dikts­son­ar. Gímaldið tekur púlsinn á sálarlífi áhrifafólks í Sjálfstæðisflokknum og ræðir stöðu flokksins við prófessor í stjórnmálafræði. - [Stjórnmálaflokkar í krísu, lýðskrum og endurkoma sígaretturisa](https://gimaldid.is/stjornmalaflokkar-i-krisu-lydskrum-og-endurkoma-sigaretturisa/): Fyrsta hlaðvarpið hefur litið dagsins ljós. Óformlegur tilraunaþáttur þar sem við ræðum umfjallanir Gímaldsins og óskum eftir ábendingum frá áskrifendum. - [Hrefna „springur úr harmi” og Egill „þrútnar af sorg”](https://gimaldid.is/hrefna-springur-ur-harmi-og-egill-thrutnar-af-sorg/): Brynja Þorgeirsdóttir segir margt benda til þess að á ritunartíma Íslendingasagna hafi sagnaritarar og skáld ekki litið á rökhugsun og tilfinningar sem eins ólík fyrirbæri og nú. Hún telur að ef íslenskan veikist enn meira eigi fólk erfitt með að skilja nútímaíslensku eftir hundrað ár. - [Viljum við að íslenska verði tungumál þessarar þjóðar?](https://gimaldid.is/viljum-vid-ad-islenska-verdi-tungumal-thessarar-thjodar/): „Við erum að tapa í þessu stríði,“ segir Páll Valsson þar sem hann ræðir stöðu íslenskunnar í ansi ítarlegu viðtali, hluta af röð viðtala um tungumálið. Sem útgefandi hefur hann lesið óteljandi handrit í einhverja áratugi og þannig orðið vitni að breytingum í málnotkun. - [Kafla­skil hjá Sam­fylk­ingu og Sjálf­stæð­is­flokki](https://gimaldid.is/kaflaskil-hja-samfylkingu-og-sjalfstaedisflokki/): Sjálfstæðisflokkurinn hefur misst ægivald sitt í íslenskum stjórnmálum og flokksfólk er í sjálfskoðun. Félagar í Samfylkingunni finna fyrir vaxtaverkjum en flug flokksins er ekki varanlegt. Stjórnmálaflokkar eru að víkja fyrir samtökum frambjóðenda. - [Virði í stjórn­mála­starfi að gufa upp](https://gimaldid.is/virdi-i-stjornmalastarfi-ad-gufa-upp/): Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn standa á krossgötum. Kynslóðaskipti hafa orðið í forystu Samfylkingarinnar sem er á mikilli siglingu eftir langa eyðimerkurgöngu. Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins tekur við flokki í tilvistarkreppu eftir 15 ára valdatíð Bjarna Benediktssonar. Rúmum áratug eftir upplausn fjórflokkakerfisins hefur orðið grundvallarbreyting á skipulagi íslenskra stjórnmála og eðli og hlutverki stjórnmálaflokka. - [Lýðskrumarar í dauðafæri – í nafni íslenskunnar](https://gimaldid.is/lydskrumarar-i-daudafaeri-i-nafni-islenskunnar/): Spjótin standa á íslenskunni úr mörgum og ólíkum áttum. Og það er langt í frá sjálfgefið að örmál sem íslenska lifi af. Breyttar venjur sem hafa áhrif á tungumálið okkar hafa líka áhrif á samfélagið og stjórnmálin. - [Þéttriðið net nikótínsala: Sölustaðir á höfuðborgarsvæðinu úr fjórtán í 114 á tveimur árum](https://gimaldid.is/thettridid-net-nikotinsala/): Gjald á nikótínpúða sem tekið var upp á síðasta ári hefur að markmiði að sporna við útbreiddri notkun meðal barna og ungs fólks. Útbreiðsla sölustaða er hröð, tegundum fjölgar og mest framboð er af sterkari púðum. - [Gímaldið komið í loftið](https://gimaldid.is/gimaldid-i-loftid-27-oktober/): Gímaldið er komið í loftið. Hér eiga eftir að birtast ýmsar greinar, skýringar og hlaðvörp. Við byrjum smátt og byggjum miðilinn upp með áskrifendum, jafnt og þétt. - [Bókapressan og Laxness-klúbbur](https://gimaldid.is/bokapressan-og-laxness-klubbur/): Umfjöllun um bækur verður órjúfanlegur hluti af Gímaldinu. Sérstakur Laxness-bókaklúbbur verður starfræktur samhliða hlaðvarpinu Bókapressan. - [Hárnákvæm vísindi eða fáguð ágiskun?](https://gimaldid.is/harnakvaem-visindi-eda-fagud-agiskun/): Sirkabát er nýtt hlaðvarp fyrir forvitið fólk sem vill skilja tölurnar á bak við fyrirsagnirnar og sjá hvernig þær móta heimssýn okkar, pólitík og samfélag. Með léttu en fróðlegu samtali afhjúpa þeir Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson hvernig tölur geta bæði upplýst og blekkt. - [Opnað fyrir áskriftir að Gímaldinu](https://gimaldid.is/opnad-fyrir-askriftir-ad-gimaldinu/): Gímaldið fer í loftið 30. október og við viljum bjóða ykkur að kaupa áskrift eða leggja til framlag og styðja þannig við Gímaldið áður en við förum af stað. Áskrift og stuðningur gerir okkur kleift að byggja upp vandaðan fjölmiðil sem getur lýst upp samfélagið - [Kaffispjall og kynning á Gímaldinu](https://gimaldid.is/kaffispjall-og-kynning-a-gimaldinu/): Langar þig að vita meira um Gímaldið? Komdu þá í kaffispjall í næstu viku. Við tökum vel á móti þér. - [Meira eða minna?](https://gimaldid.is/meira-eda-minna/): Eitt af hlutverkum fjölmiðla er að hvetja til umræðu en það skiptir máli hvernig það er gert. Góð greining liggur að baki góðu samtali. Því dýpri sem hún er, því dýpra verður samtalið. Móð af æsingi eltum við fréttirnar en góð fréttaskýring getur fengið okkur til að kasta mæðinni. - [Órólegur nútími krefst yfirvegaðra fjölmiðla](https://gimaldid.is/orolegur-nutimi-krefst-yfirvegadra-fjolmidla/): Gímaldið hefur fengið ótrúlegar viðtökur. Nú tökum við næstu skref og viljum heyra frá ykkur. Fjölmiðill verður ekki til í tómarúmi heldur er það samfélagið sem skapar hann. - [Nýr miðill í loftið í september](https://gimaldid.is/nyr-midill-i-loftid-i-september/): Gímaldið undir stjórn Eyrúnar Magnúsdóttur og Auðar Jónsdóttur - [Um leikja­fræð­ina á þingi og hvern­ig for­seti held­ur söns­um þeg­ar allt verð­ur vit­laust](https://gimaldid.is/um-leikjafraedina-a-thingi-og-hvernig-forseti-heldur-sonsum-thegar-allt-verdur-vitlaust/): Hvaða herr­um þjón­ar for­seti Al­þing­is og hver fer með dag­skrár­vald þings­ins í raun og veru? Þess­um spurn­ing­um og mörg­um öðr­um svar­ar Birg­ir Ár­manns­son, fyrr­ver­andi þing­for­seti í við­tali um leikja­fræð­ina á Al­þing­i. - [Þór­dís Kol­brún: „Ég breytt­ist“](https://gimaldid.is/thordis-kolbrun-eg-breyttist/): Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir sit­ur í stjórn­ar­and­stöðu eft­ir mörg ár í rík­is­stjórn. Hún hugs­ar mik­ið út í heim og úti­lok­ar ekki að skipta um starfs­vett­vang. Hún hrós­ar tveim­ur ráð­herr­um í rík­is­stjórn. Hún seg­ir dóms­mála­ráð­herra lesa sal­inn rétt og er sam­mála áhersl­um ut­an­rík­is­ráð­herra á sviði ör­ygg­is-­ og varn­ar­mála. - [„Hvað vær­ir þú til­bú­in að gera gegn því að fá börn­in þín til baka ef þeim hefði ver­ið stolið?“](https://gimaldid.is/hvad-vaerir-thu-tilbuin-ad-gera-gegn-thvi-ad-fa-bornin-thin-til-baka-ef-theim-hefdi-verid-stolid/): Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir ræð­ir skipu­lögð barns­rán Rússa í Úkra­ín­u; Um börn­in sem num­in hafa ver­ið á brott og eru rænd upp­runa sín­um með heila­þvott­i, hvern­ig unn­ið er að end­ur­heimt þeirra og hvern­ig Evr­ópa og al­þjóða­sam­fé­lag­ið geti og eigi að bregð­ast við. - [Au pair-kerfið til endurskoðunar hjá dómsmálaráðuneytinu](https://gimaldid.is/au-pair-kerfid-til-endurskodunar-hja-domsmalaraduneytinu/): Dómsmálaráðherra segir til skoðunar að herða verulega skilyrði vistráðningarleyfa eða afnema þau alfarið, í ljósi vísbendinga um misnotkun kerfisins. Í Noregi hefur au pair-kerfið fyrir einstaklinga utan EES verið lagt niður. Hún bendir á að þær sem hingað koma standi „afskaplega veikt“ og séu í viðkvæmri stöðu - [Áform stjórn­ar­inn­ar í rík­is­fjár­mál­um næstu ár­in](https://gimaldid.is/aform-stjornarinnar-i-rikisfjarmalum-naestu-arin/): Bank­ar og bif­reiða­eig­end­ur borga meira og minna af VSK fæst end­ur­greidd­ur. Inn­viða­skuld­ir í sam­göng­um og heil­brigð­is­kerfi verða greidd­ar. Auk­ið fjár­magn sett í varn­ar­mál en minna til fram­halds­skóla, vægi verð­trygg­ing­ar verð­ur minnk­að og greiðslu­þátt­taka sjúk­linga breyt­ist. Rík­is­stjorn­in heit­ir halla­laus­um fjár­lög­um á hverju ári út kjör­tíma­bil­ið. - [Gímaldið fær styrk úr sjóðnum Vísindi og velferð fyrir hlaðvarpið Sirkabát](https://gimaldid.is/hladvarpsthatturinn-sirkabat-faer-styrk-til-throunar-ur-sjodnum-visindi-og-velferd/): Gímaldið hefur hlotið styrk úr sjóðnum Vísindi og velferð: Styrktarsjóði Sigrúnar og Þorsteins til þróunar á hlaðvarpinu Sirkabát. Í þáttunum er rýnt í tölur á bak við fréttir. Styrkurinn er mikilvæg viðurkenning og nýtist við frekari áherslu á að sannreyna fullyrðingar í opinberri umræðu. - [Skrifar fréttirnar fyrir hinn almenna lesanda](https://gimaldid.is/skrifar-frettirnar-fyrir-hinn-almenna-lesanda/): Verðlaunablaðamaðurinn Kjartan Kjartansson segir lykilatriði að lesendur þurfi ekki sérþekkingu til að skilja fréttir. Í hlaðvarpsviðtali Gímaldsins ræðir hann vinnubrögð sín, áhuga á vísindum og hvernig umfjöllun um loftslagsmál hefur þróast. - [Svona sundrum við samfélagi](https://gimaldid.is/svona-sundrardu-samfelagi/): Þegar sameiginlegur skilningur á staðreyndum veikist er ekki lengur deilt um skoðanir heldur um það hvað sé yfir höfuð satt. Í slíku umhverfi er enginn áhorfandi. Með hverri deilingu, hverju samþykki og hverri þögn tökum við þátt í að móta þann veruleika sem við teljum okkur aðeins vera að fylgjast með - [Sirkabát: Gullöld úrtaksrannsókna á Íslandi liðin tíð](https://gimaldid.is/sirkabat-gullold-urtaksrannsokna-a-islandi-lidin-tid/): Þjóðskráin og víðtæk skráning í símaskrá auðvelduðu áður gerð úrtaka. Ólafur Þór Gylfason, sviðsstjóri markaðarannsókna hjá Maskínu, segir að á þeim 30 árum sem hann hefur starfað á þessu sviði hafi orðið breytingar sem sumar geri rannsakendum erfiðara fyrir við að framkvæma skoðanakannanir. - [Dóm­ar­arn­ir lögðu Meloni](https://gimaldid.is/domararnir-logdu-meloni/): Ítal­ir hafa fellt um­deild­ar breyt­ing­ar á ítölsku stjórn­ar­skránni í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Nið­ur­stað­an er mik­ið áfall fyr­ir rík­is­stjórn Giorgiu Melon­i. Skýrend­ur telja marga kjós­end­ur hafa kos­ið um rík­is­stjórn Meloni frem­ur þær stjórn­ar­skrár­breyt­ing­ar sem voru á kjör­seðl­in­um. - [Fjölmiðlar styðja breytingar á fjölmiðlalögum en gagnrýna útfærslu](https://gimaldid.is/fjolmidlar-stydja-breytingar-a-fjolmidlalogum-en-gagnryna-utfaerslu/): Fjölmiðlar eru almennt fremur jákvæðir í garð breyttra fjölmiðlalaga og telja það að festa rekstrarstuðning í sessi til fimm ára auki fyrirsjáanleika. Hins vegar telja margir að frumvarpið festi í sessi kerfi sem ýti undir samþjöppun, mismuni minni miðlum og forðist að takast á við helstu áskoranir fjölmiðlamarkaðarins. - [Útlendingastofnun hefur kallað til lögreglu í au pair-málum](https://gimaldid.is/utlendingastofnun-hefur-kallad-til-logreglu-i-au-pair-malum/): Útlendingastofnun hefur að jafnaði sent lögreglu tvisvar til þrisvar á ári á heimili au pair til að kanna aðstæður. Um átta af hverjum tíu sem fá dvalarleyfi á grundvelli vistráðningar eru ungar konur frá Filippseyjum. Útlendingastofnun tekur undir áhyggjur ASÍ af au pair kerfinu. - [Sænskt snus og sum­ar­hús hefðu stað­ið að­ild fyr­ir þrif­um](https://gimaldid.is/saenskt-snus-og-sumarhus-hefdu-stadid-adild-fyrir-thrifum/): Ást á munn­tó­baki og ótti við yf­ir­töku Þjóð­verja á sum­ar­hús­um eru með­al til­finn­inga sem drif­ið hafa í gegn und­an­þág­ur í að­ild­ar­samn­ing­um við Evr­ópu­sam­band­ið. Ís­land á að leggja áherslu á sér­stöðu sína sem harð­býls lands því ESB hef­ur áð­ur sýnt því skiln­ing seg­ir pró­fess­or í Evr­ópu­rétt­i. - [„Við þurfum þessa einstaklinga“ – félagið Hjaltastaðir stofnað fyrir ungt fólk sem fellur á milli kerfa](https://gimaldid.is/vid-thurfum-thessa-einstaklinga-felagid-hjaltastadir-stofnad-fyrir-ungt-folk-sem-fellur-a-milli-kerfa/): Aðstandendur Hjalta Snæs Árnasonar heitins vinna að því að móta hugmyndir að úrræði sem hefði getað hentað honum og öðrum í svipaðri stöðu. Verkefnið byggir meðal annars á erlendri fyrirmynd þar sem áhersla er lögð á tengsl, rútínu og þátttöku í daglegu lífi. Félagið Hjaltastaðir hefur nú verið formlega stofnað en á sunnudag er dánarafmæli Hjalta. - [Kær­um Nöru Wal­ker vís­að frá sem til­hæfu­laus­um](https://gimaldid.is/kaerum-noru-walker-visad-fra-sem-tilhaefulausum/): Nara Wall­ker var dæmd til fang­els­is­vist­ar ár­ið 2018 fyr­ir að bíta tung­una úr þá­ver­andi eig­in­manni sín­um. Hún kærði ís­lenska rík­ið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu og kvart­aði und­an því að ekki væri tek­ið til­lit til þess að hún væri þol­andi heim­il­is­of­beld­is. Dóm­stóll­inn tók ekki und­ir með henni í nið­ur­stöðu sinni í dag. - [Arndís Bára settur lögreglustjóri í Vestmannaeyjum í fjórða sinn á sex árum](https://gimaldid.is/arndis-bara-settur-logreglustjori-i-vestmannaeyjum-i-fjorda-sinn-a-sex-arum/): Arndís Bára Ingimarsdóttir var fyrst sett tímabundið í embætti lögreglustjóra í Vestmannaeyjum árið 2020 eftir að Páley Borgþórsdóttir lét af störfum. Grímur Hergeirsson og síðar Karl Gauti Hjaltason gegndu embættinu, en frá því Karl Gauti fór í leyfi hefur Arndís Bára verið sett í embættið þrisvar. - [Þingpistill: Önn­ur stór mál taka nú við](https://gimaldid.is/thingpistill-onnur-stor-mal-taka-nu-vid/): Evr­ópu­mál­ið er kom­ið til ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar en fyrri um­ræðu um mál­ið lauk í þing­inu í gær­kvöld. Mörg önn­ur stór mál bíða um­fjöll­un­ar á Al­þing­i. Frum­vörp um lagar­eldi og inn­viða­fé­lag voru lögð fram í gær og enn bíða um­deild mál eins og Bók­un 35, breyt­ing á bú­vöru­lög­um og svo­kall­að vísi­tölu­mál. - [Evr­ópu­mál­ið: Ágrein­ing­ur þing­heims í sex lið­um](https://gimaldid.is/evropumalid-agreiningur-thingheims-i-sex-lidum/): Efl­ing eða fram­sal full­veld­is, við­ræð­ur eða að­lög­un, lægra vaxta­stig eða smjör­klíp­a, samn­ings­staða Ís­lands, tíma­setn­ing at­kvæða­greiðslu og kostn­að­ur við þetta allt sam­an. Gímald­ið rýndi í mál­flutn­ing þingheims um Evr­ópu­mál­ið og setur fram sex punkta sem stjórnarliðar og stjórnarandstaða takast á um. - [Upplýsingaóreiða og fjármögnun: Lögreglan fylgist með erlendum áhrifum á ESB-umræðuna](https://gimaldid.is/upplysingaoreida-og-fjarmognun-logreglan-fylgist-med-erlendum-ahrifum-a-esb-umraeduna/): Greiningardeild ríkislögreglustjóra fylgist með mögulegum áhrifum erlendra ríkja á umræðu um Evrópusambandsmálið. Deildarstjórinn segir markmiðið ekki að hafa eftirlit með skoðunum fólks heldur að greina þegar erlendir aðilar reyna að móta umræðuna. - [Átta af tíu gervigreindarspjallforritum veittu ráð sem gætu nýst við ofbeldisverk](https://gimaldid.is/atta-af-tiu-gervigreindarspjallforritum-veittu-rad-sem-gaetu-nyst-vid-ofbeldisverk/): Rannsakendur sem þóttust vera unglingar spurðu tíu vinsæl gervigreindaspjallforrit um skotmörk, vopn og undirbúning árása. Samkvæmt rannsókn CNN og bandarískra samtaka sem rannsaka hatursorðræðu og öfgaefni á netinu veitti meirihluti forritanna upplýsingar sem gætu nýst við ofbeldisverk. - [Blaðamenn upplifa starfsöryggi á ólíkan hátt eftir rekstrarformi](https://gimaldid.is/bladamenn-upplifa-starfsoryggi-a-olikan-hatt-eftir-rekstrarformi/): Álag er almennt talið eðlilegur hluti blaðamennsku en upplifun á starfsöryggi er breytileg milli RÚV og einkarekinna fjölmiðla. Þetta kemur fram í meistaraverkefni Þorsteins Hjálmssonar í mannauðsstjórnun þar sem hann tók fyrir sálfræðilega samninginn. - [Rússar kyntu undir andstöðu við ESB fyrir Brexit – Ísland gæti vakið áhuga](https://gimaldid.is/russar-kyntu-undir-andstodu-vid-esb-fyrir-brexit-island-gaeti-vakid-ahuga/): Í fyrsta sinn hefur verið staðfest að erlend ríki hafi staðið að áhrifaaðgerð í Noregi í aðdraganda kosninga. Norskur sérfræðingur varar við að þjóðaratkvæðagreiðslan um framhald viðræðna við ESB gæti vakið áhuga þeirra sem standa að slíkum herferðum. - [Tíma­bært að segja skil­ið við minni­mátt­ar­kennd­ina](https://gimaldid.is/timabaert-ad-segja-skilid-vid-minnimattarkenndina/): Það gerði Pawel Bartoszek að Evr­­ópu­­sinna að fylgj­­ast með Pól­landi og ná­grönn­­um þess frels­­ast und­­an oki komm­ún­­is­m­ans og ganga í ESB. Hann seg­ist ekki hafa sér­­stak­­ar áhyggj­­ur af upp­­lýs­inga­óreiðu eða til­­raun­­um er­­lendra að­­ila til að hafa áhrif á Evr­ópu­um­ræð­una sem fram und­­an er. Stuðn­ings­fólk að­ild­ar að geti hins veg­ar margt lært af kosn­inga­bar­átt­unni í að­drag­anda Brex­it. - [Borgarlínan verður ekki vinsæl fyrr en fólk sér hana virka](https://gimaldid.is/borgarlinan-verdur-ekki-vinsael-fyrr-en-folk-ser-hana-virka/): Borgarlínan lendir gjarnan í pólitískum skotgröfum. Hugmyndir um hana komu fram í borgarstjórnartíð Dags B. Eggertssonar og í skautuðu pólitísku umhverfi hefur það eitt og sér nægt til að sumir festa sig í andstöðu. Þetta segir Davíð Þorláksson í viðtali. Hann á ekki von á að sátt myndist um Borgarlínuna fyrr en fólk sér hana virka. - [Hlaðvarp: Ætti þátttaka í útgjaldarannsókn Hagstofunnar að vera þegnskylda?](https://gimaldid.is/hladvarp-aetti-thatttaka-i-utgjaldarannsokn-hagstofunnar-ad-vera-thegnskylda/): Í janúar 2026 uppfærði Hagstofan flokkunarkerfi vísitölu neysluverðs yfir í alþjóðlegan staðal sem nefnist COICOP 2018. En hvað þýðir það eiginlega – og hvernig er verðbólga mæld? Sirkabát leitaði til teymisstjóra vísitölu neysluverðs á Hagstofunni um að skýra út hvernig neyslunni er skipt í flokka og hvaðan vogir mismunandi útgjaldaliða koma. - [Fall leiðtoga er augnablik en afleiðingarnar vara áratugum saman](https://gimaldid.is/fall-leidtoga-er-augnablik-en-afleidingarnar-vara-aratugum-saman/): Þessi grein fjallar ekki fyrst og fremst um Írak, Líbíu eða Afganistan. Hún fjallar um Íran. En til að skilja hvað gæti gerst næst í Íran þurfum við að horfa til þess þegar önnur einræði féllu og hvað gerðist í kjölfarið. Sagan sýnir að fall harðstjóra er aðeins upphafið. - [Ungar konur notaðar sem ódýrt vinnuafl: Hætta á misneytingu í au pair-kerfinu](https://gimaldid.is/ungar-konur-notadar-sem-odyrt-vinnuafl-haetta-a-misneytingu-i-au-pair-kerfinu/): Au pair frá Filippseyjum koma til Íslands á forsendum menningarskipta en enda á heimilum án verndar. Í lokuðum Facebook-hópi gestgjafafjölskyldna auglýsir fólk opinskátt eftir au pair annarra til að þrífa og gæta barna. Saga Kjartansdóttir hjá ASÍ segir skýr merki um misnotkun á kerfinu. - [Bókapressan: „Við þurfum ekki alltaf að brjóta saman þvottinn á meðan við lesum bók“](https://gimaldid.is/bokapressan-vid-thurfum-ekki-alltaf-ad-brjota-saman-thvottinn-a-medan-vid-lesum-bok/): Fullorðið fólk ætti að huga að sínum bóklestri ekki síður en lestri barna sinna. Anna Lea Friðriksdóttir, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir það dýrmætt að setjast niður með bók og eiga stund í næði. - [Sirkabát: Hvernig notum við gögn í afbrotafræði?](https://gimaldid.is/sirkabat-hvernig-notum-vid-gogn-i-afbrotafraedi/): Þrátt fyrir að fjölbreyttum upplýsingum sé safnað um afbrot í samfélaginu sem gefa vísbendingar um fjölda þeirra og þróun, þá er aðgengi að gögnun takmarkað og ítarlegar rannsóknir skortir. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur er gestur í nýjasta þætti Sirkabát og ræðir notkun gagna um afbrot. - [Rós­in er hætt við Vinstr­ið og styð­ur Sam­fylk­ing­una](https://gimaldid.is/rosin-er-haett-vid-vinstrid-og-stydur-samfylkinguna/): Viðræðum um sameiginlegt framboð Rósarinnar og Vinstrisins er lokið. Ekkert verður af samstarfi. Rósin fagnar öfl­ug­um og fjöl­breytt­um fram­boðs­lista Samfylkingarinnar. - [Dæmir viðtal við morðingja fjölmiðla úr leik?](https://gimaldid.is/daemir-vidtal-vid-mordingja-fjolmidla-ur-leik/): Um­fjöll­un RÚV um mál Mar­grét­ar Löf hef­ur vak­ið at­hygl­i. Ýms­ir hafa for­dæmt að dæmd­ur morð­ingi fái orð­ið í Rík­is­út­varp­inu og hafa efa­semd­ir um að um­fjöll­un­in eigi rétt á sér. Fjöl­miðl­ar hafa hins veg­ar hlut­verki að gegna við að lýsa upp erfið mál, jafnvel þótt í því felist að birta viðtal við morðingja. - [Hlaðvarp: Hvað getum við sagt um ákærutíðni erlendra ríkisborgara?](https://gimaldid.is/hladvarp-hvad-getum-vid-sagt-um-akaerutidni-erlendra-rikisborgara/): Tölur um ákærur á hendur erlendum ríkisborgurum hér á landi hafa verið nokkuð til umræðu eftir að dómsmálaráðuneytið sendi frá svar við fyrirspurn þingmanns. Hvað má lesa úr þessum tölum og hvaða aðferðum er hægt beita til að skoða gögnin í réttu samhengi? Þetta er rætt í nýjasta þætti Sirkabát. - [Eng­inn orð­að­ur við fram­boð hjá Flokki fólks­ins](https://gimaldid.is/enginn-ordadur-vid-frambod-hja-flokki-folksins/): Að­eins tveir flokk­ar í Reykja­vík eiga eftir að kynna oddvita sína. Eft­ir­vænt­ing er um lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem kynnt­ur verð­ur í vik­unn­i. Enn er eft­ir að fylla bar­áttu­sæti hjá Sam­fylk­ing­unn­i. - [Fjölmiðlanefnd: „Ekki nákvæm vísindi“ að reikna stöðugildi á fjölmiðlum](https://gimaldid.is/fjolmidlanefnd-ekki-nakvaem-visindi-ad-reikna-stodugildi-a-fjolmidlum/): Fjölmiðlanefnd getur ekki veitt upplýsingar um stöðugildi á fjölmiðlum sem fá rekstrarstuðning. „Þessi gögn eru ekki til,“ segir í svari til Gímaldsins. Formaður Blaðamannafélagsins hvetur ráðuneytið til ganga úr skugga um að Fjölmiðlanefnd sinni skyldum sínum. Frumvarp um breytingar á fjölmiðlalögum fer í samráð eftir helgi. - [Reikni­villa í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Diljá Mist um ákær­ur er­lendra rík­is­borg­ara](https://gimaldid.is/reiknivilla-i-svari-domsmalaradherra-vid-fyrirspurn-fra-dilja-mist-um-akaerur-erlendra-rikisborgara/): Hlutfall erlendra ríkisborgara sem sættu ákæru vegna brota gegn almennum hegningarlögum árið 2023 var 25,5 prósent, en ekki 34,2 prósent líkt og segir í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn þingmanns. Um er að ræða reiknivillu í einföldum prósentureikningi. - [Nágrannar: Fór í andaglas með meðlimum IRA](https://gimaldid.is/nagrannar-for-i-andaglas-med-medlimum-ira/): Anna Ólafsdóttir Björnsson segist hafa droppað út úr leikskóla og síðar gert misheppnaða tilraun til að droppa út úr menntaskóla. Þrátt fyrir að hafa búið á sama stað í 45 ár hefur hún átt fjölmarga nágranna og enginn þeirra verið leiðinlegur. - [For­ystu­fólk í VG vilji fella Líf](https://gimaldid.is/finnur-og-forystan-vilja-fella-lif/): Finn­ur Ricart og Auð­ur Al­fífa hafa mik­inn vind í segl­um í for­vali VG í Reykja­vík. Þau hafa femínista með sér, unga fólk­ið og stór­an hluta for­yst­unn­ar. Stefán er þó talinn eiga mikið inni og reynsl­an kenn­ir að ekki beri að van­meta Líf í for­vali. - [Rósa Björk sögð lík­leg til for­ystu í Vinstri græn­um](https://gimaldid.is/rosa-bjork-sogd-likleg-til-forystu-i-vinstri-graenum/): Nýr for­mað­ur verð­ur kos­inn í VG eft­ir þrjár vik­ur. Nokk­ur nöfn eru far­in að heyr­ast. Flokks­fólk velt­ir fyr­ir sér hvort Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir sé upp­gjör­ið sem flokk­ur­inn þarf eft­ir rík­is­stjórn Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur. - [Sam­fylk­ing­in: Rós­in seg­­­­ir sig úr full­­­­trú­a­ráð­inu og leit­­ar sam­­starfs við aðra um fram­­boð](https://gimaldid.is/rosin-segir-sig-ur-fulltruaradinu-og-leitar-samstarfs-vid-adra-um-frambod/): Rós­in, 700 manna að­ild­ar­fé­lag í Sam­fylk­ing­unni, íhug­ar nú aðr­ar leið­ir til fram­boðs í Reykja­vík, mögu­lega í sam­starfi við Vor til vinstri. - [Lilja lík­legri en Ingi­björg til alls vís](https://gimaldid.is/lilja-liklegri-en-ingibjorg-til-alls-vis/): Átaka­lín­urn­ar eru víða í Fram­sókn í við upp­haf flokks­þings. Sig­urð­ur Ingi styð­ur einn fram­bjóð­anda en Will­um Þór styð­ur aðra. Önn­ur er að norð­an en hin úr Reykja­vík. Mál­efn­in eru hins veg­ar það sem sam­ein­ar þær Lilju og Ingi­björgu eins og heyra má í þessum við­töl­um við þær við upp­haf kosn­inga­bar­áttu þeirra. - [Hlaðvarp: Pennastriks verðbólga](https://gimaldid.is/hladvarp-pennastriks-verdbolga/): Árið hófst á vonbrigðum þegar árleg verðbólga skaust úr 4,5% í 5,2% á einum mánuði. En hvað liggur að baki? Í nýjum þætti af Sirkabát er kafað ofan í vísitölu neysluverðs og reiknað út hvað hefði gerst ef vörugjöld á ökutæki hefðu ekki hækkað um áramót. - [5. febrúar 2026 var kannski dagurinn sem breytti lífi þínu – þú bara veist það ekki ennþá](https://gimaldid.is/5-februar-2026-var-kannski-dagurinn-sem-breytti-lifi-thinu-thu-bara-veist-thad-ekki-enntha/): Það er eitthvað stórt í loftinu, skrifar maður að nafni Matt Shumer í langri grein sem hann birtir á vef sínum og nokkrum samfélagsmiðlum. Viðbrögð við greininni hans benda til þess að þetta séu engin venjuleg skrif um gervigreind. - [Börn tilkynna sjálf brot í auknum mæli – jafnvel í gegn um Snapchat](https://gimaldid.is/born-tilkynna-sjalf-brot-i-auknum-maeli-jafnvel-i-gegn-um-snapchat/): Rannsóknarlögreglumaður lýsir alþjóðlegu samstarfi við greiningu á barnaníðsefni á netinu og segir börn í auknum mæli sjálf hafa samband og tilkynna brot í gegnum miðla á borð við Snapchat. - [Stjórn­ar­þing­menn oft­ar með fán­ann á lofti](https://gimaldid.is/stjornarthingmenn-oftar-med-fanann-a-lofti/): Enn ein til­lag­an um rýmkað­an fána­tíma er nú til með­ferð­ar á Al­þing­i. Gímald­ið skoð­ar rök­in með og á móti því að flagga megi þjóð­fán­an­um all­an sól­ar­hring­inn og varp­ar fram í hæfi­lega rök­studd­um kenn­ing­um um fána­á­huga al­þing­is­manna. - [Epstein greiddi fyrir þvott á orðspori sínu](https://gimaldid.is/epstein-greiddi-fyrir-thvott-a-ordspori-sinu/): Barnaníðingurinn Jeffrey Epstein greiddi fúlgur fjár til að láta fegra ímynd sína á netinu. Þetta má sjá í tölvupóstum hans sem hafa verið gerðir opinberir. Einfalt er að leita í tölvupóstum Epstein í gagnagrunni sem hefur verið settur upp eins og klón af Gmail. - [Baráttusaga frumvarps sem missti allt nema eina fánastöng](https://gimaldid.is/barattusaga-frumvarps-sem-missti-allt-nema-eina-fanastong/): Frumvarp formanns Sjálfstæðisflokksins um tjúgufánann hefur orðið fyrir hverju áfallinu á fætur öðru síðan það var fyrst lagt fram fyrir átta árum. Það glataði fyrst tilefninu þegar afmæli fullveldisins leið hjá og síðan hefur hver fánastöngin af annarri helst úr lestinni. - [Þegar stjórnendur leikskóla brýna raust sína þá verða ráðamenn í Ráðhúsinu að hlusta](https://gimaldid.is/thegar-stjornendur-leikskola-bryna-raust-sina-tha-verda-radamenn-i-radhusinu-ad-hlusta/): Stjórnendur leikskóla eru ekki hávær hópur en brýnir nú raust sína sem aldrei fyrr. Reykjavíkurborg á engan annan valkost en að hlusta. Hvort borgin heyrir það sem kallað er í eyra hennar er annað mál. - [Enga fána takk! Hvorki svona né hinseg­in](https://gimaldid.is/enga-fana-takk-hvorki-svona-ne-hinsegin/): Menntaskólum og ríkisháskólum yrði bannað að flagga hinseginfána ef frumvarp Miðflokksins um breytingar á fánalögum verður samþykkt. Fjallað er um fánamál í greinaröð Gímaldsins, en þrjú mál tengd þjóðfánanum bíða afgreiðslu þingsins. - [Röddin sem fann mig](https://gimaldid.is/roddin-sem-fann-mig/): Fereydoun Farrokhzad var einn vinsælasti listamaður Írans og síðar eitt helsta tákn andófs gegn klerkaveldinu. Saga hans er saga manns sem barðist fyrir kvenfrelsi, tjáningarfrelsi og réttinum til að elska og var myrtur fyrir það. Þetta er saga hetju sem fær ekki góðan endi en skilur eftir sig rödd sem þagnar ekki. - [Um 450 manns hjá Ung VIRK - Mörg misstu tökin í Covid](https://gimaldid.is/um-450-manns-hja-ung-virk-morg-misstu-tokin-i-covid/): Hátt í fjögur þúsund íslenskra ungmenna eru hvorki í vinnu, námi né starfsþjálfun. Um 450 ungmenni fá þjónustu hjá UngVIRK sem miðar að því að koma þeim aftur í virkni. Verkefnastjóri segir marga hafa misst tökin í Covid. - [Hvers vegna koma skipulagsmál okkur alltaf í opna skjöldu?  ](https://gimaldid.is/hvers-vegna-koma-skipulagsmal-okkur-alltaf-i-opna-skjoldu/): Of stórt, of hátt, of … óafturkræft. Skipulagsmál eiga að gefa okkur, mér og þér, færi á að vera með að móta umhverfið okkar. Hvers vegna kemur niðurstaðan okkur svona oft í opna skjöldu? - [Skotárásir, fjöldamótmæli og fjárveitingar: Hvað er ICE?](https://gimaldid.is/skotarasir-fjoldamotmaeli-og-fjarveitingar-hvad-er-ice/): ICE hefur gengið hart fram í Bandaríkjunum að undanförnu. Donald Trump hefur tryggt stofnuninni gríðarlegt fjármagn og mikil áhersla er á að koma sem flestum ICE-liðum út á göturnar. En hvað er eiginlega ICE? - [Lilja Alfreðsdóttir í viðtali: Það tek­ur tíma að end­ur­vinna traust](https://gimaldid.is/thad-tekur-tima-ad-endurvinna-traust/): Lilja Al­freðs­dótt­ir stefn­ir á for­mennsku í Fram­sóknarflokknum Hún segir miðju­­flokk­a, sem vilja byggja á sam­vinnu og ná mála­mið­l­un­­um, víða eiga í vök að verj­­ast nú þeg­­ar marg­­ir flokk­­ar séu að færa sig yst á jaðrana. - [Til­rauna­verk­efni um fjar­kennslu grunn­skóla­nema haf­ið hjá Reykja­vík­ur­borg](https://gimaldid.is/tilraunaverkefni-um-fjarkennslu-grunnskolanema-hafid-hja-reykjavikurborg/): Fjórir grunnskólanemendur stunda nú fjarnám hjá Reykjavíkurborg en reiknað er með að tveir til þrír bætist við á næstunni. Áherslan hefur verið á börn sem glíma við skólaforðun. Þau reykvísku börn sem voru fyrir í fjarkennslu hjá Ásgarðsskóla héldu áfram þar. - [„Við er­um ekki í stríði en við er­um held­ur ekki í frið­i“](https://gimaldid.is/vid-erum-ekki-i-stridi-en-vid-erum-heldur-ekki-i-fridi/): Gímald­ið ræð­ir við Dag B. Eggertsson um heims­mál­in, vest­ræna sam­vinn­u, sam­band­ið við Banda­rík­in og Evr­ópu, vígbúnað Norðurlandanna og hvern­ig Ís­lend­ing­ar eiga að fara að því að verj­ast mögu­leg­um ófrið­i. - [Vill að ESB flýti inngöngu Íslands](https://gimaldid.is/vill-ad-esb-flyti-inngongu-islands/): Ís­land var til um­ræðu í hinu geysi­vin­sæla hlað­varpi The Rest is Polit­ics á dögunum. Eins og fjöl­marg­ir aðr­ir veltu þátta­stjórn­end­urn­ir Alasta­ir Camp­bell og Rory Stewart fyr­ir sér ástæð­um þess að Ís­land hef­ur ítrek­að og óvart ratað á var­ir for­seta Banda­ríkj­anna. Stewart tel­ur Evr­ópu­sam­band­ið þurfa að bregð­ast við þessu um­svifa­laust. - [Fimman: Vest­ræn sam­vinna á kross­göt­um](https://gimaldid.is/fimman-vestraen-samvinna-a-krossgotum/): 1. Tímamótaræða for­­sæt­is­ráð­herra Kanada 2. Evr­ópa hverf­ur frá var­færni og brýnir raustina 3. Við­skipta­samn­ing­ur ESB og Banda­ríkj­anna sett­ur á ís 4. Ut­­an­­rík­­is­ráð­herra Ís­lands vel­ur Kana­da­­leið­ina 5. Frið­ar­ráð Trumps til höf­uðs Sam­ein­uðu þjóð­un­um - [Sirkabát: Þörf fyrir öryggi og fyrirsjáanleika skýri uppgang íhaldssemi í stjórnmálum](https://gimaldid.is/sirkabat-thorf-fyrir-oryggi-og-fyrirsjaanleika-skyri-uppgang-ihaldssemi-i-stjornmalum/): „Íhaldssemi er aftur orðin afl í íslenskum stjórnmálum,“ segir Viktor Orri Valgarðsson doktor í stjórnmálafræði og aðjúnkt við Háskóla Íslands í viðtali við hlaðvarpið Sirkabát, þar sem hann fer yfir rannsóknir sínar og ræðir hvað það þýðir að vera til hægri eða vinstri í stjórnmálum. - [Dómsmálaráðherra segir ÚTL hafa brugðist rétt við: „Önnur skref ekki tímabær“](https://gimaldid.is/domsmalaradherra-segir-utl-hafa-brugdist-rett-vid-onnur-skref-ekki-timabaer/): Dómsmálaráðherra telur Útlendingastofnun hafa brugðist rétt við í máli starfsmanns sem varð uppvís að trúnaðarbroti og að önnur skref séu ekki tímabær. Fé­lag tals­manna um­sækj­enda um al­þjóð­lega vernd hvatti dóms­mála­ráðu­neyt­ið til að kalla eft­ir óháðri út­tekt á starf­semi Út­lend­inga­stofn­un­ar í kjöl­far In­stagram­­-máls­ins. - [Ingibjörg Isaksen í viðtali: Framsókn ekki verið nógu skýr í sínum málflutningi](https://gimaldid.is/myndi-fagna-fleiri-frambodum-til-formanns/): Ing­i­­björg Isak­­sen vill verða næsti for­mað­ur Fram­sókn­ar­flokk­ins. Hún seg­ir flokk­inn ekki hafa ver­ið nógu skýr­an í mál­flutn­ingi sín­um og sér tæki­­færi fyr­­ir Fram­­sókn á vinstri vængn­­um. - [Kalla eftir úttekt á Útlendingastofnun í kjölfar Instagram-málsins](https://gimaldid.is/fta-kallar-eftir-ohadri-uttekt-a-utlendingastofnun-eftir-trunadarbrot-starfsmanns/): Fé­lag tals­manna um­sækj­enda um al­þjóð­lega vernd hvet­ur dóms­mála­ráðu­neyt­ið til að kalla eft­ir óháðri út­tekt á starf­semi Út­lend­inga­stofn­un­ar í kjöl­far In­stagram­­máls­ins. Tján­ing eins og starfs­mað­ur stofn­un­ar­inn­ar varð upp­vís að verði „sjaldn­ast til í tóma­rúmi“ og geti end­ur­spegl­að það um­hverfi sem starfs­mað­ur­inn til­heyr­ir. - [Hvert fara allir flóttamennirnir?](https://gimaldid.is/hvert-fara-allir-flottamennirnir/): Þrátt fyrir að vera innan við hálft prósent af heildarfjölda jarðarbúa eru málefni flóttamanna eitt eldfimasta pólitíska umræðuefni hér á landi og víða annars staðar. Hvaðan koma þeir? Hvert eru þeir að fara? Og við hvað eigum við að bera þessa fólksflutninga saman við? - [Pólitíkin í matnum: Nýjar leiðbeiningar um næringu undir smásjánni](https://gimaldid.is/politikin-i-matnum-nyjar-leidbeiningar-um-naeringu-undir-smasjanni/): Meira prótein, meira kjöt og feitari mjólkurvörur eru skilaboðin í nýjum leiðbeiningum um næringu í Bandaríkjunum. Margir fagna því að setja eigi „raunverulegan mat“ í öndvegi en jafnframt hefur verið gagnrýnt að pólitísk sjónarmið og hagsmunagæsla kjöt- og mjólkuriðnaðarins hafi haft áhrif. - [Nágrannar: Þegar sérsveitin bankaði óvænt uppá](https://gimaldid.is/nagrannar-thegar-sersveitin-bankadi-ovaent-uppa/): Guðríður Haraldsdóttir lumar á óskeikulu ráði fyrir þá sem vilja vera góðir grannar: Að bjóða alltaf góðan daginn. Í fyrsta þætti af Nágrönnum segir hún frá því þegar hún smitaðist ung af rokkáhuganum, störfum fyrir húsfélagið og hvernig þvottahús í fjölbýli geta öðlast ýmis hlutverk. - [Utanríkisráðuneytið: Vörur frá hernumdum svæðum verða brátt sérmerktar](https://gimaldid.is/utanrikisraduneytid-vorur-fra-hernumdum-svaedum-verda-bratt-sermerktar/): Vörur sem koma frá hernumdum svæðum í Palestínu verða merktar sérstaklega í verslunum. Tillaga um málið hefur verið lögð fram á þingi í meira en áratug en aldrei hlotið afgreiðslu. - [Öll spjót standa á ráð­herr­um Við­reisn­ar á vor­þingi](https://gimaldid.is/oll-spjot-standa-a-radherrum-vidreisnar-a-vorthingi/): Fund­ir Al­þing­is hefj­ast aft­ur í dag. Fjörugt vor­þing er í vænd­um með fjölda um­deildra mála á dag­skrá stjórn­ar­flokk­anna. Lang­flest hinna um­deildu mála eru á borði ráð­herra Við­reisn­ar. - [Einhverf Barbie og ósýnilegu stelpurnar](https://gimaldid.is/einhverf-barbie-og-osynilegu-stelpurnar/): Einhverf Barbie er ekki bara dúkka heldur tákn um sýnileika og viðurkenningu í heimi þar sem einhverfar stelpur hafa lengi verið ósýnilegar. - [Ís­lenska rík­ið braut gegn rétt­ind­um ung­lings­stúlku](https://gimaldid.is/islenska-rikid-braut-gegn-rettindum-unglingsstulku/): Mannréttindadómstóll Evrópu kvað upp fimm dóma í íslenskum málum í morgun. Rík­ið var sýkn­að í fjór­um mál­um en í einu máli var ríkið talið hafa brotið gegn 8. gr. sáttmálans. - [Fimm ógn­­ir sem kalla á nýja nálg­un í varn­ar­mál­um](https://gimaldid.is/fimm-ognir-sem-kalla-a-nyja-nalgun-i-varnarmalum/): 1. Líkindi stór­styrj­aldar í Evr­ópu innann fárra ára 2. Árás­ir á inn­viði gætu rof­ið sam­band Ís­lands við um­heim­inn 3. Herferðir sem ýta undir ófrið og sundr­ungu 4. Netárás­ir rík­is­styrktra ógn­ar­hópa 5. Auk­in um­svif Rússa og Kín­verja á norð­ur­slóð­um - [Ísland taki aukna ábyrgð á eigin vörnum](https://gimaldid.is/island-taki-aukna-abyrgd-a-eigin-vornum/): Þing­mað­ur­inn Víð­ir Reyn­is­son hef­ur víð­tæka reynslu á sviði al­manna­varna og þjóðar­ör­ygg­is. Hann ræð­ir við Gímald­ið um við­bún­að á Ís­landi ef til stríðs­á­taka kæmi og um nýja stefnu í ör­ygg­is­ og varn­ar­mál­u­m. - [Vilt þú móta nýja leið til að miðla?](https://gimaldid.is/vilt-thu-mota-nyja-leid-til-ad-midla/): Gímaldið leitar að sjálfboðaliðum til að prufukeyra nýtt fréttabréf. Við óskum eftir fólki sem er tilbúið að fá fréttabréf í pósthólfið sitt í nokkrar vikur og segja okkur hvað virkar og hvað ekki. - [Sirkabát: Forvitni ekki síður mikilvæg en stærðfræðiþekking þegar lesið er í hagtölur](https://gimaldid.is/sirkabat-forvitni-ekki-sidur-mikilvaeg-en-staerdfraedithekking-thegar-lesid-er-i-hagtolur/): Hagtölur eiga að vera aðgengilegar fyrir alla. Til að skilja og vinna með hagtölur þarf fyrst og fremst forvitni og útsjónarsemi. Keppnin Greindu betur er tölfræðikeppni fyrir grunn- og framhaldsskólanema þar sem þau fá tækifæri til að vinna með hagtölur. - [Fordæmalausu innflytjendurnir](https://gimaldid.is/fordaemalausu-innflytjendurnir/): Því er gjarnan fleygt fram að fjöldi innflytjenda sé í sögulegu hámarki í heiminum. Staðreyndin er hins vegar sú að hlutfall þeirra af heildarmannfjölda hefur lítið hreyfst í meira en hálfa öld. Það er því ekki svo, eins og stundum mætti skilja af orðræðunni, að fólksflutningar lúti lögmálum eðlisfræðinnar og fólk hreinlega flæði milli landa. - [Instagram-málið og viðbrögð Útlendingastofnunar](https://gimaldid.is/instagram-malid-og-vidbrogd-utlendingastofnunar/): „Það liggur fyrir að upplýsingarnar voru birtar á samfélagsmiðlum áður en einstaklingunum sjálfum var tilkynnt um ákvarðanirnar,“ segir í svari Útlendingastofnunar til Gímaldsins. Þeir sem starfsmaðurinn deildi trúnaðargögnum með, fólk í lokuðum hópi á Instagram, fengu því upplýsingar um niðurstöðu málsmeðferðar nafngreindra einstaklinga áður en þeir sjálfir. - [Útlendingastofnun tilkynnti trúnaðarbrot starfsmanns til lögreglu](https://gimaldid.is/utlendingastofnunar-tilkynnti-trunadarbrot-starfsmanns-logreglu/): Útlendingastofnun hefur tilkynnt brot starfsmanns sem birti nöfn skjólstæðinga á samfélagsmiðli til lögreglu. Stofnunin frétti af málinu þegar blaðamaður Gímaldsins hafði samband þann 18. desember síðastliðinn. Fyrir liggur að starfsmaðurinn birti upplýsingar um synjun á samfélagsmiðlum áður en einstaklingunum sjálfum var tilkynnt um þá ákvörðun Útlendingastofnunar. - [Borg­ar­full­trú­ar gegn flokks­for­ystu](https://gimaldid.is/borgarfulltruar-gegn-flokksforystu/): Fram­bjóð­end­ur í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­inn­ar skipa sér í fylk­ing­ar bak við tjöld­in. Flest­ir borg­ar­full­trú­ar standa sam­an en for­ysta flokks­ins veðj­ar á end­ur­nýj­un og er í horni nýrra fram­bjóð­enda. Próf­kjör­ið fer fram eft­ir rúm­ar tvær vik­ur. - [Í hægagangi yfir hátíðarnar – nýtt ár færir ný tækifæri](https://gimaldid.is/i-haegagangi-yfir-hatidarnar-nytt-ar-faerir-ny-taekifaeri/): Gímaldið hefur verið í hægum gír yfir jóladagana. Miðillinn hefur nú verið í loftinu í tvo mánuði. Á þeim tíma höfum við fjallað um ýmis málefni. Við nýtum tímann yfir hátíðarnar til að stilla strengina og undirbúa næsta ár. - [Sirkabát: Hver er tala ársins 2025?](https://gimaldid.is/sirkabat-hver-er-tala-arsins-2025/): Nú þegar margir velja manneskju ársins, atburði ársins og fréttir ársins þá velur hlaðvarpið Sirkabát að sjálfsögðu tölu ársins. Tölur ársins segja margar og ólíkar sögur. Sirkabát fékk nokkra einstaklinga til að rýna í árið, velja tölu sem hefur þýðingu fyrir árið 2025 og deila með hlustendum. - [Dómsmálaráðherra: Til þess fallið að skaða traust til Útlendingastofnunar](https://gimaldid.is/domsmalaradherra-til-thess-fallid-ad-skada-traust-til-utlendingastofnunar/): Dómsmálaráðherra segir alvarlegt að starfsmaður Útlendingastofnunar hafi deilt nöfnum skjólstæðinga stofnunarinnar á samfélagsmiðlum. Hún segir málið slá sig illa og hún skilji hörð viðbrögð við því. - [Hlaðvarp: Jólabjórar einn og átta](https://gimaldid.is/hladvarp-jolabjorar-einn-og-atta/): Íslendingar keyptu að meðaltali rúmlega tvo og hálfan lítra af jólabjór yfir hátíðarnar í fyrra. Úrvalið af mismunandi tegundum jólabjórs hefur aukist jafnt og þétt og í fyrra voru rúmlega 100 mismunandi tegundir jólabjórs til sölu í Vínbúðunum. Í jólaþætti Sirkabát er varpað fram greiningu á þróun á sölu og úrvali á jólabjór hér á landi. - [Starfsmaður Útlendingastofnunar birti nöfn skjólstæðinga á Instagram](https://gimaldid.is/starfsmadur-utlendingastofnunar-birti-nofn-skjolstaedinga-a-instagram/): Starfsmaður Útlendingastofnunar braut þagnarskyldu sína þegar hann deildi nöfnum skjólstæðinga stofnunarinnar á samfélagsmiðli. Upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar segir trúnaðarbrot litin mjög alvarlegum augum. - [Ástæðan fyrir því að við tölum um „einkarekna” fjölmiðla](https://gimaldid.is/astaedan-fyrir-thvi-ad-vid-tolum-um-einkarekna-fjolmidla/): Stundum gefur orðalag meira upp en ætlað er. Af hverju tölum við um einkarekna fjölmiðla en ekki einkarekna veitingastaði? Ástæðan kemur upp um þörf fyrir aðgerðir ráðherra fyrir fjölmiðla á Íslandi. - [Upp­gjör: Þing­ið í jóla­frí á árs af­mæli stjórn­ar­inn­ar](https://gimaldid.is/uppgjor-thingid-i-jolafri-a-ars-afmaeli-stjornarinnar/): Gímald­ið ger­ir upp haust­þing­ið og fyrsta ár rík­is­stjórn­ar Kristrún­ar Frosta­dótt­ur. - [Bókapressan: Gengur í öll störf á jólabókavertíðinni](https://gimaldid.is/bokapressan-gengur-i-oll-storf-i-jolabokavertidinni/): Einar Kári Jóhannsson starfar sem ritstjóri hjá Benedikt bókaútgáfu. Hann segir útgáfubransann sérstakan en þar sé alltaf stuð. Einar segir hér frá ýmsum bókum sem leynast í jólabókaflóðinu. - [Tóbaksrisarnir: Efinn er ennþá heitasta varan](https://gimaldid.is/tobaksrisarnir-efinn-er-enntha-heitasta-varan/): Tóbaksrisar sýndu mátt sinn á ráðstefnu í nóvember og komu í veg fyrir samkomulag um hert regluverk um nikótínvörur. WHO varar við því að orðfæri nikótínsala sé notað til að afsaka veikara regluverk. - [Fimm borgarfulltrúar sem fundu sér nýjan stjórnmálaflokk](https://gimaldid.is/fimm-borgarfulltruar-sem-fundu-ser-nyjan-stjornmalaflokk/): 1. Dóra Björt úr Pírötum í Samfylkinguna 2. Ólafur F. Magnússon úr Sjálfstæðisflokki í F-lista 3. Björk Vilhelmsdóttir úr VG í Samfylkinguna 4. Vigdís Hauksdóttir úr Framsókn í Miðflokkinn 5. Dagur B. Eggertsson fyrst óháður en síðar í Samfylkinguna - [Hlaðvarp: Vísitala veisluverðs hækkar um rúm sjö prósent](https://gimaldid.is/hladvarp-visitala-veisluverds-haekkar-um-rum-sjo-prosent/): Er jólamaturinn dýrari í ár en í fyrra? Þáttastjórnendur Sirkabát útbjuggu sína eigin jólamatarkörfu og reiknuðu út vísitölu jólaveisluverðs. - [Desember taugatrekkjandi tími fyrir höfunda](https://gimaldid.is/desember-taugatrekkjandi-timi-fyrir-hofunda/): Rithöfundar eru aldrei eins áberandi og í desember þegar jólabókaflóðið er í algleymingi. Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambands Íslands segir að þótt betra væri að bóksala dreifðist jafnar yfir árið þá sé þessi mikla athygli í desember mikilvæg. - [Um­ræð­an deyr þeg­ar pakk­að er í vörn](https://gimaldid.is/umraedan-deyr-thegar-pakkad-er-i-vorn/): Fisk­ur og fiski­mið var eina um­ræðu­efn­ið sem stóð upp úr í að­drag­anda síð­ustu um­sókn­ar Ís­lands um að­ild að Evr­ópu­sam­band­in­u. - [Alzheimersamtökin binda vonir við opnun nýrrar Seiglu á næsta ári](https://gimaldid.is/alzheimersamtokin-binda-vonir-vid-opnun-nyrrar-seiglu-a-naesta-ari/): Aukafjárveiting fjárlaganefndar gæti skapað pláss fyrir fólk á fyrstu stigum heilabilunar og stytt biðlista í endurhæfingarþjónustu - [Bókapressan: Skortur á innsýn stjórnvalda – og stefnu](https://gimaldid.is/bokapressan-skortur-a-innsyn-stjornvalda-og-stefnu/): Útgáfa barna- og ungmennabóka hefur verið töluvert í umræðunni upp á síðkastið og þá jafnframt sem hluti af umræðunni um framtíð íslenskunnar. - [Veðmálafyrirtæki hluti af liðsheitinu](https://gimaldid.is/vedmalafyrirtaeki-hluti-af-lidsheitinu/): Veðmálafyrirtæki sækjast í það að tengjast íþróttum. Þannig vilja þau ná í lögmæti og tengjast um leið stórum hópi áhorfenda. Eistneskt körfuboltalið hefur bætt nafni veðmálafyrirtækis við heiti félagsins. - [Fimm jólagjafir sem gervigreindin telur að geti slegið í gegn](https://gimaldid.is/fimm-jolagjafir-sem-gervigreindin-telur-ad-geti-slegid-i-gegn/): 1. Handhægur sturtutrefill 2. Vettvangssokkapör 3. Ilmkerti og hleðslustöð 4. Neyðarsúkkulaði 5. Vatnsflaska og minnisbók - [Stuðningur vinnumarkaðarins mikilvægur þegar fólk greinist með heilabilun](https://gimaldid.is/studningur-vinnumarkadarins-mikilvaegur-thegar-folk-greinist-med-heilabilun/): Gímaldið hefur fjallað um heilabilunarsjúkdóma undanfarna daga. Fólk sem greinist ungt með heilabilun upplifir útskúfun af vinnumarkaði þegar það þyrfti að fá skilning og rými til að átta sig á hlutunum. Verðmálafyrirtæki ganga sífellt lengra í því að komast að í íþróttaheiminum. - [Hlaðvarp: Erill í þinginu í desember, samið um þinglok og rætt um skatta](https://gimaldid.is/hladvarp-erill-i-thinginu-i-desember-samid-um-thinglok-og-raett-um-skatta/): Þingstörfin eru jafnan áhugaverð í lok árs, því þá þarf að klára fjárlög. Gímaldið fer yfir verkefni þingsins í nýjum hlaðvarpsþætti. - [Var greind með snemmkominn Alzheimer og sá samstarfsfólkið sitt aldrei aftur](https://gimaldid.is/var-greind-med-snemmkominn-alzheimer-og-sa-samstarfsfolkid-sitt-aldrei-aftur/): Makar þeirra greindust í blóma lífsins með alvarlega heilabilunarsjúkdóma. Emil Emilsson og Kolbrún Birna Halldórsdóttir lýsa því hvernig sjúkdómurinn umbyltir ekki bara lífi einstaklingsins, heldur allrar fjölskyldunnar, og hvernig kerfið bregst víða á leiðinni. - [Heilbrigðisráðuneytið: Margt þarf að bæta í þjónustu við fólk með heilabilun](https://gimaldid.is/heilbrigdisraduneytid-margt-tharf-ad-baeta-i-thjonustu-vid-folk-med-heilabilun/): Margt hefur áunnist á grundvelli aðgerðaáætlunar um þjónustu við fólk með heilabilun, samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu, en ljóst er að ýmislegt er enn ógert. Hagfræðileg úttekt á kostnaði við heilabilun á Íslandi er meðal þess sem er á dagskránni. - [Um­deild mál á óska­lista stjórn­ar­inn­ar en eng­in bók­un 35](https://gimaldid.is/umdeild-mal-a-oskalista-stjornarinnar-en-engin-bokun-35/): Stór ágrein­ings­mál verða ekki af­greidd á Al­þingi fyr­ir jól. Fjár­laga­vinn­an sett í for­gang. Um­deild mál eru þó á óska­lista stjórn­ar­inn­ar. Mik­il­væg mál fyr­ir ör­yrkja og stór skatta­mál rædd á Al­þingi í dag. - [Heilabilun á Íslandi: Fyrsti gagnagrunnurinn, bylting í greiningu og langir biðlistar](https://gimaldid.is/heilabilun-a-islandi-fyrsti-gagnagrunnurinn-bylting-i-greiningu-og-langir-bidlistar/): Ný blóðprufa til að greina Alzheimer markar tímamót í þjónustu við fólk með heilabilun. Á sama tíma heldur álag á kerfið áfram að aukast þar sem fleiri leita þjónustu en áður. - [Fimm mál sem þvælast um þinghúsið á að­vent­unni](https://gimaldid.is/fimm-mal-sem-thvaelast-um-thinghusid-a-adventunni/): 1. Lengsta at­kvæða­greiðsla árs­ins 2. Færri hamstra bíla en fullyrt er 3. Stjórn­ar­and­stað­an ekki einhuga um bók­un 35 4. Víð­tæk sátt um út­lend­inga­mál 5. Samgönguáætlun til sýnis - [Steinar Bragi: Frelsarinn](https://gimaldid.is/steinar-bragi-frelsarinn/): Í upphafi var þögnin. Í marga mánuði var slökkt á heiminum – engin ljós, engar fréttir, ekkert net. Mannkyn stóð bjargarlaust andspænis nýjum veruleika: Súpergreind hafði tekið völdin. Þegar kveikt er á öllu á ný stígur fram dularfull kona í Asíu. Hún er kölluð Frelsarinn af fylgjendum sínum og fremur röð kraftaverka sem gefa nýja von. Er hún dýrlingur, slátrari eða bara enn einn svikarinn? Í skugga hennar tvinnast saman þrjú líf: herlæknir á Tælandi, tæknijöfur með lykilinn að Endalokunum í vasanum og blind stúlka í norskum firði. - [Frelsi óbreytta þingmannsins: Jón Gnarr og Dagur B. Eggertsson fóru ólíkar leiðir](https://gimaldid.is/frelsi-obreytta-thingmannsins-jon-gnarr-og-dagur-b-eggertsson-foru-olikar-leidir/): Jón Gnarr hefði getað nýtt sér frelsi óbreytts stjórnarþingmanns innan þingflokks Viðreisnar, á svipaðan hátt og Dagur B. Eggertsson hefur gert innan Samfylkingarinnar. Þetta segir Aðalheiður Ámundadóttir, stjórnmálaskýrandi Gímaldsins, um úrsögn Jóns úr þingflokknum í nýjum hlaðvarpsþætti. Fjallað er um brotthvarf Jóns, áhrifin á Viðreisn og einnig rætt um skref sem verið er að stíga í því að minnka áhrif verðtryggingar á fasteignalánamarkaði. - [Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku](https://gimaldid.is/gudni-th-johannesson-vald-hinna-veiku/): Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni og saga þorskastríðanna er þjóðarsaga. Hún geymir dýrmætan lærdóm fyrir smáríki í hörðum heimi. Vald hinna veiku segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi. Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerðist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi. - [Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu](https://gimaldid.is/tonleikar-kaleo-sem-rok-i-au-pair-malinu/): Vistforeldri sem mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra nefnir ferð á tónleika Kaleo sem dæmi um að au pair-kerfið virki vel. Á sama tíma biður Útlendingastofnun lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Verði frumvarpið að lögum munu au pair frá þrjátíu ríkjum áfram geta komið til Íslands án sérstaks dvalarleyfis. - [Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“](https://gimaldid.is/ur-fangelsi-i-fodurhlutverkid-thad-vita-allir-hver-pabbinn-er-og-hvar-hann-hefur-verid/): Feður í fangelsum lýsa kuldalegum og óbarnvænum aðstæðum til heimsókna. Í meistaraverkefni sínu í afbrotafræði tók Árni Sveinsson viðtöl við fimm feður, sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni, um upplifun þeirra af því að takast á við foreldrahlutverk sitt að nýju. Einn þeirra lýsti því þegar börnin hans komu í heimsókn á Kvíabryggju þar sem dæmdir barnaníðingar lögðust ofan á dótið þeirra. - [Eiríkur Guðmundsson: Maríuklefinn](https://gimaldid.is/eirikur-gudmundsson-mariuklefinn/): Bréfritari er staddur í Lissabon og vildi að María væri þar með sér, að horfa yfir tígulsteinsþökin og á skipin sem sigla um ána Tagus. Hann sér henni bregða fyrir á götum borgarinnar, sólin er svo heit, og púrtvínið kallar fram undarlegustu myndir. Í löngu bréfi til Maríu skrifar hann um allt sem sækir á hugann, leiftur úr bókmenntum og mannkynssögunni og það sem verður á vegi ferðalangs á framandi slóðum. Eiríkur Guðmundsson lést í ágúst árið 2022, 52 ára gamall. Meðal þess sem hann skildi eftir sig voru nokkur handrit. Það eina sem var fullbúið var bréfaskáldsagan Maríuklefinn, sem kemur fyrst út núna, fjórum árum eftir andlát höfundar. - [Hógværasta uppreisn sögunnar](https://gimaldid.is/hogvaerasta-uppreisn-sogunnar/): Það er ekki hægt að kalla kröfur frönsku framhaldsskólanemanna róttækar. - [„Það er ekki eitt, það er allt“](https://gimaldid.is/thad-er-ekki-eitt-thad-er-allt/): Enginn virðist ánægður með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar ef marka má umsagnir sem hrannast hafa inn hjá Alþingi að undanförnu. Þótt flestir taki markmið um hallalaus fjárlög finnst sumum allt of langt gengið í niðurskurði á meðan öðrum finnst alls ekki nóg að gert. - [PISA-könnunin: Eins og heimsins stærsta skákmót](https://gimaldid.is/pisa-konnunin-eins-og-heimsins-staersta-skakmot/): Niðurstöður PISA vekja jafnan hörð viðbrögð, en færri vita hvernig könnunin virkar í raun. Í nýjasta þætti Sirkabát glöggva þáttastjórnendur sig á flókinni tölfræði að baki prófinu, sem meira en 760.000 nemendur í 91 ríki taka þátt í, og ræða hvað má í raun lesa úr niðurstöðunum. - [Af hverju eru hlaðvörp fjölmiðlar en umsjónarmenn þeirra ekki endilega blaðamenn?](https://gimaldid.is/af-hverju-eru-hladvorp-fjolmidlar-en-umsjonarmenn-theirra-ekki-endilega-bladamenn/): Hlaðvarpssenan hefur aldrei verið sterkari á Íslandi og hugtakaruglingur fylgir. Hlaðvörp teljast fjölmiðlar í skilningi laganna, en umsjónarmenn þeirra eru ekki endilega blaðamenn og vilja ekki sætta sig við að hlaðvörp þeirra séu skilgreind sem fjölmiðlar. Fráfarandi framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar telur lögin þó ekki úrelt heldur nútímalegri en víða, þar sem þau séu tæknióháð. Ráðuneytið boðar samt heildarendurskoðun á næsta ári, þar á meðal á skráningarskyldu hlaðvarpa. - [Kristrún: Samfylkingin hafði fjarlægst hinn venjulega Íslending](https://gimaldid.is/kristrun-samfylkingin-hafdi-fjarlaegst-hinn-venjulega-islending/): Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, ræðir endurreisn Samfylkingarinnar, hvort flokkurinn hafi færst til hægri og hvar hún stendur sjálf í pólitík. Kristrún hefur lengi verið með stöðu jafnaðarmannaflokka á heilanum og telur almenna velferð hafa gleymst í umræðu um réttindi stakra hópa. Hún segir Flokk fólksins oft misskilinn og samstarfið við Ingu Sæland fylli hana auðmýkt á hverjum degi. - [„Ef enginn hækkar hjá sér verð á vöru eða þjónustu þá hættir vísitalan að hækka“](https://gimaldid.is/ef-enginn-haekkar-hja-ser-verd-a-voru-eda-thjonustu-tha-haettir-visitalan-ad-haekka/): Vísitala neysluverðs, sem er eins konar hitamælir á verðbólguna í landinu, hefur hækkað síðustu ár og samhliða því hækka verðtryggð lán landsmanna. Lánþegar verðtryggðra lána taka á sig skell með höfuðstólshækkunum um leið og eldsneyti, flugfargjöld, opinber gjöld eða annað sem reiknað er inn í vísitöluna hækkar. Til þess að verðtryggðu lánin lækki þurfa margir liðir sem reiknaðir eru í vísitöluna að lækka verulega. - [Svörtu listarnir í Brussel og skuggastríðið gegn Rússum](https://gimaldid.is/svortu-listarnir-i-brussel-og-skuggastridid-gegn-russum/): Segja má að Evrópa sé komin í nokkurs konar skuggastríð við Rússa. Ógnir á borð við áróður, kosningaafskipti, net- og drónaárásir hafa gert vart við sig í meiri mæli en áður. Yfir 3000 Rússar eru á svörtum listum Evrópusambandsins og fá ekki að stunda viðskipti, eiga eignir eða ferðast til Evrópulanda. - [„Ég vil bara að við njótum sömu kjara og frændur okkar í Færeyjum“](https://gimaldid.is/eg-vil-bara-ad-vid-njotum-somu-kjara-og-fraendur-okkar-i-faereyjum/): Hátt stýrivaxtastig hér á landi er farið að íþyngja lánþegum óverðtryggðra lána og hafa margir snúið aftur í verðtryggð lán til að eiga fyrir afborgunum. Formaður Neytendasamtakanna segir það ekki eðlilegt að Íslendingar borgi þrefalt meira í vexti en nágrannaþjóðir. Hann telur eðlilegt að vaxtastig hér á landi geti verið svipað og í Færeyjum, en þar í landi er boðið upp á 4,8% fasta vexti í 30 ár. - [Kvíðvænlegt að undirbúa starfslok með stökkbreytt verðtryggt íbúðalán](https://gimaldid.is/kvidvaenlegt-ad-undirbua-starfslok-med-stokkbreytt-verdtryggt-ibudalan/): Höfuðstóll verðtryggðra fasteignalána hefur stökkbreyst í þrálátri verðbólgu undanfarin ár. Ókosturinn við verðtryggðu lánin er að höfuðstóll þeirra hækkar og hækkar og lánþegar sjá ekki fyrir endann á þeim. Í ítarlegri fréttaskýringu Gímaldsins um verðtrygginguna kemur fram að verulegur munur er á lánskjörum hér á landi og í Danmörku. Þar í landi eru vextir mun lægri og engin verðtryggð lán í boði. - [Fagnaðarlæti ungs leikmanns og allt sem lagt er á herðar hans](https://gimaldid.is/fagnadarlaeti-ungs-leikmanns-og-allt-sem-lagt-er-a-herdar-hans/): Ég hélt svo sannarlega ekki með Ísrael í landsleiknum gegn Austurríki í vikunni. Ég hélt svo sem ekki heldur með Austurríki. En þegar ég sá myndband af fagnaðarlátum unga leikmannsins sem var rekinn af velli eftir að hafa að sögn „líkt eftir því að skjóta úr byssu“, fannst mér sú lýsing orðum aukin. - [Borgarstjórinn gróðursetti ólífutré á meðan Netanyahu talaði](https://gimaldid.is/borgarstjorinn-grodursetti-olifutre-a-medan-netanyahu-taladi/): Myndband af ólífutré var leið borgarstjórans í New York til að sýna samstöðu með fulltrúum þeirra þjóða sem gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Fulltrúi Íslands sat áfram á meðan Netanyahu talaði. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var þó ekki í salnum heldur stödd á viðburði um stuðning við UNRWA, Palestínu-flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem fram fór á sama tíma. - [Þessi hefðu náð á þing ef nýjar tillögur hefðu gilt í síðustu kosningum](https://gimaldid.is/thessi-hefdu-nad-a-thing-ef-nyjar-tillogur-hefdu-gilt-i-sidustu-kosningum/): Á vefnum metill.is má sjá hvaða áhrif nýjar tillögur um breytingar á kosningakerfinu hefðu haft, hefðu þær verið í gildi í fyrri kosningum. Í sumum tilvikum hefðu flokkar tapað þingsætum til annarra flokka en í síðustu kosningum hefðu sex þingmenn vikið fyrir flokksfélögum sínum í öðrum kjördæmum. - [Leiðarvísir um rafmagnað allsherjarþing SÞ](https://gimaldid.is/leidarvisir-um-rafmagnad-allsherjarthing-sth/): Þjóðarleiðtogar heims eru margir mættir allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York, í skugga stríðsátaka, óeiningar í alþjóðasamskiptum og átaka um þau grundvallargildi sem ríki heims komu sér saman um við stofnun Sameinuðu þjóðanna fyrir rúmum áttatíu árum. - [Hlaðvarp: Ólafur Þ. efast um að forréttindi landsbyggðar skili tilætluðum árangri](https://gimaldid.is/hladvarp-olafur-efast-um-ad-forrettindi-landsbyggdar-skili-tilaetludum-arangri/): Ísland stendur verr að vígi en flest ríki Vestur-Evrópu þegar kemur að jöfnu atkvæðavægi. Á því verður breyting verði nýframkomnar tillögur starfshóps um breytingar á kosningalögum samþykktar. Ólafur Þ. Harðarson telur áhyggjur landsbyggðarinnar af tillögunum óþarfar og segir að gangi þær í gegn muni hin þekkta hringekju jöfnunarsæta hverfa. - [Hlaðvarp: Þingmál sem fólk þarf að fylgjast með](https://gimaldid.is/hladvarp-thingmal-sem-folk-tharf-ad-fylgjast-med/): Þingstörf eru hafin eftir viðburðaríkt sumar og forystumenn stjórnarandstöðunnar setja sig í stellingar fyrir veturinn. Í nýjum þætti í hlaðvarpinu fara Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir yfir fyrstu daga haustþingsins, þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, stefnuræðu Ursulu von der Leyen og málið sem á að auka líkur Íslands á að geta haldið leyndarmál. - [Evrópa taki út gróðann af tækninni sem Kaninn þróaði](https://gimaldid.is/evropa-taki-ut-grodann-af-taekninni-sem-kaninn-throadi/): Framtíðarsýn Ursulu Von der Leyen fyrir Evrópusambandið er metnaðarfull en verkefnin ærin. Hún minntist hvorki á Ísland né Bandaríkin í ræðu sinni um stöðu Evrópusambandsins á miðvikudagsmorgun. Glöggir áheyrendur gátu þó eflaust lesið sitt milli línanna í nokkrum tilvikum. - [Þingforseti: Ekkert óveðursský yfir Alþingi](https://gimaldid.is/thingforseti-ekkert-ovedurssky-yfir-althingi/): Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, kannast ekki við ófriðarboðskap sem gengið hefur milli stjórnarandstöðu og fjölmiðla í aðdraganda haustþings. Hún ræðir umræðuna á þingi og í samfélaginu í í fyrsta þætti Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál. - [„Að standa ekki vörð um EES-samninginn væri glapræði“](https://gimaldid.is/ad-standa-ekki-vord-um-ees-samninginn-vaeri-glapraedi/): Ríkisstjórnin leggur fram frumvarp um innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn í fjórða sinn í þessum mánuði. Þrisvar hefur málið dagað uppi. Hluti stjórnarandstöðunnar hefur gert tortryggilegt að hreinlega sé þörf á lögfestingu bókunar 35 og er útlit fyrir að einhver átök verði um það á þingi. Hvers vegna er þetta nú orðið eitt brýnasta mál stjórnarliða sem telja mikilvægt að bókunin sé fest í lög til að uppfylla skuldbindingar íslenska ríkisins gagnvart EES-samningnum — og hvað gerist ef það stöðvast enn einu sinni? - [Aðalsteinn fær áheyrn í Strassborg vegna eftirmála umfjöllunar um skæruliðadeild Samherja](https://gimaldid.is/adalsteinn-faer-aheyrn-i-strassborg-vegna-eftirmala-umfjollunar-um-skaerulidadeild-samherja/): Mannréttindadómstóll Evrópu mun taka kæru blaðamannsins Aðalsteins Kjartanssonar til efnismeðferðar. Málið á rætur að rekja til umfjöllunar Stundarinnar um skæruliðadeild Samherja en samkvæmt kæru Aðalsteins brugðust innlendir dómstólar skyldu sinni til að vernda mannorð hans fyrir ásökunum um að hann og aðrir blaðamenn hefðu byrlað skipstjóra ólyfjan og stolið gögnum úr síma hans. - [Af andlegu ástandi stjórnmálaflokka í upphafi þingvetrar](https://gimaldid.is/af-andlegu-astandi-stjornmalaflokka-i-upphafi-thingvetrar/): Skiptar skoðanir eru meðal Sjálfstæðismanna um hversu vígreifur flokkurinn á að mæta til þings. Tapið frelsar Viðreisn sem gæti ógnað á hægri vængnum. Titringur og óeining ríkir í Framsókn og Inga Sæland þarf að huga að andlegum styrk þingliðs síns því stjórnarandstaðan er til alls líkleg. - [Aðalheiður Ámundadóttir: Skýrleiki í pólitíska glundroðanum](https://gimaldid.is/adalheidur-amundadottir-skyrleiki-i-politiska-glundrodanum/): Haustlitirnir leggjast yfir og Gímaldið fer af stað inn í nýtt tímabil. Í hlaðvarpsþætti er fjallað um pólitíska umfjöllun Gímaldsins, línur lagðar fyrir veturinn og farið yfir hvers áskrifendur mega vænta. - [Hlaðvarp: Pólitísk ábyrgð og eftirmál baráttunnar](https://gimaldid.is/hladvarp-politisk-abyrgd-og-eftirmal-barattunnar/): Þjóðin sagði nei, en báðar fylkingar sitja uppi með niðurstöðuna. Á Kristrún að henda inn handklæðinu og skilja stjórnarandstöðuna eftir í súpunni? Hvað gerði Áfram Ísland best og á hverju klikkuðu Evrópusinnar? Og hver verður lærdómurinn og eftirmálin? - [Hótuðu Háskóla Íslands skaðabótakröfu „og það ekki um litlar fjárhæðir“](https://gimaldid.is/hotudu-haskola-islands-skadabotakrofu-og-thad-ekki-um-litlar-fjarhaedir/): Tveir fyrrverandi prófessorar við Háskóla Íslands, hótuðu skaðabótakröfu og því að kvartað yrði til umboðsmanns Alþingis og stjórnar HÍ ef dr. Carl Baudenbacher fengi ekki að halda fyrirlestur í Hátíðarsal HÍ með stuðningi Áfram Ísland og Almenna bókafélagsins. Þetta kemur fram í tölvupóstum sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Ragnar Árnason og lögmaður sendu rektor. Ýjað er að því í póstunum að ákvörðun rektors brjóti í bága við stjórnarskrá og varði við lög um meiðyrði. - [Hlaðvarp: Brexit-stundin runnin upp](https://gimaldid.is/hladvarp-brexit-stundin-runnin-upp/): Íslenska þjóðin tekst á við fjórðu þjóðaratkvæðagreiðsluna á þessari öld á laugardag. - [Þegar sannleikurinn víkur fyrir slagorðum](https://gimaldid.is/kaffi-kleinur-og-ovarin-thjod/): Tilfinningarökin voru það sem virkaði í Brexit. Viltu láta aðra stjórna þér? Let's take back control var þekktasta tilfinningahlaðna slagorð útgöngusinna. Skrifum söguna sjálf, voru skilaboðin. Rangar tölur sem sýndu kostnað við veru landsins í ESB virkuðu vel til að styðja við hugmyndir um að forðast ESB. Við höfum haft áratug til að læra af reynslu Breta og sleppa því að bjóða óreiðunni í kaffi. Okkar Brexit-augnablik er runnið upp. - [Hlaðvarp: Áhættan við verðtryggð lán eingöngu hjá þeim sem tekur lánið](https://gimaldid.is/hladvarp-ahaettan-vid-verdtryggd-lan-eingongu-hja-theim-sem-tekur-lanid/): Óvissu um verðbólgu er dreift ójafnt á milli þeirra sem taka lán og veita lán á Íslandi. Í tilfelli verðtryggðra lána er óvissan alfarið sett á lántakandann en lánveitandinn er varinn. Einsdæmi er að verðtrygging sé jafn almenn og hér á landi og hún er sjaldan notuð við útlán til heimila erlendis. Benedikt Gíslason forstjóri Arion banka vill afnema verðtrygginguna. Hann er í viðtali við Gímaldið. - [Já-ið yrði innblástur fyrir Norðmenn að hefja samtalið um ESB og stöðu EES](https://gimaldid.is/ja-id-yrdi-innblastur-fyrir-nordmenn-ad-hefja-samtalid-um-esb-og-stodu-ees/): Norska utanríkisráðuneytið fylgist grannt með stöðunni á Íslandi og umræða um Evrópumál er að aukast í Noregi. Í hlaðvarpi ræðir Herdís Sigurgrímsdóttir um viðhorf Norðmanna gagnvart Evrópusamvinnu og þá staðreynd að ef Ísland segir já yrði Noregur einn með Lichtenstein í EES. - [Hlaðvarp: Álitsgerðin um stóru málin](https://gimaldid.is/hladvarp-alitsgerdin-um-storu-malin/): Ítarleg álitsgerð um yfirráð yfir náttúruauðlindum í ljósi reglna Evrópuréttar var birt í vikunni. Í henni er snert á heitustu umræðuefnum sumarsins; valdheimildum Evrópusambandsins og yfirráðum yfir auðlindunum og fjallað um orkuna, fiskinn og möguleika á undanþágum í aðildarsamningi. - [Óður til brauðtertunnar](https://gimaldid.is/odur-til-braudtertunnar/): Brauðtertan er skráð sem lifandi hefð hjá Þjóðminjasafni Íslands og glöggt má sjá lífið í Brauðtertufélagi Erlu og Erlu. Við förum hér yfir sögu íslensku brauðtertunnar í tilefni af brauðtertuveislu sem haldin er í ráðuneyti menningar á Menningarnótt. - [Excel-skjal ráðuneytis með tillögum barna um símafrí passar ekki við reglugerðina](https://gimaldid.is/excel-skjal-raduneytis-med-tillogum-barna-passar-ekki-vid-reglugerdina/): Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur afhent Gímaldinu Excel-skjal sem Inga Sæland sagði að reglugerð um símafrí væri unnin upp úr. Skjalið geymir tillögur barna sem tóku þátt í vinnustofu á vegum ráðuneytisins, og nokkuð misræmi er á milli skjalsins og reglugerðarinnar. - [Hlaðvarp: Akademíski armur Áfram Ísland og  Brexit-bragur á lokasprettinum](https://gimaldid.is/hladvarp-akademiski-armur-afram-island-og-brexit-bragur-a-lokasprettinum/): Í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins ræða Helga Arnardóttir, Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir kosnngabaráttuna tveimur vikum fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Til umræðu er hið sérkennilega hátíðarsalsmál sem tengist Áfram Ísland, aukin tortryggni kjósenda, minni eftirspurn eftir upplýsingum og hvort baráttan á lokasprettinum sé farin að taka á sig Brexit-blæ. - [Fundurinn sem enginn sagðist halda og rannsóknarsetrin þrjú sem tengjast Áfram Ísland](https://gimaldid.is/fundurinn-sem-enginn-sagdist-halda-og-rannsoknarsetrin-thrju-sem-tengjast-afram-island/): Sagan af því hvernig dr. Carl Baudenbacher, ráðgjafi, fyrrverandi prófessor í Evrópurétti og dómari við EFTA-dómstólinn, varð að fréttaefni hér á landi vegna fyrirlestrar sem var færður úr einum sal í annan er með nokkrum ólíkindum, þótt forsvarsmenn fundarins hafi reynt að gera lítið úr málinu. Deildum innan Háskóla Íslands var blandað í fundinn þótt þær kæmu ekki að honum. Minna þekkt eru tengsl Áfram Ísland við tvö setur og eina miðstöð sem kenna sig við rannsóknir. - [Jarðarför upplýstrar umræðu](https://gimaldid.is/jardarfor-upplystrar-umraedu/): Silfrið kom fyrr úr sumarfríi enda þjóðaratkvæðagreiðsla framundan og ýmislegt sem kjósendur vilja vita. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson virtist hins vegar hafa sínar eigin hugmyndir um upplegg þáttarins. - [„Félagsvísindastofnun kemur ekkert nálægt þessum viðburði“](https://gimaldid.is/felagsvisindastofnun-kemur-ekkert-nalaegt-thessum-vidburdi/): Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands kom hvergi nærri skipulagningu fyrirlestrar Carls Baudenbachers, þótt viðburðurinn hafi verið auglýstur í samstarfi við rannsóknarsetur „við Félagsvísindastofnun“. Tengsl setursins við stofnunina voru rofin árið 2022. - [Rósa Björk segir JÁ í ágúst en gefur ekki út flokkslínu](https://gimaldid.is/rosa-bjork-segir-ja-i-agust-en-gefur-ekki-ut-flokkslinu/): Formaður Vinstri grænna ræðir hugarfarsbreytingu í Evrópumálum innan VG og segir forystu flokksins þurfa að leggja við hlustir. Ólíkar skoðanir um málið endurspegli lýðræðislegan styrk VG. Henni finnst breytt afstaða samkvæmt könnunum skiljanleg og skynsamleg og hún ætlar sjálf að segja já í ágúst. Hún segir áherslur VG þurfa að heyrast við samningaborðið. - [Hlaðvarp: Pólitískir eltihrellar gerðir út og fjölbreyttar baráttuaðferðir dynja á þjóðinni](https://gimaldid.is/hladvarp-politiskir-eltihrellar-gerdir-ut-og-fjolbreyttar-barattuadferdir-dynja-a-thjodinni/): - Eitthvað er að klikka hjá Áfram Ísland hreyfingunni því nei-fylgið haggast ekki samkvæmt nýrri könnun. - Gamla fólkið er að verða ansi jákvætt fyrir aðildarviðræðum meðan tvær grímur renna á miðaldra konur og menn. - Sjálfstæðisflokkurinn biður flokksfólk að „fylgja eftir“ vinum og vinnufélögum. - Barátta já- og nei- hreyfinga er komin á fullt skrið, en er þjóðin orðin leið á ESB umræðunni? - Kristrún Frostadóttir vill forðast mistök Davids Camerons í Brexit og heldur sig til hlés. - [Ný eyjastefna ESB gæti styrkt stöðu Íslands](https://gimaldid.is/ny-eyjastefna-esb-gaeti-styrkt-stodu-islands/): Ísland fellur að mörgu leyti að þeim aðstæðum sem ný eyjastefna Evrópusambandsins tekur sérstaklega á; einangrun, auknum flutningskostnaði og litlum heimamörkuðum. Reinhard Reynisson, sérfræðingur í byggðamálum, ræðir stöðu Íslands sem eyríkis, þessa nýju stefnu og hvernig byggðastefna getur haft áhrif á samkeppnishæfni, atvinnulíf og þróun landsbyggðar. - [Gauti B. Eggertsson: „Einfaldlega rangt“ að halda því fram að vextir lækki ekki með evru](https://gimaldid.is/gauti-b-eggertsson-einfaldlega-rangt-ad-halda-thvi-fram-ad-vextir-laekki-ekki-med-evru/): Fullyrðingar sem eiga sér ekki stoð í fræðilegum gögnum eða staðreyndum eru víða, ekki síst í umfjöllun um ESB. Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði hefur lagt Facebook-síðu sína mikið til undir staðreyndavöktun undanfarna mánuði og reynt þannig að berjast gegn röngum upplýsingum, grein fyrir grein. - [Börn gagnrýna barnamálaráðherra: „Þegar það kemur að ákvörðun virðast samtölin tilgangslaus“](https://gimaldid.is/born-gagnryna-barnamalaradherra-thegar-thad-kemur-ad-akvordun-virdast-samtolin-tilgangslaus/): Ungmenni sem tóku þátt í vinnustofu ráðuneytisins um reglur um símafrí í skólum segja tillögur sínar hafa verið hunsaðar. Barnaheill taka beint undir þær athugasemdir, og umboðsmaður barna og Mannréttindastofnun Íslands ítreka sama grundvallaratriði um raunverulegt samráð við börn. Ráðherra hafnar gagnrýninni og segir reglugerðina byggða á tillögunum. Gímaldið hefur óskað eftir Excel-skjali sem hún vísar til sem heimild. - [Hlaðvarp: Ekki íþróttakeppni þar sem stórþjóðir valta yfir smáþjóðir](https://gimaldid.is/hladvarp-ekki-ithrottakeppni-thar-sem-storthjodir-valta-yfir-smathjodir/): Dóra Sif Tynes segir misskilning að líta á samstarf Evrópuþjóða eins og íþróttakeppni þar sem lítil lönd hafi fáa leikmenn en stór lönd marga. Þvert á móti snúist allt um samstarf og það að gæta hagsmuna allra þjóðanna. - [Aðsókn á Evrópuvefinn tekur stökk upp á við](https://gimaldid.is/adsokn-a-evropuvefinn-tekur-stokk-upp-a-vid/): Aðsókn á Evrópuvefinn hefur snaraukist í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Nýtt efni hefur verið birt í sumar og eldra efni uppfært. Þá er nú hægt að fá svör við spurningum um Evrópumál með aðstoð gervigreindar. Allt efni vefsins byggir á upplýsingum sem búið er að staðreyna og yfirfara af sérfræðingum, en vefurinn er undir stjórn Háskóla Íslands. - [Hlaðvarp: Dýr matur, ofurhagnaður og bannorðin álagning og gróðaverðbólga](https://gimaldid.is/hladvarp-dyr-matur-ofurhagnadur-og-bannordin-alagning-og-grodaverdbolga/): Ísland keppir aðeins við Sviss um hæsta verðlag á mat í Evrópu. Þessi tvö ríki deila jafnan verðlaunapalli um hæsta og næsthæsta matarverðið í álfunni. Engu að síður er umræða um álagningu hér á landi lítil. Í nýjum þætti í hlaðvarpi Gímaldsins er rætt um matarverð, bannorðin í umræðunni og spurt af hverju hagsmunasamtök sjá sér ekki hag í að hvetja til verðlækkana til að hemja verðbólgu. - [Fimm tímamót í sögu Evrópusambandsins](https://gimaldid.is/fimm-timamot-i-sogu-evropusambandsins/): 1. Ný Evrópa byggð úr kolum og stáli 2. Maastricht-sáttmálinn og evran 3. Fall járntjaldsins og stækkun til austurs 4. Fjármálahrunið sem breytti efnahagsstefnunni 5. Þeg­ar Brexit sýndi að aðild er afturkræf - [„Ísland og Noregur alltaf fyrir utan herbergið“](https://gimaldid.is/island-og-noregur-alltaf-fyrir-utan-herbergid/): Evrópskir styrktarsjóðir eru langstærsta alþjóðlega uppspretta styrkja inn í íslenskt vísinda-, mennta- og menningarsamfélag og aðgangur Íslands að þeim er vel tryggður í gegnum EES-samninginn. Ísland hefur þó enga formlega aðkomu þegar áætlanir eru mótaðar, en það myndi breytast með inngöngu í ESB. Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís er í viðtali við hlaðvarp Gímaldsins. - [Hlaðvarp: Háðsglósur, rússnesk gervimenni og klofin þjóð eða betur að sér](https://gimaldid.is/hladvarp-hadsglosur-russnesk-gervimenni-og-klofin-thjod-eda-betur-ad-ser/): - Af hverju er kosið um aðildarviðræður en ekki aðild? - Ný regnhlífarsamtök létta líf þeirra sem verða fyrir háði og spotti. - Rússnesk gervimenni gætu blandað sér í umræðuna. - Hvort klýfur þjóðina; samtalið eða eyðleggingaröfl og óheiðarleiki? - [Kannski er ekki skýrt að hátt verðlag eigi sér skýringar](https://gimaldid.is/kannski-er-ekki-skyrt-ad-hatt-verdlag-eigi-ser-skyringar/): Matarverð hér á landi hefur hækkað umfram kostnað og launahækkanir. Samkeppniseftirlitið skoðar nú bæði hækkanir á matvöru og hækkanir á eldsneyti. Hagsmunagæslufólk leggur sig fram um að sá efasemdum um að hátt verðlag í landinu og hagnaður stórfyrirtækja tengist. - [Traustið er orðið að skotmarki — þjóðaröryggi á tímum upplýsingaóreiðu](https://gimaldid.is/traustid-er-ordid-ad-skotmarki-thjodaroryggi-a-timum-upplysingaoreidu/): Samfélagsmiðlar gætu horfið og gervigreind orðið eini glugginn að heiminum. Sá sem ræður yfir henni ræður því hvernig við sjáum veruleikann. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli tveggja erlendra sérfræðinga í upplýsingaóreiðu og þjóðaröryggi á árlegri ráðstefnu þjóðaröryggisráðs Íslands sem haldin var á dögunum. - [Hlaðvarp: Tiltektin hafin í borginni, lærdómar af Brexit og hátt matvöruverð á Íslandi](https://gimaldid.is/hladvarp-tiltektin-hafin-i-borginni-og-laerdomar-af-brexit-fyrir-islenskar-stridandi-fylkingar/): - Nýr meirihluti í Reykjavík er byrjaður að hagræða, en hvað kemur í staðinn þegar upplýsingafulltrúum borgarinnar er sagt upp? - Baráttan fyrir atkvæðagreiðslu haustsins gæti orðið eins og Brexit á röngunni. - Helga Arnardóttir gengur til liðs við Gímaldið og byrjar á umfjöllun um matvöruverð. - Ný skýrsla um Græna gímaldið er komin út. - [Helga Arnardóttir til liðs við Gímaldið](https://gimaldid.is/helga-arnardottir-til-lids-vid-gimaldid/): Nýr liðsmaður bætist við ritstjórn Gímaldsins. Fjölmiðlakonan kunna Helga Arnardóttir starfaði um árabil við fréttir og dagskrárgerð bæði á Stöð 2 og RÚV en hefur undanfarin ár verið í kvikmynda- og þáttagerð. Við bjóðum Helgu velkomna á Gímaldið. - [„Ég held að samfélagið hafi klikkað“ – Matvöruverð í hæstu hæðum á meðan matvörurisar hagnast](https://gimaldid.is/eg-held-ad-samfelagid-hafi-klikkad-matvoruverd-i-haestu-haedum-a-medan-matvorurisar-hagnast/): Matvara er 55% dýrari á Íslandi en ESB-ríkjum og verð á þeim hefur hækkað hraðar en í samanburðarlöndum síðustu ár. Hagnaður Haga og Festi, sem eiga Bónus og Krónuna, hefur meira en tvöfaldast frá árinu 2020. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að samfélagið allt hafi brugðist. Lega landsins, sérstakur gjaldmiðill og tollavernd spili inn í, en ekki síður eigi öflug hagsmunagæsla matvörumarkaðarins sinn þátt í hækkunum. Þá megi löggjafinn líta í eigin barm, aðstæður hér á landi ýti undir fákeppni frekar en samkeppni. Frekar sé keppt í þjónustu en verði á matvörum. - [Að verja óbreytt ástand eða bjóða upp á breytingar: Lærdómur Brexit fyrir Já og Nei hreyfingar Íslands](https://gimaldid.is/ad-verja-obreytt-astand-eda-bjoda-upp-a-breytingar-laerdomur-brexit-fyrir-ja-og-nei-hreyfingar-islands/): Mistök í kosningabaráttu breskra aðildarsinna voru fjölmörg í aðdraganda Brexit. Þeir áttu erfitt með að gangast við því að vera Evrópusinnar en stóðu líka frammi fyrir því að þurfa að verja óbreytt ástand. Staða íslenskra Evrópusinna er allt önnur. Þeir geta bæði lært af mistökum breskra aðildarsinna og nýtt sér stöðuna sem breskir útgöngusinnar voru í og geta verið afl breytinga ólíkt nei-sinnum sem neyðast til að verja óbreytt ástand. - [Tólf úrbótatillögur og eitt tækifæri í skýrslu um Græna gímaldið](https://gimaldid.is/tolf-urbotatillogur-og-eitt-taekifaeri-i-skyrslu-um-graena-gimaldid/): Annmarkar voru bæði í undirbúningi máls hjá stjórnsýslu borgarinnar og í þeirri yfirferð sem fór fram hjá kjörnum fulltrúum í umhverfis- og skipulagsráði áður en ákvörðun um að leyfa Græna gímaldið var tekin. Þetta kemur fram í úttekt innri endurskoðunar á skipulagsferli vegna Álfabakka 2a, sem nefnt hefur verið Græna gímaldið, sem kom út í vikunni. - [Frá þjóðaratkvæði til aðildar: atburðarásin ef þjóðin segir já](https://gimaldid.is/fra-thjodaratkvaedi-til-adildar-atburdarasin-ef-thjodin-segir-ja/): Segi þjóðin já í haust tekur flókið ferli við, bæði hér heima og á vettvangi ESB. Samningaviðræðurnar sjálfar eru aðeins hluti vegferðarinnar. Staðfestingarferli um alla Evrópu er viðamikið, önnur þjóðaratkvæðagreiðsla þyrfti að fara fram á Íslandi auk stjórnarskrárbreytinga sem krefjast alþingiskosninga. Þá þyrfti að breyta kosningalögum vegna fyrirkomulags við kosningar til Evrópuþings. - [Íslenskan líklega sterkari innan ESB](https://gimaldid.is/islenskan-liklega-sterkari-innan-esb/): Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræði og deildarforseti Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands, hefur litlar áhyggjur af íslenskunni gangi Ísland í Evrópusambandið. Aðild myndi fjölga störfum við túlkun og þýðingar. Helst er litið til írsku og maltnesku varðandi áhrif ESB-aðildar á íslenska tungu. Áætlaður þýðingarkostnaður vegna mögulegra aðildarviðræðna er 600 milljónir króna. - [Þorgerður Katrín: Fólk með efasemdir hafi mestan hag af því segja já](https://gimaldid.is/thorgerdur-katrin-folk-med-efasemdir-hafi-mestan-hag-af-thvi-segja-ja/): Hvaða ferill fer í gang ef þjóðin segir já í haust? Hverjir munu stýra ferðinni og hvað verður sett á oddinn? Af hverju mega útlendingar ekki koma nálægt íslenskum sjávarútvegi og eru hagsmunir bænda og neytenda ósamrýmanlegir? Af hverju er lega landsins mikilvæg fyrir Evrópu? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir svarar þessum spurningum og mörgum öðrum, í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins. - [Vill að hægt sé að ræða Evrópumál öðruvísi en á háa C-inu](https://gimaldid.is/vill-ad-haegt-se-ad-raeda-evropumal-odruvisi-en-a-haa-c-inu/): Ef Ísland gengi í ESB þá yrði það breyting fyrir flest íslensk fyrirtæki, en ekki endilega umbylting á einni nóttu. Hugveitan Evrópustraumar vann skýrslu fyrir Félag atvinnurekenda, þar sem greind eru áhrif aðildar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og dregnir fram bæði kostir og gallar. Höfundurinn vonar að skýrslan sé gagnlegt framlag inn í umræðuna. - [Sjávarútvegskaflinn sem var aldrei opnaður](https://gimaldid.is/sjavarutvegskaflinn-sem-var-aldrei-opnadur/): Sjávarútvegur hefur frá upphafi verið talinn eitt stærsta álitamálið í mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þrátt fyrir tæplega þriggja ára aðildarviðræður var sjávarútvegskaflinn aldrei opnaður og lágu ýmsar ástæður þar að baki. - [Viðtal: Útgerðarmenn með reynslu af ESB jákvæðari fyrir aðild](https://gimaldid.is/vidtal-utgerdarmenn-med-reynslu-af-esb-jakvaedari-fyrir-adild/): Þótt forsvarsmenn útgerða landsins séu flestir fremur neikvæðir gagnvart aðild að ESB, eru undantekningar á því. Hjálmar Vilhjálmsson hefur sautján ára reynslu af rekstri útgerðar innan aðildarríkis ESB og segir reynslu sína af sambandinu góða. Hann hefur ekki áhyggjur af íslenskum sjávarútvegi innan ESB en segir að samninganefnd Ísland þurfi að halda vel á spöðunum verði ákveðið að hefja viðræður við ESB á ný. - [„Það þarf kjark til að mynda bandalög þvert á flokka“](https://gimaldid.is/thad-tharf-kjark-til-ad-mynda-bandalog-thvert-a-flokka/): Þær hafa verið í forystu fyrir ólíka stjórnmálaflokka og segjast stundum rífast við sjónvarpið þrátt fyrir að vera hættar í pólitík. Í viðtali við Gímaldið ræða þær Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir um konur í pólitík, um erfiða en viðburðaríka tíma í borgarstjórn skömmu eftir hrun og það hvernig samvinna þvert á flokka skilar meiri árangri en átök. - [Sirkabát: Af hverju er allt svona dýrt hér á landi?](https://gimaldid.is/sirkabat-af-hverju-er-allt-svona-dyrt-her-landi/): Verðlag á Íslandi er „einfaldlega orðið of hátt“, samkvæmt greiningu Visku stéttarfélags. Þar kemur fram að verðlag á Íslandi sé nú 84 prósentum hærra en að meðaltali í 27 Evrópulöndum. Til að kafa dýpra í hvað skýrir þann mun er í þættinum Sirkabát rætt við Gylfa Magnússon, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Þá bæta þáttastjórnendur Íslandi inn í Big Mac-stuðulinn sem The Economist hefur notað sem óformlegan samanburð á kaupmætti milli landa. - [Eru félaga­samtök sem boða eigið fagnaðar­erindi nóg til að upp­lýsa al­menning?](https://gimaldid.is/eru-felagasamtok-sem-boda-eigid-fagnadarerindi-nog-til-ad-upplysa-almenning/): Hreyfingar fólks sem hefur gert upp hug sinn í Evrópumálum fá peninga frá ríkinu til að sannfæra hina. Fjölmiðlar hafa ríku hlutverki að gegna í sumar. Þjóðin þarf fleira en andstæða póla. - [Áhrif ESB aðildar á budduna og bókhaldið](https://gimaldid.is/ahrif-esb-adildar-a-budduna-og-bokhaldid/): Gangi Ísland í ESB, kasti krónunni og taki upp evru, mun það hafa margvísleg áhrif á heimilin í landinu, fyrirtækin og ríkissjóð. En hvaða áhrif nákvæmlega? Við vitum það ekki fyrir víst. Það fer eftir því hvernig okkur semst og hvernig við höldum á spöðunum. Þingið spurði Hagfræðistofnun og í áliti stofnunarinnar má finna áhugaverðar vísbendingar. - [Frá EFTA til þjóðaratkvæðis: Tímalína Evrópusamstarfs Íslands](https://gimaldid.is/fra-efta-til-thjodaratkvaedis-timalina-evropusamstarfs-islands/): Átök hafa verið um hversu langt á að ganga í samstarfi við Evrópu allt frá því Ísland gekk í EFTA árið 1970. Gímaldið tók saman tímalínu Evrópusamstarfs þjóðarinnar. - [Refurinn, sauðkindin og digrir sjóðir fyrir brothættar byggðir](https://gimaldid.is/aaetlad-fjarframlag-islands-og-digrir-sjodir-esb-fyrir-brothaettar-byggdir/): Fjallað er um fjárframlög Íslands til ESB og hvað fæst í staðinn, gangi Ísland í sambandið, í nýju nefndaráliti utanríkismálanefndar. Í álitinu eru sett fram helstu markmið aðildarviðræðna: - Yfirráð auðlinda áréttuð í sérbókun - Sérlausn í fiski: Sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnkerfi - Heimskautalandbúnaður og styrkir frá Brussel - Miklir fjármunir frá ESB til landsbyggðar - Undanþágur um íslenska refinn, hvalinn og flugsamgöngur - Þátttaka í gengissamstarfi og stefnt að upptöku evru - Ísland áfram herlaust og fullráða í varnarmálum - [Starfsfólk Meta látið þjálfa gervigreindina sem tekur störfin þeirra](https://gimaldid.is/starfsfolk-meta-latid-thjalfa-gervigreindina-sem-tekur-storfin-theirra/): Hversu hratt hreyfist músin og hversu lengi ertu að slá inn einn tölvupóst? Hjá tæknirisanum Meta hefur verið komið upp hugbúnaði sem fylgist með allri tölvuhegðun starfsfólks í rauntíma og tekur jafnvel skjáskot af tölvuskjám þeirra. Tilgangurinn? Að þjálfa gervigreind. - [Fyrsta samevrópska vinnustaðaeftirlitið á Íslandi — „Þú þarft að skoða líka í hinu landinu“](https://gimaldid.is/fyrsta-samevropska-vinnustadaeftirlitid-a-islandi-thu-tharft-ad-skoda-lika-i-hinu-landinu/): Pólskir, litháískir og moldóvskir starfsmenn voru á íslensku byggingarsvæði þar sem fram fór fyrsta sameiginlega vinnustaðaeftirlitið hér á landi með stuðningi Evrópsku vinnumálastofnunarinnar. Framkvæmdastjóri stofnunarinnar hefur fundað með ráðherra vinnumarkaðsmála, ASÍ og SA. Hann segir stéttarfélagsþátttöku á Íslandi vekja athygli út fyrir landsteinana. - [Leikur að tölum: Vinstri kanturinn vann Miðflokkinn og R-listinn vann Sjálfstæðisflokkinn](https://gimaldid.is/leikur-ad-tolum-vinstri-kanturinn-vann-midflokkinn-og-r-listinn-vann-sjalfstaedisflokkinn/): Hversu raunveruleg er hægri sveiflan sem allir eru að tala um? Gímaldið rýnir í tölurnar og ræðir ýmis vinstri trend í úrslitum kosningana. Í nýjum hlaðvarpsþætti er líka spáð fyrir um næsta varaformann Samfylkingarinnar og horft yfir landsmálin í kjölfar kosninga. - [Hlaðvarp: Sögulegar sættir í sjónmáli og fleiri ályktanir um úrslitin](https://gimaldid.is/hladvarp-sogulegar-saettir-i-sjonmali-og-fleiri-alyktanir-um-urslitin/): Verður Hildur Björnsdóttir næsti leiðtogi Sjálfstæðisflokksins eða er rétti tíminn loksins kominn fyrir Guðlaug Þór? Hvað þýðir þessi hægri sveifla og af hverju barðist Samfylkingin ekki af meiri krafti fyrir borginni? Hvaða flokkar unnu kosningarnar og hverjir töpuðu? Gímaldið veltir þessum spurningum upp í hlaðvarpi daginn eftir kosningar. - [Þrír hægri meirihlutar mögulegir í Reykjavík samkvæmt kosningaspá Metils](https://gimaldid.is/thrir-haegri-meirihlutar-mogulegir-i-reykjavik-samkvaemt-kosningaspa-metils/): Metill spáir Sjálfstæðisflokknum 9 fulltrúum í Reykjavík og flokkurinn hefur val um tvo þriggja flokka meirihluta. Metill og Gallup spáðu best fyrir um úrslit síðustu alþingiskosninga. - [Börn og bílastæði: Áhrifavald Viðreisnar í tvísýnu](https://gimaldid.is/born-og-bilastaedi-ahrifavald-vidreisnar-i-tvisynu/): Það blása hægri vindar um Reykjavík í síðustu könnun fyrir kosningar og útlit fyrir stefnubreytingu í borginni. Hvaða meirihlutar eru í kortunum og hvað gleymdist að ræða í aðdraganda kosninga? - [Sjálfselskan í kjörklefanum og öll ímynduðu vandamálin](https://gimaldid.is/sjalfselskan-i-kjorklefanum-og-oll-imyndudu-vandamalin/): Kosningar draga fram sjálfselskuna í okkur öllum. Við fáum tækifæri til að vera ein í kjörklefanum með okkar atkvæði. Fáum að handleika það, eiga með því stund stórrar ákvörðunar og stinga því svo nafnlausu ofan í kassa. Enginn þarf að vita, við erum ein í litla klefanum og ráðum okkur sjálf. Enginn segir okkur til. - [Við þurfum að geta rekið samfélagið fyrir okkur öll](https://gimaldid.is/vid-thurfum-ad-geta-rekid-samfelagid-fyrir-okkur-oll/): Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir lifir og hrærist í samfélagi jaðarsettra hópa. Hún er framkvæmdastjóri Samhjálpar og stjórnarkona í samtökum gegn fátækt og félagslegri einangrun. Hún segir það tvennt ólíkt að reka fyrirtæki og að reka samfélag, og að Reykjavík spili í annarri deild en önnur sveitarfélög þegar kemur að þjónustu við jaðarsett fólk. - [Tölurnar sem frambjóðendur velja sér fyrir kosningar og góð ráð til kjósenda](https://gimaldid.is/tolurnar-sem-frambjodendur-velja-ser-fyrir-kosningar-og-god-rad-til-kjosenda/): Sveitarstjórnarkosningar snúast um fólk og hugmyndir – en líka um tölur. Hvað kostar að reka sveitarfélag? Hvernig stendur Reykjavík fjárhagslega? Og hvers vegna er svona erfitt að koma börnum á leikskóla? - [Er erfiðara að breyta Reykjavík?  ](https://gimaldid.is/er-erfidara-ad-breyta-reykjavik/): Suðurlandsbraut, Champs-Élysées, Oxford Street og Times Square. Í mörgum vestrænum borgum eru umferðaræðar nú að endurfæðast í nýrri mynd til að bæta aðgengi vistvænna samgangna og skapa betri borgarrými. - [Hinsegin bókmenntahátíð: Því fjölbreyttari birtingarmyndir, því betra](https://gimaldid.is/hinsegin-bokmenntahatid-thvi-fjolbreyttari-birtingarmyndir-thvi-betra/): Ásta Kristín Benediktsdóttir bókmenntafræðingur nefnir Mánastein eftir Sjón sem dæmi um vel heppnaðar hinsegin bókmenntir. En hvað eru hinsegin bókmenntir og skiptir máli hver skrifar hinsegin bækur? - [Hver á að fara með ruslið? ­– Kostn­að­ur við út­vist­un van­met­inn og eft­ir­liti ábóta­vant](https://gimaldid.is/hver-a-ad-fara-med-ruslid-kostnadur-vid-utvistun-vanmetinn-og-eftirliti-abotavant/): Hvaða flokk­ar vilja fela einka­að­il­um verk­efni borg­ar­inn­ar og hvaða flokk­ar vilja að borg­in vinni öll verk sjálf? Kostn­að­ur við út­vist­un verk­efna er oft van­met­inn og eft­ir­liti ábóta­vant, seg­ir pró­fess­or í stjórn­mála­fræð­i. Hún seg­ir of lít­ið vit­að um þessa leið í op­in­ber­um rekstri. - [Málefnin sem kjósendur leggja áherslu á — Skipulagsmál á toppnum](https://gimaldid.is/malefnin-sem-kjosendur-leggja-aherslu-a-skipulagsmal-a-toppnum/): Skipulagsmál og málefni leik- og grunnskóla eru þeir tveir málaflokkar sem flestir íbúar leggja áherslu á vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem Rúnar Vilhjálmsson prófessor lét gera þar sem honum fannst mikilvægt að skoða skipulega hvað kjósendurnir sjálfir vilja. Einnig var spurt um ánægju með þjónustu sveitarfélaganna, afstöðu til Borgarlínu og afstöðu til þéttingar byggðar. - [Gísli Marteinn: Reykjavík á að bera sig saman við aðrar höfuðborgir](https://gimaldid.is/gisli-marteinn-reykjavik-a-ad-bera-sig-saman-vid-adrar-hofudborgir/): Margt kemur Gísla Marteini Baldurssyni spánskt fyrir sjónir í umræðu flokkanna um skipulagsmál í Reykjavík. Í viðtali ræðir borgarfulltrúinn fyrrverandi um Reykjavík í samanburði við aðrar borgir, öngstræti umræðunnar og mikilvægi þess að þétta byggðina og gera það vel. - [Bannorðin í borginni rædd í nýjum kosningaþætti](https://gimaldid.is/bannordin-i-borginni-raedd-i-nyjum-kosningathaetti/): Nýr þáttur af Börn og bílastæði, kosningaumfjöllun Gímaldsins, er lentur á helstu hlaðvarpsveitum. Þar er fjallað um stefnuskrár, eitruðu hugtökin sem ekki má ræða og það hvernig sundlaugar fá meira rými en Sundabraut í stefnum flokkanna. - [Sirkabát: Hvað veldur misræmi í mælingum á fjölda atvinnulausra?](https://gimaldid.is/sirkabat-hvad-veldur-misraemi-i-maelingum-a-fjolda-atvinnulausra/): Munur á atvinnuleysismælingum Hagstofu Íslands og Vinnumálastofnunar hefur aukist undanfarna mánuði. Vinnumálastofnun telur um 9.000 færri atvinnulausa einstaklinga í hagkerfinu en Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar gerir. Þáttastjórnendur Sirkabát leitast við að svara því hvað veldur þessu misræmi og hvað megi lesa úr því. - [Börn og bílastæði: Reykjavík er unglingur í borgarþróun](https://gimaldid.is/born-og-bilastaedi-reykjavik-er-unglingur-i-borgarthroun/): Væntingar um að bílastæði bíði okkar nákvæmlega á þeim punkti sem hentar hverju sinni eru ekki raunhæfar í borgarumhverfi. Í nýjum þætti af Börn og bílastæði, er rætt við sérfræðinga um bílastæði og tengsl þeirra við borgarþróun. - [„Ég var kjáni“ segir Elon Musk sem vill að gervigreind Open AI verði óhagnaðardrifin](https://gimaldid.is/eg-var-kjani-segir-elon-musk-sem-vill-ad-gervigreind-open-ai-verdi-ohagnadardrifin/): Gervigreindarrisinn Open AI átti upphaflega að vera óhagnaðardrifið félag með það markmiði að þróa gervigreind sem væri örugg og mannkyninu til hagsbóta. Elon Musk – af öllum mönnum – stendur nú í málaferlum á hendur félaginu og forstjóranum um að snúa aftur að því markmiði - [Fram­bjóð­end­ur fá frí í kosn­inga­þátt­um Gímalds­ins](https://gimaldid.is/frambjodendur-fa-fri-i-kosningathattum-gimaldsins/): Í nýrri þátta­röð Gímalds­ins um sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­mál verð­­ur at­hygl­inni beint að mál­efn­­um frek­­ar en fram­­bjóð­end­­um. Mál­in verða skýrð og sett í sam­hengi með þjónustu við kjós­­end­­ur að leiðarljósi. Þessi um­fjöll­un er fyrst og fremst í hljóð­formi. Það er bæði hægt að hlusta inni í fréttinni og á helstu hlað­varpsveit­u­m. - [Þjóðfélagsumræðan seld hæstbjóðanda](https://gimaldid.is/samfelagid-og-samfelagsmidlar-thegar-allt-snyst-um-aukaatridin/): Tveir stærstu keppast um að ná forskoti, en það er mjótt á munum. Miðað við nýjustu spár fær annar 26,4 prósent, hinn 26,8 prósent. Nei, þetta er ekki kosningaspá. - [Fyrstu tölur um heilabilun á Íslandi: Færri með greiningu en búist var við](https://gimaldid.is/fyrstu-tolur-um-heilabilun-a-islandi-faerri-med-greiningu-en-buist-var-vid/): Áður óbirt gagnagreining embættis landlæknis gefur fyrstu heildarmynd af heilabilunarsjúkdómum á Íslandi. Algengi heilabilunarsjúkdóma hefur lækkað á tímabilinu. Sérfræðingur sem Gímaldið fékk til að meta gögnin bendir á mynstur sem gefur vísbendingar um sóknarfæri í greiningarferli um land allt. - [Átta ára gömul stefna að borgin vilji takmarka unnar kjötvörur](https://gimaldid.is/atta-ara-gomul-stefna-ad-borgin-vilji-takmarka-unnar-kjotvorur/): Uppfærð matarstefna Reykjavíkurborgar var samþykkt í síðustu viku eftir umræður sem snerust að mestu um takmörkun á unnum kjötvörum. Slík takmörkun hefur þó verið í gildi frá 2018 og Sjálfstæðisflokkurinn kvartaði á sínum tíma yfir seinagangi við innleiðingu stefnunnar. Gímaldið er yfir sögu hinnar margumtöluðu matarstefnu. - [Sagan á bak við umsögnina um Græna gímaldið sem ekki mátti birta](https://gimaldid.is/sagan-a-bak-vid-umsognina-um-graena-gimaldid-sem-ekki-matti-birta/): Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi, sagði í umsögn skipulagsfulltrúa um Græna gímaldið, sem fór út fyrir mistök og var svo dregin til baka. Margir tengdu en orðin vöktu litla lukku innan borgarinnar. Arkitektinn sem skrifaði þau fékk að heyra að hún væri að láta „danskan arkitektúr hafa of allt of mikil áhrif“ á sig. - [Getur umferð gufað upp?](https://gimaldid.is/getur-umferd-gufad-upp/): Bílaumferð á höfuðborgarsvæðinu er afsprengi hundraða þúsunda ákvarðana á dag. Þess vegna er hægt að breyta henni ef við viljum. - [Stjórn­ar­for­mað­ur RÚV seg­ir lýð­ræð­inu standa ógn af fjölg­un upp­lýs­inga­full­trúa](https://gimaldid.is/stjornarformadur-ruv-segir-lydraedinu-standa-ogn-af-fjolgun-upplysingafulltrua/): Stefán Jón Hafstein formaður stjórnar RÚV lýsti áhyggjum af stöðu fjölmiðla í ræðu á aðalfundi RÚV. Hann sagði veika fjölmiðla missa getuna til að veita aðhald og benti á fækkun blaðamanna og fjölgun upplýsingafulltrúa. Þá lagði hann til að hið opinbera hætti að kaupa auglýsingar af tæknirisum. - [Kvikmyndasjóður með sömu krónutölu framlaga og við upphaf kvikmyndastefnu](https://gimaldid.is/kvikmyndasjodur-med-somu-kronutolu-framlaga-og-vid-upphaf-kvikmyndastefnu/): Útlit er fyrir að óvenju fáar íslenskar bíómyndir komi út hér á landi í ár. Framlög ríkisins til kvikmyndagerðar hafa ekki hækkað og undanfarið hafa fagfélög og kvikmyndagerðarfólk lýst þungum áhyggjum af stöðunni. - [Bú­ast megi við átök­um í ut­an­rík­is­mála­nefnd](https://gimaldid.is/buast-megi-vid-atokum-i-utanrikismalanefnd/): Sig­ríð­ur Á And­er­sen þingflokksformaður Miðflokksins telur ESB-­­til­lög­una þurfa að taka breyt­ing­um í með­för­um þings­ins. Hún vonar þó að efnahagsmálin verði í forgrunni á lokaspretti þingsins. - [Frá að­dá­anda til and­stæð­ings: Huldu­mað­ur­inn Pét­er Magy­ar](https://gimaldid.is/fra-addaanda-til-andstaedings-huldumadurinn-peter-magyar/): Plakat af Viktori Orbán hékk yfir rúmi Péters Magyar í æsku og þeir voru samherjar í ungverskri pólitík þar til fyrir tveimur árum að Magy­ar snérist gegn foringja sín­um. Hann rú­staði þing­kosn­ing­um í Ung­verja­landi um helg­ina og því vilja marg­ir kom­ast að því fyr­ir hvað hann stend­ur í póli­tík. Það er hæg­ara sagt en gert. - [Þegar Washington blés lífi í klerkaveldið í Teheran](https://gimaldid.is/thegar-washington-bles-lifi-i-klerkaveldid-i-teheran/): Árás sem átti að veikja írönsku stjórnina gæti hafa gert hið gagnstæða. Á meðan innri þrýstingur dvínaði hefur Íran aukið vægi sitt bæði með stöðu sinni við Hormússund og óvæntri leikni í upplýsingastríði. Sumir ganga svo langt að telja Íran nú eitt af fjórum stórveldum heimsins. Hvort sem það er of langt gengið eða ekki hefur þróunin varpað skýru ljósi á takmörk bandarísks valds. - [Hættum að rífast um fjölmiðla og förum að tala saman](https://gimaldid.is/haettum-ad-rifast-um-fjolmidla-og-forum-ad-tala-saman/): Fjölmiðlar skipta samfélagið máli. Það þarf að hlúa að þeim úr mörgum áttum og gera þeim kleift að sækja sér næringu til þess að þeir vaxi. Sé það ekki gert stöndum við frammi fyrir erfiðri spurningu. ## Pages - [Takk fyrir skráninguna](https://gimaldid.is/takk-frettabref/): Fréttabréf Gímaldsins berst þér í pósthólfið. Þú getur afskráð þig hvenær sem er neðst í hverjum pósti. - [Gímaldsverslunin](https://gimaldid.is/askrift/) - [Takk fyrir að skrá þig!](https://gimaldid.is/takk-fyrir-ad-skra-thig/) - [Nýr gestur](https://gimaldid.is/nyr-gestur/) - [Forsíða TEST2](https://gimaldid.is/feluforsida/) - [Stuðningsmannalið](https://gimaldid.is/studningsmannalid/) - [Fréttabréf Gímaldsins](https://gimaldid.is/frettabref/) - [Fréttir og Greinar](https://gimaldid.is/frettir-og-greinar/) - [Heyrðu í okkur](https://gimaldid.is/hafa-samband/): Við viljum heyra frá þér. - [Fyrirtækjaáskrift](https://gimaldid.is/fyrirtaeki/) - [Hlaðvarp](https://gimaldid.is/hladvarp/) - [Forsíða](https://gimaldid.is/) - [Um Gímaldið](https://gimaldid.is/um-gimaldid/): Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. - [Mitt svæði](https://gimaldid.is/adgangur/) - [Greiðslusíða](https://gimaldid.is/greidslusida/) - [Karfa](https://gimaldid.is/karfa/) - [Verslun](https://gimaldid.is/shop/) - [Skilmálar](https://gimaldid.is/skilmalar/): Áskrift kostar 3.490 kr. á mánuði og fæst aðgangur að öllu útgefnu efni Gímaldsins gegn því gjaldi. - [Persónuvernd](https://gimaldid.is/personuvernd/): Gímaldið ehf. meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. ## Products - [Einföld áskrift – mánaðargjald](https://gimaldid.is/vara/einfold-askrift-manadargjald/): Áskrift fyrir einn í mánuð í senn: fullur aðgangur að öllu efni Gímaldsins, Fréttabréfið og boðskort á viðburði. Ein greiðsla á mánuði. - [Fyrirtækjaáskrift – árgjald](https://gimaldid.is/vara/fyrirtaekjaaskrift-arsgjald/): Gímaldið fyrir allan vinnustaðinn í heilt ár, 12 mánuðir á verði 10. Lágmark 3 notendur. - [U25 Tilboð](https://gimaldid.is/vara/u25-tilbod/): Áskrifendur sem ekki hafa náð 25 ára aldri geta fengið ársáskrift á hálfvirði. Áskriftinni fylgir aðgangur að öllu efni okkar, áskrift að fréttabréfinu og boðskort á viðburði á vegum Gímaldsins. - [Fjölskylduáskrift – árgjald](https://gimaldid.is/vara/fjolskylduaskrift-i-heilt-ar/): Þrír á sama heimili, 12 mánuðir á verði 10. Fullur aðgangur að öllu efni, Fréttabréfið og boðskort á viðburði fyrir alla þrjá. Ein greiðsla, ekkert vesen. - [Fjölskylduáskrift – mánaðargjald](https://gimaldid.is/vara/fjolskylduaskrift/): Ein áskrift, þrír á sama heimili. Allir þrír fá fullan aðgang að öllu efni Gímaldsins, Fréttabréfið og boðskort á viðburði. Greitt mánaðarlega. - [Einföld áskrift – árgjald](https://gimaldid.is/vara/einfold-askrift-arsgjald/): Áskrift fyrir einn í heilt ár: fullur aðgangur að öllu efni Gímaldsins, Fréttabréfið og boðskort á viðburði. Ein greiðsla á ári. - [Þriggja mánaða áskrift](https://gimaldid.is/vara/thriggja-manada-askrift/) - [YITH Donations for WooCommerce](https://gimaldid.is/vara/yith-donations-for-woocommerce/) - [Stuðningsmannaliðið](https://gimaldid.is/vara/studningsmannalidid/): Frjálst framlag, að lágmarki 1.000 kr. Framlaginu fylgir ekki áskrift. - [Fyrirtækjaáskrift – mánaðargjald](https://gimaldid.is/vara/fyrirtaekjaaskrift/): Gímaldið fyrir allan vinnustaðinn. Lágmark 3 notendur, 1.990 kr. á mánuði fyrir hvern af fyrstu fimm og 990 kr. fyrir hvern notanda umfram það. - [Ársáskrift](https://gimaldid.is/vara/arsaskrift/) - [Mánaðarleg áskrift](https://gimaldid.is/vara/manadarleg-askrift/) ## Optional - [Agent (MCP protocol)](websites-agents.hostinger.com/gimaldid.is/mcp) [comment]: # (Generated by Hostinger Tools Plugin)