Ólafur Ragnar Grímsson: Vegferð um veröldina

Frá námsárum til forsetakjörs fór höfundur víða og vann með áhrifamönnum í ýmsum álfum. Hér segir af ungum manni sem heldur út í heim, berst á öldufaldi breytinga og myndar bandalög við leiðtoga þar sem barist er fyrir afvopnun, friði og farsæld fátækra ríkja. Samfelldur þráður liggur frá námsárum í Bretlandi til baráttunnar um Bessastaði.

Vegferð um veröldina segir frá starfi innan alþjóðlegu þingmannasamtakanna Parliamentarians for World Order, sem síðar nefndust Parliamentarians for Global Actions. Samtökin voru skipuð þingmönnum frá ýmsum löndum sem innblásnir af friðarhreyfingum tímans freistuðu þess að að virkja þjóðarleiðtoga til að rjúfa vítahring sívaxandi vígbúnaðar.

Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Ólafur Ragnar Grímsson (f. 1943) fæddist á Ísafirði en ólst að nokkru leyti upp hjá ömmu sinni og afa á Þingeyri í kjölfar veikinda móður hans. Hann stundaði nám í hagfræði og stjórnmálafræði við háskólann í Manchester og lauk þaðan doktorsprófi í stjórnmálafræði 1970. Ólafur varð lektor við Háskóla Íslands þegar kennsla hófst þar í stjórnmálafræði, og lagði þar með grunn að kennslu í greininni við þá menntastofnun. Hann varð prófessor við HÍ 1973 og stundaði rannsóknir við skólann 1970–1988.

Ólafur Ragnar lét snemma að sér kveða í stjórnmálum, fyrst innan ungliðahreyfingar Framsóknarflokksins og svokallaðrar Möðruvallahreyfingar en 1974 og 1975 var hann varaþingmaður fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Hann var kjörinn þingmaður fyrir Alþýðubandalagið 1978–1983 og 1991–1996 og var varaþingmaður þess á milli. Árin 1988–1991 var Ólafur fjármálaráðherra í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. Ólafur var kjörinn forseti Íslands í kosningunum 1996 og var endurkjörinn árin 2000, 2004, 2008 og 2012. Ólafur hefur tekið þátt í margvíslegu alþjóðastarfi sem lýtur að loftslagsvá og afvopnun og eftir hann liggur fjöldi rita og greina um þjóðfélagsmál, stjórnmálafræði, afvopnunarmál o.fl.

Mál og menning  2026 ⎮  Innbundin, 227 bls.  ⎮  Verð: 7.990,- 

[Úr Vegferð um veröldina, bls. 115-118]

 

Sumarið 1983 dvöldum við Búbba með Döllu og Tinnu í sumarbústað BSRB í Munaðarnesi í Borgarfirði, rétt hjá Bifröst. Þá kom boð frá Nick [Dunlop framkvæmdastjóri þingmannasamtakanna]. Fyrsti fundurinn í höfn. Með Indiru Gandhi í Delhi. Fáeinir dagar til stefnu. Hann ferðbúinn ásamt John Silkin, hinum breska. Snemma morguns keyrði ég úr Borgarfirði, ók um sólbjartan Hvalfjörðinn; göngin ekki komin. Fagurt útsýni. Birtan mögnuð. Spegilsléttur sjórinn. Nýr leiðangur að hefjast. Fundur með frægum leiðtoga í Asíu. Indira iðulega í fréttum, dóttir Nehrus sem dáður var á háskólaárum mínum í Bretlandi. Forsætisráðherra dulúðugs lands og foringi Samtaka óháðra ríkja sem neituðu að fylgja stórveldunum.

Þegar ég svo lenti í Delhi var þar enn gömul flugstöð frá tímum Breta. Stoppað úti á brautinni og ryðguð rúta nálgaðist hægt. Vélardyrnar opnaðar. Vitin fylltust af stækri lykt, blöndu af kryddi, olíu og kúaskít. Beljurnar þá lausgangandi í öllum hverfum; taldar heilagar. Næstu árin sagði ég oft: Þótt bundið væri fyrir augun myndi ég þekkja Indland á lyktinni.

Við gistum á glæsilegu hóteli en sáum líka fátæktina á götunum. Betlarar á flestum hornum. Konur í tötrum með smábörn í fangi réttu út lófann. Áttu ekki fyrir mat. Andstæðurnar ótrúlegar. Gamlar hallir kölluðust á við kofaskrifli.

John Silkin hafði meðferðis handskrifað bréf til Indiru frá Michael Foot, róttækum leiðtoga Verkamannaflokksins og nánum vini Nehru-Gandhi fjölskyldunnar. Klókt! Yrði kannski tromp. Verkamannaflokkurinn hafði jú stutt sjálfstæðisbaráttuna. Ásamt bréfberanum héldum við Nick til fundarins. Skrifstofa forsætisráðherrans í tignarlegri byggingu, svonefndri South Block, sem reist var í valdatíð Breta. Gæslan fólst í einum hermanni með riffil. Nú eru bústaðir indverskra ráðherra víggirtir. Gatan þar sem Modi býr lokuð allri umferð. Fyrir fjörutíu árum var leiðin greið. Indira beið í látlausum sari. Heilsaði með fíngerðri hendi, kvenleg og kurteis. Bauð okkur brosandi að ganga til sætis og benti þremur embættismönnum að koma líka. Þeir reyndust sannarlega háttsettir:

P.C. Alexander var valdamesti embættismaður Indlands, síðar ríkisstjóri í Maharashtra, öðru fjölmennasta fylkinu. Hélt mér þá dýrlega veislu í höll sinni. Þakkaði þannig fyrir langvarandi vináttu.

Maharaja Krishna Rasgotra, heillandi heimsmaður af konungsættum, giftur einni fegurstu konu Indlands – og er þá mikið sagt! Stjórnaði um langa hríð öllum utanríkismálum í umboði Indiru og síðar Rajivs. Okkur varð strax vel til vina – tengslin enst í áratugi. Bauð mér síðar að skoða heimili sitt, húsið sem hann teiknaði sjálfur; í rómverskum stíl. Þar kom ég á ný haustið 2024. Þá var Rasgotra orðinn hundrað ára en ræddi samt lengi heimsmálin; í eina og hálfa klukkustund! Leiddi mig svo á skrifstofuna þar sem hann situr á hverjum degi. Sýndi myndaröð á veggjum. Þær fyrstu af honum ungum með Nehru. Síðan komu Elízabeth II Englandsdrottning, Margaret Thatcher og margir fleiri. Að síðustu Modi. Saga Indlands frá sjálfstæði til samtímans.

Chinmaya Gharekhan var hinn þriðji. Þá ungur og upprennandi. Næstu árin lykilmaður í samstarfinu við okkur Nick. Síðar sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum og sat árum saman í Öryggisráðinu. Skrifaði um þær glímur einstæða bók, The Horseshoe Table. Lýsti makkinu bak við tjöldin. Höfum ætíð ræktað vináttuna og ræddum saman í síma fyrir fáeinum mánuðum. Chinmaya þá eins og Rasgotra orðinn háaldraður.

Í upphafi fundarins með Indiru dró John Silkin upp bréfið frá Michael Foot. Það var persónulegt en birti líka meðmæli með erindi okkar. Hún las það brosandi. Spurði svo nánar um tillögurnar. John reyndi fyrst að taka orðið, talaði með valdsmannsbrag í stíl við þingræður í Westminster. Við Nick skynjuðum fljótt að annar taktur yrði hér vænlegri til árangurs, lýstum með hógværð þörfinni á að miðla málum, fá virta leiðtoga til að skerast í leikinn; draga úr kapphlaupinu um kjarnorkuvopnin. Indira væri í einstakri stöðu, foringi Samtaka óháðra ríkja og forsætisráðherra helsta ríkis Asíu. Nefndum líka önnur nöfn á lista okkar – leiðtoga frá Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku. Gæti orðið öflug sveit. Erindið að kanna vilja hennar. Myndum síðan hitta aðra leiðtoga.

Indira reyndist sammála okkur Nick. Nauðsynlegt að rjúfa sjálfhelduna í glímu stórveldanna, greiða þeim leiðina á nýjar brautir. Yrði þó vandaverk. Fara yrði varlega. Jákvæð, en vildi vita hvað hinum fyndist. Við gætum þá komið aftur til Indlands með fréttirnar. Við Nick brostum báðir; skynjuðum stóra stund. P.C. Alexander og Rasgotra stóðu upp. Höfðu fengið línuna. Sögðu þegar við gengum út: „Nú verðið þið gestir okkar!“ Fundur um framhaldið haldinn síðdegis. Þar fjölluðu þeir ítarlega um tillögurnar, ræddu næstu skref; mátu kosti og galla við aðra leiðtoga á listanum. Fólu svo Gharekhan að sinna sambandinu við okkur.

Viðtökur Indiru Gandhi skiptu miklu. Næstu mánuði gátum við vísað til þeirra á fundum í Aþenu, Stokkhólmi, Dar es Salaam og víðar. Aðrir leiðtogar virtu hana mikils enda þá talin valdamesta kona heims; sigraði Pakistan í stuttu stríði og stuðlaði þannig að stofnun Bangladess. Beitti um tíma stálhnefanum og tók sér alræðisvald á Indlandi. Tapaði þó næstu kosningum. Lýðræðið virkaði. Var komin aftur – fíngerða konan sem birtist okkur í South Block. En við sáum hana bara í þetta eina sinn. Tveimur misserum síðar var hún myrt árla morguns. Gangandi úr garðinum til mannfjöldans sem beið með margvísleg erindi. Lífverðir skutu hana við hliðið.

 

Síðast uppfært: 3. nóvember, 2026
Deila grein:
Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link