
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Sæunn Kjartansdóttir, f. 1956, er sjálfstætt starfandi sálgreinir með langa reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna, þar sem foreldrum ungra barna er veitt aðstoð við að mynda örugg tengsl við börn sín. Um foreldrahlutverkið hefur Sæunn ritað tvær vinsælar bækur: Árin sem enginn man og Fyrstu 1000 dagarnir. Fyrir bók sína um móður sína, Óstýriláta mamma mín og ég, hlaut Sæunn Storytel-verðlaunin fyrir óskáldað efni.
Mál og menning 2026 ⎮ Innbundin, 278 bls. ⎮ Verð: 7.990,- ⎮ Rafbók: 4.290,-
[Margbrotna systir mín, bls 19-27]
Ábyrgð og skömm
Alvara lífsins skall á Margréti í fyrsta sinn þegar hún fór í tímakennslu sem ætlað var að undirbúa börn fyrir barnaskóla með því að kenna þeim stafina. Margréti gekk ágætlega að þekkja stafina en öðru máli gegndi með að raða þeim saman. Hún kunni til dæmis stafina í nafninu sínu en átti í mestu erfiðleikum með að muna röðina á þeim. Það sama var að segja um tölustafina. Sex og níu litu alveg eins út, stundum var annar á hvolfi og stundum hinn, þetta var mjög ruglingslegt. Eftir tímakennsluna byrjaði hún í Laugarnesskóla og þar reyndi hún að láta sem minnst fyrir sér fara. Pabbi og mamma botnuðu ekkert í að hún gæti ekki lært að lesa eins og önnur börn, þau vissu að Margrét þeirra var ekki löt eða kærulaus og þess vegna skömmuðu þau hana aldrei.

Foreldrar okkar voru báðir bókelskir. Pabbi keypti nýjustu bækurnar í útlöndum og þau lásu gjarnan upphátt fyrir hvort annað, en ef pabbi hafði of mikið að gera las mamma bækurnar og sagði honum frá innihaldinu. Björg las líka mikið en allur þessi lestur á heimilinu varð ekki til þess að draga úr minnimáttarkennd Margrétar. Henni fór fljótt að leiðast í skólanum og leiðinn þróaðist yfir í skömm sem tók sér bólfestu í huga hennar, enda stóð hún í þeirri trú að það væru bara tossar og heimsk börn sem ekki gætu lesið. Smám saman vandist þetta ástand og pabbi og mamma sögðu við hana: „Vertu ekki leið, elsku Margrét, við vitum að þú gerir eins vel og þú getur.“ Þessi orð áttu að vera huggandi en fyrir Margréti hljómuðu þau eins og þau væru búin að sætta sig við að hún væri of heimsk til að geta gert betur.
Um fertugt hlustaði Margrét á viðtal við konu sem lýsti ferlinu sem lesblind dóttir hennar hafði gengið í gegnum og þá fyrst áttaði hún sig á að það ástand ætti við um hana. Talið er að heili sumra vinni betur í framleiðslu (skrifum) en úrvinnslu (lestri), en skrifblinda og lesblinda eru aðskilin fyrirbæri sem fylgjast ekki alltaf að. Margrét hefur alltaf getað skrifað rétt. Hún lærði stafsetningarreglurnar og átti auðvelt með að lesa algeng íslensk orð, því hún hafði lært þau utanbókar, en þegar hún rakst á ný og framandi orð þurfti hún að stauta sig í gegn. Trúlega er hún talnablind því að oft víxlar hún tölustöfum. Það var samt ekki fyrr en árið 2019, þegar Margrét var 71 árs, að hún fór í greiningu og fékk lesblinduna staðfesta. Þá var henni sagt að hún væri með lestrarkunnáttu á við níu ára barn en greind langt yfir meðallagi.
Margrét var ekki há í loftinu þegar hana fór að langa í barn. Eins og aðrar stelpur byrjaði hún snemma að passa börn en auk þess langaði hana í fleiri systkini. Hún bað mömmu um að eignast handa sér barn og átta ára gömul hélt hún að ósk sín hefði ræst þegar ég fæddist. Því urðu vonbrigðin mikil þegar ég var sett í barnarúm í hjónaherberginu, við hlið mömmu, en ekki inni hjá henni. Engu að síður varð hún eins og lítil mamma gagnvart mér, og síðar Ástu, og ég hef frá fyrstu tíð verið ákaflega hænd að stóru systur minni.
Þegar Ásta fæddist, þremur árum síðar, var Margrét búin að átta sig á að hún þyrfti sjálf að eignast sín börn en þegar þar að kæmi yrði gott að eiga almennilegan barnavagn. Ásta svaf í gömlum garmi á svölunum sem var ekki hægt að keyra um á götunum og Margrét var miður sín yfir lágkúrunni. Hún þrábað pabba um að kaupa Silver Cross-barnavagn fyrir Ástu sem hún sjálf myndi svo síðar nota. Til að koma fyrir hann vitinu ræddi hún um verðbólgu, sem var orð sem hún hafði nýlega heyrt, hann hlyti að átta sig á hve dýr almennilegur vagn yrði þegar hún eignaðist barn. Pabbi sat við sinn keip en þarna var annað persónuleikaeinkenni Margrétar orðið fullmótað: Óbifanlegar skoðanir á því hvaða hlutir væru smart og algjör lífsnauðsyn þess að eignast þá.

Þetta sérkenni hennar var reyndar fyrir löngu komið í ljós. Á heimilinu var til haganlega ofin karfa sem mamma notaði þegar hún fór í mjólkurbúðina. Margréti þótti hún púkaleg. Það nýjasta voru innkaupanet úr næloni. Þegar ég fæddist heimsótti hún mömmu á fæðingardeildina og færði henni grænt innkaupanet sem hún hafði keypt sjálf. Hún skellti því ofan á sængina hennar og sagði hróðug: „Og það kostaði bara tíkall!“
Nokkrum árum síðar, þegar Margrét var þrettán ára, fannst henni ekkert jafn flott og að spígspora um bæinn með regnhlíf. Um jólin var því aðeins einn hlutur á óskalistanum en foreldrar okkar gáfu honum lítinn gaum. Á aðfangadag sá Margrét engan pakka til sín undir trénu frá pabba og mömmu sem olli henni miklum kvíða. Um kvöldið þegar við vorum langt komin með að opna gjafirnar hvarf pabbi og kom stuttu síðar með tveggja metra ílangan pakka sem hann afhenti Margréti. Þá fyrst varð hún svekkt fyrir alvöru; foreldrar okkar ætluðu greinilega að koma henni á skíði. Pabbi hafði á sínum yngri árum verið mikill skíðamaður en þeim áhuga deildi Margrét aldeilis ekki með honum. Súr á svipinn reif hún pappírinn utan af ferlíkinu og þá kom í ljós glansandi vínrauð regnhlíf sem pabbi hafði dulbúið af alúð. Fyrsta vinna Margrétar var vitaskuld barnfóstrustarf en tíu og ellefu ára gömul fór hún til Baldurs Bjarnasonar móðurbróður okkar og fjölskyldu hans, sem bjó á Eiðum, til að passa Ásdísi Rósu dóttur hans og jafnöldru mína. Ári síðar var Margrét send að Hólum í Hjaltadal þar sem Gunnar Bjarnason bróðir mömmu hafði nýtekið við skólastjórastarfi bændaskólans. Þetta var fyrsta sumarið hans þar, konan hans var ekki komin norður og Margrét átti að hjálpa honum með ýmis „létt hússtörf“ á meðan hann undirbjó skólahaldið fyrir komandi vetur. Fyrir utan léttu hússtörfin vann hún á símstöðinni og sá að auki um bensínafgreiðslu staðarins.
Árið 1961 var sveitasíminn enn í fullu gildi og gat hver sem er hlustað á símtöl sveitunga sinna sem var vinsælt um allt land. Símstöðin var opin tvo tíma fyrir hádegi og tvo tíma eftir hádegi og hlutverk Margrétar fólst í því að taka við símtalsbeiðnum fólks í sveitinni, hringja í Landsímann til að panta símanúmer fyrir sunnan og tengja svo númerið með snúru í rétta innstungu. Þá setti hún í gang klukku sem taldi mínúturnar sem talað var. Á þriggja mínútna fresti tilkynnti hún símnotendum að komið væri „viðtalsbil“ sem var mælieining sem hún taldi og færði inn í bókhaldsbók svo hægt væri að rukka fyrir símtalið. Í bensínafgreiðslunni þurfti Margrét að pumpa bensíninu á bílana með stórri skífu upp úr niðurgröfnum tanki, sem var ekki létt verk fyrir tólf ára stúlku. Síðan tók hún við greiðslu fyrir bensínið og setti peningana í vindlakassa sem var geymdur í skúr við bensíndæluna.

Eftirminnilegasta atvikið á Hólum átti sér stað þegar Gunnar færði Margréti pensil og dollu með grænni málningu, benti á stórt og myndarlegt lerkitré og sagði henni að mála í sárin þar sem greinar höfðu verið höggnar af. Margrét misskildi verkskipunina gjörsamlega og tók til við að rífa börkinn af trénu sem hún síðan málaði allt grænt. Gunnar frændi var tilfinningaríkur maður. Þegar hann kom nokkrum klukkustundum síðar og sá dagsverk frænku sinnar settist hann á stein og grét. Hún væri búin að eyðileggja tréð og ekki væri annað hægt en að höggva það. Um haustið heimsótti hann mömmu og sagði að sumarið hefði verið hræðilegt. Margrét hefði ekki kunnað neitt til verka, það hefði verið taprekstur á símanum og enn meira tap á bensínsölunni. Gunnar minntist ekkert á tréð við mömmu, það stóð enn þegar Margrét fór heim, en hálfri öld síðar, þegar hún heimsótti Hóla með Þóreyju vinkonu sinni, taldi hún sig greina skarð í trjálundinum. Fimmtíu ára blygðunartilfinning lét sig ekki muna um að fullkomna minninguna.
Hápunktur sumarsins var heimsókn pabba sem kom með okkur Björgu til Hóla en mamma varð eftir heima með Ástu. Margrét varð þrettán ára í vistinni og pabbi færði henni afmælisgjöf sem gladdi hana meira en nokkuð annað hefði getað gert á þessum tíma: Brjóstahaldara. Hún var búin að ræða þessa löngun sína við pabba í nokkra mánuði því hún vissi fátt flottara en bak ungra kvenna þar sem mótaði fyrir hlýrum og streng. Sjálf var hún alveg brjóstalaus en það skipti engu máli. Svo sterkt lifði hún sig inn í þessa dásamlegu ímynd kvenleikans að hún svaf í brjóstahaldaranum langt fram eftir vetri.
Þetta sumar sá hún kvenlega fegurð holdi klædda þegar fallegasta kona sem hún hafði augum litið kom ríðandi að Hólum. Guðbjörg Ragnarsdóttir var eins og kvikmyndastjarna úr leikarablöðum og á Hóla mætti hún til að heimsækja son sinn sem var þar í kaupavinnu. Auk fegurðarinnar bar Guðbjörg með sér undursamlega angan sem varð eftir hvar sem hún fór, jafnvel snjáða viskustykkið sem hún handfjatlaði dró í sig ilm sem entist Margréti út sumarið. Margrét var reyndar ekki sú eina sem hreifst af Guðbjörgu því að Gunnar kolféll fyrir fegurðardísinni, skildi við eiginkonuna og giftist henni.
Ári síðar var komið að fermingu og þá var aðalkvíðaefni Margrétar að þurfa að klæðast ullarkápu með loðkanti, sem var það sem þrettán ára stelpum stóð til boða við fermingu. Margréti fannst þessar kápur bæði ljótar og kerlingalegar. Hana langaði í rúskinnsjakka. Og rúskinnsjakka fékk hún. Pabbi keypti handa henni fallegasta jakka sem hún hafði nokkru sinni séð, brúnan úr hnausþykku, mjúku leðri sem sneri röngunni út og lyktaði unaðslega.

Eftir andlát pabba fannst annar leðurjakki í ferðatösku í kjallaranum. Sá var ekki eins flottur og fermingarjakkinn en mamma sagði að pabbi hefði verið búinn að kaupa jakkann í ferðatöskunni þegar hann fann flotta jakkann. Hann hefði þá ákveðið að geyma fyrri jakkann þangað til Björg yxi upp í hann, ekki vegna þess að hann vildi ekki gefa henni eins fínan jakka, heldur vissi hann að Björg kveldist ekki af sömu þráhyggju og Margrét.
Pabbi var þá kominn með nokkra reynslu af stælum elstu dóttur sinnar og mundi vel að þegar hún var tólf ára hafði hann keypt handa henni rauða úlpu með hvítum loðkraga sem þótti mjög fín. Margréti fannst þetta barnaleg og ljót úlpa og neitaði að fara í hana. Það var mjög ólíkt henni að fara gegn vilja foreldra okkar en í svo ljóta úlpu gat hún ekki farið. Eftir miklar samræður á milli mömmu og pabba varð niðurstaðan sú að pabbi fór með Margréti niður í Rímu, sem var tískuvöruverslun kvenna við Hlemm, og keypti handa henni flíkina sem hana langaði í. Það reyndist vera hálfgerð úlpukápa, blá að lit, með snúru þrædda í gegnum mittið og faldinn sem var aðeins síðari að aftan. Þar var hnútur bundinn á snúruna sem hékk niður á kálfana. Margrét var í skýjunum þegar hún gekk út í nýju úlpunni sem var allt of stór.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.