Sagan á bak við umsögnina um Græna gímaldið sem ekki mátti birta

Lestími: 12 mínútur

Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi, sagði í umsögn skipulagsfulltrúa um Græna gímaldið, sem fór út fyrir mistök og var svo dregin til baka. Margir tengdu en orðin vöktu litla lukku innan borgarinnar. Arkitektinn sem skrifaði þau fékk að heyra að hún væri að láta „danskan arkitektúr hafa of allt of mikil áhrif“ á sig.

Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi. Löggjöfin spyr hvorki um fagurfræði né samhengi. Það er því sorgleg staðreynd að þeir sem fara með völd, fjármagn og fyrirferðarmikinn rekstur skuli ekki sýna frekari metnað í uppbyggingu á miðsvæðum höfuðborgarsvæðisins. Fagurfræði er ekki smekkur, fagurfræði er samhengi og þessa byggingu skortir slíkt.

Þegar Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt skrifaði þessi orð, sem innlegg í umsögn um Græna gímaldið, hafði starf hennar sem deildarstjóri deiliskipulagsáætlana hjá skipulagsfulltrúa Reykjavíkur verið lagt niður og henni ásamt tveimur öðrum verið sagt upp störfum í skipulagsbreytingum. Hún segir uppsögnina hjá borginni hafa verið áfall en að hún standi við þessi orð sem hún lét falla og fóru út með umsögn um Græna gímaldið. Hún og fleira fagfólk innan borgarinnar hafi af veikum mætti reynt að vara við því að byggingin væri úr takti við nálæga byggð og yrði ekki gott verkefni fyrir borgina.

Í viðtali sem birt er í hlaðvarpi Gímaldsins er rætt við Borghildi um tilurð þessara orða og viðbrögð við þeim innan borgarkerfisins en einnig um Græna gímaldið og um þróun í skipulagsmálum. Viðtalið má hlusta á hér í spilaranum að neðan en þátturinn er aðgengilegur á hlaðvarpsveitum á hlaðvarpsrás sem heitir Gímaldið.

Í þættinum, sem Gímaldið gefur út, kemur meðal annars fram:

  • Umsögn með orðalaginu átti aldrei að fara í loftið og sú sem skrifaði þau hafði samþykkt að orðunum yrði sleppt
  • Í tölvupósti var sagt að arkitektinn væri „að láta danskan arkitektúr hafa allt of mikil áhrif“ á sig
  • Unnið er með byggingarheimildir eins og óveiddan kvóta
  • Hröð uppbygging samhliða eftirgjöf í byggingarreglugerð hefur dregið úr gæðum í nýbyggingum
  • Milliliðir milli framkvæmdaaðila og skipulagsyfirvalda hafa bæst við á undanförnum áratug
  • Gera þarf kröfu um að hönnun bygginga liggi fyrir fyrr í ferlinu
  • Hagar hefðu getað sýnt meiri metnað í uppbyggingu á byggingunni sem nefnd hefur verið Græna gímaldið
  • Innanhúss hjá borginni var Græna gímaldið í upphafi kynnt sem „höfuðstöðvar stórfyrirtækis“
Edda Ívarsdóttir borgarhönnuður hjá Plássi birti þessa mynd í erindi sínu á viðburði Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs þann 14. apríl sl. þar sem yfirskriftin var Tölum um hönnun og arkitektúr: Samtal um borgargæði með sérfræðingum og oddvitum í Reykjavík. Mynd birt með leyfi höfundar.

Umsögn skrifuð af lögfræðingi en Borghildur beðin að skrifa undir

Það var í maí í fyrra að Borghildur, þá staðgengill skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fékk senda umsögn sem lögfræðingur á umhverfis- og skipulagssviði hafði skrifað og óskað var eftir að hún kvittaði undir. Í tölvupósti frá lögfræðingnum, sem sendur var að morgni, var hún beðin að skrifa undir umsögnina „helst fyrir hádegi“ eins og það er orðað. Hún segist í viðtalinu ekki hafa viljað gera það nema fá að eiga síðasta orðið í umsögninni. Orðalagið, sem vísað er til að ofan, var hennar viðbót við umsögnina.

Henni var þá svarað með því að þessi orð myndu ekki fylgja með umsögninni. „Ég skil hvað býr innra með þér en í mínum huga getum við ekki haft niðurlagið þitt með í umsögninni. Málið er nú þegar nógu viðkvæmt. Ég skil vel skoðun þína á útliti byggingarinnar og ber virðingu fyrir þeirri skoðun en hún verður að fá að koma fram á öðrum vettvangi. Þú ert að láta danskan arkitektúr hafa allt of mikil áhrif á þig.“

Hún gerði ekki athugasemd við að umsögnin yrði látin fara út án orða hennar um ljótleika, fagurfræði og skort á samhengi Græna gímaldsins.

„Ég bara skildi alveg hvert hann var að fara með þetta en bað þá bara um leið að þá myndi hann skrifa undir umsögnina. Það var hins vegar ekki gert, það var áfram bara skipulagsfulltrúinn í Reykjavík sem skrifaði undir og það í raun og veru strangt til tekið var þá ég af því að ég stýrði þessum fundi. En síðan gerist það bara að vitlaus umsögn er vistuð undir málinu þannig að mín fór út. Það var hins vegar ekki af minni hendi.“

Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt starfar nú við skipulagsmál hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Starf hennar hjá Reykjavíkurborg var lagt niður, en hún segist standa við umsögn sína um Græna gímaldið þar sem hún sagði að leyfi til að gera ljótar byggingar sé mikið á Íslandi. Myndir/ Davíð Þór Guðlaugsson

Eins og fram hefur komið er innri endurskoðun Reykjavíkur nú með í vinnslu sérstaka stjórnsýsluúttekt vegna Græna gímaldsins í gangi. Samkvæmt upplýsingum frá borginni er niðurstöðu að vænta um miðjan maí.

Vegna mistakanna sem urðu til þess að umsögn Borghildar um samhengi og ljótleika fór í loftið, en ekki sú sem samþykkt hafði verið að birta, setti umboðsmaður Alþingis í gang frumvæðisathugun á því hvernig birtingum umsagna og fundargerða væri háttað hjá borginni. Samkvæmt upplýsingum frá umboðsmanni fékk Reykjavíkurborg frest til að skila frekari gögnum til 17. apríl, en óvíst er nákvæmlega hvenær niðurstaða þeirrar athugunar verður birt.

Ekki sammála því að orðalagið sé ómálefnalegt

Borgarstjóri sagði í viðtali í fyrra að umsögninni með orðalagi Borghildar hefði verið breytt þar sem sú fyrri hefði ekki þótt málefnaleg. En umsögnin var kláruð eins og hún kom frá lögfræðingnum, án innleggs Borghildar. Hún gerði sjálf enga athugasemd við að hennar umsögn yrði sleppt. Borgin hefur sagt að mannleg mistök hafi orðið til þess að umsögnin fór á vefinn. Skjalinu hafi því ekki verið breytt eins og fyrst var sagt, heldur hafi rangt skjal verið tengt við málið.

„Við höfum öll lent í því að vista vitlaust skjal og annað slíkt, en það sem þetta náttúrulega bara fer á vefinn og er gripið í fjölmiðlum, að þá náttúrulega verður þetta aðeins stærra heldur en tilefni var til. En í ljósi aðstæðna og í ljósi þess að búið var að leggja niður starf mitt og skipulagsfulltrúa líka og allar þessar breytingar voru gerðar, þá náttúrulega eru þetta bagaleg mistök svona í því samhengi. En ég hins vegar stend alveg við þetta sem ég skrifa. Og ég held að þetta gefi bara tilefni til þess að við séum vonandi að skoða fyrst og síðast ferla og tekjumódel sveitarfélaganna og við höldum ekki áfram að gera deiliskipulagsáætlanir í svona byggðu umhverfi án þess að vera með verkefni og hús á borðunum,“ segir Borghildur.

Hún er ekki sammála því að orðalag hennar hafi verið ómálefnalegt. „Ég er ekki sammála því. Ég tel í alvörunni að ég hafi reynt að kjarna þann konflikt sem þarna var í gangi gagnvart því að það var ekki verið að vinna að góðu verkefni fyrir borgina. Þessar höfuðstöðvar voru ekki að mínu mati nægilega metnaðarfullar eða nægilega úr garði gerðar eða sýndu þann metnað og þá hönnun sem þetta svæði á skilið og þeir nágrannar sem þarna búa,“ segir Borgildur í viðtalinu.

Varðandi ferlið hjá borginni, þegar við horfum til baka, hvað hefði verið hægt að gera að þínu mati öðruvísi?

„Það er alltaf geggjað að vera vitur eftir á. Það er vel hægt að læra af þessu dæmi og heimfæra það á marga aðra staði. Þetta er sala á lóð og það var ekki ljóst í byrjun hver þetta var. Við fengum bara mjög skýr skilaboð. Þarna yrðu höfuðstöðvar stórfyrirtækis og þetta þyrfti að ganga vel,“ segir Borghildur en hún segir það vera akkillesarhæl allra deiliskipulagsáætlana þegar að búið er að gera lóðir án þess að framkvæmd liggi fyrir.

Hún segir að fagfólk í skipulagsmálum hjá borginni standi oft frammi fyrir því að hafa litla möguleika til að gera athugasemdir, vegna þess að búið sé að gefa út heimildir sem miði við tiltekið magn, án þess að tekið sé tillit til gæða. „Við náttúrulega bara vorum allt of oft af veikum mætti að reyna gera hlutina eins vel og við getum og gátum. Vel vitandi að þarna var búið að gefa út heimildir og magn sem gerðu það að verkum að erfitt var að tryggja lágmarksgæði.“

Í viðtalinu talar hún um Græna gímaldið sem höfuðstöðvar Haga. Hún segir að innan umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur hafi alltaf verið talað um höfuðstöðvar stórfyrirtækis, sem á síðari stigum kom í ljós að voru Hagar. „Það er ákvörðun mjög stórrar keðju hér á Íslandi, sem er að hluta til í eigu lífeyrissjóða, að sýna ekki meiri metnað heldur en þetta. Það býr í þessu líka ákveðinn galli í tekjumódeli sveitarfélaganna sem á rætur að rekja í það að við erum að gera deiliskipulagsáætlanir og lóðir sem vöru án þess að vita hvað er að koma. …Þannig að ég vildi óska þess að Hagar hefðu bara sýnt metnað og bara gert þetta vel, fengið til sín flotta landslagshönnuði og arkitekta sem myndu bara leysa þetta mál þannig að þetta myndi sóma sér vel þarna. Ég syrgi það.“

Skemmur þurfa að vera til, en ættu að aðlagast með betri hönnun

Nú eru kosningar framundan, sveitarstjórnarkosningar, og flestir frambjóðendur vilja eflaust halda því fram að Græna gímaldrð muni ekki rísa á þeirra vakt eða sem sagt það muni ekki rísa fleiri svona byggingar. Eins og staðan er núna, eins og löggjöfin, reglugerðin og allt er núna, er hægt að lofa því?

„Nei, það er ekki hægt að lofa því og ég held að við þurfum líka að vera svolítið heiðarleg í því hvað höfuðstöðvar Haga geyma. Þarna er í raun og veru skemma sem er að keyra mat út til fólks. … Þetta er týpa af byggingu er mögulega að fara að rísa víðar. Það þurfa að vera skemmur, það þarf að vera til lager, það þurfa að vera mismunandi týpur af húsnæði. Blöndunin er að eiga sér stað ábyggilega með hraðari hætti heldur en við höfum náð í skottið á.

Þá reynir bara á að við séum að gera þetta betur. Að við náum einhvern veginn að sjá hag í því að að þessi hús geti alveg átt heima meðal okkar í einhverjum mæli og að við séum að leggja metnað í að þau aðlagist í raun og veru að borgarskalanum. Síðan séum við ekkert að gera eiginlegar heimildir fyrr en fyrir liggur hvaða hús eru að fara að koma. Það er alla vega að mínu viti eitthvað sem þarf að skoða gagnvart ferlum borgarinnar,“ segir Borghildur í viðtalinu.

Vandamálið á þéttingarreitum er ekki of fá bílastæði heldur of margar íbúðir

Hún segist telja að farið hafi verið of geyst í uppbyggingu og gert sé ráð fyrir of miklu magni bygginga á ýmsum reitum á höfuðborgarsvæðinu. „Ef við værum að gera þetta í dag, þá hugsa ég að á ákveðnum reitum væru færri íbúðir. Það skortir ekki bílastæði á þessa reiti. Það er alveg nóg af þeim. Það eru kannski bara aðeins of margar íbúðir á sumum af þessum reitum. Það er eiginlega frekar það sem ég held að við þyrftum að skoða.“

Hún bendir á að nú standi yfir innleiðingarfasi vegna breytinga á byggingarreglurerð og að meðal annars standi til að auka kröfur um birtustig íbúða.

„En ég held að þetta kosti stærra samtal. Ég held að almenningur og við bara öll séum að átta okkur á því að það þarf að herja á mun fyrr á eiginlega hönnun í ferlinu. Það er ekki nóg bara að gefa út rúmar heimildir og framkvæma síðan einhvern veginn seinna og hanna þetta og leysa þetta seinna. Það þarf að gerast mun fyrr,“ segir Borghildur.

Hægt er að hlusta á viðtalið í spilara hér inni í fréttinni og á öllum helstu hlaðvarpsveitum á hlaðvarpsstraumi Gímaldsins.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 20. apríl, 2026, 10:45

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link