Sjálf­stæð­is­menn í nafla­skoð­un: „Sum­­­ar­ið fór rosa­­lega illa með okk­­ur”

Lestími: 15 mínútur

Nýr for­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins tek­ur við flokki í til­vist­ar­kreppu eft­ir 16 ára valda­tíð Bjarna Bene­dikts­son­ar. Gímaldið tekur púlsinn á sálarlífi áhrifafólks í Sjálfstæðisflokknum og ræðir stöðu flokksins við prófessor í stjórnmálafræði.

Gudrun Hafsteins RUV:Ragnar Visage
  • Nýr for­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins tek­ur við flokki í til­vist­ar­kreppu eft­ir 16 ára valda­tíð Bjarna Bene­dikts­son­ar.
  • Gímaldið tekur púlsinn á sálarlífi áhrifafólks í Sjálfstæðisflokknum og ræðir stöðu flokksins við Eirík Bergmann prófessor í stjórnmálafræði.
  • Greinin er stytt útgáfa ítarlegrar stjórnmálagreiningar Gímaldsins.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hef­ur alltaf haft sér­stöðu um­fram aðra flokka á Ís­land­i, ver­ið stærst­ur og sterkast­ur. Nú er ekki hægt að lýsa stöðu flokksins öðruvísi en grafalvarlegri. Flokkurinn er margklofinn og fylgið hefur farið jafnt og þétt niður á við síðustu áratugi.

Trygg­lyndi Sjálf­stæð­is­fólks á und­an­haldi

En þrátt fyr­ir að Sjálf­stæð­is­menn standi fram­ar öðr­um í flokks­skipu­lagi og státi af öfl­ug­ustu gras­rót lands­ins, finn­ur flokks­fólk fyr­ir breytingu.

Áð­ur fyrr hafi til dæm­is ver­ið nán­ast óhugs­andi að fólk yf­ir­gæfi flokk­inn sinn til að fara í fram­boð fyr­ir ann­an flokk en þetta þyki varla til­töku­mál í dag. Þetta sé ekki sér­ís­lenskt fyr­ir­bæri held­ur megi sjá þetta bæði í Bret­land­i, á Norð­ur­lönd­um og víð­ar.

Askell Isafjordur 4728
Smá­báta­sjó­menn mynd­uðu í eina tíð öfl­ug­an hóp inn­an Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Marg­ir eru nú farn­ir yf­ir í Flokk fólks­ins. (Mynd/Á­skell)

Það sama eigi við um al­menna fé­laga flokks­ins. Sjálf­stæð­is­fólk hafi lengst af ver­ið trútt sín­um flokki í kjör­klef­an­um, en í dag kýs það eft­ir hags­mun­um sín­um á ann­an hátt en áð­ur og hiki ekki eins mik­ið við að svíkja lit ef því finnst per­sónu­leg­um hags­mun­um sín­um bet­ur borg­ið ann­ars­stað­ar.

Smá­báta­sjó­menn til dæm­is, studdu flest­ir sinn Sjálf­stæð­is­flokk, þrátt fyr­ir að vera alltaf óá­nægð­ir með stefnu flokks­ins í sjáv­ar­út­vegs­mál­u­m. Nú sé þessi hóp­ur nán­ast all­ur far­inn til Flokks fólks­ins. Þeim líki ekk­ert endi­lega við Ingu Sæland eða aðra sem standa með henni í brúnni en þeir kjósa hana samt og við­ur­kenna það fús­lega.

Einn við­mæl­andi lýsti því þannig að stjórn­mála­flokk­arn­ir væru orðn­ir eins og hillu­vara sem kjós­end­ur velja á milli hverju sinn­i, allt eft­ir því hver býð­ur best hverju sinn­i. Það geri að verk­um að fylg­ið fer á fleygi­ferð. Litl­ir flokk­ar geta stækk­að mjög mik­ið og tek­ið af öðr­um en dott­ið svo út af þingi í næstu kosn­ing­um.

„Flokk­arn­ir eru orðn­ir eins og hillu­vara­“

Þessi hillu­vöru­stjórn­mál gefi popúlist­um líka tæki­færi sem blöstu ekki eins við þeg­ar fólk hélt fast við sinn flokk. Þetta sjá­ist til dæm­is víða í Evr­ópu. Stór­ir meg­in­flokk­ar sem set­ið hafa lengi í rík­is­stjórn, búi ekki við þann lúx­us að geta gasprað ábyrgð­ar­laust út í loft­ið, líkt og fram­bjóð­end­ur sem hafa hvorki stað­ið sjálf­ir í brúnni né þurft að verja erf­ið­ar ákvarð­an­ir sem taka þurfi í rík­is­stjórn, seg­ir einn við­mæl­anda og nefn­ir Nig­el Fara­ge, í hin­um breska Reform flokki, sem far­ið hef­ur með him­in­skaut­um í könn­un­um og geng­ið með því nán­ast milli bols og höf­uðs á breska Íhalds­flokkn­um.

Flokk­ur­inn hafi misst ægi­valds­stöðu sína

Það hef­ur ver­ið lengi ver­ið sér­kenni ís­lenskra stjórn­mála hvað hægri væng­ur­inn hélst vel sam­an á með­an vinstr­ið var meira og minna tvístr­að í ára­tug­i. Ei­rík­ur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði þann klofning sem nú sé orðinn á hægri vængnum af sama meiði. Klofn­ing­ur­inn sem ein­kenndi vinstri hlið­ina sé kom­inn yf­ir til hægri, hann hafi bara ver­ið leng­ur á leið­inn­i.

„Þetta er auð­vit­að bara hug­mynda­straum­ur sem er all­stað­ar í Evr­ópu. Það hef­ur al­ger­lega klofn­að upp á milli frjáls­lyndra, kristi­legra hægri flokka ann­ars veg­ar og svona and­inn­flytj­enda þjóð­ern­is­sinn­aðra hægri flokka sem voru  í sömu kosn­inga­blokk­inni en eru núna á al­ger­lega önd­verð­um meið­i.“

Ei­rík­ur seg­ir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í raun­inni hafa ver­ið þrjá stjórn­mála­flokka. Inn­an hans hafi þrif­ist hóf­sam­ur kristi­leg­ur demókra­ta­flokk­ur, harð­ur íhalds­flokk­ur á bresk­an máta og til skamms tíma öfl­ug frjáls­hyggju­vídd. „Þetta eru þrír ólík­ir hug­mynda­straumar, en þeir héld­ust all­ir sam­an inn­an Sjálf­stæð­is­flokks­ins og það var alltaf verk­efni for­manns­ins að halda þess­um þrem­ur ólíku hóp­um sam­an­,“ seg­ir Ei­rík­ur og held­ur áfram:

„Núna er þetta bara gjör­breytt og flokk­ur­inn er ekki leng­ur þessi víð­fema kirkja hægra meg­in hryggj­ar og að sumu leyti nán­ast eins og hann sé tví­stig­andi milli ann­ars veg­ar hinna frjáls­lyndu afla í Við­reisn hægra meg­in við miðju og svo hinna íhalds­sam­ari afla í Mið­flokkn­um. Það er eins og hann viti ekki í hvorn fót­inn hann eigi að stíga í þess­um efn­um. Og það er þessi tog­streita sem ég held að skýri ansi marg­t.“

Eiríkur Bergmann, prófessor í Stjórnmálafræði (Mynd/Bára Huld Beck)
Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er orð­inn venju­leg­ur flokk­ur og hef­ur glat­að ægi­valdi sín­u. Mynd/Bára Huld Beck

Þá vek­ur Ei­rík­ur at­hygli á því að frjáls­hyggj­an virð­ist al­veg horf­in úr ís­lensk­um stjórn­mál­u­m. Ung­liða­hreyf­ing Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi í gegn­um tíð­ina hald­ið henni mjög á lofti en ef marka megi ný­af­stað­ið lands­þing Sam­bands ungra Sjálf­stæð­is­manna, ráði íhald­ið ríkj­um þar í dag.

„Hins veg­ar er frjáls­hyggjan al­ger­lega horf­in úr ís­lensk­um stjórn­mál­um og eng­inn sem held­ur þeim hluta á lofti leng­ur“

Ei­rík­ur seg­ir alls ekki óþekkt í lönd­un­um í kring­um okk­ur að flokk­ar hafi nán­ast átt svið­ið og aðr­ir flokk­ar í raun­inni ekki átt aðra val­kosti við stjórn­ar­mynd­un en að reyna sig við hann ein­an. „En núna hef­ur þessi breyt­ing orð­ið og ekki auð­velt fyr­ir Guð­rúnu að vinna með þá stöð­u.“

Það er ef til vill lýsandi fyrir stöðuna í íslenskum stjórnmálum og samdrátt í almennu flokksstarfi að Valhöll, höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins er komin á sölu. Frá því greinir mbl.is og hefur eftir formanninum að flokksstarfið sé gerbreytt frá því sem áður var og ekki sé lengur þörf fyrir svo stórt húsnæði.

Sakna fólks­ins í Við­reisn og hræð­ast Mið­flokk­inn

Gímald­ið ræddi við fólk í Sjálf­stæð­is­flokkn­um og bar þessa grein­ingu Ei­ríks und­ir það. Flest sem rætt var við taka und­ir með Ei­rík­i. Þessi tog­streita sé vissu­lega til stað­ar. Flokk­ur­inn hef­ur ekki enn gró­ið af því sári sem stofn­un Við­reisn­ar var. „Það var bara rosa­leg blóð­taka,“ varð ein­um við­mæl­anda að orð­i.

Það sé ekki að­eins miss­ir af því fylgi sem fór til Við­reisn­ar held­ur ekki síð­ur því for­ystu­fólki í Sjálf­stæð­is­flokkn­um sem yf­ir­gaf flokk­inn. Því þrátt fyr­ir „ranga skoð­un“ í Evr­ópu­mál­um hafi hóp­ur­inn sem hvarf á braut ver­ið mjög öfl­ugt fólk sem á hug­mynda­fræði­lega mikla sam­leið með Sjálf­stæð­is­flokkn­um.

Við klofn­ing­inn hafi líka sú breyt­ing orð­ið að framá­menn í at­vinnu­líf­inu voru ekki leng­ur all­ir í Sjálf­stæð­is­flokkn­um eins og áð­ur fyrr.

Alþingi 2025 Þórunn Sveinbjarnardóttir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokkur 4
Þing­menn Mið­flokks­ins þykja skýr­ari í mál­flutn­ingi í ýmsum um­deild­um mál­um. Gras­rót Sjálf­stæð­is­flokks­ins er ekki alltaf ánægð sína menn í sam­an­burð­in­um. (Mynd/Jón Að­al­steinn).

Þrátt fyr­ir að flokk­ur­inn sé enn í sár­um eft­ir stofn­un Við­reisn­ar segja við­mæl­end­ur Gímalds­ins að und­an­far­in ár hafi kjörn­ir full­trú­ar flokks­ins ver­ið mun upp­tekn­ari af Mið­flokkn­um. Gras­rót flokks­ins sé mun íhalds­sam­ari en kjós­end­ur hans og kjörn­ir full­trú­ar fái stöðugt að heyra að Mið­flokk­ur­inn tali miklu skýr­ar í um­deild­um mál­um eins og Bók­un 35.

Þetta setji pressu á kjörna full­trúa og valdi kvíða og jafn­vel ótta við hvaða út­spil Sig­mund­ur Dav­íð og fé­lag­ar hafi upp í erminni sem erfitt kunni að vera fyr­ir ábyrgt stjórn­mála­fólk að bregð­ast við.

Mál­þóf sum­ars­ins fór illa með ímynd flokks­ins

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nú í stjórn­ar­and­stöðu í fyrsta sinn síð­an vinstri stjórn Jó­hönnu Sig­urð­ar­dótt­ur og Stein­gríms J. Sigfússonar var við völd á árunum 2009 til 2013. Reynsla af því að sitja í stjórn­ar­and­stöðu er ekki mik­il í þing­liði flokks­ins en að­eins tveir þing­menn flokks­ins voru á þingi í tíð vinstri stjórn­ar­inn­ar.

Eðli máls­ins sam­kvæmt er allt öðru­vísi starf að vera í stjórn­ar­liði eða stjórn­ar­and­stöð­u. Helsta hlut­verk Sjálf­stæð­is­flokks­ins nú er hvorki að stjórna né setja lög held­ur að veita rík­is­stjórn­inni að­hald.

Ekki fer flokk­ur­inn vel af stað í því hlut­verki ef marka má skoð­ana­kann­an­ir en sam­kvæmt nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup mælist hann með 19,5 pró­senta fylgi og í könn­un Mask­ínu í þess­um mán­uði var fylgi flokks­ins að­eins 15,9 pró­sent.

„Sum­ar­ið fór rosa­lega illa með okk­ur,” sagði einn við­mæl­andi úr þing­liði flokks­ins og vís­ar til mál­þófs sem flokk­ur­inn stóð fyr­ir langt fram á sum­ar. Það hafi skað­að ímynd flokks­ins. Ef ekki hefði ver­ið fyr­ir það, hefði ný for­ysta feng­ið betri byr í segl­in við upp­haf þings í haust en nú sé róð­ur­inn held­ur þung­ur.

Hins veg­ar við­ur­kenna við­mæl­end­ur að það læð­ist að þeim nokk­ur létt­ir að fá smá frí frá því að vera í stjórn. Þetta hafi ver­ið erfitt lengi og fólk orð­ið þreytt á því að verja óvin­sæl mál og óvin­sæl­ar rík­is­stjórn­ir síð­ustu tólf ár.

Staða Guð­rún­ar þung

Við­mæl­end­ur Gímalds­ins telja stöðu Guð­rún­ar Haf­steins­dótt­ur al­mennt frek­ar þunga. Hún hafi ekki not­ið mik­ils per­sónu­fylg­is í for­manns­kjör­inu held­ur frem­ur not­ið stuðn­ings and­stæð­inga Ás­laug­ar Örn­u Sig­ur­jóns­dótt­ur, keppi­naut­ar síns. Það geti þrengt stöðu henn­ar að hún sé of háð Guð­laugi Þór Þórð­ar­syni þing­manni en það er á al­manna­vit­orði að hann sé leið­togi stórr­ar hreyf­ing­ar í flokkn­um í Reykja­vík. Próf­kjörs­bar­átt­an í borg­inni er oft­ar en ekki sú harð­asta í flokkn­um og þar öttu síð­ast kappi Guð­laug­ur Þór og fyrr­nefnd Ás­laug Arna.

Al­mennt er fólk þó reiðu­bú­ið að gefa Guð­rúnu tæki­færi til að spreyta sig. Manna­breyt­ing­ar sem hún hef­ur ráð­ist í mæta al­mennt skiln­ingi þótt ýms­ir lýsi pirr­ingi og for­mað­ur­inn sagð­ur hafa far­ið klaufa­lega að. Nokkur­ar óþreyju er hins veg­ar far­ið að gæta með­al flokks­manna, hún þyk­ir of tví­stíg­andi og fari hægt af stað í emb­ætti for­manns.

Guðrún á mikið undir Guðlaugi Þór

Sjálf­stæð­is­menn velkj­ast ekki í nein­um vafa um erf­iða stöðu flokks­ins. Þeir sem rætt var við voru ein­læg­ir og op­in­ská­ir og aug­ljós­lega hugsi yf­ir stöð­unni og leit­andi um bæði skýr­ing­ar og lausn­ir.

Einn seg­ir það muni taka mörg ár fyr­ir flokk­inn að rétta úr kútn­um og kyn­slóða­­skipti þurfi að verða með­al helsta áhrifa­fólks flokks­ins til að svo geti orð­ið. Flest­ir sem rætt var við virð­ast þó bera litla von í brjósti um að flokk­ur­inn muni end­ur­heimta sinn fyrri sess. Stjórn­mála­lands­lag­ið sé var­an­lega breytt auk þess sem við lif­um á víð­sjár­verð­um tím­um og stjórn­mál­in ekki eins stöðug í dag. Áð­ur fyrr hefðu menn get­að spáð fyr­ir um þró­un mála með þokka­legri ná­kvæmni en nú geti allt gerst og ófyr­ir­sjá­an­leg­ir at­burð­ir haft mun meiri áhrif á gengi stjórn­mála­flokka en áð­ur. Því sé ómögu­legt að segja hvern­ig flokkn­um muni farn­ast. Hann gæti til dæm­is horf­ið al­veg á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og breyst í lands­byggð­ar­flokk.

Mun lög­mál­ið um stétt með stétt rétta flokk­inn við?

Guð­rún hef­ur tal­að fyr­ir því að sam­eina fjöl­breytta flóru hægr­is­ins aft­ur und­ir kjör­orð­inu stétt með stétt. Ei­rík­ur lýs­ir hins veg­ar efa­semd­um um það mark­mið enda slík­ar breið­fylk­ing­ar lið­in tíð.

„Hug­mynd­ir um hina víð­feðmu kirkju, að stjórn­mála­flokk­ur­inn hafi breið­an faðm og þar séu marg­ar ólík­ar vist­ar­ver­ur þar sem fólk með ólík sjón­ar­mið nær sam­an um ákveð­in grund­vall­ar­gild­i, þetta er að mörgu leyti bara lið­in tíð í ís­lensk­um stjórn­mál­u­m, nán­ast hvar sem þú stíg­ur nið­ur í flóru stjórna­mála­flokk­anna og eru auð­vit­að bara ein­hvers­kon­ar tákn sam­tím­ans. Ekki bara á Ís­landi held­ur mun víð­ar.

Við hugs­um ekki leng­ur um stjórn­mála­flokka sem stórt mengi hug­mynda þar sem marg­ar radd­ir fá að hljóma í einu held­ur eru þeir orðn­ir miklu þrengri hug­mynda­leg­ur vett­vang­ur og miklu meiri krafa um eins­leitn­i. Þess vegna er flokka­kerf­ið að brotna upp­.“

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 08:07

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link