Þrír hægri meirihlutar mögulegir í Reykjavík samkvæmt kosningaspá Metils

Lestími: 3 mínútur

Metill spáir Sjálfstæðisflokknum 9 fulltrúum í Reykjavík og flokkurinn hefur val um tvo þriggja flokka meirihluta. Metill og Gallup spáðu best fyrir um úrslit síðustu alþingiskosninga.

Tölfræðivefurinn Metill birti kosningaspá sína fyrir borgarstjórnarkosningar við lokun kjörstaða. Í þingkosningum 2024 reyndust spár Metils og Gallup komast næst raunfylgi í kosningunum.

„Þetta er einfaldara tölfræðilíkan en var beitt á alþingiskosningarnar, aðlagað að aðstæðum borgarstjórnarkosninga. Í alþingiskosningum byggði líkanið líka á breytum eins og verðbólgu og öðrum efnahagsaðstæðum og hvernig þær hefðu áhrif á flokka í ríkisstjórn. Þetta líkan byggir þó eingöngu á fylgiskönnunum og samanburði þeirra við niðurstöður fyrri kosninga,“ segir Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson tölfræðingur og þáttastjórnandi Sirkabát.

Hann segir það mikilvægt að hafa í huga við alla spálíkanagerð að grundvallarforsenda í öllum spám er að framtíðin verði eins og fortíðin.

„Jafnvel þótt maður spái breytingum þá er alltaf forsenda um að breytingarnar verði svipaðar og fyrri breytingar. Því geta alltaf skyndilegar og ófyrirséðar breytingar haft áhrif á hvað kemur upp úr kjörkössum í raun og veru. Helst má nefna að einhverjum flokkum er spáð meira fylgi en kannanir hafa gefið til kynna. Slíkt gerist vegna þess að fyrri kosningar hafa skilað þeim flokkum meira fylgi en kannanir höfðu mælt skömmu fyrir kosningar. Svipað má segja um þá flokka sem líkanið spáir minna fylgi en kannanir gerðu ráð fyrir,“ segir hann ennfremur.

Kosningaspá Metils er þannig úr garði gerð að notandi vefsins getur smellt á flokka og prófað að raða saman tölfræðilega mögulegum meirihlutum.

Líkanið metur raunfylgi flokkanna út frá fylgiskönnunum og leiðréttir fyrir kerfisbundnum mun milli könnunaraðila — hver aðili hefur sinn hóp þátttakenda og eigin aðferðafræði, og því geta sumir flokkar mælst aðeins hærra eða lægra eftir fyrirtækjum. Til þess notast líkanið við kannanir og raunúrslit kosninganna 2018 og 2022. D’Hondt-aðferð breytir svo hverri fylgissviðsmynd í úthlutun á 23 borgarstjórnarsætum.

Niðurstaðan er ekki ein tala heldur líkindadreifing yfir mögulegar útkomur. 90% óvissubil þýðir að í 90 af 100 sviðsmyndum líkansins endar fylgið innan þess bils — fimm sinnum fyrir neðan og fimm sinnum fyrir ofan. Þegar punktur í þróunargrafinu er fyrir ofan línuna er fylgi flokks ofmetið í þeirri könnun miðað við matið okkar; fyrir neðan línuna er það vanmetið.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 16. maí, 2026, 22:37

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link