
Fiskur og fiskimið var eina umræðuefnið sem stóð upp úr í aðdraganda síðustu umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Hagsmunaaðilar í íslenskum sjávarútvegi tóku umræðuna yfir og stuðningsfólk aðildar að ESB gerði ekki annað en verjast áróðri úr þeirri átt. Baráttan fyrir aðild var öll háð í vörninni. Almenn lífskjör og tækifæri fólksins í landinu […]

Fiskur og fiskimið var eina umræðuefnið sem stóð upp úr í aðdraganda síðustu umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Hagsmunaaðilar í íslenskum sjávarútvegi tóku umræðuna yfir og stuðningsfólk aðildar að ESB gerði ekki annað en verjast áróðri úr þeirri átt. Baráttan fyrir aðild var öll háð í vörninni. Almenn lífskjör og tækifæri fólksins í landinu komust ekki á blað.
Það sama gerðist í aðdraganda Brexit í Bretlandi. Samtal um þá miklu hagsmuni sem í húfi voru fyrir fólkið, fyrirtækin og þjóðarbúið náði aldrei í gegn því öll orkan fór í að svara rætnum áróðri, beinum rangfærslum og hræðsluáróðri.
Nú leggjum við Íslendingar upp í aðra Evrópuumræðu. Það var vissulega fyrirsjáanlegt að fyrstu skrefin í henni yrðu, líkt og í Bretlandi, stígin með gífuryrðum og hræðsluáróðri. Þetta hefur auðvitað bæði þann tilgang og þau áhrif að við sem viljum ræða Evrópumál, töpum þræðinum og glórunni, hoppum á reiðivagninn og förum að tala um eitthvað allt annað en ætluðum. Í stað þess að ræða kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu erum við skyndilega í þeirri stöðu að þurfa að verja sjálfan EES samninginn. Það samstarf er okkur bæði svo mikilvægt og sjálfsagt að við ættum ekki að þurfa að eyða tíma í að ræða það.
Bræðibeita (e. rage bait) er orð ársins 2025 að mati orðabókar Oxford háskóla. Í tilkynningunni er hugtakið skilgreint sem efni eða ummæli sem er vísvitandi hannað til að vekja reiði eða hneykslan með því að vera pirrandi, ögrandi eða móðgandi, yfirleitt birt á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að vekja athygli, auka umferð og kalla fram viðbrögð.
Einnig kemur fram að bræðibeitur séu rísandi í því sem kalla mætti tilgerðarstjórnmál (e. performative politics). Í þeim sé notast við vísvitandi rangfærslur sem gjarnan séu byggðar á samsæriskenningum og sérstaklega ætlaðar til að vekja athygli og umtal.
Nú hefur fyrsti tónninn í þessari umferð Evrópuumræðunnar verið sleginn og máttur bræðibeitunnar sýnt sig. Með sakleysislegri athugasemd um mögulega endurskoðun aðildar að EES urðu allir brjálaðir, enda leikurinn til þess gerður.
Segja má að utanríkisráðherra hafi hrundið af stað hinni formlegu þjóðfélagsumræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu með tilkynningu um styrkveitingar á vef stjórnarráðsins fyrir nokkrum dögum:
„Í mínum huga er algjört lykilatriði að hér fari fram opin lýðræðisleg umræða um kosti og galla Evrópusambandsaðildar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, svo fólk geti tekið upplýsta ákvörðun byggða á staðreyndum og sannreyndum upplýsingum. Upphrópanir og hræðsluáróður sem ýta undir skautun eiga ekkert erindi í íslensku samfélagi.“ sagði utanríkisráðherra.
Við sama tækifæri greindi ráðherra frá því að tvö félög, Evrópuhreyfingin og Heimsýn, fengju hvort um sig tíu milljónir króna. „Með styrkveitingunni viljum við einmitt veita báðum hreyfingum bolmagn til þess að efla þessa mikilvægu lýðræðislegu umræðu,“ bætti ráðherra við.
„Upphrópanir og hræðsluáróður sem ýta undir skautun eiga ekkert erindi í íslensku samfélagi.“
Tveimur dögum síðar hófst svo umræðan. Ekki um kosti eða galla aðildar að ESB heldur hvort kominn væri tími til að Ísland segði sig úr okkar farsælasta alþjóðasamstarfi; EES samningnum. Fjöldi umræðuþráða spratt upp um alla Facebook og mörgum varð heitt í hamsi eins og búast má við þegar vel heppnuðum bræðibeitum er beitt.
Meðal þeirra sem tóku þátt var einmitt formaður Heimsýnar, sem utanríkisráðherra er nýbúinn að leggja inn á. Hann heldur því fram í athugasemd við þráð þingmannsins Sigmars Guðmundssonar að lítið myndi breytast ef EES hyrfi og ekkert sé eins ofmetið í íslenskri umræðu og áhrif EESsamningsins.
Þetta er upptaktur að því sem í vændum er nú. Síðast tóku hagsmunaöfl í sjávarútveginum yfir alla umræðu, en þar var þó um áþreifanlega hagsmuni þjóðarbúsins að ræða. Nú erum við á enn verri stað. Umræða um lífskjör og tækifæri gæti að þessu sinni þurft að víkja fyrir fullkominni ímyndunarveiki.
Eina leiðin til að innihaldsrík og gagnleg þjóðfélagsumræða geti farið fram um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu, er að við tökum okkur saman um að kæfa bræðibeitur og stöðva súrefnisflæði til þeirra sem beita hræðsluáróðri.
Fjölmiðlum er bæði rétt og skylt að leiðrétta rangfærslur popúlískra stjórnmálamanna, lobbíista og annarra sem hafa hagsmuni af því að afvegaleiða umræðuna. En við megum ekki láta viðbrögð við rangfærslum verða einu umræðuna sem við tökum um Evrópumálin.
Kæri lesandi Gímaldsins
Þessi grein er opin tímabundið, en efni Gímaldsins er almennt aðeins fyrir áskrifendur.
Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.
Vilt þú vera með?
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.