Útlendingastofnun hefur kallað til lögreglu í au pair-málum

Lestími: 10 mínútur

Útlendingastofnun hefur að jafnaði sent lögreglu tvisvar til þrisvar á ári á heimili au pair til að kanna aðstæður. Um átta af hverjum tíu sem fá dvalarleyfi á grundvelli vistráðningar eru ungar konur frá Filippseyjum. Útlendingastofnun tekur undir áhyggjur ASÍ af au pair kerfinu.

„Sú kerfislæga hætta á misnotkun sem leiðir af þessum aðstöðumun hefur lengi verið áhyggjuefni þeirra sem koma að þessum málum,“ segir Þórhildur Ósk Hagalín, upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar, um au pair-kerfið hér á landi, svokallaðar vistráðningar.

Þetta er í takt við áhyggjur ASÍ af misnotkun á kerfinu. Starfshópur á vegum dómsmálaráðuneytisins hefur lagt til að skoðað verði hvort afnema eigi dvalarleyfi vegna vistráðningar eða þrengja skilyrði þeirra verulega, það er dvalarleyfi sem einstaklingar frá ríkjum utan EES þurfa að sækja um til að geta komið til landsins sem au pair.

„Vistráðningarsamband er í eðli sínu ekki jafningjasamband,“ segir Þórhildur; „Annar aðilinn býr inni á heimili hins, veitir honum þjónustu, er ungur að árum, talar ekki tungumál landsins og á hér alla jafna ekkert bakland.“

Sjá einnig: Ungar konur notaðar sem ódýrt vinnuafl: Hætta á misneytingu í au pair-kerfinu

Þetta er í samræmi við það sem Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur hjá ASÍ, hefur bent á. „Við erum ekki að sjá nema toppinn á ísjakanum,“ sagði hún í samtali við Gímaldið nýverið, þar sem hún meðal annars greindi frá dæmum um að au pair væru fengnar til starfa utan heimilis, svo sem við þrif, eða jafnvel deilt milli fjölskyldna. Hún deildi skjáskotun úr lokuðum Facebookhópi íslenskra vistfjölskyldna þar sem ljóst var af umræðunni að fólk hafði aðrar hugmyndir um störf au pair en þess sem megi búast við af þeim. Saga telur tímabært að stjórnvöld skoði hvort kerfið eigi yfir höfuð rétt á sér.

Grunur um óviðunandi aðbúnað og jafnvel mansal

Útlendingastofnun hefur undanfarið sent að jafnaði tvær til þrjár beiðnir á ári til lögreglu um að hún fari á heimili vistráðins aðila og kanni aðstæður viðkomandi. Slíkar beiðnir eru ekki eingöngu byggðar á formlegum kvörtunum heldur geta þær einnig komið til vegna grunsemda sem vakna við meðferð umsókna.

Stundum berast ábendingar til stofnunarinnar um hugsanleg brot á vistráðningarsamningi. Í öðrum tilvikum vaknar grunur við afgreiðslu umsókna, þótt þær upplýsingar dugi ekki til að synja um dvalarleyfi. Í slíkum tilvikum er leitað til lögreglu til að kanna aðstæður nánar.

Ef grunur er um mansal sendir Útlendingastofnun formlega tilkynningu til lögreglu og óskar eftir að hún skoði málið sérstaklega, til dæmis með óboðaðri heimsókn á heimili. Þegar ábendingar snúa að aðbúnaði hins vistráðna er lögreglu falið að taka út aðstæður á heimilinu og meta hvort skilyrðum sé fullnægt.

„Aðstöðumunurinn eykst síðan óhjákvæmilega þegar hinn vistráðni kemur frá fátæku ríki og á mikið undir því að tolla í vistinni og fá góð meðmæli fyrir næstu vistráðningu“

Í framkvæmd bendir stofnunin þó á að slíkar ábendingar berist oft seint. Það er algengt að þær komi ekki fram fyrr en eftir að vist er lokið, til dæmis þegar viðkomandi hefur skipt um vistfjölskyldu eða er farinn af landi brott. Þá er mögulegt að aðstæður hafi þegar breyst og ekki lengur hægt að sannreyna það sem átti sér stað. Á sama tíma er biðtími eftir lögreglurannsóknum oft langur og í sumum tilvikum hefur því ekki náðst að kanna aðstæður á heimili innan gildistíma dvalarleyfis.

„Aðstöðumunurinn eykst síðan óhjákvæmilega þegar hinn vistráðni kemur frá fátæku ríki og á mikið undir því að tolla í vistinni og fá góð meðmæli fyrir næstu vistráðningu,“ segir Þórhildur. Saga hafði áður bent á að au pair-stúlkur séu í viðkvæmri stöðu og ólíklegar til að leita réttar síns á meðan þær búa inni á heimili fjölskyldunnar.

Langflestar koma frá Filippseyjum

Ríflega átta af hverjum tíu sem fá dvalarleyfi á grundvelli vistráðningar hér á landi eru ungar konur frá Filippseyjum. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Útlendingastofnun tók saman fyrir Gímaldið. Um er að ræða einstaklinga frá ríkjum utan EES, sem þurfa að sækja sérstaklega um slíkt leyfi til að geta dvalið hér sem au pair. „Langstærstur hluti þeirra sem fá útgefið dvalarleyfi á grundvelli vistráðningar hér á landi eru ungar konur frá Filippseyjum,“ segir Þórhildur. Mikið hefur verið rætt um hversu margar au pair hér á landi koma frá Filippseyjum en fjöldi þeirra er nú staðfestur í þessum gögnum.

Sífellt algengara er að þessar konur hafi áður verið í vistráðningu, starfað sem au pair, annars staðar í Evrópu eða fari í slíka vist að dvöl hér lokinni. Vistráðning verður þannig ekki endilega einstakt tímabil menningarskipta heldur hluti af lengra ferli þar sem einstaklingar flytjast milli landa í sambærilegum vistum.

Útlendingastofnun bendir einnig á að í sumum tilvikum eigi vistráðnar konur börn á framfæri í heimalandi sínu. Það þýðir að dvöl þeirra hér hefur bein áhrif á afkomu fjölskyldu annars staðar og getur skapað þrýsting á að halda vistinni þrátt fyrir erfiðar aðstæður. „Þetta vekur upp spurningar um hvort raunverulegur tilgangur dvalar þeirra hér á landi sé menningarskipti en í því sambandi þarf að hafa í huga að mánaðarleg lágmarksupphæð vasapeninga til vistráðinna einstaklinga á Íslandi er hærri en meðal mánaðarlaun á Filippseyjum,“ segir Þórhildur.

Hugsað sem menningarskipti

Hugmyndin að baki dvalarleyfi vegna vistráðningar er skýr. Hún felst í því að veita ungum erlendum einstaklingum tækifæri til að dvelja í landinu, kynnast menningu þess og læra tungumálið í skiptum fyrir barnapössun og létt heimilisstörf.

Au pair vist fylgir ekki atvinnuleyfi, og dvalarleyfi þeirra er skilgreint sem námsmannaleyfi. Þær eru ekki hluti af íslenskum vinnumarkaði í formlegum skilningi, eru ekki í stéttarfélagi og njóta ekki þeirrar verndar sem íslenskir kjarasamningar veita.

Au pair hefur ekki heimild til atvinnuþátttöku utan heimilis vistfjölskyldu, hvorki til launaðra né ólaunaðra starfa. Innan heimilisins er henni aðeins heimilt að sinna barnagæslu og léttum heimilisstörfum í að hámarki 30 klukkustundir á viku eða fimm klukkustundir á dag. Í staðinn sér vistfjölskyldan um fæði og uppihald, og greiðir vasapeninga, að lágmarki 15.000 krónur á viku.

„Enginn vafi ætti því að vera á því að það er ekki hugmyndin með dvalarleyfinu að hinn vistráðni komi til Íslands til að afla sér tekna með vinnu,“ segir Þórhildur. Þrátt fyrir þetta hafa komið fram dæmi sem benda til þess að framkvæmd kerfisins víki í sumum tilvikum frá þessum ramma.

Ísland stendur á krossgötum

Í nýlegri skýrslu starfshóps á vegum dómsmálaráðuneytisins, sem ber heitið Ísland í örum vexti: þróun í útgáfu dvalarleyfa og misræmi við önnur Norðurlönd, eru settar fram tillögur um breytingar á au pair-kerfinu hér á landi.

Í skýrslunni segir: „Íslensk framkvæmd stendur á krossgötum hvað varðar vistráðningar“ og að „skilyrði slíkra leyfa og eftirlit með vistráðningum hér á landi eru mun veikari en í löggjöf annarra norrænna ríkja“. Þar er jafnframt bent á að í málaflokknum sé að finna „víðtæk frávik og misræmi“ miðað við önnur Norðurlönd, sem geti gert viðkvæma hópa útsetta fyrir hagnýtingu og leitt til aukins innflæðis fólks frá ríkjum utan EES.

Starfshópurinn leggur fram tillögur til dómsmálaráðuneytisins þar sem lagt er til að „skoðað sé afnám eða veruleg takmörkun vistráðningarleyfis“.

Í skýrslunni er vísað til reynslu Noregs, þar sem sambærileg þróun varð. Þar var talið að bæði vistfjölskyldur og vistráðnir nýttu kerfið ekki lengur til menningarskipta heldur sem einhvers konar ráðningarsamband. Í umræðunni þar var jafnframt vísað til þess að upp hefðu komið tilvik refsiverðrar háttsemi þar sem vistráðnir hefðu verið misnotaðir. Á heildina litið var talið að margt benti til þess að fyrirkomulagið þjónaði ekki lengur tilgangi sínum.

Í kjölfarið var í Noregi ákveðið að fella niður heimildir til vistráðningar einstaklinga utan EES-svæðisins. Jafnframt var bent á að mæta mætti þörf fyrir aðstoð á heimilum með öðrum hætti, til dæmis með kaupum á þjónustu, og að markmið menningarskipta mætti ná með öðrum leiðum.

Látin gista í geymslu

Í fyrri umfjöllun Gímaldsins um stöðu au pair frá löndum utan EES hér á landi kom fram að árið 2022 felldi kærunefnd útlendingamála úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli ungrar konu frá Filippseyjum sem hafði starfað sem au pair hjá íslenskri fjölskyldu. Konan lýsti óviðunandi aðstæðum; hún hafði meðal annars verið látin gista í lítilli geymslu með bráðabirgðatjaldi í stað hurðar og vinnuframlagið var langt umfram það sem samningur gerði ráð fyrir. Þegar hún kvartaði voru henni gefnir úrslitakostir; að sætta sig við aðstæðurnar eða fara af heimilinu tafarlaust og endurgreiða allan kostnað. Hún fór, og Útlendingastofnun afturkallaði dvalarleyfi hennar. Kærunefndin sneri þeirri ákvörðun við og taldi hana ólögmæta. Í kjölfarið hóf dómsmálaráðuneytið skoðun á eftirlitsheimildum og árið 2023 var lögunum breytt. Nú er Útlendingastofnun heimilt að fela sérstökum aðilum að hafa eftirlit með vistráðningum, þar á meðal með óboðuðu eftirliti á heimilum. Saga sagðist hins vegar hafa efasemdir um hvort það dugi þar sem ekkert reglulegt eftirlit sé til staðar í raun.

Þá benti hún á að gestgjafafjölskyldan sé ekki skyldug til að greiða íslenskunámskeið, þrátt fyrir að kerfið sé formlega byggt á hugmyndinni um menningarskipti, og vasapeningarnir dugi heldur ekki til slíks. 

DV greindi frá því árið 2022 að dæmi væru um að au-pair stúlkur frá Filippseyjum sem koma hingað til lands á vistráðningarsamningi hafi greitt allt að 400 þúsund krónur til þriðja aðila fyrir að koma sér í samband við áhugsamar íslenskar fjölskyldur. Þessi þriðji aðili var ung kona frá Filippseyjum sem hafði upphaflega komið hingað til lands sem au pair en hafði síðan farið til annarra Norðurlanda. Upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar sagði þá í samtali við DV að þessar frásagnir væru komnar á borð stofnunarinnar og lögregla verði upplýst um málið. Gímaldið spurði Útlendingastofnun um afdrif þessa máls en þau svör fengust að þau hefðu ekki slíkar upplýsingar.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 21. mars, 2026, 10:06

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link