Viðtal: Útgerðarmenn með reynslu af ESB jákvæðari fyrir aðild

Lestími: 16 mínútur

Þótt forsvarsmenn útgerða landsins séu flestir fremur neikvæðir gagnvart aðild að ESB, eru undantekningar á því. Hjálmar Vilhjálmsson hefur sautján ára reynslu af rekstri útgerðar innan aðildarríkis ESB og segir reynslu sína af sambandinu góða. Hann hefur ekki áhyggjur af íslenskum sjávarútvegi innan ESB en segir að samninganefnd Ísland þurfi að halda vel á spöðunum verði ákveðið að hefja viðræður við ESB á ný.

Hjálmar Vilhjálmsson stýrir uppsjávarsviði hjá útgerðinni Brimi hf., og er einn tiltölulega fárra Íslendinga sem þekkja rekstur í sjávarútvegi innan ESB af eigin raun. Hjálmar rak útgerð í Eistlandi frá árinu 1998 til 2023 og var um tíma talsmaður hagsmunasamtaka útgerðarmanna gagnvart Evrópusambandinu. Í viðtali við Gímaldið rekur hann hvað aðild að Evrópusambandinu myndi þýða fyrir íslenskan sjávarútveg og hvers vegna honum finnst full ástæða til að láta reyna á aðildarviðræður.

Þegar farið er yfir kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu eru auðlindirnar efstar í hugum flestra ráðamanna, ekki síst sjávarauðlindin. Í áliti sínu lýsir meirihluti utanríkismálanefndar sjávarútvegsmálum sem stærsta hagsmunamáli Íslands í þessu ferli, enda nam hlutdeild sjávarútvegs um 40% af vöruútflutningi þjóðarinnar árið 2025.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Hjálmar í spilaranum hér fyrir ofan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

„Ég var miklu, miklu neikvæðari gagnvart Evrópusambandinu áður en ég kynntist því,“ segir Hjálmar. Nokkrum árum eftir að Eistland gekk inn hafi viðhorf hans tekið að breytast og hann farið að sjá ýmsa kosti við ESB. Hann furðar sig á óttanum sem felst í því að hafna samtalinu án þess að kanna fyrst hvernig samningum er hægt að ná.

„Ég var miklu, miklu neikvæðari gagnvart Evrópusambandinu áður en ég kynntist því“

„Mér finnst það bara eitthvað svo óábyrgt að hafna samningi sem enginn hefur séð,“ segir Hjálmar og bætir við: „Ég er bara svo forvitinn að ég hefði viljað sjá hvað kemur út úr þessu.“

Í viðtalinu ræðir Hjálmar meðal annars viðhorf útgerðarmanna til ESB-aðildar. Hann segir menn almennt mjög neikvæða en þó sé lítill hópur sem sé jákvæðari; þetta séu ekki endilega aðildarsinnar beinlínis en þeir sjái einhverja kosti. „Það sem sameinar þennan litla hluta Íslendinga, sem lítur ekki á Evrópusambandið sem dauða og djöful þegar kemur að sjávarútvegsmálum, er eitt atriði. Þeir hafa reynslu af því að vera í sjávarútvegsstarfsemi í Evrópusambandinu. Þeir sem hafa enga reynslu af ESB virðast hafa sterkustu skoðanirnar og sjá engin tækifæri.“

Hjálmar Vilhjálmsson segir að vanda þurfi samningagerðina við ESB, ssérstaklega þegar kemur að deilistofnum. Mynd/Eyrún Magnúsóttir

En er sjávarútvegurinn í hættu ef Ísland gengur inn? Hjálmar trúir því ekki. „Sjávarútvegurinn á Íslandi mun halda áfram að ganga vel, hvort sem það er utan eða innan sambandsins.“

Hjálmar hefur hins vegar skoðun á því hvernig haldið verður á viðræðunum, þar þurfi að vanda mjög til verka. Ísland þurfi að kortleggja hagsmuni sína vel, setja sér skýra forgangsröðun og beita klókindum í samningaviðræðunum. Þegar kemur að sjávarútveginum skipti miklu máli hvernig semst um deilistofnana.

Sjávarútvegsstefnur Íslands og ESB byggja á sama grunni

En hver er munurinn á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins og þeirri íslensku? Áður en Hjálmar ber stefnurnar saman bendir hann fyrst á að íslensk sjávarútvegsstefna sé í rauninni ekki til. „Vissulega erum við með hérna lög um fiskveiðar og sjávarútveginn og það eru öll gögn í því, lögskýringargögn og svona, þannig að þú getur alveg teiknað upp stefnuna. En við erum ekki með þessa formlegu stefnu sem menn hafa náð þverpólitískri sátt um og menn tala um að eigi að gilda í einhvern ákveðinn tíma sem nær yfir meira en eitt kjörtímabil,“ segir Hjálmar og bætir við:

„En ef við værum með slíka stefnu, þá væri hún nú ekki mikið frábrugðin evrópsku sjávarútvegsstefnunni.“ Hjálmar bendir á að stuttu eftir síðustu aðildarviðræður Íslands, eða árið 2013, hafi sjávarútvegsstefna ESB tekið miklum breytingum og hafi í kjölfarið færst nær þeirri stefnu sem er við lýði á Íslandi. Stefna ESB byggi á þremur meginstoðum: sjálfbærni og vísindamiðuðum veiðum, arðbærni og byggðasjónarmiðum.

„Þetta rímar nú mjög vel við hvernig við höfum hagað málum hérna heima,“ segir Hjálmar.

En þótt stefna ESB sé sameiginleg sé framkvæmdin milli aðildarríkjanna mjög misjöfn. Sum ríki nálgast hana á svipaðan hátt og Ísland, önnur með allt öðrum hætti. „Stefna er ekki lög, stefna er rammi um hvert þú ættir að fara,“ útskýrir Hjálmar.

Íslenski þorskstofninn öruggur

Hvað varðar burðarásinn í íslenskum sjávarútvegi, íslenska þorskstofninn, sem er staðbundinn stofn sem engin önnur þjóð hefur sögulegar veiðar úr, segir Hjálmar að meginregla ESB um hlutfallslegan stöðugleika þýði að Ísland hafi áfram einkayfirráð yfir veiðum úr honum. Engin önnur lönd hafi veiðireynslu.

Ef Ísland gengi í ESB án sérsamninga myndi Hafrannsóknastofnun halda áfram að veita ráðgjöf um veiðar á þorski, eins og nú er. Munurinn væri sá að ráðherra þyrfti að fara með kvótaákvörðunina til staðfestingar í ráðherraráð ESB.

„Endanleg ákvörðun yrði þá tekin í ráðherraráðinu þar sem Ísland hefði þá sæti sem aðildarríki og ef við myndum úthluta kvótum eins og við höfum gert síðastliðin 30 til 40 ár, þá er enginn að fara að breyta því. Af hverju ættu menn að breyta því hvað Ísland fær að veiða í eigin vatni?“ spyr Hjálmar. Hann nefnir þó möguleika á að ráðið myndi stíga inn ef um kerfisbundna ofveiði væri að ræða eða ef íslenski ráðherrann hygðist virða ráðleggingar Hafró að vettugi. Hann efast jafnvel um að ráðið myndi bregðast við slíku.

Meirihluti utanríkismálanefndar Alþingis leggur til að það verði gert að samningsmarkmiði að íslenska lögsagan verði skilgreind sem sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnarsvæði í aðildarsamningi og á því hafsvæði hafi erlend fiskiskip ekki heimild til að veiða úr staðbundnum stofnum. Nefndin viðurkennir að þetta sé reyndar þegar tryggt með meginreglu sambandsins um hlutfallslegan stöðugleika en með sérreglu fyrir Ísland verði hún tryggð í frumrétti ESB-réttar.

„Ef þú heldur að þú sért að ganga inn í samstarf svindlara og þeirra sem eru að fara að ræna þig, þá er náttúrulega best að sleppa því“

Þegar Hjálmar er spurður hvort slík sérlausn sé nauðsynleg segir hann að slík aukatrygging væri auðvitað góð en hann telur þó ótta við ásælni ESB-ríkja í íslenskar auðlindir óþarfan. Þótt fiskveiðikvótar á Íslandi séu mikil auðlind séu þeir ekki stærsta auðlind Evrópu í stóra samhengi hlutanna, enda eigi aðildarríkin margs konar auðlindir: nytjaskóga, olíu, málma og fleira.

„Það er engin stemning meðal ESB-ríkja almennt fyrir því að hrófla við eignarrétti ríkja á auðlindum sínum. Það er heldur engin stemning meðal annarra fiskveiðiþjóða Evrópusambandsins að hrófla við hlutfallslegum stöðugleika,“ segir hann. Breyting eins og sú að breyta eða afnema meginregluna um hlutfallslegan stöðugleika myndi skapa fordæmi. „Þetta væri svakaleg áhætta hjá Evrópusambandsríkjunum að ætla að opna þetta Pandórubox. Það hafa allir sína hagsmuni og það eru margir aðrir sem eru með náttúruauðlindir,“ segir hann og bætir við:

„Ef þú heldur að þú sért að ganga inn í samstarf svindlara og þeirra sem eru að fara að ræna þig, þá er náttúrulega best að sleppa því. En ef þú trúir á samstarfið almennt, þá eru engin pólitísk líkindi á að menn séu að fara að hrófla við þessu.“

Deilistofnar: tækifærin og hætturnar

Málið flækist hins vegar þegar kemur að deilistofnum sem Ísland veiðir. Um er að ræða fiskistofna, einkum makríl, norsk-íslenska síld og kolmunna, sem flakka milli hafsvæða og mörg ríki veiða. Til að koma í veg fyrir ofveiði þurfa ríkin að koma sér saman um veiðar úr þessum stofnum. Í dag er Ísland með 12,5% hlutdeild í makrílstofninum og hefur gert tvíhliða samninga við Noreg, Bretland og Færeyjar um innbyrðis skiptingu. ESB er hins vegar ekki aðili að þeim samningum. Ef Ísland gengi í sambandið yrðu þessir samningar í uppnámi að sögn Hjálmars.

Evrópusambandið er með tilkall til ákveðins hlutfalls úr þessum stofnum fyrir eigin flota og Íslendingar með hlutfall fyrir sinn flota. „Um þetta þarf að semja,“ segir Hjálmar. Evrópusambandið þurfi þá að samþykkja þá hlutdeild sem Ísland gerir tilkall til og bæta því þá við sína hlutdeild.

„Þá erum við komin með Evrópusambandið á bak við okkar kvótakröfu, svo að segja. En þetta er lykilatriði og er mjög mikilvægt, því að þetta yrði þá varanlegt.“

Hjálmar segir að í þessu felist bæði hættur og tækifæri. Þar sem Ísland hefur full yfirráð yfir fiskveiðilögsögunni gat það barist fyrir og tryggt sér hlutdeild þegar makríllinn gekk inn í íslenskt vatn, þrátt fyrir að hafa enga veiðireynslu haft í upphafi.

Í ítarlegri umsögn til utanríkismálanefndar taka Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi ekki beina afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslunnar og í niðurlagi umsagnar sinnar segja þau sérstaklega að umfjöllunin „feli ekki í sér afstöðu til aðildar að Evrópusambandinu.“

Samtökin gera kröfu um að áður en þjóðin greiði atkvæði, verði grundvallarhagsmunir Íslands kortlagðir og samningsmarkmið og ófrávíkjanlegar kröfur“ skilgreind.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdarstjori Samtaka Fyrirtækja í sjávarútvegi. Samtökin hafa ekki tekið opinbera afstöðu til aðildar að ESB. Mynd/RÚV/Ragnar Visage.

SFS halda því fram í umsögn sinni að ef Ísland hefði verið í ESB á þeim tíma hefði sambandið tekið ákvörðunina og hlutdeild Íslands líklega orðið afar takmörkuð. Hjálmar bendir hins vegar á að með ESB-aðild fái Ísland öflugan pólitískan slagkraft á bak við kröfur sínar á alþjóðavettvangi.

Í norsk-íslensku síldinni telur Hjálmar Ísland vera í sterkri stöðu þar sem mikið af stofninum sé á íslensku vatni. Staðan sé veikari í kolmunna. „Við eigum í erfiðleikum með að veiða kolmunnakvóta Íslands án þess að fá að fara í vatn annarra ríkja.“

Varðandi makrílinn bendir Hjálmar á að ESB hafi gert samning við Bretland eftir Brexit þar sem aðgangur að sjó er gagnkvæmur. Makríllinn sé sérlega góður í kringum Bretland og seljist á hærra verði. „Við fengjum heimild til þess að veiða okkar makríl í því vatni,“ segir hann og kímir yfir því að Bretar verði líklega ekki hrifnir.

Meirihluti utanríkismálanefndar tekur undir með SFS um mikilvægi þess að Ísland hafi beina aðkomu að samningaferli um deilistofna og að sú hlutdeild sem samið hefur verið um haldist. SFS gera þetta að ófrávíkjanlegri kröfu.

Áhugi erlendra fjárfesta ofmetinn

Samkvæmt EES-samningnum nýtur Ísland undanþágu frá frjálsu flæði fjármagns sem takmarkar erlenda fjárfestingu í íslenskum sjávarútvegi. SFS halda því fram í umsögn sinni að við inngöngu í ESB þyrfti Ísland líklega að afnema þessar takmarkanir — og að það gæti skapað hættu á að eignarhald íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja færist til erlendra aðila og verðmætasköpun yrði til muna minni á Íslandi. Samtökin gera kröfu um að Ísland haldi sömu heimildum til að takmarka slíkar fjárfestingar.

Hjálmar er á öðrum nótum. Hann telur ólíklegt að Ísland fengi að halda þessari undanþágu en lítur ekki á það sem mikla ógn. „Almennt tel ég að erlend fjárfesting sé af hinu góða,“ segir hann og bendir á reynslu Íslendinga af fjárfestingum í sjávarútvegi í öðrum ESB-ríkjum, í Þýskalandi, Spáni, Frakklandi, Portúgal og Eystrasaltslöndunum.

Þá telur hann hæpið að erlendir fjárfestar hefðu mikinn hug á fjárfestingu í sjávarútvegi hér á landi. Mikil þekking sé til staðar í íslenskum sjávarútvegi en þegar fjárfestar koma inn í atvinnugreinar sé það yfirleitt vegna þess að þeir telji sig geta bætt um betur.

„Þegar fyrsta álfyrirtækið kom hingað, þá var enginn að bræða ál, það var enginn sem kunni það. Þeir voru með þekkinguna og fjármagnið.“ Þessi staða sé hins vegar ekki uppi í íslenskum sjávarútvegi.

Lokað kerfi útilokar kvótahopp

SFS lýsa töluverðum áhyggjum af svokölluðu kvótahoppi í umsögn sinni en með því er átt við þann möguleika að útlend skip skrái sig undir fána annars lands til að afla sér veiðireynslu og með því kvóta. Samtökin lýsa áhyggjum af þessu og gera kröfu um vernd gegn þessu, gangi Ísland til samninga um aðild.

Hjálmar greinir þetta vandamál á annan hátt og minnir á að útfærsla kerfa sé ólík eftir löndum. Á Íslandi séu aflaheimildir bundnar við skip en ekki öfugt. Það dugi ekki að koma með skip frá Spáni, skrá það undir íslenskan fána og hefja veiðar. „Þú færð engan kvóta, þú verður að kaupa hann.“ Hann segir að kvótahoppið sem SFS lýsi hafi gerst í löndum þar sem kerfið var opið að hluta, með opnum pottum. Þegar kerfin séu opin gildi regla ESB-réttar um jafnræði og bann við mismunun á grundvelli þjóðernis. Íslenska kvótakerfið sé hins vegar ekki opið, nema þegar kemur að strandveiðum.

„Þetta eru nú ekki allt Íslendingar sem stunda strandveiðar á Íslandi,“ bendir Hjálmar á. Þannig megi ef til vill segja að kvótahopp eigi sér stað á Íslandi nú þegar en í litlum mæli þó.

Hjálmar bendir einnig á að með breytingum á sjávarútvegsstefnu ESB árið 2013 hafi einhverjar skorður verið settar við kvótahoppi og ríkjum heimilað að setja skilyrði um efnahagsleg tengsl við landið.

Þunglamalegt Brussel eða hringlandaháttur Íslands

Ein algengasta gagnrýnin á ESB í íslenskri umræðu er hversu þunglamaleg stjórnsýslan er í Brussel og allt hreyfist á hraða snigilsins.

Hjálmar segir það ekki sína reynslu að Evrópusambandið bregðist alltaf seint við en þegar um sé að ræða stefnumótun gildi önnur lögmál. Það eigi að taka langan tíma að móta nýja stefnu. ESB leggi áherslu á samráð við hagsmunaaðila og skoðun mála frá öllum hliðum áður en stefna verði til.

Þessu tengt:

Þá lýsir Hjálmar jákvæðri reynslu af sérfræðingunum í Brussel. Hann segist upplifa mikla tortryggni hér heima gagnvart embættismönnunum í Brussel en hann sjálfur hafi góða reynslu af þeim.

„Heilt yfir þá upplifði ég embættismennina í Brussel sem vel menntaða, vel inni í málunum, mjög jákvæða og mjög viljuga til þess að aðstoða eins og hægt var, ef það væri bara samkvæmt reglunum; og þegar þú komst með mál sem tróðu ekki á hagsmunum einhverra annarra aðildarríkja þá hreyfðust hlutirnir og gátu meira að segja hreyfst bara mjög hratt.“

Hjálmar bendir á að íslenskir útgerðarmenn séu mjög þreyttir á hringlandahætti í kerfinu hér heima. Til lengri tíma geti vel verið að einhverjir sjái kosti í stöðugleikanum í ESB.

Íslendingar yrðu áhrifaþjóð í Brussel

Hjálmar er sérstaklega bjartsýnn á möguleika Íslands til að hafa áhrif á sviði sjávarútvegsmála, gangi Ísland í ESB.

Hann nefnir Eistland sem dæmi, lítið land sem hafi mikil áhrif á sviði stafrænna lausna. Eistland sé fremst allra Evrópuríkja á því sviði og í Brussel sé því treyst best á því sviði og tillögugerð þess sé því almennt vel tekið. Íslendingar séu meðal fremstu þjóða í sjávarútvegi og komi ábendingar á sviði sjávarútvegsmála frá Íslandi hafi það miklu meira vægi en ef þær kæmu frá Þjóðverjum.

Íslendingar þurfi hins vegar sjálfir að koma ár sinni vel fyrir borð bæði í aðildarviðræðum og þegar inn er komið, fari svo að Ísland gangi í ESB. Einn af kostum Íslendinga sé til dæmis hve hagsmunir okkar séu á fáum sviðum. Íslendingar hafi mikilvæga hagsmuni á þröngum sviðum, svo sem í orku og sjávarútvegi, og það gefi þeim tækifæri til að styðja önnur ríki í sínum málum og afla þannig stuðnings þegar kemur að stærstu hagsmunamálum Íslands.

Auðvitað hafi Ísland líka aðra mikilvæga hagsmuni en þeim deili Íslendingar með mörgum ríkjum, ólíkt stærstu sérhagsmunum Íslands. Íslendingar geti aflað sér stuðnings um þá með því að vera klókir í pólitíkinni.

Hjálmar stýrir uppsjávarsviði Brims hf. og gegnir einnig starfi aðstoðarmanns forstjóra þess. Hann er hins vegar algjörlega á eigin vegum í viðtalinu en ekki sem fulltrúi Brims eða forstjóra þess. Í viðtalinu lýsir hann sínum eigin viðhorfum og því sem hann sjálfur hefur orðið vísari, um sjávarútveg og Evrópusambandið í störfum sínum í greininni.

Hjálmar var nýverið í viðtali í hlaðvarpinu Veröld sem er á vegum hugveitunnar Evrópustrauma. Þann þátt má finna á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 10. júní, 2026, 12:58

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link