Vilborg Davíðsdóttir: Vetrarbókin

Vetrarbókin er fjölbreytt, skemmtileg og einstaklega fróðleg bók þar sem dimmasta árstíðin er í brennidepli. Allt frá landnámi hafa Íslendingar þurft að finna leiðir til að takast á við skammdegið og enn er það mörgum þung raun. En þó að veturinn sé langur og strangur, kaldur og dimmur, er hann líka kynngimagnaður; heiðnar vættir fara á stjá og fornar sögur lifna við.

Vilborg Davíðsdóttir rýnir hér í sagnaheim fyrri alda, þjóðtrú og þjóðhætti, í leit að því hvað kom formæðrum okkar og -feðrum, keltneskum og norrænum, að gagni í glímunni við langan og strangan íslenskan vetur. Um leið spinnur hún þræði til nútímans í ævintýraferð gegnum myrkrið.

Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Vilborg Davíðsdóttir hefur skrifað fjölda vinsælla skáldsagna sem gerast á fyrstu öldum Íslandsbyggðar og býr yfir viðamikilli þekkingu á lífsháttum landnemanna, keltneskra og norrænna. Hér leiðir hún lesendur á fund fortíðar og kannar sagnaheim fyrri alda í leit að því hvað kom formæðrum okkar og -feðrum að gagni í glímunni við íslenskan vetur. Við sögu koma goð og vættir, valkyrjur og völvur, álfar og afturgöngur, að ógleymdri sjálfri Grýlu og keltneskri systur hennar, Cailleach. Saman við frásögnina fléttar Vilborg þræði úr eigin lífi svo úr verður heillandi ferðalag í gegnum myrkrið, allt frá veturnóttum þar til dag fer loks að lengja á ný.

Mál og menning  2026 ⎮  Innbundin, 301 bls.  ⎮  Verð: 7.990,- ⎮  Rafbók: 4.290,-

Á ÞRÖSKULDINUM

Veturnætur fara í hönd undir lok október en svo kallast næturnar þrjár um árstíðaskiptin samkvæmt því forna misseristali sem tíðkað hefur verið á Íslandi frá upphafi byggðar á 9. öld. Eftir því skiptist árið í tvo helminga, þann kaldari og myrkari og þann hlýrri og bjartari. Þegar farið er úr einni árstíð yfir í aðra verður að fara að öllu með gát og ekkert má vera hendingu háð því mikið er í húfi fyrir fólk sem á allt sitt undir árferðinu, hvort sem er að sumri eða vetri, og tryggast að stíga hvert skref með æðri máttarvöld sér við hlið. Sumardagurinn fyrsti er þannig ætíð á fimmtudegi, vafalítið vegna þess að um aldir var sá vikudagur kenndur við Þór sem mestur átrúnaður var á hér á landi í heiðni eins og sjá má af örnefnum og því mikilvægastur daga; til að mynda var Alþingi á Þingvöllum alltaf sett á fimmtudegi, jafnt eftir sem fyrir trúskiptin um árið 1000.

Sumarið, sem hefst á bilinu 19. til 25. apríl, stendur í 26 sléttar vikur og lýkur því á miðvikudegi, deginum sem var helgaður Óðni þar til í byrjun 12. aldar þegar Jón Hólabiskup Ögmundsson flæmdi goðmögn heiðninnar á brott úr vikudagaheitunum. (Ætlunarverkið tókst raunar ekki að fullu því enn eigum við dagana kennda við sól og mána, sem hann vildi kalla drottins dag og annan dag.) Vetur heldur hins vegar ekki innreið sína fyrr en á laugardeginum, fyrsta vetrardegi sem fellur á bilinu 21. til 28. október. Næturnar þrjár á milli síðasta sumardags og dögunar fyrsta vetrardags tilheyra því hvorugu misserinu.

Hvers konar þröskuldar og mæri virka sem segull á yfirnáttúruna, þar sem við erum stödd á mótum tveggja staða eða svæða, hvort sem er í eiginlegri eða óeiginlegri merkingu. Þetta gildir jafnt um árstíðirnar, gang sólar og tungls á himinhvolfinu, mannsævina og mörk á jörðu eins og krossgötur og landamerki milli jarða, líka flæðarmálið þar sem haf og land mætast. Og jafnvel einnig þegar við virðumst dáin en erum þó á lífi: sofandi og svifin inn í heim draumanna. Á öllum þessum landamærum höfum við aðgang að hinum heiminum og hann að okkur sömuleiðis.

Veturnætur voru áramótin, sagði ég hér á undan. Það hugtak er að vísu hvergi notað í fornum sögum en við vitum að nóttin kemur á undan deginum, hefst um miðaftan eins og það hét í eina tíð, eða kl. 18, eins og merkja má af því að við tölum um miðnætti sex tímum síðar. Og skýrir hvers vegna kirkjuklukkur hringja inn helgi jólanætur kl. 18 síðdegis á aðfangadegi; við upphaf nýs sólarhrings. Myrkrið fer þannig á undan birtunni og þar með vetur á undan sumri.

Í heiðni, og raunar fram eftir kristnum öldum, voru veturnæturnar sérlega vinsælar til þess að drekka brúðkaup sagnahetjanna, tímamót í lífi fólks sem marka nýtt upphaf. Frá brúðkaupsdrykkju á þessum árstíma, á öndverðan vetur eins og það er einnig orðað, er sagt í allmörgum fornsögum og einnig í Íslendinga sögu Sturlu Þórðarsonar sagnaritara, lögsögumanns og skálds. Þrettán ára dóttir hans, mærin Ingibjörg, var gefin Halli, átján ára syni Gissurar jarls Þorvaldssonar, höfðingja Haukdæla, um veturnætur í október árið 1253 og fór brúðkaupið fram að Flugumýri í Skagafirði. Það átti að skapa sættir milli stríðandi fylkinga óaldarinnar sem kennd er við Sturlunga, vera upphaf betri tíma og gestir fylltu bæinn, drukku, átu og voru glaðir. En það fór því miður eins og það fór: tuttugu og fimm manneskjur voru brenndar inni og vígaferlin héldu áfram.

Svo vinsælar voru veturnætur til veisluhalda í heiðni að engin árstíðabundin boð eru nefnd eins oft í fornbókmenntunum nema jólaveislur. Þá er í byrjun vetrar oft efnt til leika þar sem ungir menn takast á með knött og knatttré. Af lýsingum sagnanna má ráða að tveir og tveir leika móti hvor öðrum og reynt að skipa jafnsterkum mönnum saman því iðulega kemur til áfloga þeirra á milli, stundum svo harkalegra að dauðsföll hljótast af. Nær ekkert annað kemur fram um hvernig gangur leiksins var utan að menn „reka knöttinn undan“ með trénu og reyna að koma honum í mark. Enda er tilgangur frásagnarinnar yfirleitt sá að sýna skapgerð söguhetjunnar; leikreglurnar voru almælt þekking sem ekki þurfti að hafa orð á.

Gutti að nafni Egill Skalla-Grímsson, þá á sjöunda vetri, drepur þannig sinn fyrsta mann í knattleik smásveina á Hvítárvöllum sem er haldinn í vetrarbyrjun. Drápið verður að vísu ekki í leiknum sjálfum heldur eftir að Egill hefur verið rekinn úr honum fyrir að hafa misst stjórn á skapi sínu og barið mótspilara sinn, fáum árum eldri, með knatttrénu. Hann fer þá og fær öxi hjá vini sínum, ungum manni, og kemur aftur á völlinn, hleypur að þeim sem hafði haft hann undir og rekur öxina í höfuð hans „svo að þegar stóð í heila“. Faðir hans lætur sér fátt um finnast en Bera, móðir Egils, segir að drengurinn sé víkingsefni sem sýnilega verði að fá herskip þegar hann hafi aldur til. Og reynist sannspá því með þessu fyrsta vígi hefst blóðugur æviferill Egils.

Eyrbyggja segir okkur frá þeim sið Breiðvíkinga að hafa knattleika „um veturnáttaskeið“ undir Öxlinni suður frá Knerri, þar sem síðan heita Leikskálavellir. Svo vinsælir voru leikarnir að ungir menn sóttu þangað um alla sveitina og vistuðust í hálfan mánuð í miklum leikskálum sem til þess voru ætlaðir. Meðal kappa sögunnar eru sumir svo sterkir að þeir þykja ekki „að leikum hæfir fyrir afls sakir nema þeir lékust við sjálfir“ – fá sem sé ekki að vera með af því að það vantar jafnsterkan andstæðing. Þeir sitja þá á stólum og horfa á hina, ekki ólíkt því sem tíðkast á fótboltamótum samtímans þar sem menn sitja á varamannabekknum og bíða eftir tækifæri til að láta ljós sitt skína.

Álíka leikur var og er enn iðkaður meðal Íra og Skota þar sem keppst er við að koma litlum en grjóthörðum bolta í mark með knatttré, kallaður hurling á Írlandi og shinty í Skotlandi. Tvær mestu goðsagnakempur Kelta ganga líkt og Egill okkar í gegnum manndómsvígslu sína í knattleik og hefja þar með hetjuævi sína. Í sagnabálki sem kenndur er við Ulster rennur æði á Cú Chulainn, fimm ára gamlan, í knattleik og hann leggur hundrað og fimmtíu eldri drengi að velli. Hann drepur síðan ógurlegan varðhund með því að troða knettinum ofan í kokið á honum með knatttrénu og verður fljótlega gildur stríðsmaður í varnarliði konungs Ulsters. Önnur hetja sem bæði Skotar og Írar eiga eldri og yngri þjóðsögur af, Fionn mac Cumhaill, hefur í æsku á sama hátt stóran hóp drengja undir í knattleik. Í átökum sem fylgja í kjölfarið kasta drengirnir allir í hann knatttrjám sínum en svo fer á endanum að hann drekkir níu þeirra.

Í bænum Kirkwall í Orkneyjum, Kirkjuvági á ritunartíma Orkneyinga sögu, er enn í dag leikinn í miðbænum afar sérstakur knattleikur sem kann að ná aftur til miðalda og þess tíma þegar eyjarnar voru undir Noregskonungi. Karlkyns bæjarbúar á aldrinum sextán ára til fertugs skiptast í tvö lið eftir búsetu, UptheGates úr syðri og efri hluta Kirkwall og DoontheGates sem búa norðan og neðan við 800 ára gamla dómkirkju heilags Magnúsar sem gnæfir yfir miðbænum. Allt að 350 manns sem taka þátt; enn fleiri fylgjast með. Barist er um að koma þungum, handsaumuðum leðurbolta í eigið mark en mörkin eru annars vegar húsgafl í syðri bænum og hins vegar bátahöfnin. Knatttré eru ekki notuð heldur ræður líkamlegt afl mestu um gang mála og engar reglur eru um hvernig boltanum er komið í markið né heldur hversu lengi leikurinn stendur; honum lýkur einfaldlega þegar annar hópurinn nær að skora mark, jafnvel þótt það taki fimm klukkutíma. Knattleikurinn fór áður fyrr aðeins fram á nýársdag en svo bættist jóladagur við, jaðartími rétt eins og veturnæturnar. Og úrslitin hafa því auðvitað forspárgildi fyrir komandi ár. Lendi boltinn í sjónum verður sjávarafli góður en ef hann kemst í mark í efri bænum má búast við góðu ári fyrir bændur; hvernig sem fer vinnur Kirkjuvágur.

Í Gísla sögu Súrssonar segir frá því að fjölmennar veturnáttaveislur eru haldnar samtímis á tveimur bæjum í Haukadal í Dýrafirði og það þótt svo skammt væri á milli að þeir deildu bæði görðum og bæjarlæk. Á Sæbóli, bæ Þorgríms Þorsteinssonar þorskabíts og Þórdísar Súrsdóttur, er Freyr blótaður af hundrað og tuttugu manns. Gísli á Hóli, bróðir Þórdísar, er hættur að blóta af ótilgreindum ástæðum, en þau Auður Vésteinsdóttir, kona hans, halda samt veglega veislu fyrir sextíu manns. Logndrífa fellur á jörðu um kvöldið, menn drekka stíft og eru glaðir, sofna síðan og vita hvorki í þennan heim né annan. Þá sömu nótt, á þessum háskalegu mærum miðja vegu milli sumars og vetrar, fer Gísli út í rökkrið, gengur eftir læknum sem markar skil jarðanna tveggja til að dylja spor sín, og heim að Sæbóli. Þar inni í skálanum slekkur hann tvær af þremur ljóstýrum sem loga á lömpum og leggur síðan Þorgrím mág sinn, liggjandi í rekkju, í gegn með spjótinu Grásíðu svo að það stendur í beðnum. Vígið er hefnd fyrir máginn Véstein, bróður Auðar, drepinn á sama máta í veturnáttaboði á Hóli ári fyrr. Kannski má segja að Gísli hafi þar fært Frey veglega blótfórn þrátt fyrir allt. Því má svo bæta við að næturnar tvær áður en Vésteinn er drepinn birtust Gísla feigðarboðar í svefni; hann dreymdi höggorm og varg sem bitu Véstein til dauðs.

Oftast er tilefni veturnáttaboðanna þó brúðkaup eða festarmál. Þessi árstími var auðvitað tilvalinn fyrir mannfagnaði því búrið var þá sneisafullt af matföngum eftir sláturtíðina og vissulega hentugt að sameina blót og gestaboð í eina veislu og gera sér rækilega glaðan dag áður en vetrarveður hindruðu að fólk gæti lagt land undir fót. Það samræmist auk þess boði Óðins, sem Snorri Sturluson (1179–1241) segir í Ynglinga sögu að hafi sett í lög að blóta skyldi „í móti vetri til árs en að miðjum vetri blóta til gróðrar, hið þriðja að sumri. Það var sigurblót.“ Svo þessu sé snúið á nútímamál þá átti að blóta í vetrarbyrjun til að tryggja gott árferði, miðsvetrar til að gróður kæmi vel undan vetri og að sumri til sigurs í bardögum, því í ránsferðir og hernað var ekki haldið alla jafna fyrr en sumraði.

Síðast uppfært: 3. nóvember, 2026
Deila grein:
Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link