
Hallgrímur Helgason hefur átt gjöfult ár sem rithöfundur og verið lengst allra höfunda á norska metsölulistanum fyrir 60 kílóa þríleikinn sinn á þessu ári. Hallgrímur varð 67 ára á árinu og á fjögur börn af ólíkum kynslóðum þar sem elsta er 42 ára og yngsta er 8 ára. Ný bók hans Enginn deyr í IKEA fjallar einmitt um Alvar, eldri föður lítillar stúlku sem festist í versluninni yfir nótt og breytist í reyfarakennda atburðarás um örlög feðginanna í einhvers konar and-veruleika. Hallgrímur er ófeiminn við að skrifa umdeildar sögur og segja skoðanir sínar á samfélagsmiðlum en hann segist vera orðinn ónæmur fyrir hakkavél athugasemdakerfisins.

Bókin Enginn deyr í IKEA er táknsaga um samtímann, ofbeldi, valdasýki stórfyrirtækjanna og doðann sem við finnum öll fyrir í vímukenndu stjórnlausu skruni og stingum höfðinu í sandinn þegar við horfum á stríðsátök, sveltandi fólk og börn í sárri neyð í gegnum litla símtækið okkar. Helskrun er orðið sem Hallgrímur notar.
Við tökum við skipunum, við hlýðum af því að það gera allir og þannig á það að vera og það er enginn möguleiki á öðru.
„Ég er að reyna að nota IKEA sem einhverja sögn fyrir nútímalífið okkar þar sem við erum alltaf valdalaus á stígnum. Örvarnar segja okkur hvert við eigum að fara. Við tökum við skipunum, við hlýðum af því að það gera allir og þannig á það að vera og það er enginn möguleiki á öðru. Þú kemst ekkert, jafnlangt að fara til baka eins og að fara áfram, heldur þú en kannski er betra að snúa við. Alvar reynir þarna á einum punkti að snúa við en þá er honum meinað að fara til baka,“ segir Hallgrímur í viðtali við Gímaldið.
Viðtalið í heild er birt á hlaðvarpsveitum og hlusta má á það í spilara hér að neðan:
Hallgrímur segir söguna hafa komið til sín þegar hann var að keyra framhjá IKEA á Reykjanesbrautinni. „Við vorum nýbúin að eignast barn og ég er svona eldri faðir og hef kannski verið með hugann við það. Allt í einu sé ég fyrir mér föður með þriggja ára dóttur sem fer í IKEA og verður fastur á IKEA-stígnum og svo sá ég fyrir mér endasenuna í bókinni. Þetta sá ég bara á sekúndubroti og það beið innra með mér. Ég fór ekkert að vinna þetta. Ég hugsaði ekki einu sinni um hvað persónan átti að heita eða neitt fyrr en ég byrjaði að skrifa þetta fyrir svona rúmu ári síðan og lauk vinnunni í febrúar,“ segir Hallgrímur.

Hallgrímur er orðinn stórstjarna í Noregi hefur varið miklum tíma þar undanfarna mánuði í tímafreku kynningarstarfi fyrir 60 kílóa þríleikinn sem hefur verið á topp tíu metsölulistum þar í landi. Hann segist aldrei hafa búist við þessum viðtökum en hann hafi alltaf dreymt um að loka hringnum með útgáfu þríleiksins í Noregi einkum í ljósi þess hversu mikið er fjallað um samskipti Norðmanna og Íslendinga í bókunum.
Hann segir Norðmenn tengja mikið við sögurnar af síldarævintýrinu í þríleiknum. „Norðmenn fara til Íslands. Þeir byggja upp Siglufjörð og síldveiðarnar svo kem ég þangað löngu seinna, segi þessa sögu og fer svo með hana til Noregs. Þegar ég fékk fimm stjörnudóm þarna í Bergens Tidende fór ég næstum því að gráta af því við sáum að þeir voru algjörlega að kveikja á þessu,“ segir Hallgrímur.
Í tilefni af þessum miklu vinsældum hafa eldri verk eftir hann verið endurútgefin fyrir þyrsta norska lesendur þar á meðal 101 Reykjavík, en þrjátíu ár eru síðan bókin kom út. Þríleikurinn hefur verið seldur til svæða um allan heim, þar á meðal til Bandaríkjanna. Hallgrímur segist bíða spenntur eftir útgáfunni þar í landi. „Ég hef aldrei upplifað svona áður, ég hef aldrei verið númer eitt til dæmis á einhverjum metsölulista áður, ekki einu sinni á Íslandi,“ bætir hann við.
Ég er alveg ónæmur núna, algjörlega. Ég veit ekki hvort það er gott eða slæmt en það bara skiptir mig engu máli.
Hallgrímur er ófeiminn við að skrifa umdeildar sögur og hefur oft vakið hörð viðbrögð vegna þeirra en hann er líka duglegur að tjá skoðanir sínar á samfélagsmiðlum og lætur ríkisstjórnir, borgaryfirvöld, einstaklinga og aðra heyra það óþvegið og lendir þar með oft í hakkavél athugasemdakerfisins. Hann segist aldrei taka þátt í rifrildum á athugasemdakerfinu en segir skoðanir sínar umbúðalaust en taki það aldrei nærri sér ef fólk bregst illa við og hreytir í hann.
„Ég er alveg ónæmur núna, algjörlega. Ég veit ekki hvort það er gott eða slæmt en það bara skiptir mig engu máli. Sömuleiðis konan mín, hún sér nú alveg í gegnum þetta og lætur þetta ekkert trufla sig og börnin mín sjá þetta, held ég ekki, nema kannski eldri börnin. Það hefur örugglega verið erfitt fyrir þau að horfa upp á allan þennan skít,“ segir hann.
Ég hef alltaf verið hrifinn af börnum og ég trúi því að þau gefi manni lífskraft, hugmyndir og haldi manni ungum
Hallgrímur á fjögur börn af ólíkum kynslóðum, eignaðist sitt fyrsta barn fyrir 42 árum, annað og þriðja barnið átti hann fyrir rúmlega tuttugu árum og svo var hann tæplega sextugur þegar eignaðist stelpu sem er 8 ára í dag.
„Ég held að henni finnist það gaman en það náttúrulega ruglaði hana smá í rýminu þegar barnabörnin komu til sögunnar og kölluðu mig alltaf afa og á tímabili tóku þau tillit til hennar og kölluðu mig pabba afa. Þannig að þetta er svolítið skemmtilegt. Elsta barnabarnið er eldra en yngsta dóttir okkar og það er svolítið skemmtilegt misgengið þarna. Ég hef alltaf verið hrifinn af börnum og ég trúi því að þau gefi manni lífskraft, hugmyndir og haldi manni ungum,“ segir hann og bætir við að það sé gjörólíkt að eiga barn á þrítugsaldri og sextugsaldri.
„Þetta er bara rétti aldurinn til að verða pabbi af því þá er maður ekki svona vitlaus eins og maður var. Þegar maður er 26 ára þá þarf maður alltaf að fara á barinn, sjá hvað er að gerast og hitta eitthvað fólk. Þegar maður er orðinn eldri hefur maður meira gaman að barninu og manni finnst svona ótrúlegt, þess vegna kallar Alvar dóttur sína kraftaverk í bókinni Enginn deyr í IKEA. Honum finnst þetta í raun og veru kraftaverk að þeim hafi tekist að eignast barn. Sem það er því það tók okkur sjö ár að eignast okkar barn.“ segir Hallgrímur að lokum.
Hægt er að hlusta á viðtalið við Hallgrím Helgason á hlaðvarpi Gímaldsins og öllum hlaðvarpsveitum.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.