
Veisla þrjú er óður til lífsins, funandi ástarsaga um rómantískt æði og hamslausan fögnuð konu sem tókst ekki að deyja, frásögnin barmafull af húmor og visku.
Fyrir gráglettni örlaganna bjargast LínLín úr bráðum háska og er þar með komin á nýjan byrjunarreit. Hefur hún eitthvað að lifa fyrir þegar næstum allt sem hún hefur elskað um dagana er gengið henni úr greipum? Vini á hún þó enn sem styðja hana og styrkja, og sjálfri sér til furðu finnur hún ofsafengnar tilfinningar ólga innra með sér: lífsþorsta, tilhlökkun og ásthrifningu á ókunnugri manneskju sem hún kallar Veislu þrjú.
Steinunn Sigurðardóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2023 fyrir skáldsöguna Ból sem er dimmtóna og dramatísk – en aðalpersónan LínLín stígur hér fram á ný bæði breytt og söm, tilbúin í næsta dans.
Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Steinunn Sigurðardóttir er fædd í Reykjavík 1950 og var aðeins 19 ára þegar hennar fyrsta bók kom út, ljóðabókin Sífellur. Á ferlinum hefur hún jöfnum höndum gefið út skáldsögur og ljóð en einnig skrifað smásögur, leikrit og sannsögur. Útgefnar bækur hennar skipta tugum. Íslensk náttúra, ást, orðsnilld og húmor eru lykilorð um skáldskap Steinunnar sem hefur ávallt notið mikilla vinsælda. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir bækur sínar, þar á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin tvisvar fyrir skáldsögur; árið 1995 fyrir Hjartastað og árið 2023 fyrir Ból, en sex aðrar bækur hennar hafa verið tilnefndar til sömu verðlauna. Þá hefur hún fengið Fjöruverðlaunin, Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, svo nokkuð sé nefnt. Hún hefur einnig kennt ritlist við Háskólann í Strassborg og Háskóla Íslands. Þá hefur Háskóli Íslands sæmt hana heiðursdoktorsnafnbót fyrir ritstörf.
Bækur Steinunnar hafa verið þýddar og gefnar út víða erlendis og árið 1999 var gerð frönsk kvikmynd byggð á þekktustu skáldsögu hennar, Tímaþjófnum.
Mál og menning 2026 ⎮ Innbundin, 228 bls. ⎮ Verð: 7.890,- ⎮ Rafbók: 4.290,-
[Úr Veislu þrjú, bls. 127-131]
Hvað heimurinn okkar, hvers og eins, er þröngur hringur, hversu erfitt að ímynda sér eitthvað sem er fyrir utan þann hring, allt það sem maður þekkir ekki af eigin raun. Og ekki hjálpar til að lifa á þöggunaröld, framan af, eins og ég. Þar sem hommar og lesbíur máttu hvergi þrífast, þar sem mátti bókstaflega ekki tala um neitt sem var „óreglulegt“ í mannlegum samskiptum.
Mín reynsla af mönnum sem fóru að leikreglum í samskiptum við mig, allir sem einn, varð til þess að lengi framan af var ég nógu lítið meðvituð, nógu saklaus til að halda að nokkurn veginn svona gengi þetta fyrir sig í rúmum heimsins, hjónarúmum, skyndirúmum, heilt yfir. En þegar þagnaröldin rann sitt skeið á enda og uppljóstrunaröldin tók við, þá var mér illa brugðið. Hvað alltof margar konur, og það meiraðsegja í „okkar“ heimshluta, máttu þola, og það frá sínum eigin eiginmönnum líka. Lamdar í spað, ofsóttar, nauðgað, í svefni þess vegna. Ef ekki hreinlega drepnar. Og sú hugsun fór að sækja stíft á mig að karlkynið, enn meira en kvenkynið, væri alls ekki ein og sama tegundin – þótt hómó sapíens ætti að heita. Ég hugsaði líka til allra þeirra manna sem höguðu sér eins og menn í nánum samskiptum við konur og þurftu að þola umtalið um að fjöldinn allur af kynbræðrum þeirra níddist á tiltrú konunnar, væru svikarar við almennt siðgæði.
Þessi endalausu bersöglismál ollu mér beinlínis þyngslum – sem ekki var nú á bætandi. Og ég fór að umgangast næsta hugsanlega elskhuga af meiri varúð og tortryggni. Spurði mig hvort ég, líka ég, gæti orðið svo óheppin að lenda í nauðgara eins og svo ótrúlega, ótrúlega margar konur höfðu þá gert. Og þótt mín afköst á kynlífssviðinu gætu ekki talist stórfelld þá fór ég nú að halda enn þéttar að mér höndum. Og endaði með því að sjálfhætt var, eða það fannst mér.
Ég varð þá svo heppin eða óheppin að geta lokið mínum ferli á þessu sviði klárt og kvitt, fyrir tilstilli amrísks metsöluhöfundar. Hér brást mér það næstum óskeikula instinkt að fiska góðan elskhuga – og ég sá fram á að slíkur dómgreindarbrestur gæti endurtekið sig. Þá ekki annað að gera en loka á þennan lífsþátt til að fyrirbyggja óskemmtileg skemmtiatriði sem drógu dilk á eftir sér. Og ég yrði ósnert manneskja til frambúðar. Líka snerting yrði frá mér tekin. Ég fengi að morna og þorna í friði. Varð að hafa það, úr því sem komið var. Og sjálfsagt fyrir bestu. Já eins og þú hefðir sagt Visla mín, Vielleicht besser so!
Við vorum á ráðstefnu í Arles í Suður-Frakklandi, ég hafði þýtt eina af styttri skáldsögunum hans (með því klénna sem ég hef fallist á að þýða, hálfvolg karlvæmin ástarsaga) og honum þótti greinilega gaman að spjalla við mig. Að vísu var hann fremur maður einræðu en samtals, upptekinn af sjálfum sér, svo mjög að ég sá hann gægjast í spegil yfir öxlina á mér meðan við vorum að tala saman. Hann var auðvitað líkamsræktarfrík og ég tók eftir því að hann átti til að hnykla upphandleggsvöðvana í ótíma.
Í kvöldmatnum vorum við sessunautar. Frönsk hágæði hvar sem á var litið. Ég tók til þess að hann snerti varla á smjörsósunni með sólkolanum – og svo fékk hann sér bara eina skeið af guðdómlegu súkkulaðimússinu. Að hugsa sér, hugsaði ég, að lifa svona, stöðugt að telja kaloríurnar í nískukasti yfir líkamsþyngdinni. Ég reiknaði út að hann mundi vigta sig á hverjum morgni. Og með þessu gerðist ég eiginlega fráhverf honum, Jamie. Á lokasprettinum tók hann sig þó á og fékk sér armanjakk með kaffinu eins og við hin.
Virkilega flottur náungi hið ytra, beinlínis sætur raunverulega, með frekar kringlótt dökkbrún augu og löng uppbrett augnhár, og ég var aftur orðin smáspennt fyrir honum. Og líklega heimskulega starströkk. Ekki á hverjum degi sem maður þrumir við hliðina á þvílíkri heimsfrægð.
Þegar hann spurði hvort ég vildi koma með honum og fá „nightcap“ sagði ég kærulaust „why not“.
Hann bjó ekki í þýðingarmiðstöðinni eins og við hin, heldur á lúxushóteli ekki langt undan. Auðvitað var hann, eins og frægð hans sæmdi, í tveggja herbergja svítu, með útsýni á rómverska hringleikahúsið flóðlýst.
Og ekki vantaði, í míníbarnum var úrvalskoníak sem við gerðum okkur gott af. Meðan hann hélt áfram einræðum um móður sína og ömmur, tiltrú þeirra á honum og áhrif þeirra á hans einstaka feril. Það hentar mér yfirleitt vel að hlusta á einræður, þar með kunnuglegar einræður karla sem af einhverjum ástæðum, ekki endilega kynferðislegum, vilja ganga í augun á mér. Sjálf er ég ekkert sérstaklega málglöð manneskja, nema í undantekningartilfellum. En nú var minn maður að verða hjákátlegur – og karlvæmnin sem ég kynntist í skáldsögunni hans, Í skugga engils, vall upp. Þar hjálpar ekki koníakið.
Í miðri einræðu, óforvarandis, lagði hann hönd á lærið á mér, stóð upp og klæddi sig úr að ofan. Hnyklaði enn upphandleggsvöðvana.
Sá bratti for-forleikur kom svo flatt upp á mig að ég vildi helst leggja á flótta. Fyrsta skref. Baðherbergið. Allt í yfirstærð og tveir vaskar með risavöxnum gullkrönum. Speglar í hólf og gólf. Eitthvað fyrir vöðvabúntið.
Ég hugsaði mitt ráð í speglinum og tók stefnuna á mígreniflóttann, fann réttu orðin. En þegar ég kom aftur inn í svefnherbergi var minn maður lagstur allsber ofan á sængina. Í fullri reisn. Sú sjón var útaffyrir sig ekki ógleðileg, verklegasta tól. Og lögulegur skrokkur, reyndar aðeins of vöðvahnýttur fyrir minn einfalda smekk. En mig langaði mest að skella uppúr. Hafði aldrei lent í svona hálfvitalegum narsissista. Og nú var búið að girða fyrir flóttaleiðina.
Svo ég beit hraustlega á jaxlinn, dempaði ljósin, klæddi mig úr narsanum til samlætis og dembdi mér ofaná hann. Þar þurfti ég að iðja lengur en mér gott þótti og leggangaþurrkur orðinn verri en síðast. Loksins tókst þó ætlunarverkið. Mér létti stórlega – mígrenikastið alveg yfirvofandi, gat ekki beðið eftir því að sleppa úr þessari prísund.
Eftir baðherbergisferð settist ég á rúmstokkinn, sagði að mér þætti svo afskaplega fyrir því, væri að fá mígrenikast, gæti stundum komið fyrir við „lovemaking“ – lyfin væru á herberginu mínu og ég yrði að flýta mér áður en versnaði. Þessu tók Jamie vel, jafnvel grunsamlega vel, svo mér datt aðeins í hug að hann væri bara feginn.
Ég klæddi mig í snarheitum, sá að hann var ekki á leiðinni að fylgja mér til dyra. Ég tyllti mér aftur á rúmstokkinn og kyssti hann bless á kinnina – en af bakteríuhræðslu eða hvað það nú var hafði hann lítinn áhuga á munnkossum. Nú, en ef það var bakteríuhræðsla af hverju notaði hann þá ekki smokk? Ekki spyrja mig.
„Lovely lady,“ sagði hann, og með það fór ég.
Guðsélof voru þetta ráðstefnulok og ég þyrfti ekki að sjá framan í hann aftur.
Í unaðslegri suðurfranskri sumarnóttinni sá ég fram á að þetta yrði mitt síðasta stönt, og við það hef ég staðið. Að lenda í sérhverfum elskhuga. „Tried it once, didn’t like it!“
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.