
Í dag er eitt ár frá því Gímaldið birti sína fyrstu umfjöllun. Við höfum lært mikið, bætt við okkur áskrifendum og þróað okkur áfram í átt að þeim fjölmiðli sem við vitum að við getum orðið. Fréttabréfið okkar kemur nú út alla virka morgna og hefur fengið góðar viðtökur.

Gímaldið hefur komið út í eitt ár í dag. Okkar tilfinning er að Gímaldið hafi komið fram á hárréttum tíma. Internetið er að fyllast af rusli, óreiðan er mikil og rík þörf fyrir fjölmiðil sem talar af yfirvegun og varpar ljósi í stað þess að hrópa hærra og veiða smelli. Við finnum að það er þörf fyrir fjölmiðla sem lýsa upp samfélagið.
Til skamms tíma voru auglýsingar ein helsta tekjulind fjölmiðla. Sú staða er gerbreytt og nú fer meirihluti þeirra tekna til Mark Zuckerberg og félaga í Kísildal. Facebook, Instagram, Youtube og fleiri samfélagsmiðlar taka til sín obba auglýsingatekna. Fjölmiðlar, meira að segja stórir alþjóðlegir fjölmiðlar, hafa þurft að breyta sínum viðskiptamódelum í takt við þetta.
Áskriftir hafa víða orðið mikilvægari tekjustofn fjölmiðla eftir að auglýsingar tóku að gefa eftir. Með áskrift skapast beint samband. Áskrifandi greiðir hóflega upphæð mánaðarlega en fær í staðinn aðgang að efni miðilsins.
Áskriftarformið hentar vandaðri blaðamennsku. Þannig stendur breiður og fjölbreyttur hópur að baki miðlinum í stað þess að hann sé háður fáum og stórum viðskiptavinum. Það hefur bein áhrif á fréttamat og efnistök með hvatanum til að veita lesandanum góða þjónustu í stað þess að auglýsendur og flettingar ráði för.
Gímaldið vill treysta beint samband við áskrifendur. Einn liður í því að er að við höfum sett aukinn kraft í fréttabréfin sem koma í innhólf ykkar milliliðalaust og án millilendingar á samskiptamiðlum. Við viljum gera það sem stóru samfélagsmiðlarnir geta aldrei gert: Eiga náið, heiðarlegt, alvöru samband við hópinn okkar.
Fréttabréf Gímaldsins kemur nú út alla virka daga. Hugmyndin er að veita lesendum stutt yfirlit yfir það sem er efst á baugi. Á næstunni fylgjum við þessari áherslu eftir með því að boða morgunfund með áskrifendum.
Við á Gímaldinu nýtum hvert tækifæri sem gefst til að tala máli fjölmiðla, fjalla um mikilvægi þeirra og það rými sem þeir þurfa í þjóðfélaginu. Fjölmiðlar eiga að vera málsvari almennings, tala fyrir almannahagsmunum en ekki sérhagsmunum. Veita aðhald, upplýsa og skýra út fréttirnar.
Hér eru nokkur dæmi um það sem við höfum gert til að styðja við öfluga fjölmiðla:
Með því að vera áskrifandi að Gímaldinu ertu ekki bara að kaupa eins vandaða vöru og okkur er unnt að búa til, heldur leggja þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið.
Rekstur Gímaldsins er ekki flókinn. Yfirbygging er nánast engin, tæknin einföld og dreifingin nær ókeypis. Þær tekjur sem við öflum fara óskiptar í að skrifa, þróa, greina og rannsaka. Við þurfum talsvert meira af þeim til að geta dafnað og bætt okkur sem sjálfstæður, vandaður og ómissandi fjölmiðill. Við yrðum ákaflega þakklát ef þið hjálpið okkur með því að hvetja fólk í kringum ykkur til að gerast áskrifendur.
Við viljum líka láta ykkur vita að við breyttum áskriftarleiðunum okkar. Grunnáskrift, sem kostar 3.490 krónur á mánuði og 34.900 krónur á ári heitir nú fjölskylduáskrift. Ykkur, sem eruð með þessa áskrift, býðst því að bæta við tveimur netföngum. Það er gert með því að smella á Mitt svæði og velja að bæta við notendum. Þannig geta allt að þrír á sama heimili nýtt áskriftina.
Fyrir þá sem þurfa ekki þrjá aðganga bjuggum við til svokallaða einfalda áskrift. Hún er bara fyrir einn og kostar 1.990 krónur á mánuði og 22.200 krónur á ári. Upphæðin er sú sama og útvarpsgjaldið. Að auki höfum við opnað fyrir fyrirtækjaáskriftir sem er hugsuð fyrir vinnustaði.
Gímaldið er lítill fjölmiðill á hvaða mælikvarða sem er. Við störfum á litlu málsvæði, í litlu landi, erum með litla ritstjórn, litla yfirbyggingu og höfum lítið á milli handanna. En samt höfum við ráðist í stóru málin – og ætlum að gera það áfram.
Takk fyrir að taka þátt í að byggja upp nýjan fjölmiðil. Við erum óendanlega þakklát.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.