
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Kristín Ómarsdóttir (f. 1962) kom fram á sjónarsviðið árið 1985 þegar hún vann fyrstu verðlaun í samkeppni Þjóðleikhússins fyrir leikritið Draumar á hvolfi. Síðan þá hefur hún sent frá sér ríflega fjörutíu verk, skáldsögur, leikrit, smásögur og ljóð, og hefur löngu skipað sér sess sem einn frumlegasti rithöfundur þjóðarinnar.
Kristín hefur hlotið fjölda tilnefninga fyrir verk sín, þar á meðal til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Verðlaunin eru líka orðin mörg; hún hefur hlotið Grímuverðlaunin, Maístjörnuna, Fjöruverðlaunin, Menningarverðlaun DV og Íslensku bókmenntaverðlaunin.
Mál og menning 2026 ⎮ Kilja, 320 bls. ⎮ Verð: 6.290,- ⎮ Rafbók: 4.290,-
Annað bréf
[Bæjarnafn yfirstrikað] Jónsmessu 1861
„Skrumskæling, lofsöngur.“
Elsku indæla Au., Þakka yður bréf sem ég las á meðan augu heimafólks hvíldu á mér, hjúa og húsráðenda. Hingað berast aðeins húsbóndanum bréf og hann snusaði um innihaldið. Ég sagði það frá systur minni. Hann vissi ekki að ég ætti systur. Ég vissi það ekki heldur. Hann lét gott heita.
Tilfinningar yðar, fröken Au, hljóma af annars konar heimi en ég þekki til í. Segið mér, fermingarsystir, er til staður fyrir tilfinningar í jarðvist vorri? Fæddust kenndir yðar máske í draumheimi? Eru þær móðursýki? Hver eruð þér til að velja yður unnusta? Fröken Au, ég geri ráð fyrir að þér vitið að ég kæmi aldrei til álita sem brúðgumi nema þyrfti að breiða yfir annars frillulíf. Ég er ekki sá sauður, þó að ég láti sauðslega, að vita ekki hver er hver í landi voru.
Yðar minnist ég sem feiminnar stúlku sem færði mér par sokka. Framhleypnin nú kemur sannarlega á óvart. Ég þakka fyrir parið. Þá var móðir yðar á lífi, dýrindispersóna sem á mannamótum stakk molum að lánleysingjum. Járngrá augun sáu inní mín moldarbrún. Stór vera mætti lítilli í mestu vinsemd.
Virðulega fermingarsystir.
Ég er almúgamaður sem skortir gott siðferði einsog þér vitnuðuð. Slæmt að hafa ekki augun hjá sér í umtalaðri heimsókn. Ég lærði lítið af móður yðar sem tók betur eftir aumingjum en hátt settum og það var hennar písl. Ég sver fyrir drottins dýrð að ég skammast mín.
Húsbóndi yðar skuldaði mér fyrir róðra og greiddi mér hluta í síðustu heimsókn sem þér lýsið betur en ég sjálfur sem man ekki allt. Skuldin nær nú vart lambsgildi, hvað þá vinnukonu! Ha, ha.
Er ég las bréf yðar þótti mér það fastna lófa okkar á órannsakanlega vegu. Jafnvel þótt þér fíflið mig og skrumskælið í sömu reku og þér lofsyngið. Ég hef aldrei orðið fyrir öðru eins. Hvorki frá stúlku né húsbónda. Ég reiddist en stillti mig. Óþekkt taug vaknaði. Ég verð aldrei samur.
„Mætti ég leika undir á flautu?“
Ég skrifa yður á örk húsbónda sem sefur. Karl þjónar hér sem prestur í liðugu brauði og reyndar óttast hann um þessar mundir álit brauðamatsnefndar Reykjavíkur sem leitar þúsund logum að prestaköllum sem henti að dæma óþörf. Sum eru ólífvænleg en þar á móti ómissandi samfélögum sínum. Með afsetningu nokkurra á að bæta upp laka stöðu annarra.
Í kvöld sofnuðu hjón og hjú í sömu málsgrein við húslestur – eitraði ég fyrir þeim með lestrinum? spurði ég mig og horfði á vinnukonurnar sofa með hannyrðir sínar í kjöltu. Fermingarbróðir yðar ákvað að vaka á messu Jóhannesar skírara, stela örk úr púlti, dýfa guðs pennaoddi í blekhús klerks á töfrumhlöðnum tímamótum sumars og sumars. Vonandi skiljið þér skriftina. Skiljið þér skriftina?
Oft og einatt stari ég útí eitt á fólkið sofa – kíki inní drauma þess á sama hátt og þér í huga minn? Eina vinnukonu dreymir hunda, aðra dreymir kópa, fugla, vötn, rottur, pöddur og eldsumbrot. Á morgnana þvo þær sér hjá glugganum og fortelja hver annarri drauma sína. Mér þætti heiður að fá að vera básúnuleikari í annarra draumi. Mætti ég fá að leika á flautu í draumum yðar? Ég spila ekki á flautu. Mig dreymir aldrei. Ég þarfnast annarra.
Ó, en þetta vissi ég ekki fyrr, hve gaman það er að skrifa bréf. Hugurinn dansar spor sem guð leiðir. Verð ég dansmey guðs? Það held ég. Höndin lýtur stjórn dálætis, mildi og mýktar sem ég þekkti ekki í gær. Eitt stykki mannfífl uppsker æfingu í að hugsa og skrifa. Ha, ha.
Eftir lestur bréfs yðar hef ég aðeins horfið til sjálfs mín undir svefnhrotum hinna og þau sofa djúpt skal ég yður segja. Varkár krem ég í fæðingu veinið sem þér kallið hnegg, farga girndinni (nautninni) í brekánið. Hafi ég ekki hagað mér bið ég yður velvirðingar. Og ég hagaði mér ekki í samræmi við drottins guðsmildi. Á morgnana skola ég úr koppnum áður en vinnukonurnar grípa um haldið og til þess þarf að hafa hraðar hendur, svo fljótt vinna þær verk sín. Ha, ha.
Þér eruð stúlkan sem lékuð á langspilið á dansleiknum á Eyrarbakka í fyrra. Hvernig gat ég dansað við hana sem komst ekki frá fyrir spileríi? Án yðar stígur enginn dans. Í Norður-Ameríku ferðast sjónleikjahús og farandleikflokkar milli borga. Þar vantar músíkanta. Eigum við að reisa saman? Ég býð yður sjálfan mig til umboðsstarfa. Verið fegin að ég tók ekki eftir yður. Það var gæfa yðar, yðar indæll,
P.
Pálína: Uss, þetta er ekki fyndið, Setselja.
Setselja: Ó, Palla, takk fyrir að segja mér hvað sé ekki fyndið. Afskræmdri röddu bætir systir mín við: Má einhver þá plís og vinsamlegast kenna mér mismuninn á fyndni og sorg? Hún fremur takt í ábyrgðarfötu sína og skríkir. Næsta bréf klifrar uppúr þriðja umslaginu ásamt pressuðum sóleyjum, fífum og fjólum:
Þriðja bréf
Hraungerðishreppi 7. júlí 1861
„Hvað er drýgra einu sokkapari?“
Kæri indæli hugumvillti hugarvillingur, lítilláti vinur og flautuleikari drauma minna, Ég þakka yður bréf sem ég óttaðist að reisti bíræfni minni níðstöng. En óvænt tendrast von í brjósti og ég sé útfyrir gerðið: Máske draum? Í sumar nægja draumar. Rættust þeir kostuðu þeir mig vafalítið lífið eða líf nákomins. Í sumar ætla ég að treysta því að hættulaust sé að njóta drauma í hófi.
Auðvitað kysi ég að verða húsfreyja á eigin bæ og hafa mannaforráð, einsog Gróa systir hefur og mamma hafði. Það kostar sitt af hverju; fórn sem færir öryggi sem varir tilviljunarkennt og af einni skærri lukku sem sjaldan birtist hérlífi. Væri frelsið ekki annars ókeypis?
Um daginn frétti ég hvað farmiði kostar til Skotlands og frá Skotlandi til Ameríku en þar, í Ameríku, heyja menn stríð milli Suðurfylkja og Norðurfylkja – hvað verður þá um dansleiki og aðra skemmtun? Þér yrðuð vafalítið sendur í herinn fyrir Norðurríkin og frelsun þræla. Eruð þér reiðubúinn til að láta lífið fyrir annarra föðurland? Og ég byði mig fram til flutnings á föllnum og særðum af vígvellinum. Við létum lífið fyrir frelsun þrælanna. Þá yrði til einhvers að deyja.
Ég hef aldrei leitt hugann að því að nema land annars staðar en í hugarheimum. Eitt sinn hvarflaði að mér að fara til vistar í Reykjavík en skyldleikar kyrrsettu mig. Enginn hefur áður titlað mig músíkant.
Ég spilaði á dansleiknum þegar spilarinn drakk sig burt úr vitundinni. Aðrir gestir, flestallir ölvaðir, heyrðu ekki mun á leik og spili. Nokkrar stúlkur híuðu: Hver héldi ég að ég væri?
Gaf móðir mín mér þótta í fæðingargjöf og hroka að skilnaði? Gerði hún mér leik eða óleik? Það var fyrir tilstilli hennar að ég dirfist að spila fyrir aðra.
Stjúpi minn segir mig skyldurækna, háttprúða og iðjusama í raun. Ég upptel dóm hans hér til að ganga í augun á yður. Ég tel mig þekkja vel til í nauðbeygðum heimi og í nauðsynlegum og gagnslausum heimum jafnt. Í lífinu tek ég jafnan þátt í ljótleika og fegurð, sorg og gleði á sama tíma og ég undrast mitt eigið handverk: úr ull hekla fingurnir klæði og sokka sem endast vonum framar – eitthvað lengur en mjólkursopi úr brjósti.
Megi fingur mínir semja marga fleiri sokka sem endast. Hvað reynist drýgra sokkaparinu?
Kærleikur?
Vinátta?
Þessa daga prjóna ég sem ensk prjónavél því ég ætla að selja vel í haust, betur en í fyrra og hitteðfyrra, og megi bóndi hirða sinn hlut af kristilegu lítillæti.
Ó, ég heyri gengið um, hver vaknar? Ljósberinn sem vekur eldinn. Ég neyðist til að hætta, yðar alltaf, A.
P.s.
Ég prjóna yður nýtt par úr grænu garni. Á einhver í sveitinni græna sokka? Verður ekki selt öðrum, over my dead body.
P.p.s.
Þér spurðuð ekki útí heilsufar vinkvenna þinna hér á bænum. Til sparnaðar prestsbleks upplýsi ég yður um að þær haga sér sæmilega einsog við mátti búast. Á síðasta fulla tungli höfðum við allar tíðir. Þar hrósaði eftirsjáin happi, vinur minn.
Ég braut bréfið saman …
sem flaug ofan í umslag sem ilmaði af lyngi, birki, mosa, taði, áritað fjólubláu bleki og rauðu. Fólk verður skjálfhent af meðhöndlun pappírs. Fólk verður nærsýnt af lestri. Fólk snertir margt fleira en pappír snerti það pappír, sagði einhver sem þóttist vita allt. Loginn stillti ákafann sem köttur gegnt mús, ákafa sinn, hugsjón og eldmóð í að borða bréfið: Ætti ég að kveikja í þér? muldraði ég og bréfið fór að gráta og ég þóttist klappa því: svona, svona, litla bréf.
Setselja geispaði yfirsighátt:
Þeim Aþenu þættu skrifin beinakerlingarleg og væmið bagl. Hvernig gat þessi P eiginlega hrifið systur okkar?
– Ekki vera kaldlynd, elskan, skipaði Pálína prestlega, manneskjur hrífast af hverju sem er; þær geti ekkert að því gert.
Víst geti þær að því gert.
Svarar systir mín.
– Virðum mannleg örlög, mjólkum og hlustum á næsta bréf með leyfi.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.