Jón Atli Jónasson: Dauðinn er bara myrkur

Odd Strange hefst við í gömlu hjólhýsi í nágrenni Malaga og hefur lifibrauð sitt af einkaspæjarastörfum. Hann á sér óvenjulega sögu: ólst upp í Reykjavík hjá afar sérkennilegum foreldrum, var júdókappi og starfaði um tíma í lögreglunni í Osló.

Dag einn bankar ung kona upp á hjá Odd og biður hann að finna týnda vinkonu sína. Leitin að henni rifjar upp fyrir honum hryllilegt mál sem snerist um norskan fjöldamorðingja sem aldrei náðist, rannsókn sem varð Odd gríðarlega dýrkeypt. Getur verið að sami morðingi sé aftur kominn á kreik?

Magnað andrúmsloft einkennir þessa ískyggilegu og óhefðbundnu glæpasögu sem grípur lesandann fantatökum strax á fyrstu blaðsíðu.

Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Jón Atli Jónasson (f. 1972) er margverðlaunað leikskáld og handritahöfundur. Leikverk hans hafa verið sett upp víða um Evrópu og hann er einn af stofnendum Mindgroup, sem eru evrópsk regnhlífarsamtök leikhúsfólks sem vinnur að tilraunakenndri leiklist. Jón Atli var fyrsta leikskáldið til að fá styrk úr Minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur.

Jón Atli hefur einnig skrifað nokkur kvikmyndahandrit, þar á meðal Djúpið sem tilnefnt var til Óskarsverðlaunanna 2015, og hann hefur þrisvar verið tilnefndur til Norrænu kvikmyndaverðlaunanna. 2011 var hann valinn Útvarpsleikritahöfundur Norðurlanda og útvarpsleikrit hans um Guðmundar- og Geirfinnsmálið lenti í þriðja sæti Prix Europa-verðlaunanna 2017.

Meðfram leikritun og handritagerð hefur Jón Atli skrifað bæði smásögur og skáldsögur. Síðustu ár hefur hann einbeitt sér að glæpasagnaskrifum.

Mál og menning  2026 ⎮  Innbundin, 258 bls.  ⎮  Verð: 7.890,- ⎮  Rafbók: 4.290,-

1

REYKJAVÍK

ÍSLAND

1980

 


Drengurinn vaknar snemma. En hann er ekki fyrstur á fætur. Hann heyrir umgang frammi í eldhúsi. Pabbi hans er vaknaður. Hann bara veit það. Mamma hans hefur ekki jafn hátt. Hún er mýkri í öllum hreyfingum. Læðist um eins og vofa. Hann er farinn að gera það sjálfur án þess að taka beint eftir því.

Drengurinn sá einu sinni hest í sjónvarpi sem var í kerru sem var fest aftan í bíl. Hann man ekki hvort það var í kvikmynd eða þætti. Hann man bara að það var í Ameríku.

Hesturinn þurfti að bakka niður úr kerrunni til þess að komast út og það glumdi í öllu þegar hann rak hófana í gólf og hliðar hennar. Þannig er hávaðinn sem berst frá eldhúsinu. Eins og frá skepnu sem er lokuð af í þröngu rými, í sjálfheldu, og er að reyna að finna leiðina út.

Drengurinn lítur í átt að glugganum. Það kemur engin birta inn um hann. Það er hávetur og erfitt að átta sig á því hvað klukkan er því það er nánast alltaf myrkur á þessum árstíma. Þau eiga talandi klukku sem getur sagt þeim hvað tímanum líður, á ensku, ef maður ýtir á takka. En hún er biluð og það virðist enginn geta gert við hana. Samkvæmt foreldrum hans þarf mögulega að senda hana til útlanda í viðgerð. Það er til of mikils mælst, segir mamma hans. Þess vegna situr klukkan í kassa frammi í forstofu. Það er þunnt lag af ryki á lokinu. Það er langt síðan þau hafa minnst á hana og eru sennilega búin að gleyma því að hún er til.

Drengurinn er fyrir löngu búinn að læra á klukku en til þess að líta á hana verður hann að fara á fætur og kveikja ljósið til að hann sjái á úrið sitt. En hann vill heldur vera lengur undir sænginni. Breiða hana yfir höfuðið og finna hvernig andardráttur hans hitar upp myrkrið undir henni. Uns hann getur varla andað lengur og þá stingur hann hausnum undan henni og dregur að sér kalt loftið í herberginu. Eins og kafari sem kemur upp úr sjó.

Drengurinn leikur þennan leik nokkrum sinnum en síðan er bankað þrisvar sinnum á hurðina á herberginu hans. Svona vekur pabbi hans hann á morgnana. Sem þýðir að klukkan er orðin sjö og hann þarf að fara á fætur.

Þegar hann er búinn að klæða sig fer hann inn í eldhús. Það er hafragrautur í potti á hellunni. Hann er búinn að standa svolítið á hellunni og er orðinn volgur.  Drengurinn opnar skáp og nær sér í disk. Hann setur ausu af hafragrauti í hann og teygir sig í sykurkarið sem stendur við hliðina á vaskinum.

„Ekki of mikinn sykur,“ segir pabbi hans sem situr á náttslopp við eldhúsborðið með kaffibolla. Það eru kaffislettur og korgur allt í kringum vaskinn.

„Nei,“ segir drengurinn lágt og grípur tusku og notar hana til að sópa mesta korginum saman í kringum vaskinn. Hann skrúfar frá krananum, bleytir tuskuna og vindur hana áður en hann þurrkar upp kaffisletturnar og leggur síðan frá sér tuskuna á sinn stað.

„Ekki láta vatnið renna,“ segir pabbi hans og starir í gaupnir sér.

„Nei,“ segir drengurinn og skóflar sykrinum upp úr karinu með matskeiðinni og stráir allt of miklum sykri út á þykkan grautinn án þess að pabbi hans verði þess var.  Svo opnar hann ísskápinn og nær í mjólkurfernuna og hellir mjólk út á grautinn. Síðan sest hann gegnt pabba sínum við eldhúsborðið og borðar nánast hljóðlaust. Passar sig að smjatta ekki. Eins og honum hefur verið kennt. Hann svimar næstum af öllum sykrinum.

Drengurinn lítur á pabba sinn. Hann gnæfir yfir hann þarna í eldhúsinu; hávaxinn og grannur. Langir fingur hans hringa sig um kaffibollann. Hann fylgist með honum taka þunnt plastið utan af sígarettupakkanum sem liggur á borðinu við hliðina á öskubakkanum og rúlla því upp í mjóa og oddhvassa keilu. Hann notar hvassa endann til að stanga úr tönnunum. Svo hann teygir hann sig í sígarettu, fer svo í vasann og nær í kveikjarann. Það eru blettir á sloppnum hans. Drengurinn þarf að segja mömmu sinni að það sé kominn tími til að setja hann í þvottavélina. Það er svo margt sem hann þarf að muna.

Það er viðbrunabragð af grautnum en drengurinn minnist ekki á það. Hann reynir bara að einbeita sér að því að finna sykurbragðið og í huganum leyfir hann því ná yfirhöndinni.

Pabbi hans vaknar ekki oft á undan honum. Oftast er það mamma hans sem gerir grautinn. Þá er ekkert viðbrunabragð af honum og hann er heitur. Drengurinn klárar af disknum og stendur á fætur. Hann þarf að fara að drífa sig.

„Hvar er mamma?“ spyr drengurinn.

„Það veit ég ekki,“ segir pabbi hans og tekur smók af sígarettunni.

„Burstaðu tennurnar.“

„Já.“ Hvorugur þeirra lítur á hinn. Drengurinn fer út úr eldhúsinu og inn á baðherbergið sem er við hliðina á svefnherbergi foreldra hans. Hann opnar dyrnar og gengur inn. Það er slökkt þar inni og hann kveikir ljósið. Mamma hans situr nakin í baðkarinu. Hárið á henni er blautt.

„Ég þarf að bursta tennurnar,“ segir drengurinn.

„Gerðu það,“ segir mamma hans og kinkar kolli. Hann tekur tannburstann sinn og setur á hann tannkrem og burstar tennurnar vel og vandlega. Mamma hans bærir ekki á sér í baðkarinu.

„Mundu að taka nestið þitt,“ segir hún án þess að líta á hann.

„Já,“ segir hann, setur tannburstann á sinn stað, slekkur ljósið og fer út af baðherberginu.

Hann grípur nestisboxið sitt af borðinu inni í eldhúsi. Það inniheldur tvær brauðsneiðar með kæfu og smjöri. Hann tekur líka tómatsósuflöskuna, sem er úr gleri, með kakómaltinu úr ísskápnum. Hún er alltaf ísköld þegar hann tekur hana út en er alltaf orðið volg þegar hann borðar nestið sitt í löngu frímínútunum.

Drengurinn lítur út um eldhúsgluggann. Umferðin á Miklubrautinni er farin að þyngjast. En hann sér ekki bílana. Það er of dimmt til þess ennþá. Hann sér bara endalausu runu af bílljósum. Drengurinn setur diskinn í vaskinn og skolar af honum. Hann er hugfanginn af bílum og á dálítið safn af leikfangabílum sem standa í hillunni fyrir neðan gluggakistuna inni herberginu hans. Drengurinn kann nöfnin á mörgum þeirra enda kann hann að lesa. Hann leikur sér að því að lesa nöfnin á þeim sem er oftast að finna aftan á þeim. En líka að framan. Stundum eru bara merki framan á bílunum en hann kann líka að lesa í þau; hringina þrjá í Toyota-merkinu og þriggja arma stjörnuna í Mercedes Benz-merkinu. Stundum ráfar hann um hverfið og skoðar bíla. Hann hefur samt lært að fara varlega. Einu sinni greip kona í öxlina á honum þegar hann stóð og virti fyrir sér gullsanseraðan Colt fyrir utan hús í Stakkahlíðinni. Hún hélt að hann ætlaði að stela einhverju úr honum. Drengurinn hljóp í burtu um leið og konan sleppti honum án þess að segja orð. Hann verður alltaf dálítið stressaður ef hann kemur auga á Colt einhvers staðar. Drengurinn hefur tvisvar sinnum, svo hann muni, setið í bíl. Í hvort skipti var um leigubíl að ræða. Í annað skiptið var það Ford Maverick og í hitt skiptið var það Benz 280. Hann hefur margoft farið í strætó en finnst það ekkert sérstaklega skemmtilegt.

Uppáhaldsbíllinn hans er stóri, svarti, kassalaga lögreglubíllinn sem gnæfir yfir aðra bíla í umferðinni. Drengurinn veit að tegundin heitir Chevrolet en bíllinn á sér líka annað nafn sem minnir drenginn á ævintýrin sem hann fær stundum að hlusta á með mömmu sinni í kassettutækinu inni í stofu. Stóri löggubíllinn er alltaf kallaður Svarta- María.

Stundum fær hann ristað brauð með spældu eggi áður en þau setjast niður til að hlusta. Honum þykir vænt um það því stundum brennir mamma hans sig á pönnunni. En ekki mikið lengur. Hann er eiginlega farinn að geta spælt eggin fyrir hana sjálfur.

Einstaka sinnum fær hann líka kók með. Sem hann fær eiginlega aldrei. Nema í þau fáu skipti sem hann hefur verið boðinn í bekkjarafmæli. Hann veit að sumir skólafélagar hans fá alltaf kók og snakk á laugardagskvöldum þegar þeir horfa á mynd í sjónvarpinu með fjölskyldunni. Stundum líka kókosbollur og lakkrísreimar. Hann hefur heyrt þá minnast á það á föstudögum í skólanum.

Drengurinn elskar kók sem er svo kalt að hann fær tár í augun. Hann horfir aldrei á sjónvarpið með foreldrum sínum. Mamma hans segir að kók geti brennt í manni tennurnar og gert þær svartar. Hún heyrði tannlækni segja það í útvarpinu. Drengurinn tekur því hæfilega alvarlega. Mamma hans trúir öllu sem henni er sagt. Svona næstum því. Því hún virðist alltaf vita það þegar hann reynir að skrökva að henni.

Drengurinn reynir oft að lýsa bílum, þessum undratækjum, fyrir mömmu sinni. Lit þeirra og lögun. En hann finnur aldrei réttu orðin.  Honum finnst það leiðinlegt. Því hún hefur nefnilega aldrei séð bíl.

 

 

Síðast uppfært: 10. nóvember, 2026
Deila grein:
Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link