
Nýr formaður verður kosinn í VG eftir þrjár vikur. Nokkur nöfn eru farin að heyrast. Flokksfólk veltir fyrir sér hvort Rósa Björk Brynjólfsdóttir sé uppgjörið sem flokkurinn þarf eftir ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir er nafnið sem flestir viðmælenda Gímaldsins segjast hafa heyrt þegar spurt er um næsta formann Vinstri grænna.
Landsfundur Vinstri grænna fer fram á Selfossi helgina 7. og 8. mars næstkomandi. Svandís Svavarsdóttir tilkynnti skömmu fyrir áramót að hún gæfi ekki kost á sér áfram. Guðmundur Ingi Guðbrandsson tilkynnti fyrr í dag að hann hygðist ekki gefa kost á sér til forystu í flokknum áfram en hann er varaformaður flokksins. Hann segist þó í tilkynningu sinni ekki útiloka framboð í næstu þingkosningum.
Enginn hefur opinberlega tilkynnt um framboð en auk Rósu Bjarkar herma heimildir Gímaldsins að skorað hafi verið á Orra Pál Jóhannsson, fyrrverandi þingflokksformann flokksins til framboðs. Nafn Finns Ricart Andrasonar hefur einnig verið nefnt. Hann gefur kost á sér í 1. sæti í forvali flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar, en það sæti myndi færa honum 2. sæti á eftir Sönnu Magdalenu Mörtudóttur á lista Vors til vinstri.
Hann hefur verið í forsvari fyrir Unga umhverfissinna, er talinn metnaðargjarn og ófeiminn við að koma fram opinberlega. Hann þykir hins vegar í yngsta lagi, á 24. aldursári, og er talinn þurfa að sanna sig í stjórnmálum áður en honum verði treyst fyrir formennsku flokksins.
Nafn Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, hefur líka verið nefnt en líklegt þykir að hún muni bíða allavega eina umferð, og sjá hvort og hvernig endurreisn flokksins heppnast.
Rósa Björk er hins vegar sú sem umræðan hefur helst hverfst um, og hún talin áhugaverður kostur, ekki síst vegna uppreisnar hennar gegn stjórnarsamstarfi flokksins við Sjálfstæðisflokkinn.
Rósa Björk settist fyrst á þing sem varaþingmaður árið 2013, en hún var þá starfsmaður þingflokks VG. Hún var kjörin alþingismaður fyrir Vinstri græn árið 2016 og var í stjórnarandstöðu á stuttu kjörtímabili. Kosið var aftur 2017 og að þeim kosningum loknum myndaði VG stjórn með Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum.
Mikil óánægja var með myndun ríkisstjórnarinnar, ekki aðeins meðal flokksfélaga heldur einnig meðal einstakra þingmanna flokksins. Rósa Björk og Andrés Ingi Jónsson studdu ekki stjórnarsáttmála nýrrar stjórnar þegar hann var borinn upp í þingflokknum. Rósa Björk greiddi stundum atkvæði gegn stjórnarfrumvörpum, sat hjá eða studdi breytingartillögur stjórnarandstöðunnar. Þá lýsti hún opinberlega efasemdum um samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn og taldi það ekki samrýmast grunngildum VG í velferðarmálum, umhverfismálum og málefnum flóttafólks.
Rósa Björk gekk úr þingflokknum í september 2020 og varð óháður þingmaður þar til hún gekk til liðs við Samfylkinguna í desember sama ár. Andrés Ingi sagði sig líka úr flokknum og gekk til liðs við Pírata.
Í kosningunum 2021 skipaði Rósa skipaði 2. sæti á öðrum lista Samfylkingarinnar í Reykjavík, á eftir Kristrúnu Frostadóttur. Þegar talið hafði verið upp úr kjörkössum leit um tíma út fyrir að Rósa Björk hefði náð kjöri sem jöfnunarþingmaður, en eftir örlagaríka endurtalningu í Borgarnesi endaði hún utan þings.
Þegar þau tíðindi gerðust hins vegar haustið 2024 að það slitnaði upp úr stjórnarsamstarfi Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og boðað var til kosninga. Flutti þá Rósa aftur í VG. Hún skýrði vistaskiptin þannig að nú hefði Samfylkingin fjarlægst sín eigin gildi og sjálf gæti hún snúið til baka í VG fyrst að stjórnarsamstarfinu væri lokið.
Framangreind óhollusta Rósu Bjarkar við flokk sinn og ekki síst uppreisn gegn óvinsælu stjórnarsamstarfi, gæti nú átt þátt í að fleyta henni til æðstu metorða í flokknum.
„Rósa Björk væri því ákveðið uppgjör“
Hún er talin áhugaverður kostur að mati flokksfólks vegna þess að hún er rótgróinn flokksfélagi sem tók slaginn inni í hringiðunni fyrir ákveðin gildi og reyndi að halda flokknum á þeirri braut sem henni fannst rétt. Margir félagar í flokknum hafi verið sammála henni á þeim tíma. Svo hafi hún staðið með sjálfri sér og yfirgefið flokkinn. „Rósa Björk væri því ákveðið uppgjör,“ segir einn viðmælenda um mögulegt framboð hennar. Þrátt fyrir að hafa lengi verið áberandi í flokksstarfinu og uppfylli hún í rauninni kröfu um endurnýjun, vegna fortíðar sinnar.
Hins vegar er ekki við öðru að búast en fólk sem yfirgefur flokkinn sinn með þessum hætti, eignist marga óvini. Rósu Björk hafi þó tekist að greiða úr því gagnvart mörgum þeirra sem ósáttir voru, segja viðmælendur Gímaldsins. Rósa Björk starfaði til að mynda tímabundið í forsætisráðuneytinu hjá Katrínu Jakobsdóttur, vegna undirbúnings leiðtogafundar Evrópuráðsins árið 2023 og svo skipaði hún 2. sæti á þeim lista flokksins í Reykjavík sem Svandís Svavarsdóttir, formaður flokksins fór fyrir.
Þau sem Gímaldið ræddi við segja stemninguna innan flokksins heldur vera að færast upp á við á undanförnum vikum. Stemningin hafi verið mjög döpur fram eftir síðasta ári. Áfallið sem forystufólk flokksins hafi orðið fyrir í kosningunum hafi smitað mjög út frá sér. Það sé eðlilega sjokk að vera ráðherra í ríkisstjórn einn daginn og detta út af þingi þann næsta. Allt í einu hætti síminn að hringja, enginn kalli eftir þeirra sjónarmiðum og allt sem þau segi sé rakkað niður. Þessu áfalli hafi fylgt doði hjá forystufólkinu og hann hafi valdið óróa og óþreyju meðal flokksfólks.
Á flokksráðsfundi í Borgarnesi í haust hafi sumir félagsmenn gengið svo langt að leggja til að flokkurinn bæðist afsökunar á allskonar hlutum sem gerðir voru í ríkisstjórninni og það hafi ekki verið til að bæta móralinn.
Þá þrengi fjármálin að flokksstarfinu en flokkurinn fékk svo laka kosningu í síðustu alþingiskosningum að hann datt út af fjárlögum og þarf að reiða sig á félagsgjöld og frjáls framlög.
Nú er hins vegar annasamur tími hjá VG bæði við undirbúning sveitarstjórnakosninga og landsfundar. Tímasetning landsfundarins sé mjög góð, segja viðmælendur. Nægur tími hafi liðið til að fólk hafi að mestu jafnað af áfalli síðustu alþingiskosninga, ljóst sé að mikið tómarúm hafi myndast á vinstri væng íslenskra stjórnmála og kallað sé eftir eftir röddum umburðarlyndis, umhverfisverndar og mannréttinda í umræðuna. Þá þurfi flokkurinn að gíra sig upp fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Landsfundur og forystuskipti sé akkúrat það sem flokkurinn þurfi núna.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.