Anna Agnarsdóttir: Bréfið sem leiddi til byltingar

Í skugga Napóleonsstyrjalda ræna enskir kaupmenn völdum á Íslandi sumarið 1809. Trampe stiftamtmaður, æðsti embættismaður Danakonungs á Íslandi, er handtekinn og Jörgen Jörgensen, túlkur verslunarleiðangursins, tekur að sér stjórn landsins og lýsir yfir sjálfstæði Íslands. Bylting var hafin.

Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Anna Agnarsdóttir er prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur rannsakað sögu Íslands á tímabilinu 1750-1830, einkum verslunarsögu og samskipti Íslands og umheimsins. Markmið rannsókna hennar hefur m.a. verið að varpa ljósi á að á þessum tíma var Ísland aðeins einangrað land í landfræðilegum skilningi, til landsins bárust almennt straumar frá Evrópu og Íslandssagan tengist Evrópusögunni.

Bækurnar í Seríu Sögufélags eru ætlaðar öllu áhugafólki um sögu, jafnt fróðleiksfúsum almenningi sem fræðafólki. Þar eru vandaðar rannsóknir settar fram á aðgengilegan hátt í lifandi frásögn. Hver bók er nákvæmlega 100 blaðsíður að lengd.

Sögufélag  2026 ⎮  Kilja, 100 bls.  ⎮  Verð: 3.590,- 

BYLTING

Jörgen Jørgensen gekk strax til verks. Klukkan 11 morguninn eftir handtöku Trampes var hengd upp fyrsta auglýsingin þar sem hann lýsti yfir sjálfstæði Íslands með þessum áhrifaríku orðum: „Allur danskur myndugleiki er upphafinn á Íslandi.“

Auglýsingin var skrifuð á dönsku en Gunnar Gunnarsson biskupsskrifari var fenginn til að snúa henni á íslensku. Gunnar var tæplega þrítugur og stúdent úr heimaskóla Geirs Vídalín biskups sem réð hann síðan sem ritara sinn. Síðar varð hann prestur í Laufási. Hann hélt dagbók sumarið 1809 sem er merk heimild um atburðina í Reykjavík.

Báðar útgáfur auglýsingarinnar voru hengdar upp í Reykjavík í ausandi rigningu. Markmiðið var að tryggja Bretum völdin í bænum. Lyklar að verslunarhúsunum skyldu afhentir og öll vopn. Dönum, bæði embættismönnum og faktorum, var skipað að halda sig innandyra. Innfæddir þyrftu ekkert að óttast nema þeir brytu gegn ákvæðum auglýsingarinnar, til dæmis áttu börn og konur á hættu að „straffast sem stjórnarstandsins fjandmenn“ ef þau færu í sendiferðir fyrir Dani í bænum. Allar eignir konungs og danskra kaupmanna yrðu gerðar upptækar.

Við lestur 9. greinar auglýsingarinnar hlýtur hrollur að hafa hríslast um bæjarbúa. Hún hljóðaði svo: „Sé þessum vorum boðum strax að fullu hlýtt, mun það að miklum hluta hlífa við óþarfa mælgi og blóðsúthellingu, en skyldi einn eður annar, hver sem er, breyta öðruvísi en hér er fyrirskipað verður hann að skyndingu fastur settur, heimtast fyrir stríðsrétt, og á að skjótast innan tveggja tíma“.

Undir lok skjalsins reyndi Jørgensen þó að róa bæjarbúa með því að taka skýrt fram að markmiðið væri að færa Íslendingum frið og hamingju, nokkuð sem þeir höfðu ekki mikla reynslu af á undanförnum árum.

Næsta skref valdatökunnar var afvopnun Reykvíkinga. Það var hvorki mikið né hættulegt verk. Við vopnaleit fundust um 20 ónýtir byssugarmar og nokkur ryðguð sverð. Að því loknu gat Jørgensen talið sig nokkuð öruggan í bænum.

Undir kvöld sama dag birtist önnur auglýsing þar sem sjálfstæði landsins var ítrekað með þeim fleygu orðum: „Ísland er laust og liðugt frá Danmerkur ríkisráðum“. Nú var komið að því að gera grein fyrir stjórnarstefnu nýja valdhafans. Íslendingar sjálfir skyldu stýra landi sínu á ný. Átta „dugandis og skynsamir“ menn alls staðar á landinu færu með löggjafar- og framkvæmdarvaldið. Fólksfulltrúarnir, eins og Jørgensen kallaði þá (eða byggðarlagaformenn), yrðu þrír frá Suðurlandi, einn úr Austurlandi, tveir úr Norðurlandi og tveir úr Vesturlandi. Skyldu þeir koma saman á fundi til að setja lög og senda frá sér tilskipanir og skyldi allt vera eins og „áður er landið var undir Noregskóngum“.

Einhverrar þekkingar hefur Jørgensen verið búinn að afla sér á sögu Íslands þessa fyrstu mánuði ársins sem hann dvaldi á landinu. Ætlun hans virðist hafa verið að endurreisa hið forna Alþingi, sem hafði reyndar verið lagt niður einungis nokkrum árum áður, um aldamótin 1800, og koma upp vísi að fámennu goðavaldi. Dómsvaldið yrði hins vegar í höndum tólf manna kviðdóms að erlendri fyrirmynd.

Íslenskum embættismönnum var boðið að sitja áfram í embætti ef þeir væru „trúir sínu föðurlandi“ og höguðu sér skikkanlega. Þeir sem bjuggu í nærliggjandi sveitum skyldu senda Jørgensen skriflegar stuðningsyfirlýsingar innan 14 daga; þeir sem bjuggu fjær fengju sjö vikna frest. Danskfæddra embættismanna og þeirra Íslendinga sem neituðu að þjóna Jørgensen beið einfaldlega útlegð. Þeir yrðu fluttir til Vestmannaeyja til að koma í veg fyrir að þeir spilltu friðnum „með undirferli“ og þaðan yrði þeim skilað til Danmerkur „fritt“. Það er einkar athyglisvert að Daninn Jørgensen gerir hér skýran mun á Íslendingum og Dönum, þeim fyrrnefndu í hag.

Hið nýja Ísland skyldi vera hlutlaust og koma sér upp eigin vörnum og fána. Umbætur í heilbrigðis- og skólamálum voru boðaðar. Landsmenn mættu framvegis ferðast frjálslega um allt landið, en fram að þessu var óheimilt að fara milli hreppa, hvað þá sýslna, án leyfis hreppstjóra eða sýslumanns. Var það gert til að hefta flakk fátæklinga. Jafnframt máttu Íslendingar nú versla hvar sem þeir vildu. Skuldir við danska kaupmenn voru felldar niður. Íslendingar voru undanþegnir helmingi skatta fram til 1. júlí 1810. Kornverð yrði lækkað og kornbirgðir sendar um allt land eftir þörfum.

Undir báðar auglýsingarnar þennan dag skrifaði Jörundur einfaldlega nafn sitt, Jörgen Jörgensen — engan titil. Hann leitaði nú að hæfum Íslendingi í stiftamtmannsembættið og daginn eftir bauð hann það Ísleifi Einarssyni yfirdómara, sem hafði verið settur stiftamtmaður í fjarveru Trampes greifa. „Ég er ekki væntanlegur til þeirra starfa“, sagði Ísleifur stuttur í spuna. Magnúsi Stephensen var einnig boðið þetta embætti, sem hann hafði áður sóst eftir, en afþakkaði sömuleiðis.

Ekki gekk betur að fá Íslending í landfógetaembættið. Rasmus Frydensberg var Dani og varð því að láta af embætti vegna þjóðernis. Lögfræðingurinn Sigurður Thorgrímsen, ritari Trampes, og Finnur Magnússon, þá málaflutningsmaður í Landsyfirrétti og starfsmaður landfógetans, neituðu að taka embættið að sér og það var ekki fyrr en um mánuði síðar, 2. ágúst, að Árni Jónsson, kallaður Reynistaðamágur, kaupmaður og fyrrum bryti í Bessastaðaskóla, var loks til í tuskið. Jörgensen gekk illa að fá hæfa menn til að starfa við hlið sér. Neyddist hann til að taka að sér stjórn landsins vegna áhugaleysis Íslendinga?

Soldátar í litríkum klæðum

Jörgensen settist að í stiftamtmannsbústaðnum, Austurstræti 22, enda var Trampe á bak við lás og slá um borð í Margaret and Ann og húsið því autt. Byltingarleiðtogar þrifast illa án herstyrks og eitt fyrsta verk Jörgensen var að koma sér upp herliði. „Soldátarnir“ hans voru aðeins átta, þar sem vopnaskortur í landinu leyfði ekki fleiri.

Hverjir voru þessir menn? Fyrirliði þeirra var Jón stúdent Guðmundsson sem hafði verið í þjónustu Trampes og einnig unnið eitthvað fyrir Ísleif Einarsson. Annars voru þetta menn sem áttu „lítils úrkosti“, frekar óálitlegur hópur, „landhlauparar og bófar“ samkvæmt fréttaritinu Íslenskum sagnablöðum, en í heftinu sem gefið var út árið 1817 var ýtarleg frásegnum um byltinguna. Nokkrir höfðu vissulega setið inni og einn þeirra, Jónas Jónsson, hafði Trampe til dæmis nýleyst úr haldi. Hann hafði verið náðaður við ríkistöku Friðriks VI. árið áður. Hermenn Jørgensens voru launaðir, fengu 16 skildinga á dag, fæði og klæði.

Einkennisbúningar voru saumaðir á þá: grænar, rauðbryddaðar treyjur og heiðblár síðbuxur — ökklabrækur að sið franskra byltingarmanna, með svarta silkiklúta um hálsinn. Þeir báru korða (sverð) og byssur en kunnu ekki að beita þeim. James Savignac var fenginn til að æfa þá í vopnaburði en ekki tókst betur til en svo að þegar Jørgensen skipaði þeim að skjóta af pístólum sínum gekk það „ekki greitt, því þeir voru stirðhentir af hræðslu“, segir samtímaheimild. Sjálfur gekk verndarinn um í breskum einkennisbúningi flotaforingja með axlaskúfum, vopnaður sverði og pístólu.

Jørgensen keypti hesta handa herliðinu — þetta var riddaralið — og hýsti þá í flottasta húsinu í Reykjavík, Tukthúsinu eða „Múrnum“ eins og fangelsið var kallað, en það er nú skrifstofa forsætisráðherra, Stjórnarráðshúsið. Því þurfti að rýma það og standsetja. Í lok júní 1809 sátu aðeins fjórir fangar inni. Lausnarbréf Þuríðar Nikulásdóttur þjófs, sem hafði setið inni síðan 1803, hefur varðveist en henni var sleppt 28. júní og hótað öllu illu ef hún tæki upp fyrri háttsemi á ný.

Varnarleysi Íslands var byltingarmönnum áhyggjuefni en talið var nauðsynlegt að koma upp vörnum í sjálfstæðu landi. Virki var reist við Arnarhól af soldátunum, ásamt bæjarbúum sem fengu laun fyrir. Virkið gekk undir ýmsum nöfnun, var kallað Phelpsskans eða Batteríið. Alls greiddi Jörgensen um 109 ríkisdali fyrir virkishleðsluna. Sex ryðgaðar fallbyssur frá 17. öld voru síðar grafnar upp á Bessastöðum, fluttar til Reykjavíkur og komið fyrir í hinu nýhlaðna virki. Í byrjun ágúst var Peter Malmquist, sænskur beykir, skipaður virkisstjóri með 300 ríkisdali í árslaun, sem var sama upphæð og kennari við Bessastaðaskóla fékk.

Jörgensen stóð við loforð sín og daginn eftir valdaránið lækkaði hann verðið á rúgtunnunni. Síðan var gengið í upptöku konungseigna en lítið var eftir í Jarðabókasjóðnum eftir Gilpinsránið sumarið áður. Ráðist var inn í vöruhús danskra kaupmanna og hald lagt á fé, reikningsbækur og vörubirgðir. Þegar kaupskipið Tykkebay kom með 10 þúsund ríkisdali frá konungi til Jarðabókasjóðsins var umsvifalaust lagt hald á þá. Allar vörur sem voru nýkomnar til landsins á skipum danskra kaupmanna voru gerðar upptækar.

Mikilvægt var einnig að semja við íslenska kaupmenn um áframhaldandi verslun landsmanna við ensku sápukaupmennina. Þetta var jú fyrst og fremst verslunarleiðangur! Jörgensen reið sjálfur til kaupmanna í Hafnarfirði, Keflavík og á Eyrarbakka og Stefán Stephensen amtmaður, bróður Magnúsar, sinnti þessum erindum í Vesturamtinu. Jörgensen gleymdi ekki „þegnum sínum“ utan suðvesturhornsins. Hann leigði 60 hesta af sýslumanninum í Rangárvallasýslu til kornflutninga og voru þeir sendir norður í land.

 

[Anna Agnarsdóttir: Bréfið sem leiddi til byltingar, bls. 47-51]

 

Síðast uppfært: 13. nóvember, 2026
Deila grein:
Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link