Tíma­bært að segja skil­ið við minni­mátt­ar­kennd­ina

Lestími: 10 mínútur

Það gerði Pawel Bartoszek að Evr­­ópu­­sinna að fylgj­­ast með Pól­landi og ná­grönn­­um þess frels­­ast und­­an oki komm­ún­­is­m­ans og ganga í ESB. Hann seg­ist ekki hafa sér­­stak­­ar áhyggj­­ur af upp­­lýs­inga­óreiðu eða til­­raun­­um er­­lendra að­­ila til að hafa áhrif á Evr­ópu­um­ræð­una sem fram und­­an er. Stuðn­ings­fólk að­ild­ar að geti hins veg­ar margt lært af kosn­inga­bar­átt­unni í að­drag­anda Brex­it.

Þing­mað­ur­inn Pawel Bar­toszek hef­ur lengi ver­ið Evr­ópusinn­i, allt frá því hann fylgd­ist með ríkj­um sem frelsuðu sig und­an oki komm­ún­ism­ans og gengu í ESB og NATO í lok síð­ustu ald­ar. Hann gegnir nú formennsku í utanríkismálanefnd en á næstunni mun nefndin taka fyrir tillögu ríkisstjórnarinnar um aðþann 29. ágúst næstkomandi fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.

Pawel seg­ist ekki hafa sér­stak­ar áhyggj­ur af upp­lýs­inga­óreiðu eða til­raun­um er­lendra að­ila til að hafa áhrif á um­ræð­una um Evr­ópu­mál sem fram und­an er vegna þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem ráð­gerð er í haust um fram­hald að­ild­ar­við­ræðna við Evr­ópu­sam­band­ið. Ís­land sé traust lýð­ræð­is­ríki og þjóð­in búi yf­ir rót­gró­inni um­ræðu­hefð. Stuðningsfólk aðildar að Evrópusambandinu geti hins vegar lært margt lært af kosningabaráttunni í Bretlandi í aðdraganda Brexit.

Gímald­ið ræð­ir við Pawel um Evr­ópu­sam­band­ið, sig­ur­sögu Pól­lands, Brex­it og sam­tal­ið sem fram und­an er vegna þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald að­ild­ar­við­ræðna sem áform­uð er í lok ágúst. Hægt er að hlusta á við­talið í spil­ar­an­um hér að of­an og í öll­um helstu hlað­varpsveit­u­m.

„Við er­um því mið­ur að horfa upp á heim þar sem toll­ar og við­skipta­hindr­an­ir eru í aukn­um mæli not­að­ar í póli­tísk­um til­gangi og þá tel ég það auka full­veldi Ís­lands og auka okk­ar efna­hags­legu varn­ir að taka þátt í við­skipta­banda­lag­i,“ seg­ir Pawel.

Þau sem andsnú­in eru að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu vísa gjarn­an til þess að með að­ild af­sali Ís­land full­veldi sín­u. Að­spurð­ur seg­ist Pawel svara því með því að spyrja á móti hvort Þýska­land sé full­valda rík­i, hvort Frakk­land sé full­valda rík­i, hvort öll hin 27 lönd­in sem eru í Evr­ópu­sam­band­inu séu full­valda rík­i.

„Það væri al­veg gal­in leið, til að auka full­veld­i, að segja sig úr Evr­ópu­sam­band­in­u.“

„Svar­ið er aug­ljóst. Öll þessi ríki eru full­valda og þau hafa ákveð­ið að nýta sér full­veld­ið og auka sín­ar efna­hags­legu varn­ir og auka sinn sam­taka­mátt með því að taka þátt í banda­lag­i. Það er mitt svar við því,“ seg­ir Pawel og bæt­ir við: „Og ef mað­ur myndi spyrja ein­hvern í Eystra­salts­ríkj­un­um hvort fólk­ið þar teldi að þeirra full­valdi væri bet­ur borg­ið ef þau myndu segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu þá held ég að svör­in hjá nán­ast öll­um á hinu póli­tíska lit­rófi yrðu á sömu leið. Það væri al­veg gal­in leið, til að auka full­veld­i, að segja sig úr Evr­ópu­sam­band­in­u.“

Pawel seg­ist þó skilja til­finn­ing­ar Ís­lend­inga, í ljósi sjálf­stæð­is­bar­átt­unn­ar og þungr­ar áherslu á að fá lög­gjaf­ar­vald­ið til Ís­lands. „En ég held að það sé kannski kom­inn tími til þess að við segj­um að skil­ið við þetta sem ég myndi kalla minni­mátt­ar­kennd. Það er ekki þannig að ríki Evr­ópu glati full­veldi sínu með því að taka þátt í þessu póli­tíska banda­lagi sem Evr­ópu­sam­band­ið er. Þvert á móti líta mörg þeirra svo á að þau treysti full­veld­ið sitt með þátt­tök­unn­i.“

Fólki borgað fyrir atkvæði í Moldóvu

Pawel seg­ist ekki kvíða um­ræð­unni um Evr­ópu­mál­in þótt þau hafi ver­ið eld­fim og nú ótt­ist marg­ir bæði upp­lýs­inga­óreiðu og jafn­vel til­raun­ir er­lend­is frá til áhrifa.

„Í grunn­inn er ég ekki mjög svart­sýnn á að við lend­um í því að þessi ákvörð­un verði tek­in af ein­hverj­um öðr­um en okk­ur sjálf­um,“ seg­ir Pawel sem hef­ur þó heyrt ým­is­legt og séð á ferð­um sín­um um Evr­ópu. Hann nefn­ir ferð til Mold­óvu þar sem stjórn­völd lýstu til­raun­um er­lendra að­ila til að hafa áhrif á kosn­ing­ar. „Það var oft bara með þeim beina hætti að fólki var borg­að fyr­ir að kjósa með til­tekn­um hætt­i. Fólk gat hlað­ið nið­ur appi, skrif­að nið­ur reikn­ings­núm­er, tek­ið mynd af kjör­seðl­in­um og fékk svo greitt fyr­ir­,“ seg­ir Pawel og bæt­ir við: „Ég hef satt að segja eng­ar áhyggj­ur af því að þannig að­ferð­ir munu nokkurn tím­ann virka hér á land­i. Við er­um ein­fald­lega of rót­gró­ið lýð­ræð­is­ríki til þess.“

For­ystu­kon­ur rík­is­stjórn­ar­inn­ar hafa lýst því yf­ir að rík­is­stjórn­in sjálf muni ekki taka bein­an þátt í kosn­inga­bar­áttu í að­drag­anda at­kvæða­greiðsl­unn­ar. Pawel bend­ir á að þótt þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­an sé í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­inn­ar séu að­eins tveir af þrem­ur stjórn­ar­flokk­um hlynnt­ir Evr­ópu­sam­bands­að­ild og þrátt fyr­ir að rík­is­stjórn­in sjálf muni ekki beita sér sem slík, tel­ur Pawel að ein­staka flokk­ar muni engu að síð­ur hafa ákveð­ið svig­rúm til þess að sann­færa fólk um sinn mál­stað.

„Mín af­staða í Evr­ópu­mál­um ligg­ur fyr­ir og ég mun bæði styðja það að þjóð­in kjósi og ég mun líka tala fyr­ir því og reyna að sann­færa sem flest fólk um að segja já í þess­ari at­kvæða­greiðslu sem fram und­an er, að fólk haldi þess­um mögu­leika opn­um og fá­um að vita hvað sé í boði með end­an­leg­um að­ild­ar­samn­ing­i,“ seg­ir Pawel.

Sigurganga Póllands

Pawel ræð­ir einnig Pól­land og fram­færa­skeið þess. „Vöxt­ur Pól­lands er auð­vit­að mik­il sig­ur­saga og það gild­ir um fleiri lönd í þess­um heims­hluta. Þannig að þeg­ar menn slá því upp að Evr­ópu­sam­band­ið sé sökkvandi skip og brenn­andi hús eða eitt­hvað það­an af verra, þá verð­ur að hafa í huga að þarna inni eru lönd sem hafa vax­ið gríð­ar­lega á und­an­förn­um ár­um. Lönd eins og Pól­land og önn­ur ríki í Aust­ur-­­Evr­ópu,“ seg­ir Pawel en nefn­ir líka lönd eins og Dan­mörku sem hef­ur ver­ið lengi í Evr­ópu­sam­band­in­u. Þar sé mik­il ný­sköp­un og efna­hags­leg­ur vöxt­ur. en auð­vit­að líka lönd sem eru líka okk­ur meira. Dan­mörk hef­ur ver­ið í Evr­ópu­sam­band­inu leng­i. Dan­mörk vegn­ar mjög vel, þau eru ríki sem sýn­ir mik­il og ný­sköp­un og mik­il efna­hags­leg­an vöxt.

Pawel seg­ist viss um að Evr­ópu­sam­band­ið hafi gegnt lyk­il­hlut­verki fyr­ir vel­gengni Pól­lands. „Það var gott fyr­ir ríki í aust­ur­hluta álf­unn­ar að fá ein­hvers kon­ar for­skrift af því hvern­ig ætti að reka nú­tíma­legt kap­ít­alist­a­rík­i, ef svo má að orði kom­ast, með áherslu á frjáls­an mark­að og lýð­ræði og fá í raun­inni svona ná­kvæm­lega leið­sögn í því, og líka mik­inn stuðn­ing frá sam­band­inu í heild sinn­i,“ seg­ir hann og bæt­ir við: „Það er mjög gleði­legt að sjá hvað Pól­landi vegn­ar vel, þessu gamla heima­landi mín­u. Ég held að Evr­ópu­sam­band­ið eigi líka ein­hvern þátt í því.“

Lærdómur Brexit

Innt­ur eft­ir því hvort Ís­lend­ing­ar geti lært eitt­hvað af út­göngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu og at­kvæða­greiðslu þess efn­is fyr­ir ára­tug, seg­ir Pawel að þau sem tali fyr­ir Evr­ópu­hug­sjón­um geti dreg­ið lær­dóm af því hvern­ig um­ræð­an fór fram.

„Ég veit ekki hvort Ís­lend­ing­ar geti lært eitt­hvað af Brex­it en við sem trú­um á Evr­ópu sem get­um sann­ar­lega lært mik­ið af þeirri kosn­inga­bar­átt­u.“

„Mér sýn­ist Brex­it í heild sinni hafa ver­ið skelf­ing­ar­saga. Þetta hef­ur ekki geng­ið vel, hvorki efna­hags­lega, póli­tískt, né í öðru til­lit­i. Þjóð­in er enn þá klof­in og ósátt við þessa ákvörð­un ára­tug síð­ar­,“ seg­ir Pawel og bæt­ir við: „Ég held að þeir sem töl­uðu fyr­ir áfram­hald­andi veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu hafi, að að mínu mat­i, gert það af mjög veik­um mætti og reyndu að láta eins og þau væru í raun­inni ESB­-and­stæð­ing­ar inni við bein­ið og það fór sem fór þannig. Ég veit ekki hvort Ís­lend­ing­ar geti lært eitt­hvað af Brex­it en við sem trú­um á Evr­ópu sem get­um sann­ar­lega lært mik­ið af þeirri kosn­inga­bar­átt­u.“

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 7. mars, 2026, 12:55

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link