
Ég hélt svo sannarlega ekki með Ísrael í landsleiknum gegn Austurríki í vikunni. Ég hélt svo sem ekki heldur með Austurríki. En þegar ég sá myndband af fagnaðarlátum unga leikmannsins sem var rekinn af velli eftir að hafa að sögn „líkt eftir því að skjóta úr byssu“, fannst mér sú lýsing orðum aukin.

Mér fannst ekkert ógnandi við látbragð hans. Ég sá billjarðhreyfingu.
Ég fór að skoða málið betur. Það fékk mig líka til að hugsa um hvað við sjáum og hvað fer fram hjá okkur. Hér er það sem ég fann, fyrir ykkur sem hafið svipaðan áhuga á hliðarveröld fótboltans og ég.
Þetta sá ég. Sayed Abu Farchi hafði skorað sitt fyrsta mark fyrir ísraelska landsliðið. Hann hljóp að hornfánanum, tók hann upp, lagði aðra höndina flata eins og á billjarðborði og notaði stöngina eins og kjuða. Hann var þegar kominn með gult spjald, fékk annað eftir fagnaðarlætin og var rekinn af velli.
Fyrirsagnir um ísraelskan leikmann sem hefði fagnað marki með því að þykjast skjóta úr byssu fóru strax á flug. Í ljósi frétta af hernaði Ísraels finnst mér skiljanlegt að fólk hafi séð byssuhreyfingu. Það er auðvelt að hneykslast á slíkri frétt og ekkert skrítið að fólk bregðist við henni.

En Abu Farchi hafði fagnað mörkum með svipaðri hreyfingu áður. Landsliðsþjálfarinn sagði eftir leikinn að þetta væri hans venjulega fagn og eftir leikinn birti leikmaðurinn myndband af fagnaðarlátunum með þessu tjákni: 🎱
Faðir hans hefur einnig sagt að hann hafi mikið dálæti á billjarði. Í kjölfarið hafa birst fréttir þar sem sú skýring er tekin til greina. En eins og við vitum eiga leiðréttingar ekki jafn greiða leið að fólki og fréttir sem vekja reiði.
Svo fór ég að lesa um landsliðsmanninn sjálfan. Abu Farchi er tvítugur arabi frá Baqa al-Gharbiyye, 30 þúsund manna arabískum bæ í Ísrael. Íbúarnir eru nær allir múslimir, flestir palestínskir arabar með ísraelskt ríkisfang. Eitt prósent bæjarbúa kaus flokkana í hægristjórn Benjamins Netanyahu í síðustu kosningum.
Abu Farchi var tíu ára þegar hann byrjaði að æfa hjá Maccabi Tel Aviv, hann var prúður drengur og skildi þá nær enga hebresku. Fyrrverandi þjálfari hans rifjaði upp að faðir hans hefði staðið utan við girðinguna og þýtt leiðbeiningar þjálfaranna yfir á arabísku fyrir drenginn sinn.

Ég fann líka sögu frá janúar í fyrra. Þá skoraði Abu Farchi gegn Beitar Jerusalem. Hluti stuðningsmanna þess félags syngur opinskátt og af stolti um að liðið sé það rasískasta í Ísrael. Þar hafa líka heyrst söngvar um að brenna palestínsk þorp og drepa araba. Ég hef ekki geð í mér til að hafa meira eftir, en hér að neðan má sjá brot úr heimildamynd um stuðningsmannahópinn. Hún er rúmlega tíu ára gömul, en kynþáttahatur á meðal stuðningsmanna Beitar er síður en svo liðin tíð, langt því frá.
Mohammed, faðir Abu Farchi, sagði að á meðan á leiknum stóð hefði stuðningsmenn Beitar ítrekað kallað son hans hryðjuverkamann auk annarrar illmælgi. Þegar Mohammed fagnaði marki sonar síns hljóp hópur stuðningsmanna Beitar að honum ógnandi og með svívirðingum.
Viðbrögð ísraelsku lögreglunnar voru þau að handtaka Mohammed og færa hann til yfirheyrslu vegna gruns um óspektir. Hann hafnaði því að hafa gert nokkuð annað en að fagna. Honum var síðar sleppt en jafnframt bannað að sækja leiki í 60 daga. Mér hefur ekki tekist að finna upplýsingar um að stuðningsmönnunum sem hlupu að honum hafi verið refsað.
Og áður en einhver segir: „Já, en ef Ísrael er aðskilnaðarríki, hvernig getur arabi þá verið í landsliðinu?“ þá er svarið að Abu Farchi er ísraelskur ríkisborgari. Vera hans í landsliðinu segir ekkert um réttindi Palestínumanna, hvað þá á Vesturbakkanum og Gaza.
Á Vesturbakkanum búa Palestínumenn og ísraelskir íbúar landtökubyggða á sama landsvæði en lúta ólíkum réttarkerfum. Palestínumenn sæta herlögum og ferðatakmörkunum. Fólk er drepið, heimili þess rifin og lífsviðurværi eyðilagt. Fjölskyldur missa ekki aðeins húsin sín heldur líka landið og möguleikana á að sjá sér farborða.

Gaza er orðin að risavöxnum fangabúðum þar sem fólk kemst hvorki undan ofbeldinu né fær það sem það þarf til að lifa. Eyðileggingin er af óþekktum skala.
Arabískir ríkisborgarar Ísraels búa líka við mismunun. Hún birtist meðal annars í skipulagi og úthlutun lands og húsnæðis og í fjárveitingum til skóla og innviða. Lög takmarka einnig möguleika ísraelskra ríkisborgara á að búa í Ísrael með maka frá Vesturbakkanum eða Gaza.
Að Abu Farchi hafi komist í landsliðið segir meira um hæfileika hans en um jafnræði í landinu.
Mér finnst ósanngjarnt að gera Abu Farchi að tákni fyrir hernaðarofbeldi Ísraels vegna fagnaðarláta sem virðast hafa verið rangtúlkuð. Það er jafn ósanngjarnt að nota hann sem sönnun þess að Palestínumenn njóti jafnra réttinda.
Hann er tvítugur knattspyrnumaður úr minnihlutahópi sem skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og fagnaði með hreyfingu sem vel var hægt að misskilja.
Mér finnst saga hans áhugaverð því stundum sjáum við eitthvað sem gerðist aldrei, en horfum fram hjá því sem blasir við.
Heimildir:
Viðtal við fyrrverandi þjálfara um æsku hans, tungumálið og föðurinn sem þýddi yfir girðinguna: https://www.sport5.co.il/articles.aspx?FolderID=64&docID=443164
Viðtal við Mohammed Abu Farchi eftir handtökuna og 60 daga bannið: https://www.sport5.co.il/articles.aspx?FolderID=64&docID=494030
Fyrri frásögn Mohammeds af því þegar stuðningsmenn Beitar hlupu að honum: https://www.sport5.co.il/articles.aspx?FolderID=64&docID=494009
Beitar Jerusalem. Stutt myndskeið úr heimildamyndinni Forever Pure, þar sem stuðningsmenn syngja um að vera rasískasta liðið: https://www.theguardian.com/news/video/2015/nov/24/beitar-jerusalem-most-racist-football-team-israel-video
Frásögn úr stúkunni af söng stuðningsmanna um að brenna þorp: https://www.whatahowler.com/chaos-on-the-right-wing/
Umfjöllun um kynþáttaníð á leikjum ísraelsku deildarinnar tímabilið 2024–2025: https://www.theguardian.com/football/2025/oct/23/research-reveals-racist-chants-on-rise-in-israeli-football-with-maccabi-tel-aviv-the-worst-offenders
Vesturbakkinn, Gaza og réttindi arabískra ríkisborgara Ísraels. B’Tselem um ólík réttarkerfi fyrir Palestínumenn og íbúa landtökubyggða á Vesturbakkanum: https://www.btselem.org/publications/summaries/47_year_long_temporary_occupation
Nýleg stöðuskýrsla Sameinuðu þjóðanna um Gaza og Vesturbakkann, meðal annars árásir, niðurrif húsa og brottflutning fólks: https://www.ochaopt.org/content/humanitarian-situation-report-18-september-2026
Adalah um mismunun í skipulagi og úthlutun lands: https://www.adalah.org/en/content/index/2007
Adalah um fjárveitingar til skóla og þjónustu í arabískum samfélögum: https://www.adalah.org/en/content/index/2019
Adalah um lög sem takmarka fjölskyldusameiningu þegar maki er frá Vesturbakkanum eða Gaza: https://www.adalah.org/en/law/view/511
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.