Evr­ópu­mál­ið: Ágrein­ing­ur þing­heims í sex lið­um

Lestími: 36 mínútur

Efl­ing eða fram­sal full­veld­is, við­ræð­ur eða að­lög­un, lægra vaxta­stig eða smjör­klíp­a, samn­ings­staða Ís­lands, tíma­setn­ing at­kvæða­greiðslu og kostn­að­ur við þetta allt sam­an. Gímald­ið rýndi í mál­flutn­ing þingheims um Evr­ópu­mál­ið og setur fram sex punkta sem stjórnarliðar og stjórnarandstaða takast á um.

Um­ræða um fyr­ir­hug­aða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald að­ild­ar­við­ræðna við Evr­ópu­sam­band­ið stend­ur nú yf­ir á Al­þing­i. Skýr­ar fylk­ing­ar með og á móti ræddu mál­ið á löng­um þing­fund­um á mánu­dag og þriðju­dag en gert var hlé á um­ræð­um vegna nefnda­daga á mið­viku­dag og fimmtu­dag. Um­ræðu verð­ur fram ­hald­ið eft­ir helg­i.

Í um­ræð­um þing­manna var deilt um fjölda at­riða sem tengj­ast ým­ist að­ild að Evr­ópu­sam­band­in­u, eðli við­ræðna um að­ild og þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni sjálfri; tíma­setn­ingu henn­ar og upp­lýs­inga­gjöf stjórn­valda í að­drag­and­an­um. Gímaldið rýndi í röksemdir sem þingheimur setur fram máli sínu til stuðnings og rekur sex punkta sem stjórnarliðar og stjórnarandstaða takast á um.

1. Afdrif fullveldisins

Líkt og bú­ast mátti við kom full­veldi Ís­lands mjög við sögu í um­ræð­un­um. Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unn­ar lýstu áhyggj­um af bæði valda­fram­sali og af­sali auð­linda en stjórn­ar­þing­menn sögðu að í at­kvæða­greiðsl­unni fælist iðk­un full­veld­is og lögðu áherslu á að að­eins full­valda ríki gætu átt að­ild að ríkja­banda­lag­i.

Stjórn­ar­and­stað­an: Af­sal full­veld­is og veik­ara sjálf­stæði

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, varar við því að færa valdið til Brussel. Mynd/RÚV/Ragnar Visage

Guð­rún Haf­steins­dótt­ir, for­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, setti tón­inn fyr­ir stjórn­ar­and­stöð­una með því að lýsa mál­inu sem grund­vall­ar­spurn­ingu um fram­tíð Ís­lands sem sjálf­stæðr­ar þjóð­ar. Hún var­aði við því að færa vald­ið til Brus­sel og sagði ákvörð­un um við­ræð­ur vera póli­tíska ákvörð­un um að setja Ís­land á að­ild­ar­braut þar sem for­ræði yf­ir auð­lind­um og öðr­um lyk­il­hags­mun­um geti ver­ið í húfi.

„Einmitt þess vegna vilj­um við að þjóð­in haldi völd­um sín­um. Þeir sem tala um að færa vald yf­ir til Brus­sel treysta þjóð­inni ekki.“ (Guð­rún Hafsteinsdóttir)

Diljá Mist Ein­ars­dótt­ir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði mik­il­vægt að ræða hvað að­ild raun­veru­lega þýð­i. Að­ild að ESB fylgi fram­sal valds til stofn­ana sam­bands­ins, ólíkt að­ild að EES­­ samn­ingn­um. Slíkt valda­fram­sal sé and­stætt því að þjóð­in ráði sín­um mál­um sjálf.

Stef­án Vagn Stef­áns­son, nýr for­mað­ur þing­flokks Fram­sókn­ar færði rök fyr­ir and­stöðu flokks­ins við að­ild að ESB. MYND/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Stef­án Vagn Stef­áns­son, þing­flokks­for­mað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði for­ræði yf­ir auð­lind­um ekki venju­legt samn­ings­at­riði held­ur grunn­stoð­ ís­lensks sjálf­stæð­is. Fram­sókn telji að ákvarð­an­ir eigi að vera tekn­ar sem næst fólk­inu og vald eigi ekki að fær­ast sí­fellt lengra frá kjós­end­um inn í stærri eða fjar­læg­ari kerf­i.

Þá sé and­staða Fram­sókn­ar við að­ild er ekki and­staða við sam­starf. „Það er eng­in mót­sögn í því að vera al­þjóðasinn­uð þjóð og vilja samt ekki ganga í Evr­ópu­sam­band­ið. Ís­land get­ur átt ná­ið og gott sam­starf við Evr­ópu án þess að af­sala sér meira ákvörð­un­ar­valdi en nauð­syn­legt er.“

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son, for­mað­ur Mið­flokks­ins, sagði full­veld­is­rétt­inn hafa reynst Ís­landi vel og að óvar­legt sé að stefna hon­um í hættu með því að færa ákvörð­un­ar­vald yf­ir til Evr­ópu­sam­bands­ins.

Guð­laug­ur Þór Þórð­ar­son benti á að lög­gjaf­ar­vald inn­an ESB sé að veru­legu leyti hjá fram­kvæmda­stjórn­inn­i, ekki þjóð­þing­um að­ild­ar­ríkja, og vakti at­hygli á þeim mál­efna­svið­um sem Ís­land þyrfti að taka upp við að­ild en tek­ur ekki þátt í á grund­velli EES, þar á með­al á sviði tolla, sjáv­ar­út­vegs og land­bún­að­ar.

Stjórn­ar­lið­ar: Full­valda ríki eflast í ríkja­banda­lög­um

Stjórn­ar­lið­ar lögðu áherslu á að full­veldi felist í að þjóð­in ráði eig­in veg­ferð, þar á með­al hvort hún vilji styrkja stöðu sína með að­ild að ríkja­banda­lög­um. Að leyfa þjóð­inni sjálfri að ákveða næstu skref sé kjarn­inn í full­veld­i, ekki fram­sal þess.

„Sum­ir hafa stig­ið fram og sagt að nú sé bar­átt­an haf­in um fram­tíð Ís­lands og full­veldi þess. Því er ég bara hjart­an­lega sam­mála,“ sagði Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir, ut­an­rík­is­ráð­herra. „Það að leyfa ís­lensku þjóð­inni sjálfri að taka ákvörð­un um fram­tíð lands­ins okk­ar er sann­ar­lega full­veld­is­mál.“ Hún lýsti Evr­ópu­sam­band­inu sem sam­bandi full­valda lýð­ræð­is­ríkja sem eru sterk­ari sam­an en í sund­ur.

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir, ut­an­rík­is­ráð­herra, mælti fyr­ir til­lögu stjórn­ar­inn­ar um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í haust. MYND/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Ut­an­rík­is­ráð­herra lagði áherslu á að að­ild­ar­ríki ESB líti svo á að þrátt fyr­ir ein­hvern ramma sem að­ild set­ur þá sé ávinn­ing­ur­inn svo mik­ill að ramm­inn sé þess virð­i.

„Ég hef ekki feng­ið það á til­finn­ing­una að fólk í Evr­ópu sé bug­að og mjög beygt og upp­lifi sig að hafa tap­að full­veldi eða sjálf­stæði með að­ild,“ sagði ráð­herra og bætti við:

„Spyrj­ið Dan­i, Sví­a, Finna. Fólk er með­vit­að um kost­ina. Fólk er líka með­vit­að um gall­ana en það vill ekki fara til bak­a. Það vill ekki fara til baka í sundraða Evr­ópu.“

„Ég hef ekki feng­ið það á til­finn­ing­una að fólk í Evr­ópu sé bug­að og mjög beygt og upp­lifi sig að hafa tap­að full­veldi eða sjálf­stæði með að­ild.“ (Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir)

Dag­ur B. Egg­erts­son og Dabjört Há­kon­ar­dótt­ir, þing­menn Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, vís­uðu til kann­ana um af­stöðu íbúa ESB-­­ríkja til að­ild­ar. Stuðn­ing­ur­inn sé á bil­inu 70–80 pró­sent, jafn­vel í lönd­um þar sem af­stað­an áð­ur var nær því að vera 50/50. „Nú er fólk­ið á göt­unni í þess­um lönd­um sterk­ir stuðn­ings­menn ESB­að­ild­ar og nefna ör­ygg­ið sem eitt af því sem skipt­ir veru­legu máli,“ sagði Dag­ur.

Pawel Bar­toszek, þing­mað­ur Við­reisn­ar tel­ur það fela í sér minni­mátt­ar­kennd að ótt­ast um full­veld­ið. „Við eig­um ekki að stunda neina minni­máttar­kennd í okk­ar ut­an­rík­is­stefn­u. Við eig­um að þora að taka okk­ar ákvarð­an­ir, ekki út frá ótta við við­brögð ann­arra held­ur hvað er best fyr­ir okk­ur. Við er­um full­valda þjóð. Við ráð­um okk­ar veg­ferð sjálf og við eig­um að standa sam­an um þann sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt.“

Sitt sýn­ist hverj­um um mun­inn á EES og ESB

Guð­laug­ur Þór Þórð­ars­son, þing­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ir lög­gjaf­ar­vald­ið inn­an ESB sé að veru­legu leyti hjá fram­kvæmd­ar­stjórn­inn­i. MYND/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Guð­laug­ur Þór Þórð­ar­son, þing­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, benti á að lög­gjaf­ar­vald inn­an ESB sé að veru­legu leyti hjá fram­kvæmda­stjórn­inn­i, ekki þjóð­þing­um að­ild­ar­ríkja.

Hann lagði líka áherslu á mun­inn á EES-sam­starf­inu og fullri ESB að­ild, en Ís­land taki upp EES-regl­ur með inn­lendri laga­setn­ing­u, en ESB­-að­ild feli í sér fram­sal ákvörð­un­ar­valds til stofn­ana sam­bands­ins.

Þá vakti Guðlaugur at­hygli á nokkrum þeirra mál­efna­sviða sem Ís­land taki ekki þátt í á grund­velli EES samn­ings­ins en þyrfti að taka upp við að­ild að ESB. Þar séu með­al ann­ars tolla­mál, sjáv­ar­út­vegs­mál og land­bún­að­ar­mál.

Pawel Bar­toszek benti hins veg­ar á að Ís­land taki nú þeg­ar stór­an hluta evr­ópsks reglu­verks í gegn­um EES­­-samn­ing­inn án þess að hafa mik­ið um það að segja.

„Við þiggj­um þess­ar regl­ur stund­um með þökk­um, stund­um með dassi af efa­semd­um, en við sköp­um þær ekki bein­t.“ Með að­ild að ESB fengi Ís­land sex full­trúa á Evr­ópu­þing­ið, at­kvæð­is­rétt í ráð­inu og full­trúa í fram­kvæmda­stjórn­ina. Hann var­aði við því að horfa of mik­ið í smæð lands­ins:

„Ef við hugs­um þannig gæt­um við aldrei tek­ið þátt í neinu al­þjóða­sam­starf­i. Þvert á móti bygg­ir menn­ing Evr­ópu­sam­bands­ins á því að reynt sé að sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu í flest­um mál­um og rödd allra ríkja skipt­ir máli,“ sagði Pawel.

2. Staða efna­hags­mála

Hátt vaxta­stig á ís­landi og óstöðugt efna­hags­á­stand hafa ver­ið ein helstu rök Evr­ópu­sinna fyr­ir að­ild og stjórn­ar­lið­ar hömr­uðu tölu­vert á því í ræð­um sín­um. Stjórn­ar­and­stað­an ræddi líka um erf­ið­leika í efna­hags­lífi þjóð­ar­inn­ar og sögðu boð­aða Evr­ópu­um­ræðu til­raun stjórn­ar­inn­ar til að breiða yf­ir þann vanda.

Stjórn­ar­lið­ar: Lægri vext­ir og bætt staða heim­ila og at­vinnu­lífs

Stjórn­ar­lið­ar sögðu stöðu ís­lensks efna­hags­lífs vera Evr­ópu­mál.

Dag­ur B. Egg­erts­son lagði áherslu á að kerf­is­læg­ur vandi ís­lensks efna­hags­lífs, háa vexti og verð­bólg­u, væri Evr­ópu­mál. Hann benti á að ný kyn­slóð „þurfi að borga sömu íbúð­ina þrisvar í stað­inn fyr­ir einu sinni eins og jafn­aldr­ar þeirra inn­an Evr­ópu­sam­bands­ins“ og að hags­mun­ir þeirra væru í húfi.

„Eig­um við ekki að tala um þessa stóru hags­muni lík­a? Við eig­um að tala um lífs­kjör al­menn­ings og kom­andi kyn­slóð­a.“

Pawel Bar­toszek, for­mað­ur ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar, var í við­tali hjá Gímald­inu á dög­un­um og fór yf­ir sína af­stöðu í Evr­ópu­mál­u­m. Mynd/Erla Hlyns­dótt­ir

Pawel Bar­toszek, þing­mað­ur Við­reisn­ar, tók í sama streng:

„Við bú­um vissu­lega við gjald­mið­il sem er sér­snið­inn fyr­ir okk­ur en það þjón­ar okk­ur ekk­ert sér­stak­lega vel. Við bú­um við hærri vexti og meiri verð­bólgu en ná­grann­ar okk­ar og þannig hef­ur það ver­ið leng­i. Það hafa ekki all­ir fjár­mála­ráð­herr­ar lýð­veld­is­ins ver­ið kján­ar. Vand­inn er kerf­is­læg­ur.“

Pawel gaf lít­ið fyr­ir við­var­an­ir um evr­ópskt at­vinnu­leysi og benti á að rétt­ara væri að skoða ríki sem eru lík­ust Ís­land­i. D­an­mörk búi við svip­að at­vinnu­leysi og Ís­land, en mun lægri vext­i.

Pawel nefndi líka við­skipta­legt ör­ygg­i: „Við sjá­um því mið­ur vax­andi tolla og við­skipta­hindr­an­ir í heim­in­um. Við­skipti eru í aukn­um mæli vopna­vædd til að ná geopóli­tísk­um mark­mið­u­m. Að vera hluti af öfl­ugri við­skipta­blokk styrk­ir efna­hags­leg­ar varn­ir okk­ar og þar með full­veldi okk­ar.“

Ut­an­rík­is­ráð­herra vís­aði til ný­legs við­tals við seðla­banka­stjóra Króa­tíu þar sem fram kom að hús­næð­is­vext­ir þar séu orðn­ir lægri en í Þýska­landi eft­ir inn­göngu í Evr­ópu­sam­band­ið og upp­töku evru í árs­byrj­un 2023.

„Ég vil vita meira um þetta, í þágu ís­lenskra fjöl­skyldna, ís­lenskra heim­ila og ís­lensks at­vinnu­lífs,“ sagði Þor­gerð­ur Katrín.

Stjórn­ar­and­stað­an: Smjör­klípa til að breiða yf­ir efna­hags­vanda

Vin­sælt stef hjá þing­mönn­um stjórn­ar­and­stöð­unn­ar var að saka rík­is­stjórn­ina um að nota ESB-­um­ræð­una til að beina at­hygli frá stöð­unni í efna­hags­mál­um heima fyr­ir. Vís­að var til þrá­látr­ar verð­bólg­u, hárra vaxta og vax­andi at­vinnu­leys­is.

„Í stað þess að rík­is­stjórn­in horf­ist í augu við þessi verk­efn­i, í stað þess að hún leggi fram trú­verð­uga áætl­un um stöð­ug­leika, þá leit­ar hún skjóls í deilu um Evr­ópu­sam­band­ið,“ sagði Guð­rún Haf­steins­dótt­ir og bætti við:

„Verð­bólg­an er enn þrá­lát, vext­ir eru enn of há­ir, at­vinnu­leysi vex, fyr­ir­tæki finna fyr­ir óvissu, heim­il­in finna fyr­ir þrýst­ing­i. Raun­veru­leg­ur stöð­ug­leiki byrj­ar nefni­lega heima. Það er ekki hægt að fela skort á ár­angri í inn­an­lands­mál­um með því að opna nýj­an og djúp­stæð­an ágrein­ing um full­veldi Ís­lands. Það er ekki hægt að nota ESB sem póli­tíska ábreiðu þeg­ar rík­is­stjórn­in ræð­ur ekki við verð­bólg­u, vexti og at­vinnu­leysi.“

Sig­mund­ur Dav­íð spurði hvers vegna Ís­land ætti að steypa sér í deil­ur um að­ild þeg­ar full­veld­is­rétt­ur­inn hefði reynst þjóð­inni svo vel und­an­far­in ár.

Hann sagði full­veld­is­rétt­inn hafa kom­ið Ís­landi út úr áföll­um banka­hruns­ins og hafa „skap­að hér meiri hag­vöxt og meiri vel­sæld held­ur en Evr­ópu­sam­band­ið get­ur lát­ið sig dreyma um­.“

Alþingi 2025 Þórunn Sveinbjarnardóttir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokkur 4
For­mað­ur Mið­flokks­ins seg­ir Evr­ópu­mál­ið leið stjórn­ar­inn­ar til að beina at­hygl­inni frá vanda­mál­um heima fyr­ir. MYND/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Sigmundur lýsti ESB á hnign­un­ar­stigi og í enda­laus­um deil­um dag frá degi við sjálft sig og spurði hvers vegna kos­ið væri að steypa ís­lensku þjóð­inni í átök um að­ild við slík­ar að­stæð­ur.

Hann sagði rík­is­stjórn­ina hafa gef­ist upp á verk­efni sínu og að­gerð­ir henn­ar hafa „ekki skil­að ár­angri held­ur aft­ur­för á alla mæli­kvarða; verð­bólg­u, stöðu heim­il­anna og at­vinnu­leysi.“ Að opna djúp­stæð­an ágrein­ing um full­veldi Ís­lands sé ekki lausn á vand­an­um inn­an­lands, held­ur leið til að beina at­hygl­inni ann­að.

Dag­ur B. Egg­erts­son svar­aði þess­ari gagn­rýni með því að benda á að Mið­flokk­ur­inn væri „kom­inn svo langt út á tún að hann er far­inn að tala gegn lægri vöxt­u­m, vegna þess að þeir skila ekki nein­u. Þannig er hat­r­ið á Evr­ópu­sam­band­inu að Mið­flokk­ur­inn geng­ur gegn lyk­il­hags­mun­um nýrr­ar kyn­slóð­ar­,“ sagði Dag­ur.

3. Við­ræð­ur eða að­lög­un?

Mikl­um tíma um­ræð­unn­ar var var­ið í að ræða þýð­ingu og eðli að­ild­ar­við­ræðn­a. Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unn­ar héldu því fram að svo­kall­að­ar að­ild­ar­við­ræð­ur séu ekki raun­veru­legt samn­inga­ferli held­ur fyrst og fremst að­lög­un­ar­ferli að reglu­verki sam­bands­ins. Að mati stjórn­ar­liða er hins veg­ar rangt að halda því fram að ekk­ert sé um að semja.

Stjórn­ar­and­stað­an: Að­lög­un frek­ar en samn­inga­ferli

Guð­rún Haf­steins­dótt­ir sagði í ræðu sinni að með um­sókn séu ríki að und­ir­búa inn­göngu og laga sitt lagaum­hverfi að regl­um ESB. Upp­taka reglu­verks­ins sé for­senda ferl­is­ins, ekki nið­ur­staða samn­inga. Því sé rangt að gefa í skyn að óljóst sé hvað felist í að­ild.

Diljá Mist Ein­ars­dótt­ir vís­aði til upp­lýs­inga frá ESB sjálfu: „Um­sókn­ar­ríki verða að sam­þykkja reglu­verk­ið áð­ur en þau geta geng­ið í Evr­ópu­sam­band­ið og gera það að hluta af lands­lög­um sín­um. Upp­taka og inn­leið­ing reglu­verks­ins er grund­völl­ur við­ræðn­anna. Hversu hratt við­ræð­urn­ar ganga fyr­ir sig fer eft­ir því hversu fljótt hvert ríki kem­ur á um­bót­um og að­lag­ast reglu­verki sam­bands­ins. Mark­mið við­ræðn­anna er að um­sókn­ar­rík­ið taki upp reglu­verk­ið í heild.“

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son gekk enn lengra og sagði hug­mynd­ina um að „kanna hvað sé í boð­i“ blekk­ing­u. Með um­sókn sé rík­ið þeg­ar bú­ið að ákveða að ganga í sam­band­ið og að­lög­un hefj­ist strax, með­al ann­ars með laga­breyt­ing­um og upp­bygg­ingu stjórn­sýslu.

Stjórn­ar­lið­ar: Mörg dæmi um sér­lausn­ir og samn­inga

„Ég vil biðja háttvirta þing­menn að fyll­ast ekki van­mátt­ar­kennd og halda því fram að við mun­um engu fá áork­að við samn­inga­borð­ið. Slíkt dug­leysi er að mínu mati ekki held­ur í sam­ræmi við ís­lensku leið­ina,“ sagði Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir.

Ut­an­rík­is­ráð­herra tók fram að Sví­ar og Finn­ar tryggðu sér­lausn fyr­ir land­bún­að á norð­ur­slóð­um í sínu að­ild­ar­ferli og að Dan­ir og Malt­verj­ar næðu fram und­an­þág­um vegna kaupa er­lendra að­ila á fast­eign­um.

„Við eig­um að láta á það reyna hvort ekki verði það sama upp á ten­ingn­um í til­viki að­ild­ar­við­ræðna Ís­lands­,“ sagði hún og vís­aði til Mörtu Kos, stækk­un­ar­stjóra ESB, sem sagði ný­lega að sam­band­ið tæki „mið af sér­stök­um að­stæð­um um­sókn­ar­ríkja í að­ild­ar­við­ræðu­ferli hverju sinn­i.“

„Við að­ild vær­um við auð­vit­að að ganga í banda­lag með fyr­ir­liggj­andi regl­um og ramma. Við þekkj­um það. En hins veg­ar eru nokk­uð mörg dæmi frá fyrri að­ild­ar­við­ræð­um að ESB-­­rík­in hafa ver­ið reiðu­bú­in að gera breyt­ing­ar á regl­um sín­um til að taka til­lit til sér­stöðu og meg­in­hags­muna nýrra að­ild­ar­ríkja,“ sagði Þorgerður Katrín.

Dag­björt Há­kon­ar­dótt­ir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, seg­ir við­ræð­­ur réttu leið­ina til að styrkja samn­ings­­stöðu lands­ins. MYND/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Dag­björt Há­kon­ar­dótt­ir tók í sama streng og benti á að ef ekk­ert væri um að semja, þá lægi samn­ing­ur­inn þeg­ar fyr­ir, en svo sé aug­ljós­lega ekki. Við­ræð­ur séu einmitt leið­in til að kort­leggja hags­muni Ís­lands og styrkja samn­ings­stöðu lands­ins.

„Ef það væri ekk­ert um að semja þá vær­um við kom­in með samn­ings­drög í tölvu­póst­i,“ sagði Dag­björt.

Pawel Bar­toszek vís­aði til yf­ir­lýs­ing­ar for­sæt­is­ráð­herra Pól­lands um að Evr­ópu­sam­band­ið þurfi að sýna meiri sveigj­an­leika. Hann sagði það góð­ar frétt­ir fyr­ir ís­lenska þjóð­ar­hags­muni að leið­togi eins af stærstu ríkj­um ESB lýsi slíku yf­ir.

4. Upp­lýs­inga­gjöf fyr­ir at­kvæða­greiðslu

Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unn­ar gerðu at­huga­semd­ir við að ekki lægju fyr­ir næg­ar upp­lýs­ing­ar til að þjóð­in gæti tek­ið upp­lýsta ákvörð­un í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Mest áhersla var lögð á að rík­is­stjórn­in væri ekki bú­in að skil­greina mark­mið samn­inga­við­ræðna en einnig var fund­ið að því að kostn­að­ar­mat vegna að­ild­ar­við­ræðna liggi held­ur ekki fyr­ir.

Stjórn­ar­and­stað­an: Samn­ings­mark­mið­in liggja ekki fyr­ir

Þrátt fyr­ir að telja eng­ar sér­lausn­ir í boði fyr­ir um­sókn­ar­ríki gagn­rýna þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unn­ar til­lögu ut­an­rík­is­ráð­herra fyr­ir að til­taka eng­in samn­ings­mark­mið. Þjóð­in eigi að taka af­stöðu án þess að vita hvaða hags­muni ís­lensk stjórn­völd hygg­ist verja í samn­ing­um, hvar rauðu lín­urn­ar liggi eða hvaða und­an­þág­ur séu raun­hæf­ar.

„Ef rík­is­stjórn­in vill um­boð frá þjóð­inni til að fara í þessa veg­ferð þá er al­gjört lág­mark að hún upp­lýsi þjóð­ina um það hvað hún ætl­ar að semja um. Við hverju er þjóð­in að segja já eða nei? Hvað eru ís­lensk stjórn­völd að fara að verja? Hverj­ar eru rauðu lín­urn­ar sem við mun­um ekki stíga yf­ir? Hvaða und­an­þág­um telja þau sig geta náð fram? Hvað á að ger­ast í sjáv­ar­út­veg­i? Hvað á að ger­ast í orku­mál­um og hvað á að ger­ast í land­bún­að­i?“ spurði Guð­rún Haf­steins­dótt­ir.

Stef­án Vagn Stef­áns­son tók í sama streng: „Þjóð­in á að vita, áð­ur en hún kýs um fram­hald­ið, hvar Ís­land dreg­ur hina rauðu lín­u. Hún á að vita hvað er samn­ings­at­riði og hvað er það ekki. Hún á að vita hvað stjórn­völd telja ófrá­víkj­an­legt í sjáv­ar­út­veg­i, orku­mál­u­m, land­bún­að­i, byggða­mál­um og öðr­um lyk­il­mál­u­m. Það er ekki nóg að ut­an­rík­is­ráð­herra skýri það út í við­tals­þátt­um í út­varp­in­u.“

Stjórn­ar­lið­ar: Við­ræð­ur sjálf­ar leið­in til að kort­leggja hags­muni

Stjórn­ar­lið­ar lögðu áherslu á að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­an snú­ist ekki um að­ild held­ur um hvort halda eigi við­ræð­um áfram. Við­ræð­ur séu einmitt leið­in til að kort­leggja hags­muni Ís­lands og styrkja samn­ings­stöðu lands­ins, jafn­vel þótt nið­ur­stað­an verði að standa áfram ut­an ESB.

„Þessi þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla snýst ekki um kosti og galla Evr­ópu­sam­bands­ins. Hún snýst ein­fald­lega um hvort halda eigi að­ild­ar­við­ræð­un­um áfram eða ekki, að vita meira,“ sagði Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir.

Dag­björt Há­kon­ar­dótt­ir sagði fá mál henta bet­ur til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu en einmitt þetta. Að taka svona stór­ar ákvarð­an­ir án að­komu al­menn­ings grafi und­an traust­i, en op­ið sam­tal og lýð­ræð­is­legt ferli styrki sam­fé­lag­ið, óháð því hver nið­ur­stað­an verð­i.

Stjórn­ar­lið­ar leggja áherslu á að þjóð­in hafi alltaf síð­asta orð­ið: fyrst um hvort halda eigi við­ræð­um áfram og síð­ar, ef samn­ing­ar nást, um hvort ganga eigi í Evr­ópu­sam­band­ið.

Utanríkisráðherra og aðrir þingmenn stjórnarliðsins lögðu hins vegar áherslu á að ekkert yrði gefið eftir þegar kæmi að helstu hagsmunum Íslands.

Vísað var til þess að þau markmið sem sett hefðu verið þegar umsóknarferlið hófst árið 2009 eigi enn við en þá var lögð megináhersla á hagsmuni Íslands á sviði orku- og auðlindamála, sjávarútvegsmála, landbúnaðar- og byggðamála, umhverfismála, atvinnu- og iðnaðarmála, almannaþjónustu og félagslegra mála, gjaldmiðilsmála, EES-mála, öryggis- og varnarmála, skatta- og tollamála auk fjármála og fjárlaga ESB.

Stjórn­ar­and­stað­an: Kostn­að­ar­mat ligg­ur ekki fyr­ir

Sig­ríð­ur Á. And­er­sen lagði áherslu á að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla ætti ekki að fara fram fyrr en kostn­að­ar­mat á að­ild­ar­við­ræð­um lægi fyr­ir.

„Það er grund­vall­ar­at­riði frá mín­um bæj­ar­dyr­um séð að þessi þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla verði ekki hald­in fyrr en bú­ið er að leggja fyr­ir þing­ið ít­ar­leg samn­ings­mark­mið og kostn­að­ar­mat á að­ild­ar­við­ræð­u­m.“

Sig­ríð­ur Á And­er­sen, þing­flokks­for­mað­ur Mið­flokks­ins, seg­ir að þjóð­in þurfi að vita hvað við­ræð­urn­ar kosti áð­ur en hún er spurð álits. MYND/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Hún skýrði að hún ætti ekki við kostn­að af þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni held­ur af að­ild­ar­við­ræð­u­m, bæði bein­an kostn­að við sér­fræði­á­lit, starfs­menn og ferða­lög, og óbein­an kostn­að þeg­ar starfs­fólk ráðu­neyta fær­ist frá öðr­um verk­efn­um.

„Ár­ið 2009 mat ut­an­rík­is­ráðu­neyt­ið kostn­að­inn tæp­lega millj­arð króna. Fjár­mála­ráðu­neyt­ið taldi þá áætl­un allt of gróf­ar og með mikl­um skekkju­mörk­um. Þá vant­aði líka óbein­an kostn­að.“

Sig­ríð­ur hvatti ut­an­rík­is­mála­nefnd til að kalla fram reikn­ings­skil eft­ir að­ild­ar­við­ræð­ur 2009 og kostn­að­ar­á­ætl­an­ir allra ráðu­neyta, „þannig að al­menn­ing­ur sé al­veg upp­lýst­ur um það hvaða fórn­ir verða færð­ar fyr­ir þessu.“

Í andsvör­um stjórn­ar­liða var í flest­um til­vik­um tek­ið vel í þá kröfu að kostn­að­ar­mat verði lagt fram.

5. Samn­ings­staða Ís­lands

Stjórn­ar­lið­um var tíð­rætt um að samn­ings­staða Ís­lands væri sér­stak­lega góð núna og betri en áð­ur. Í síð­ustu við­ræð­um hefði Ís­lands ver­ið í veik­ari stöðu en nú og við það bæt­ist að það séu víð­sjár­verð­ir tím­ar í Evr­ópu og Evr­ópa sjái hag í því að fá Ís­land inn.

Stjórn­ar­lið­ar: Samn­ings­stað­an aldrei betri

Ut­an­rík­is­ráð­herra lagði áherslu á að Ís­land stæði nú mun sterkara en síð­ast þeg­ar að­ild­ar­við­ræð­ur fóru fram. „Staða okk­ar er sterk­ari en þeg­ar að­ild­ar­við­ræð­ur fóru fram síð­ast í skugga efna­hags­hruns og gjald­eyr­is­hafta. Samn­ings­staða okk­ar er góð,“ sagði hún.

Dag­ur B Egg­erts­son, þing­mað­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, tel­ur það þjóna hags­mun­um Ís­lands vel að vera um­sókn­ar­rík­i. MYND/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

„Það er ís­lenska leið­in að þora að taka hug­rakk­ar ákvarð­an­ir. Nú er einmitt rétti tíma­punkt­ur­inn fyr­ir þjóð­ina okk­ar að taka af­stöðu til þess hvort við eig­um að halda áfram að­ild­ar­við­ræð­un­um við ESB. Því er ein­ung­is rétt að þjóð­in fái að ákveða hvort við nýt­um okk­ur þenn­an styrk­leika með því að fá samn­ing á borð­ið.“

Þung­inn í mál­flutn­ingi meiri­hlut­ans bæði um samn­ings­stöðu Ís­lands og um gildi al­þjóða­sam­starfs, ein­skorð­að­ist að mestu leyti við við­sjár­verða tíma í dag. Vernd­ar­hyggja, tolla­stríð, vopn­vædd við­skipti og auk­inn afls­mun­ur stór­velda hafi sett smá­ríki í við­kvæma stöð­u.

Í ræð­um stjórn­ar­liða kem­ur fram að styrk­ur Ís­lands felist ekki að­eins í stöðu efna­hags­mála, held­ur einnig í breytt­um al­þjóð­leg­um að­stæð­u­m. Evr­ópu­sam­band­ið sjálft standi frammi fyr­ir nýj­um ör­ygg­is­á­skor­un­um, þörf fyr­ir sam­stöðu og auk­inn skiln­ing á stöðu smá­ríkja. Það styrki samn­ings­stöðu Ís­lands, enda hafi sam­band­ið ríka hags­muni af stöð­ugu lýð­ræð­is­legu ríki á Norð­ur­­Atl­ants­hafi með sterk­ar teng­ing­ar við NATO og Vest­ur­lönd.

„Hvern­ig tryggj­um við stöðu okk­ar Ís­lend­inga, frelsi okk­ar og full­veldi í þess­um breytta heim­i?“ (Þor­gerð­ur Katrín Gunnarsdóttir)

Þor­gerð­ur Katrín vís­aði til ný­legr­ar ræðu Marks Car­neys, for­sæt­is­ráð­herra Kana­da, um við­sjár­verða tíma í heimi þar sem stór­veld­in láta afl ráða frek­ar en lög og rétt. Car­n­ey hefði sagt að við þær að­stæð­ur þyrftu miðl­ungs­stór ríki að vinna sam­an til að styrkja stöðu sína í heimi stór­veld­anna.

„Við hljót­um að spyrja okk­ur hver sé þá staða lít­ils rík­is eins og Ís­lands. Hvern­ig tryggj­um við stöðu okk­ar Ís­lend­inga, frelsi okk­ar og full­veldi í þess­um breytta heim­i?“ spurði Þor­gerð­ur.

Dag­ur B. Egg­erts­son benti á að að­ild­ar­við­ræð­ur ein­ar og sér geti veitt Ís­landi ákveð­ið skjól og styrkt stöðu lands­ins gagn­vart ytri þrýst­ing­i. Að­ild að tolla­banda­lagi og sam­staða Evr­ópu­ríkja geti kom­ið í veg fyr­ir að ein­stök ríki standi ein­angr­uð frammi fyr­ir hót­un­um stór­velda.

Stjórn­ar­and­stað­an: Efa­semd­ir um samn­ings­stöðu

Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unn­ar dróg­u, sem fyrr seg­ir, veru­lega í efa að Ís­land gæti náð ásætt­an­leg­um samn­ing­um þar sem ferl­ið feli frek­ar í sér að­lög­un en við­ræð­ur. Eins var gagn­rýnt að ekki væri hnykkt á samn­ings­mark­mið­um í til­lög­unni sem kjós­end­ur í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu gætu treyst á.

6. Tíma­setn­ing at­kvæða­greiðsl­unn­ar

Mik­ið var deilt um tíma­setn­ingu fyr­ir­hug­aðr­ar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og var með­al ann­ars gagn­rýnt að hún fari fram á sama ári og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Helst var þó gagn­rýnt að þing­ið verði ekki kom­ið sam­an. Stjórn­ar­lið­ar svör­uðu fyr­ir dag­setn­ing­una og sögðu að best hefði far­ið á því að hún hefði ver­ið hald­in ár­ið 2009.

Stjórn­ar­and­stað­an: Tíma­setn­ing­in er af­leit

Stjórn­ar­and­stað­an gagn­rýndi að at­kvæða­greiðsl­an eigi að fara fram á sum­ar­leyf­is­tíma þings og þjóð­ar. Mik­il gagn­rýni beind­ist að því að kjósa eigi í lok ágúst, þeg­ar Al­þingi er í sum­ar­hléi og al­menn sam­fé­lags­um­ræða í lág­marki.

„Það er ástæða fyr­ir því að við göng­um aldrei til kosn­inga á þess­um tíma,“ sagði Diljá Mist Ein­ars­dótt­ir og benti á að þing­ið geti þá ekki lagt al­menn­ingi lið við upp­lýs­inga­öfl­un.

Guð­rún Haf­steins­dótt­ir spurð­i: „Ef rík­is­stjórn­in vill raun­veru­lega upp­lýsta um­ræð­u, af hverju vel­ur hún þá þann tíma sem er hvað verst til þess fall­inn að skapa djúpa og vand­aða sam­fé­lags­um­ræð­u?“

Sig­ríð­ur Á. And­er­sen lýsti efa­semd­um um að þing­ið fengi ekki tæki­færi til að ræða gögn og um­ræð­ur sem kæmu fram yf­ir sum­ar­ið áð­ur en kos­ið yrð­i.

„Mik­il um­ræða mun fara af stað af hálfu gras­rót­ar­sam­taka, fræði­manna og al­menn­ings. Mik­ið af gögn­um verða lögð fram. Það er ágætt að það ger­ist hérna ut­an þings­ins en ég velti fyr­ir mér hvort það sé eðli­legt að þing­ið fái ekki tæki­færi til þess að ræða það hér í þess­um sal,“ sagði Sigríður.

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son orð­aði það svo að rík­is­stjórn­in vilji að al­menn­ing­ur taki af­stöðu „með sem minnst­ar upp­lýs­ing­ar.“

Stjórn­ar­lið­ar: Fyrr betra en seinna

Pawel Bar­toszek svar­aði gagn­rýni um tíma­setn­ingu og sagði hana fyr­ir­sjá­an­lega.

„Ég held að það hefði hent­að miklu bet­ur að af­greiða þetta mál miklu fyrr, jafn­vel í upp­hafi ferl­is­ins ár­ið 2009 eða þeg­ar þessu var sleg­ið á frest. Það að gera það ekki skap­aði gjá og skaut­un í sam­fé­lag­inu sem hef­ur ekki að fullu leyti gró­ið.“

Pawel benti á að það gæti ver­ið kost­ur að mál­ið sé ekki í miðju þing­haldi og að svig­rúm skap­ist fyr­ir um­ræðu áð­ur en kos­ið er, líkt og í kring­um sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. „Ég ef­ast ekki um að þing­menn og aðr­ir taki þátt í um­ræð­um og kosn­inga­bar­átt­u­.“

Pawel sagði gott að kjósa um mál­ið fyrr en seinna til að rík­is­stjórn­in hafi tíma til að halda áfram með mál­ið verði svar­ið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni já­kvætt um fram­hald við­ræðn­a. „Ef já kem­ur, fái rík­is­stjórn­in tíma til að hefja við­ræð­ur; ef kos­ið væri í árs­lok 2027 væri lít­ill tími eft­ir til að vinna úr nið­ur­stöð­unn­i.“

Sam­an­burð­ur ólíkra sjón­ar­miða

Hér hef­ur að­eins ver­ið stikl­að á stóru um þau fjöl­mörgu sjón­ar­mið sem viðruð voru í um­ræð­unni á Al­þingi í upp­hafi vik­unn­ar. Um­ræð­an held­ur áfram eft­ir helgi og mun ef­laust vara fram­ eft­ir viku. Á mynd­inni hér að neð­an má sjá sam­an­burð helstu sjón­ar­miða stjórn­ar­liða og stjórn­ar­and­stöð­u.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:26

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link