
Hvaða herrum þjónar forseti Alþingis og hver fer með dagskrárvald þingsins í raun og veru? Þessum spurningum og mörgum öðrum svarar Birgir Ármannsson, fyrrverandi þingforseti í viðtali um leikjafræðina á Alþingi.

Birgir Ármannsson sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í rúma tvo áratugi áður en hann lét gott heita eftir síðasta kjörtímabil. Birgir gegndi stöðu þingflokksformanns og var forseti Alþingis síðasta kjörtímabil sitt.
Gímaldið leitar svara hjá Birgi við spurningum um hvaða herrum þingforseti þjóni í raun og veru, hver fari með dagskrárvaldið á þingi og hvernig því er beitt. Við ræðum dagskrárliði eins og fundarstjórn forseta, hvernig forseti geti haldið sönsum þegar allt verður vitlaust, hvort hann komist á klósettið þegar greidd eru atkvæði um fjárlög og margt fleira.
Þótt Birgir sé sáttur við að hafa hætt á þingi og hafi í fyrstu verið óskaplega feginn, viðurkennir hann að stundum sakni hann síns gamla vinnustaðar.
„Svona af og til kemur upp hjá manni einhver gamall pólitíkus sem er að trufla mann,“ segir Birgir, en þegar hann hætti á þingi í nóvember 2024 ákvað hann að setja sjálfan sig í eins árs pólitískt þagnarbindindi.
„Það er liðið núna og að undanförnu er ég búin að vera að skrifa greinar um Evrópumálin og á kannski eftir að skrifa fleiri,“ segir hann. Það sé ákveðinn lúxus að geta látið í sér heyra um þau mál sem hann hefur lengi fylgst með og haft áhuga á, en látið hið daglega þras á þingi fram hjá sér fara.
Í viðtalinu ræðir Birgir meðal annars um stöðu þingforsetans, hversu langt hlutleysiskrafa til hans gengur og hvernig slíkum kröfum er háttað hjá öðrum þjóðþingum.
Á Íslandi má þingforseti áfram sitja í sínum þingflokki og taka þátt í starfi síns flokks. Hann tekur þátt í atkvæðagreiðslum á Alþingi og getur líka tekið þátt í umræðum. Birgir segist nokkrum sinnum hafa tekið þátt í umræðum fyrsta árið á forsetastóli. Hann hafi svo ákveðið að hætta því.
„Ég hugsaði með mér, ef það kemur eitthvað risastórt mál þar sem ég hef mjög heitar skoðanir þá vil ég eiga þetta inni en ég ætla ekki að vera að standa í þrasi hér við þingmenn, úr öðrum flokkum, sem ég þarf síðan að eiga gott samstarf við,“ segir Birgir.
Birgir segir einföldun að halda því fram að forseti Alþingis sé þjónn ríkisstjórnarinnar. „Þingforsetinn auðvitað hefur það hlutverk að láta þingstörfin ganga sæmilega fyrir sig og það er auðvitað hluti af því starfi að tryggja, eftir því sem kostur er, að meirihlutaviljinn í þinginu nái fram að ganga.“ Oftast hafi ríkisstjórnarflokkarnir meirihluta og því ákveðnar löglíkur fyrir því að mál sem ríkisstjórn ber fram hafi stuðning í þinginu. Þetta skýri forgang stjórnarfrumvarpa fram yfir þingmannamál.
„Menn þurfa alltaf að minna sig á að við búum í þingræðisríki þar sem ríkisstjórn styðst við meirihluta í þinginu en ekki öfugt. Þannig að það er hlutverk þingmanna úr öllum flokkum að veita ríkisstjórninni aðhald og þingið tekur ekki við fyrirmælum frá ríkisstjórninni.“
Birgir segist hafa lært af reynslunni að aukin upplýsingagjöf minnki líkur á því að allt fari í hund og kött í þinginu. „Bæði þegar ég var þingforseti og líka sem þingflokksformaður, var reynslan nú sú að því meiri upplýsingar sem maður gat og vildi gefa þingflokksformönnum, þeim mun betra; þeim mun minni líkur voru á því að það kviknaði í húsinu, ef svo má segja.“
Um undirbúning fyrir málþóf segir Birgir að ef forseti hafi tilfinningu fyrir því að mál fari í málþóf geti hann þurft að sætta sig við að það yfirtaki allt. Hafi málþóf verið fyrirsjáanlegt um tiltekið mál sé best að sætta sig við það og bregðast við því til dæmis með því að taka málið fyrir á rólegum tíma í þinginu, eins og í nóvember frekar en í desember.
„Málþófsmenn verða oft mjög fegnir þegar þeir fá svona tækifæri vegna þess að þá geta þeir hvílt sig á málþófinu á meðan.“
„Ef mál er þess eðlis að ríkisstjórn er mjög eindregin í því að koma því áfram og stjórnarandstaðan annað hvort öll eða hluta er mjög einbeitt í því að koma í veg fyrir að það nái fram að ganga þá, verða menn bara að reikna með að það taki einhvern tíma og þá kemst ekkert mikið annað að á meðan,“ segir Birgir.
Birgir segir þó oft reynt að ná samkomulagi, þegar málþóf dregst á langinn, fyrir einn dag í senn, til dæmis um að eitt til tvö afgreiðslumál sem þurfi hraða afgreiðslu, séu sett á dagskrána á undan málþófsmálinu Dæmi um slík mál hafi verið mál tengd eldsumbrotum á Reykjanesi eða Covid mál.
„Þá töluðu menn um það fyrirfram að þau fengju einhvern ákveðinn tíma og svo færu menn bara í málþófið aftur,“ segir Birgir og bætir við:
„Málþófsmenn verða oft mjög fegnir þegar þeir fá svona tækifæri vegna þess að þá geta þeir hvílt sig á málþófinu á meðan. Þannig að það getur að vissu leyti verið beggja hagur að gera svona samninga fyrir í dag og dag í einu.“
Birgir bendir á að málþófsvopnið sé oftast eina vopnið sem stjórnarandstaðan hafi í þinginu því meirihlutinn hafi yfirburðarstöðu í þinginu.
oft er það þannig það er partur af þinginu já það er auðvitað partur af leikjafræðinni og það sem þeir sem eru í stjórnarandstöðu á hverjum tíma að benda á er það að málþóf eða hótun um málþóf er í mörgum tilvikum eina vopnið sem stjórnarandstaðan hefur meiri hlutinn hefur yfirburðastöðu, bæði í nefndum og í atkvæðagreiðslum. En minnihlutinn hafi málfrelsið að vopni. Á móti því er þó til þetta kjarnorkuvopn sem er í 71. gr. þingskapa, heimild forseta til að stöðva umræður.

Aðspurður viðurkennir Birgir að hafa oft hugsað til þessa ákvæðis. „Frá því að ég settist á þing 2003, hafa með reglulegu millibili komið upp málþóf eða málþófsaðstæður sem hafa gert það að verkum að stjórnarflokkar, þingflokkar eða að minnsta kosti einstaka þingmenn meirihlutanum hafa íhugað mjög alvarlega að beita þessu.“ Svo hafi aðrar leiðir fundist eða menn komist að þeirri niðurstöðu að klókara væri að sleppa því en að nota það.
„Það er bara þannig að reglan er fyrir hendi í þingsköpum og það dregur enginn í efa að það er hægt að beita henni. Það eru tveir möguleikar, annað hvort kemur forseti með þessa tillögu eða níu þingmenn geta komið með þá tillögu að umræðan verði stöðvuð og þá er það bara meirihluti atkvæða í þingsal sem ræður hvort tillagan er samþykkt eða ekki,“ segir Birgir og bætir við:
„Ég myndi nánast þora að fullyrða að umræður bak við tjöldin um að beita þessu ákvæði hafa komið upp á hverjum einasta vetri.“ Ókosturinn sé að beiting þess geti haft áhrif á öll samskiptin í þinginu. Svo þurfi fólk líka að átta sig á að taflið geti snúist við og þeir sem beittu reglunni orðið fyrir því síðar að reglunni verði beitt gegn þeim sjálfum. „Þannig að þetta er svona spurning um leikjafræði og mat á pólitískum aðstæðum,“ segir Birgir.
Í viðtalinu er farið vítt og breitt um leikjafræði þingstarfanna og persónulega reynslu Birgis af forsetastóli. Hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum hér að ofan og í öllum helstu hlaðvarpsveitum.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.