Au pair-kerfið til endurskoðunar hjá dómsmálaráðuneytinu

Lestími: 6 mínútur

Dómsmálaráðherra segir til skoðunar að herða verulega skilyrði vistráðningarleyfa eða afnema þau alfarið, í ljósi vísbendinga um misnotkun kerfisins. Í Noregi hefur au pair-kerfið fyrir einstaklinga utan EES verið lagt niður. Hún bendir á að þær sem hingað koma standi „afskaplega veikt“ og séu í viðkvæmri stöðu

„Við erum að skoða það hvort við förum í annaðhvort að herða verulega á skilyrðunum eða fella þetta alfarið út,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, um vistráðningarleyfi fyrir au pair frá ríkjum utan EES-svæðisins.

Vistráðningakerfið, eða au pair-kerfið eins og það er almennt þekkt, er byggt á hugmyndinni um menningarskipti. Ungt fólk kemur til landsins, býr hjá íslenskri fjölskyldu, sinnir léttum heimilisstörfum og kynnist menningu og tungumáli. Í staðinn fær viðkomandi fæði, húsnæði og vasapeninga.  Au pair vist fylgir ekki atvinnuleyfi, og dvalarleyfi þeirra er skilgreint sem námsmannaleyfi. Skýr merki eru hins vegar um að vistráðningarkerfið á Íslandi sé í reynd misnotað til að útvega ódýrt vinnuafl.

Gímaldið fjallaði 4. mars um áhyggjur ASÍ af au pair-kerfinu og birti skjáskot úr Facebookhópi þar sem meðal annars var rætt um að deila einni au pair á tveimur heimilum og þrif sem þær sinna.

Sjá einnig: Ungar konur notaðar sem ódýrt vinnuafl: Hætta á misneytingu í au pair-kerfinu

Í skýrslu starfshóps dómsmálaráðuneytisins frá nóvember 2025 er lagt til við stjórnvöld að „skoðað sé afnám eða veruleg takmörkun vistráðningarleyfis“. Þar segir: „Íslensk framkvæmd stendur á krossgötum hvað varðar vistráðningar“ og að „skilyrði slíkra leyfa og eftirlit með vistráðningum hér á landi eru mun veikari en í löggjöf annarra norrænna ríkja“. Í skýrslunni er jafnframt bent á að í málaflokknum sé að finna „víðtæk frávik og misræmi“ miðað við önnur Norðurlönd, sem geti gert viðkvæma hópa útsetta fyrir hagnýtingu og leitt til aukins innflæðis fólks frá ríkjum utan EES.

Ennfremur er vísað til Noregs, þar sem heimildir til vistráðningar einstaklinga utan EES hafa verið felldar niður, og að sambærilegar aðgerðir séu til skoðunar annars staðar.

Ráðherra segir þá leið vera eitt af því sem er til skoðunar: „Það er af ástæðu að Norðmenn fóru í það að breyta þessu. Þar var talið að þetta væri ekki lengur menningarskipti heldur ráðningarsamband,“ segir hún.

Hætta á misnotkun lengi verið áhyggjuefni

Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ, hefur lengi bent á að au pair séu ekki hluti af íslenskum vinnumarkaði í formlegum skilningi, séu ekki í stéttarfélagi og njóti ekki þeirrar verndar sem íslenskir kjarasamningar veita. Í viðtali við Gímaldið nýverið sagðist Saga telja tímabært að stjórnvöld skoði hvort kerfið eigi yfir höfuð rétt á sér. 

Um átta af hverjum tíu sem fá dvalarleyfi á grundvelli vistráðningar eru ungar konur frá Filippseyjum, eins og kom fram í svari frá fyrirspurn Gímaldsins til Útlendingastofnunar. Þar sagði jafnframt að Útlendingastofnun hefur undanfarið sent að jafnaði tvær til þrjár beiðnir á ári til lögreglu um að hún fari á heimili vistráðins aðila og kanni aðstæður viðkomandi.

Gímaldið fjallaði 26. mars um áhyggjur Útlendingastofnunar af au pair-kerfinu og að stofnunin óskaði reglulega eftir lögreglu til að skoða aðstæður.

Sjá einnig: Útlendingastofnun hefur kallað til lögreglu í au pair-málum

Ástæða þessara beiðna til lögreglu eru meðal annars vegna ábendinga um hugsanleg brot á vistráðningarsamningi og óviðunandi aðbúnaði, og jafnvel vegna gruns um mansal. Þá bendir Útlendingastofnun á þann aðstöðumun sem hlýst af því að ungmenni frá fátæku landi komi hingað og eigi allt sitt undir fjölskyldunni sem það dvelur hjá. Það leiði af sér kerfislæga hættu á misnotkun sem lengi hafi verið áhyggjuefni þeirra sem komi að þessu málum. Útlendingastofnun tekur þannig undir þær áhyggjur sem ASÍ hefur af misnotkun á au pair kerfinu.

Frumvarp lagt fram í haust

Þorbjörg Sigríður segir að forseti ASÍ hafi fundað með henni og komið þeim sjónarmiðum á framfæri að merki séu um kerfisbundna misnotkun. Hún segir að þau skilaboð vegi þungt í þeirri vinnu sem nú fer fram innan ráðuneytisins. „Ég tek þessum orðum verkalýðshreyfingarinnar mjög alvarlega,“ segir hún, og bendir á að um sé að ræða hóp sem sé í afar viðkvæmri stöðu, bæði félagslega og efnahagslega. Þá eru dæmi um að hingað komi ungar konur sem eigi börn í heimalandinu og treysti á tekjur sínar hér til að senda heim. „Þær standa auðvitað afskaplega veikt,“ segir Þorbjörg Sigríður.

„Ég tek þessum orðum verkalýðshreyfingarinnar mjög alvarlega.“

Útlendingamál hafa verið fyrirferðamikil í ráðuneytinu en hún bendir á að það hafi vakið athygli hennar síðan hún kom til starfa sem ráðherra hversu lítið þessi hlið útlendingamála hafi verið til umræðu. „Við erum miklu meira að tala um að útlendingar séu að misnota okkar kerfi en minna um það hvort að útlendingar hér séu þolendur brota,“ segir hún. Áberandi og augljósar birtingarmyndir þess séu til að mynda stórar sakamálarannsóknir hjá lögreglu vegna vinnumansals. 

„Þegar við erum að tala um útlendingamálin þá verðum við einnig að hafa í huga að við viljum ekki vera land sem laðar til sín fólk í veikri stöðu og ekki er farið vel með það. Slíkt er ekki góður dómur um íslenskt samfélag þannig að ég vildi skoða þetta sérstaklega,“ segir hún. 

Upphafleg hugmynd með au pair-kerfinu voru menningarskipti þar sem hingað komu gjarnan stúlkur frá Þýskalandi og öðrum Evrópulöndum. „Þetta kerfi var byggt upp með góðum hug, og menningarskipti eru göfugt markmið. En þegar maður skoðar hvernig hefur spilast úr þessu sést að þetta eru fyrst og fremst stelpur og konur utan EES sem eru að koma hingað, sem standa veikar fyrir. Auðvitað er þetta í mörgum tilvikum með miklum sóma en dæmi um annað liggja hins vegar fyrir,“ segir hún. Breytingarnar í Noregi voru gerðar eftir að upp komu mörg og alvarleg mál þar sem au pair sættu illri meðferð.

Saga hjá ASÍ benti á í viðtali við Gímaldið að verkalýðshreyfingin væri síður en svo að krefjast þess að ungu fólki væri meinað að koma til Íslands til að vinna, en það þurfi að gera með réttum hætti. Með því að fá atvinnuleyfi, ólíkt námsmannaleyfi au pair, fái einstaklingar ákveðna vernd.

Nú stendur yfir vinna í dómsmálaráðuneytinu vegna frumvarps um breytingar á dvalarleyfum og eru vistráðningaleyfin þar undir. Þorbjörg Sigríður segir að stefnt sé að því að frumvarpið verði lagt fram á haustþingi.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 1. apríl, 2026, 09:43

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link