Sjávarútvegskaflinn sem var aldrei opnaður

Lestími: 7 mínútur

Sjávarútvegur hefur frá upphafi verið talinn eitt stærsta álitamálið í mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þrátt fyrir tæplega þriggja ára aðildarviðræður var sjávarútvegskaflinn aldrei opnaður og lágu ýmsar ástæður þar að baki.

gray fish lot

Sjávarútvegskaflinn í aðildarviðræðum við Evrópusambandið verður einn af þeim fyrstu sem verða opnaðir ef Ísland fer aftur í viðræður, að sögn fulltrúa ríkisstjórnarinnar. Sá kafli var hins vegar aldrei opnaður í síðustu viðræðum. 

Kaflinn fjallar um hvað aðild að sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB hefði í för með sér fyrir Ísland, þar á meðal reglur um stjórnun fiskistofna, aðgang að auðlindum, sameiginlegt markaðsskipulag og eftirlit með veiðum. Vegna efnahagslegs vægis sjávarútvegs, og þeirrar staðreyndar að ákvarðanir um veiðar myndu að hluta færast til stofnana ESB, hefur kaflinn lengi verið talinn einn viðkvæmasti þáttur mögulegra aðildarviðræðna. 

Aðildarviðræður ESB skiptast í kafla eftir málaflokkum, en dæmi um aðra kafla eru orkumál, frjáls för vinnuafls, umhverfismál og hugverkaréttur. Áður en kafli er opnaður setur ESB svokölluð opnunarviðmið, skilyrði sem umsóknarríkið þarf að uppfylla. Að opna kafla þýðir því að báðir aðilar séu tilbúnir að hefja viðræður um hann. 

Í aðildarviðræðunum sem stóðu yfir á árunum 2010 til 2013 höfðu 27 af 33 samningsköflum verið opnaðir og Ísland hafði afhent samningsafstöðu sína í 29 köflum. Sjávarútvegskaflinn var einn af sex köflum sem enn höfðu ekki verið opnaðir þegar viðræðurnar voru settar á ís. Sjávarútvegur og landbúnaður voru almennt taldir meðal þeirra kafla sem stóðu hvað mest utan EES-samningsins og líklegastir til að reynast erfiðir í samningaviðræðum.

Sammála um að opna kaflann snemma

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, sagði í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi 28. maí 2026: „Komi til þess að þjóðin segi að hún vilji láta á það reyna hvaða tækifæri bíði okkar sem þjóðar innan Evrópusambandsins þá liggur auðvitað fyrir að einn af þeim köflum sem verða opnaðir fyrstir er meðal annarra sjávarútvegskaflinn. Það verður ekki farin sú leið sem var farin síðast, að geyma þá kafla sem ég held að við séum öll sammála um að skipti einna mestu máli og það eru þeir sem lúta að yfirráðum okkar yfir náttúruauðlindum okkar.“

Það var hins vegar ekki tekin sérstök ákvörðun að geyma sjávarútvegskaflann á sínum tíma. Í skýrslu utanríkisráðuneytisins um framvindu og stöðu aðildarviðræðna Íslands og ESB sem kom út árið 2013 segir til að mynda um sjávarútveg og landbúnað: „Upphaflega var lagt upp með, af hendi beggja samningsaðila, að hefja sem fyrst í ferlinu viðræður um þessa tvo kafla. Það hefur hins vegar ekki gengið eftir og kemur margt til.“ Á þessum tímapunkti stóð lokaáfangi viðræðnanna fyrir dyrum, en þær höfðu þá staðið yfir í tæp þrjú ár. Ástæður fyrir því að sjávarútvegskaflinn hafði ekki verið opnaður voru í skýrslunni sagðar þær að ESB hafi ekki lokið endurskoðun á sjávarútvegsstefnu sinni, sem hafði þá staði yfir undanfarin ár – óháð aðildarviðræðum Íslands, og síðan að ESB hafi ekki lokið undirbúningsvinnu sinni um sjávarútvegskaflann, það er ljúka rýniskýrslu sinni sem er forsenda þess að hægt sé að hefja viðræður um einstaka kafla. Það flækti því viðræðurnar að óvíst var að hve miklu leyti þágildandi reglur ESB um sjávarútvegsmál yrði áfram í gildi þegar til aðildar Íslands kæmi. 

Ákveðin tímamót í makríldeilunni

Í skýrslunni var jafnframt bent á að makríldeilan gæti haft áhrif á vilja einstakra aðildarríkja til að semja við Ísland um sjávarútvegsmál. Deilan hafði þá staðið um árabil eftir að makríll fór í auknum mæli að ganga inn í íslenska lögsögu og Ísland krafðist stærri hlutdeildar í veiðunum. Það var síðan ekki fyrr en í lok árs 2025 sem skrifað var undir samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins, þar sem aðilar samningsins voru Ísland, Noregur, Bretland og Færeyjar. „Samkomulagið nú markar tímamót fyrir Ísland þar sem í því felst að hlutdeild Íslands í makrílveiðum verður viðurkennd formlega í fyrsta sinn af aðilum samkomulagsins,“ sagði í tilkynningu utanríkisráðuneytisins vegna þessa. ESB, fyrir hönd aðildarríkja sinna, og Grænland eiga einnig hagsmuna að gæta í makrílveiðum en eru ekki aðilar að umræddu samkomulagi. 

Framkvæmdastjórn ESB gagnrýndi samkomulagið og sagði það hafa verið gert án samráðs við sambandið, og gæti skaðað makrílstofninn. Þótt samkomulagið hafi markað ákveðin tímamót fyrir Ísland standa því enn eftir ágreiningsefni um stjórnun makrílveiða í Norðaustur-Atlantshafi. 

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands birti árið 2014 úttekt á aðildarviðræðunum, sem þá voru komnar á ís. Megináherslan var á þá samningskafla sem ekki voru opnaðir og mestur ágreiningur var um hérlendis. Í úttektinni segir að íslensk stjórnvöld hefðu viljað sjá hraðara samningaferli, og bendir Alþjóðastofnun á nokkra áhrifaþætti sem hefðu hægt á málinu, þar á meðal makríldeiluna.

Áhersla Íslands á sérlausnir

Aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins var formlega ýtt úr vör á fundi í Brussel þann 27. júlí 2010. Þar var lögð fram skrifleg yfirlýsinging af hálfu Íslands þar sem gerð var grein fyrir helstu hagsmunum Íslands eins og þeir birtust í áliti meirihluta utanríkismálanefndar þingsins. „Í hinni skriflegu yfirlýsingu var lögð áhersla á efnahagslegt mikilvægi sjávarútvegs fyrir Ísland og bent á þá sérstöðu að íslenska fiskveiðilögsagan liggur ekki að lögsögu nokkurs ESB-ríkis. Því þurfi að finna sérlausnir sem taki mið af sérstökum aðstæðum Íslands, tryggja áframhaldandi öflugan og sjálfbæran sjávarútveg, sem og forræði Íslands yfir auðlindinni,“ segir í skýrslu utanríkisráðuneytisins frá 2013.

Þótt sjávarútvegskaflinn hafi aldrei verið opnaður hafði þegar farið fram umfangsmikil rýnivinna. Á árunum 2010 og 2011 fóru sérfræðingar Íslands og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins yfir íslenska löggjöf, stjórnsýslu og regluverk á sviði sjávarútvegs og báru saman við sameiginlega sjávarútvegsstefnu sambandsins. Sú vinna var hluti af undirbúningi fyrir mögulega opnun kaflans. Þessi rýni undirstrikaði jafnframt sérstöðu sjávarútvegsmála í viðræðuferli Íslands og ESB. Ólíkt mörgum öðrum samningsköflum, sem byggðu að verulegu leyti á reglum sem Ísland hafði þegar innleitt í gegnum EES-samninginn, stóð sjávarútvegurinn að mestu utan EES-samstarfsins.

Þegar aðildarviðræðurnar voru stöðvaðar var mörgum lykilspurningum enn ósvarað, þar á meðal hvernig íslenskt fiskveiðistjórnunarkerfi yrði samræmt regluverki Evrópusambandsins, hvaða áhrif aðild hefði á stjórnun sameiginlegra fiskistofna og hvernig tekist yrði á við álitamál sem vörðuðu yfirráð yfir fiskveiðiauðlindinni.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 12. júní, 2026, 11:27

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link