
Efling eða framsal fullveldis, viðræður eða aðlögun, lægra vaxtastig eða smjörklípa, samningsstaða Íslands, tímasetning atkvæðagreiðslu og kostnaður við þetta allt saman. Gímaldið rýndi í málflutning þingheims um Evrópumálið og setur fram sex punkta sem stjórnarliðar og stjórnarandstaða takast á um.

Umræða um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið stendur nú yfir á Alþingi. Skýrar fylkingar með og á móti ræddu málið á löngum þingfundum á mánudag og þriðjudag en gert var hlé á umræðum vegna nefndadaga á miðvikudag og fimmtudag. Umræðu verður fram haldið eftir helgi.
Í umræðum þingmanna var deilt um fjölda atriða sem tengjast ýmist aðild að Evrópusambandinu, eðli viðræðna um aðild og þjóðaratkvæðagreiðslunni sjálfri; tímasetningu hennar og upplýsingagjöf stjórnvalda í aðdragandanum. Gímaldið rýndi í röksemdir sem þingheimur setur fram máli sínu til stuðnings og rekur sex punkta sem stjórnarliðar og stjórnarandstaða takast á um.
Líkt og búast mátti við kom fullveldi Íslands mjög við sögu í umræðunum. Þingmenn stjórnarandstöðunnar lýstu áhyggjum af bæði valdaframsali og afsali auðlinda en stjórnarþingmenn sögðu að í atkvæðagreiðslunni fælist iðkun fullveldis og lögðu áherslu á að aðeins fullvalda ríki gætu átt aðild að ríkjabandalagi.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, setti tóninn fyrir stjórnarandstöðuna með því að lýsa málinu sem grundvallarspurningu um framtíð Íslands sem sjálfstæðrar þjóðar. Hún varaði við því að færa valdið til Brussel og sagði ákvörðun um viðræður vera pólitíska ákvörðun um að setja Ísland á aðildarbraut þar sem forræði yfir auðlindum og öðrum lykilhagsmunum geti verið í húfi.
„Einmitt þess vegna viljum við að þjóðin haldi völdum sínum. Þeir sem tala um að færa vald yfir til Brussel treysta þjóðinni ekki.“ (Guðrún Hafsteinsdóttir)
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði mikilvægt að ræða hvað aðild raunverulega þýði. Aðild að ESB fylgi framsal valds til stofnana sambandsins, ólíkt aðild að EES samningnum. Slíkt valdaframsal sé andstætt því að þjóðin ráði sínum málum sjálf.

Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sagði forræði yfir auðlindum ekki venjulegt samningsatriði heldur grunnstoð íslensks sjálfstæðis. Framsókn telji að ákvarðanir eigi að vera teknar sem næst fólkinu og vald eigi ekki að færast sífellt lengra frá kjósendum inn í stærri eða fjarlægari kerfi.
Þá sé andstaða Framsóknar við aðild er ekki andstaða við samstarf. „Það er engin mótsögn í því að vera alþjóðasinnuð þjóð og vilja samt ekki ganga í Evrópusambandið. Ísland getur átt náið og gott samstarf við Evrópu án þess að afsala sér meira ákvörðunarvaldi en nauðsynlegt er.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði fullveldisréttinn hafa reynst Íslandi vel og að óvarlegt sé að stefna honum í hættu með því að færa ákvörðunarvald yfir til Evrópusambandsins.
Guðlaugur Þór Þórðarson benti á að löggjafarvald innan ESB sé að verulegu leyti hjá framkvæmdastjórninni, ekki þjóðþingum aðildarríkja, og vakti athygli á þeim málefnasviðum sem Ísland þyrfti að taka upp við aðild en tekur ekki þátt í á grundvelli EES, þar á meðal á sviði tolla, sjávarútvegs og landbúnaðar.
Stjórnarliðar lögðu áherslu á að fullveldi felist í að þjóðin ráði eigin vegferð, þar á meðal hvort hún vilji styrkja stöðu sína með aðild að ríkjabandalögum. Að leyfa þjóðinni sjálfri að ákveða næstu skref sé kjarninn í fullveldi, ekki framsal þess.
„Sumir hafa stigið fram og sagt að nú sé baráttan hafin um framtíð Íslands og fullveldi þess. Því er ég bara hjartanlega sammála,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. „Það að leyfa íslensku þjóðinni sjálfri að taka ákvörðun um framtíð landsins okkar er sannarlega fullveldismál.“ Hún lýsti Evrópusambandinu sem sambandi fullvalda lýðræðisríkja sem eru sterkari saman en í sundur.

Utanríkisráðherra lagði áherslu á að aðildarríki ESB líti svo á að þrátt fyrir einhvern ramma sem aðild setur þá sé ávinningurinn svo mikill að ramminn sé þess virði.
„Ég hef ekki fengið það á tilfinninguna að fólk í Evrópu sé bugað og mjög beygt og upplifi sig að hafa tapað fullveldi eða sjálfstæði með aðild,“ sagði ráðherra og bætti við:
„Spyrjið Dani, Svía, Finna. Fólk er meðvitað um kostina. Fólk er líka meðvitað um gallana en það vill ekki fara til baka. Það vill ekki fara til baka í sundraða Evrópu.“
„Ég hef ekki fengið það á tilfinninguna að fólk í Evrópu sé bugað og mjög beygt og upplifi sig að hafa tapað fullveldi eða sjálfstæði með aðild.“ (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir)
Dagur B. Eggertsson og Dabjört Hákonardóttir, þingmenn Samfylkingarinnar, vísuðu til kannana um afstöðu íbúa ESB-ríkja til aðildar. Stuðningurinn sé á bilinu 70–80 prósent, jafnvel í löndum þar sem afstaðan áður var nær því að vera 50/50. „Nú er fólkið á götunni í þessum löndum sterkir stuðningsmenn ESBaðildar og nefna öryggið sem eitt af því sem skiptir verulegu máli,“ sagði Dagur.
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar telur það fela í sér minnimáttarkennd að óttast um fullveldið. „Við eigum ekki að stunda neina minnimáttarkennd í okkar utanríkisstefnu. Við eigum að þora að taka okkar ákvarðanir, ekki út frá ótta við viðbrögð annarra heldur hvað er best fyrir okkur. Við erum fullvalda þjóð. Við ráðum okkar vegferð sjálf og við eigum að standa saman um þann sjálfsákvörðunarrétt.“

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, benti á að löggjafarvald innan ESB sé að verulegu leyti hjá framkvæmdastjórninni, ekki þjóðþingum aðildarríkja.
Hann lagði líka áherslu á muninn á EES-samstarfinu og fullri ESB aðild, en Ísland taki upp EES-reglur með innlendri lagasetningu, en ESB-aðild feli í sér framsal ákvörðunarvalds til stofnana sambandsins.
Þá vakti Guðlaugur athygli á nokkrum þeirra málefnasviða sem Ísland taki ekki þátt í á grundvelli EES samningsins en þyrfti að taka upp við aðild að ESB. Þar séu meðal annars tollamál, sjávarútvegsmál og landbúnaðarmál.
Pawel Bartoszek benti hins vegar á að Ísland taki nú þegar stóran hluta evrópsks regluverks í gegnum EES-samninginn án þess að hafa mikið um það að segja.
„Við þiggjum þessar reglur stundum með þökkum, stundum með dassi af efasemdum, en við sköpum þær ekki beint.“ Með aðild að ESB fengi Ísland sex fulltrúa á Evrópuþingið, atkvæðisrétt í ráðinu og fulltrúa í framkvæmdastjórnina. Hann varaði við því að horfa of mikið í smæð landsins:
„Ef við hugsum þannig gætum við aldrei tekið þátt í neinu alþjóðasamstarfi. Þvert á móti byggir menning Evrópusambandsins á því að reynt sé að sameiginlegri niðurstöðu í flestum málum og rödd allra ríkja skiptir máli,“ sagði Pawel.
Hátt vaxtastig á íslandi og óstöðugt efnahagsástand hafa verið ein helstu rök Evrópusinna fyrir aðild og stjórnarliðar hömruðu töluvert á því í ræðum sínum. Stjórnarandstaðan ræddi líka um erfiðleika í efnahagslífi þjóðarinnar og sögðu boðaða Evrópuumræðu tilraun stjórnarinnar til að breiða yfir þann vanda.
Stjórnarliðar sögðu stöðu íslensks efnahagslífs vera Evrópumál.
Dagur B. Eggertsson lagði áherslu á að kerfislægur vandi íslensks efnahagslífs, háa vexti og verðbólgu, væri Evrópumál. Hann benti á að ný kynslóð „þurfi að borga sömu íbúðina þrisvar í staðinn fyrir einu sinni eins og jafnaldrar þeirra innan Evrópusambandsins“ og að hagsmunir þeirra væru í húfi.
„Eigum við ekki að tala um þessa stóru hagsmuni líka? Við eigum að tala um lífskjör almennings og komandi kynslóða.“

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, tók í sama streng:
„Við búum vissulega við gjaldmiðil sem er sérsniðinn fyrir okkur en það þjónar okkur ekkert sérstaklega vel. Við búum við hærri vexti og meiri verðbólgu en nágrannar okkar og þannig hefur það verið lengi. Það hafa ekki allir fjármálaráðherrar lýðveldisins verið kjánar. Vandinn er kerfislægur.“
Pawel gaf lítið fyrir viðvaranir um evrópskt atvinnuleysi og benti á að réttara væri að skoða ríki sem eru líkust Íslandi. Danmörk búi við svipað atvinnuleysi og Ísland, en mun lægri vexti.
Pawel nefndi líka viðskiptalegt öryggi: „Við sjáum því miður vaxandi tolla og viðskiptahindranir í heiminum. Viðskipti eru í auknum mæli vopnavædd til að ná geopólitískum markmiðum. Að vera hluti af öflugri viðskiptablokk styrkir efnahagslegar varnir okkar og þar með fullveldi okkar.“
Utanríkisráðherra vísaði til nýlegs viðtals við seðlabankastjóra Króatíu þar sem fram kom að húsnæðisvextir þar séu orðnir lægri en í Þýskalandi eftir inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru í ársbyrjun 2023.
„Ég vil vita meira um þetta, í þágu íslenskra fjölskyldna, íslenskra heimila og íslensks atvinnulífs,“ sagði Þorgerður Katrín.
Vinsælt stef hjá þingmönnum stjórnarandstöðunnar var að saka ríkisstjórnina um að nota ESB-umræðuna til að beina athygli frá stöðunni í efnahagsmálum heima fyrir. Vísað var til þrálátrar verðbólgu, hárra vaxta og vaxandi atvinnuleysis.
„Í stað þess að ríkisstjórnin horfist í augu við þessi verkefni, í stað þess að hún leggi fram trúverðuga áætlun um stöðugleika, þá leitar hún skjóls í deilu um Evrópusambandið,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir og bætti við:
„Verðbólgan er enn þrálát, vextir eru enn of háir, atvinnuleysi vex, fyrirtæki finna fyrir óvissu, heimilin finna fyrir þrýstingi. Raunverulegur stöðugleiki byrjar nefnilega heima. Það er ekki hægt að fela skort á árangri í innanlandsmálum með því að opna nýjan og djúpstæðan ágreining um fullveldi Íslands. Það er ekki hægt að nota ESB sem pólitíska ábreiðu þegar ríkisstjórnin ræður ekki við verðbólgu, vexti og atvinnuleysi.“
Sigmundur Davíð spurði hvers vegna Ísland ætti að steypa sér í deilur um aðild þegar fullveldisrétturinn hefði reynst þjóðinni svo vel undanfarin ár.
Hann sagði fullveldisréttinn hafa komið Íslandi út úr áföllum bankahrunsins og hafa „skapað hér meiri hagvöxt og meiri velsæld heldur en Evrópusambandið getur látið sig dreyma um.“

Sigmundur lýsti ESB á hnignunarstigi og í endalausum deilum dag frá degi við sjálft sig og spurði hvers vegna kosið væri að steypa íslensku þjóðinni í átök um aðild við slíkar aðstæður.
Hann sagði ríkisstjórnina hafa gefist upp á verkefni sínu og aðgerðir hennar hafa „ekki skilað árangri heldur afturför á alla mælikvarða; verðbólgu, stöðu heimilanna og atvinnuleysi.“ Að opna djúpstæðan ágreining um fullveldi Íslands sé ekki lausn á vandanum innanlands, heldur leið til að beina athyglinni annað.
Dagur B. Eggertsson svaraði þessari gagnrýni með því að benda á að Miðflokkurinn væri „kominn svo langt út á tún að hann er farinn að tala gegn lægri vöxtum, vegna þess að þeir skila ekki neinu. Þannig er hatrið á Evrópusambandinu að Miðflokkurinn gengur gegn lykilhagsmunum nýrrar kynslóðar,“ sagði Dagur.
Miklum tíma umræðunnar var varið í að ræða þýðingu og eðli aðildarviðræðna. Þingmenn stjórnarandstöðunnar héldu því fram að svokallaðar aðildarviðræður séu ekki raunverulegt samningaferli heldur fyrst og fremst aðlögunarferli að regluverki sambandsins. Að mati stjórnarliða er hins vegar rangt að halda því fram að ekkert sé um að semja.
Guðrún Hafsteinsdóttir sagði í ræðu sinni að með umsókn séu ríki að undirbúa inngöngu og laga sitt lagaumhverfi að reglum ESB. Upptaka regluverksins sé forsenda ferlisins, ekki niðurstaða samninga. Því sé rangt að gefa í skyn að óljóst sé hvað felist í aðild.
Diljá Mist Einarsdóttir vísaði til upplýsinga frá ESB sjálfu: „Umsóknarríki verða að samþykkja regluverkið áður en þau geta gengið í Evrópusambandið og gera það að hluta af landslögum sínum. Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið í heild.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gekk enn lengra og sagði hugmyndina um að „kanna hvað sé í boði“ blekkingu. Með umsókn sé ríkið þegar búið að ákveða að ganga í sambandið og aðlögun hefjist strax, meðal annars með lagabreytingum og uppbyggingu stjórnsýslu.
„Ég vil biðja háttvirta þingmenn að fyllast ekki vanmáttarkennd og halda því fram að við munum engu fá áorkað við samningaborðið. Slíkt dugleysi er að mínu mati ekki heldur í samræmi við íslensku leiðina,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Utanríkisráðherra tók fram að Svíar og Finnar tryggðu sérlausn fyrir landbúnað á norðurslóðum í sínu aðildarferli og að Danir og Maltverjar næðu fram undanþágum vegna kaupa erlendra aðila á fasteignum.
„Við eigum að láta á það reyna hvort ekki verði það sama upp á teningnum í tilviki aðildarviðræðna Íslands,“ sagði hún og vísaði til Mörtu Kos, stækkunarstjóra ESB, sem sagði nýlega að sambandið tæki „mið af sérstökum aðstæðum umsóknarríkja í aðildarviðræðuferli hverju sinni.“
„Við aðild værum við auðvitað að ganga í bandalag með fyrirliggjandi reglum og ramma. Við þekkjum það. En hins vegar eru nokkuð mörg dæmi frá fyrri aðildarviðræðum að ESB-ríkin hafa verið reiðubúin að gera breytingar á reglum sínum til að taka tillit til sérstöðu og meginhagsmuna nýrra aðildarríkja,“ sagði Þorgerður Katrín.

Dagbjört Hákonardóttir tók í sama streng og benti á að ef ekkert væri um að semja, þá lægi samningurinn þegar fyrir, en svo sé augljóslega ekki. Viðræður séu einmitt leiðin til að kortleggja hagsmuni Íslands og styrkja samningsstöðu landsins.
„Ef það væri ekkert um að semja þá værum við komin með samningsdrög í tölvupósti,“ sagði Dagbjört.
Pawel Bartoszek vísaði til yfirlýsingar forsætisráðherra Póllands um að Evrópusambandið þurfi að sýna meiri sveigjanleika. Hann sagði það góðar fréttir fyrir íslenska þjóðarhagsmuni að leiðtogi eins af stærstu ríkjum ESB lýsi slíku yfir.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu athugasemdir við að ekki lægju fyrir nægar upplýsingar til að þjóðin gæti tekið upplýsta ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu. Mest áhersla var lögð á að ríkisstjórnin væri ekki búin að skilgreina markmið samningaviðræðna en einnig var fundið að því að kostnaðarmat vegna aðildarviðræðna liggi heldur ekki fyrir.
Þrátt fyrir að telja engar sérlausnir í boði fyrir umsóknarríki gagnrýna þingmenn stjórnarandstöðunnar tillögu utanríkisráðherra fyrir að tiltaka engin samningsmarkmið. Þjóðin eigi að taka afstöðu án þess að vita hvaða hagsmuni íslensk stjórnvöld hyggist verja í samningum, hvar rauðu línurnar liggi eða hvaða undanþágur séu raunhæfar.
„Ef ríkisstjórnin vill umboð frá þjóðinni til að fara í þessa vegferð þá er algjört lágmark að hún upplýsi þjóðina um það hvað hún ætlar að semja um. Við hverju er þjóðin að segja já eða nei? Hvað eru íslensk stjórnvöld að fara að verja? Hverjar eru rauðu línurnar sem við munum ekki stíga yfir? Hvaða undanþágum telja þau sig geta náð fram? Hvað á að gerast í sjávarútvegi? Hvað á að gerast í orkumálum og hvað á að gerast í landbúnaði?“ spurði Guðrún Hafsteinsdóttir.
Stefán Vagn Stefánsson tók í sama streng: „Þjóðin á að vita, áður en hún kýs um framhaldið, hvar Ísland dregur hina rauðu línu. Hún á að vita hvað er samningsatriði og hvað er það ekki. Hún á að vita hvað stjórnvöld telja ófrávíkjanlegt í sjávarútvegi, orkumálum, landbúnaði, byggðamálum og öðrum lykilmálum. Það er ekki nóg að utanríkisráðherra skýri það út í viðtalsþáttum í útvarpinu.“
Stjórnarliðar lögðu áherslu á að þjóðaratkvæðagreiðslan snúist ekki um aðild heldur um hvort halda eigi viðræðum áfram. Viðræður séu einmitt leiðin til að kortleggja hagsmuni Íslands og styrkja samningsstöðu landsins, jafnvel þótt niðurstaðan verði að standa áfram utan ESB.
„Þessi þjóðaratkvæðagreiðsla snýst ekki um kosti og galla Evrópusambandsins. Hún snýst einfaldlega um hvort halda eigi aðildarviðræðunum áfram eða ekki, að vita meira,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Dagbjört Hákonardóttir sagði fá mál henta betur til þjóðaratkvæðagreiðslu en einmitt þetta. Að taka svona stórar ákvarðanir án aðkomu almennings grafi undan trausti, en opið samtal og lýðræðislegt ferli styrki samfélagið, óháð því hver niðurstaðan verði.
Stjórnarliðar leggja áherslu á að þjóðin hafi alltaf síðasta orðið: fyrst um hvort halda eigi viðræðum áfram og síðar, ef samningar nást, um hvort ganga eigi í Evrópusambandið.
Utanríkisráðherra og aðrir þingmenn stjórnarliðsins lögðu hins vegar áherslu á að ekkert yrði gefið eftir þegar kæmi að helstu hagsmunum Íslands.
Vísað var til þess að þau markmið sem sett hefðu verið þegar umsóknarferlið hófst árið 2009 eigi enn við en þá var lögð megináhersla á hagsmuni Íslands á sviði orku- og auðlindamála, sjávarútvegsmála, landbúnaðar- og byggðamála, umhverfismála, atvinnu- og iðnaðarmála, almannaþjónustu og félagslegra mála, gjaldmiðilsmála, EES-mála, öryggis- og varnarmála, skatta- og tollamála auk fjármála og fjárlaga ESB.
Sigríður Á. Andersen lagði áherslu á að þjóðaratkvæðagreiðsla ætti ekki að fara fram fyrr en kostnaðarmat á aðildarviðræðum lægi fyrir.
„Það er grundvallaratriði frá mínum bæjardyrum séð að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla verði ekki haldin fyrr en búið er að leggja fyrir þingið ítarleg samningsmarkmið og kostnaðarmat á aðildarviðræðum.“

Hún skýrði að hún ætti ekki við kostnað af þjóðaratkvæðagreiðslunni heldur af aðildarviðræðum, bæði beinan kostnað við sérfræðiálit, starfsmenn og ferðalög, og óbeinan kostnað þegar starfsfólk ráðuneyta færist frá öðrum verkefnum.
„Árið 2009 mat utanríkisráðuneytið kostnaðinn tæplega milljarð króna. Fjármálaráðuneytið taldi þá áætlun allt of grófar og með miklum skekkjumörkum. Þá vantaði líka óbeinan kostnað.“
Sigríður hvatti utanríkismálanefnd til að kalla fram reikningsskil eftir aðildarviðræður 2009 og kostnaðaráætlanir allra ráðuneyta, „þannig að almenningur sé alveg upplýstur um það hvaða fórnir verða færðar fyrir þessu.“
Í andsvörum stjórnarliða var í flestum tilvikum tekið vel í þá kröfu að kostnaðarmat verði lagt fram.
Stjórnarliðum var tíðrætt um að samningsstaða Íslands væri sérstaklega góð núna og betri en áður. Í síðustu viðræðum hefði Íslands verið í veikari stöðu en nú og við það bætist að það séu víðsjárverðir tímar í Evrópu og Evrópa sjái hag í því að fá Ísland inn.
Utanríkisráðherra lagði áherslu á að Ísland stæði nú mun sterkara en síðast þegar aðildarviðræður fóru fram. „Staða okkar er sterkari en þegar aðildarviðræður fóru fram síðast í skugga efnahagshruns og gjaldeyrishafta. Samningsstaða okkar er góð,“ sagði hún.

„Það er íslenska leiðin að þora að taka hugrakkar ákvarðanir. Nú er einmitt rétti tímapunkturinn fyrir þjóðina okkar að taka afstöðu til þess hvort við eigum að halda áfram aðildarviðræðunum við ESB. Því er einungis rétt að þjóðin fái að ákveða hvort við nýtum okkur þennan styrkleika með því að fá samning á borðið.“
Þunginn í málflutningi meirihlutans bæði um samningsstöðu Íslands og um gildi alþjóðasamstarfs, einskorðaðist að mestu leyti við viðsjárverða tíma í dag. Verndarhyggja, tollastríð, vopnvædd viðskipti og aukinn aflsmunur stórvelda hafi sett smáríki í viðkvæma stöðu.
Í ræðum stjórnarliða kemur fram að styrkur Íslands felist ekki aðeins í stöðu efnahagsmála, heldur einnig í breyttum alþjóðlegum aðstæðum. Evrópusambandið sjálft standi frammi fyrir nýjum öryggisáskorunum, þörf fyrir samstöðu og aukinn skilning á stöðu smáríkja. Það styrki samningsstöðu Íslands, enda hafi sambandið ríka hagsmuni af stöðugu lýðræðislegu ríki á NorðurAtlantshafi með sterkar tengingar við NATO og Vesturlönd.
„Hvernig tryggjum við stöðu okkar Íslendinga, frelsi okkar og fullveldi í þessum breytta heimi?“ (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir)
Þorgerður Katrín vísaði til nýlegrar ræðu Marks Carneys, forsætisráðherra Kanada, um viðsjárverða tíma í heimi þar sem stórveldin láta afl ráða frekar en lög og rétt. Carney hefði sagt að við þær aðstæður þyrftu miðlungsstór ríki að vinna saman til að styrkja stöðu sína í heimi stórveldanna.
„Við hljótum að spyrja okkur hver sé þá staða lítils ríkis eins og Íslands. Hvernig tryggjum við stöðu okkar Íslendinga, frelsi okkar og fullveldi í þessum breytta heimi?“ spurði Þorgerður.
Dagur B. Eggertsson benti á að aðildarviðræður einar og sér geti veitt Íslandi ákveðið skjól og styrkt stöðu landsins gagnvart ytri þrýstingi. Aðild að tollabandalagi og samstaða Evrópuríkja geti komið í veg fyrir að einstök ríki standi einangruð frammi fyrir hótunum stórvelda.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar drógu, sem fyrr segir, verulega í efa að Ísland gæti náð ásættanlegum samningum þar sem ferlið feli frekar í sér aðlögun en viðræður. Eins var gagnrýnt að ekki væri hnykkt á samningsmarkmiðum í tillögunni sem kjósendur í þjóðaratkvæðagreiðslu gætu treyst á.
Mikið var deilt um tímasetningu fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu og var meðal annars gagnrýnt að hún fari fram á sama ári og sveitarstjórnarkosningar. Helst var þó gagnrýnt að þingið verði ekki komið saman. Stjórnarliðar svöruðu fyrir dagsetninguna og sögðu að best hefði farið á því að hún hefði verið haldin árið 2009.
Stjórnarandstaðan gagnrýndi að atkvæðagreiðslan eigi að fara fram á sumarleyfistíma þings og þjóðar. Mikil gagnrýni beindist að því að kjósa eigi í lok ágúst, þegar Alþingi er í sumarhléi og almenn samfélagsumræða í lágmarki.
„Það er ástæða fyrir því að við göngum aldrei til kosninga á þessum tíma,“ sagði Diljá Mist Einarsdóttir og benti á að þingið geti þá ekki lagt almenningi lið við upplýsingaöflun.
Guðrún Hafsteinsdóttir spurði: „Ef ríkisstjórnin vill raunverulega upplýsta umræðu, af hverju velur hún þá þann tíma sem er hvað verst til þess fallinn að skapa djúpa og vandaða samfélagsumræðu?“
Sigríður Á. Andersen lýsti efasemdum um að þingið fengi ekki tækifæri til að ræða gögn og umræður sem kæmu fram yfir sumarið áður en kosið yrði.
„Mikil umræða mun fara af stað af hálfu grasrótarsamtaka, fræðimanna og almennings. Mikið af gögnum verða lögð fram. Það er ágætt að það gerist hérna utan þingsins en ég velti fyrir mér hvort það sé eðlilegt að þingið fái ekki tækifæri til þess að ræða það hér í þessum sal,“ sagði Sigríður.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson orðaði það svo að ríkisstjórnin vilji að almenningur taki afstöðu „með sem minnstar upplýsingar.“
Pawel Bartoszek svaraði gagnrýni um tímasetningu og sagði hana fyrirsjáanlega.
„Ég held að það hefði hentað miklu betur að afgreiða þetta mál miklu fyrr, jafnvel í upphafi ferlisins árið 2009 eða þegar þessu var slegið á frest. Það að gera það ekki skapaði gjá og skautun í samfélaginu sem hefur ekki að fullu leyti gróið.“
Pawel benti á að það gæti verið kostur að málið sé ekki í miðju þinghaldi og að svigrúm skapist fyrir umræðu áður en kosið er, líkt og í kringum sveitarstjórnarkosningar. „Ég efast ekki um að þingmenn og aðrir taki þátt í umræðum og kosningabaráttu.“
Pawel sagði gott að kjósa um málið fyrr en seinna til að ríkisstjórnin hafi tíma til að halda áfram með málið verði svarið í þjóðaratkvæðagreiðslunni jákvætt um framhald viðræðna. „Ef já kemur, fái ríkisstjórnin tíma til að hefja viðræður; ef kosið væri í árslok 2027 væri lítill tími eftir til að vinna úr niðurstöðunni.“
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru um þau fjölmörgu sjónarmið sem viðruð voru í umræðunni á Alþingi í upphafi vikunnar. Umræðan heldur áfram eftir helgi og mun eflaust vara fram eftir viku. Á myndinni hér að neðan má sjá samanburð helstu sjónarmiða stjórnarliða og stjórnarandstöðu.

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.