
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands kom hvergi nærri skipulagningu fyrirlestrar Carls Baudenbachers, þótt viðburðurinn hafi verið auglýstur í samstarfi við rannsóknarsetur „við Félagsvísindastofnun“. Tengsl setursins við stofnunina voru rofin árið 2022.

Fyrirlestur dr. Carl Baudenbachers um Evrópumál sem halda átti upphaflega í hátíðarsal Háskóla Íslands var ýmist auglýstur í samstarfi við eða á vegum „Rannsóknarseturs í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands“ en ekkert samstarf er við Félagsvísindastofnun og hennar aðkoma að fundinum er engin að sögn forstöðumanns. Þegar Hátíðarsalur var bókaður var hvergi getið um Félagsvísindastofnun en Hagfræðideild og Lagadeild nefndar til sögunnar.
„Hannes hafði samband og spurði hvort það væri í lagi að nota lógó Háskóla Íslands vegna viðburðar á vegum Rannsóknarseturs í stjórnmálum og efnahagsmálum. Ég svaraði honum að ég teldi að það ætti að vera í lagi, þar sem það væri nú þegar á heimasíðu setursins við HÍ. En ég upplýsti hann einnig um að viðfangsnúmeri setursins við Félagsvísindastofnun hefði verið lokað í ágúst 2022,“ segir Guðberg Konráð Jónsson, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands í samtali við Gímaldið.

Það var síðan á fimmtudag sem heilsíðuauglýsing birtist í Morgunblaðinu vegna fyrirlesturs dr. Carl Baudenbacher. Þar kom fram að hann yrði haldinn í Hátíðarsal HÍ en neðst á auglýsingunni voru lógó Áfram Ísland og Almenna bókafélagsins, ásamt því að þar stóð að viðburðurinn væri „í samstarfi við Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun“.
„Félagsvísindastofnun kemur ekkert nálægt þessum viðburði og ekkert samstarf er um þessa ráðstefnu eða skipulagningu hennar. Við heyrðum bara af þessu þegar auglýsingin var birt í fjölmiðlum,“ segir Guðberg Konráð.
Á vef HÍ má finna upplýsingar um Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum, en umsjónarmaður þess er Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Engin tengsl munu þó vera við Félagsvísindastofnun frá árinu 2022. Tengsl rannsóknarsetra við stofnunina byggjast á því að rannsóknarverkefni séu í gangi. Rannsóknarsetur Hannesar var með verkefni sem hafði svokallað viðfangsnúmer innan Félagsvísindastofnunar, en því verkefni lauk fyrir fjórum árum og var að sögn Guðbergs í engum tengslum við efni þessarar ráðstefnu.
Félagsvísindastofnun hefur ekki átt í neinum öðrum samskiptum við setrið varðandi erindið eða bókun á sal.
„Þetta tengist Félagsvísindastofnun einfaldlega ekki á neinn hátt,“ segir Guðberg. Aðspurður segir hann engan hjá stofnuninni muna eftir því að nafn Félagsvísindastofnunar hafi áður verið tengt við viðburð sem hún hafi ekki komið nálægt. Hann bendir á að nafn stofnunarinnar komi reglulega fyrir í tengslum við fjölmargar ráðstefnur, rannsóknir og viðburði á hverju ári, en þá sé það ávallt vegna raunverulegs samstarfs.
Þegar hátíðarsalurinn var bókaður þarf að skrá bókun á tiltekið viðfangsnúmer. Í þessu tilviki var bókunin skráð á númer sem tilheyrir Hagfræðideild og Birgir Þór Runólfsson forseti deildarinnar er ábyrgðarmaður fyrir. Undir tegund verkefnis er skráður erlendur styrkur. Þetta kemur fram í svari frá skrifstofu rektors við upplýsingabeiðni Gímaldsins. NOS-HS er samstarfsvettvangur fjármögnunaraðila rannsókna í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, á sviði hug- og félagsvísinda.



Það var Ragnar Árnason, prófessor emeritus við hagfræðideild Háskóla Íslands, sem bókaði Hátíðarsal HÍ vegna fyrirlestursins en við bókunina kom fram að þar myndi Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, halda erindi um Evrópusambandið. Við bókun kom hvergi fram nafn hreyfingarinnar Áfram Íslands sem telur að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB. Eftir að þessi tengsl við kosningabaráttu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar urðu ljós stjórn HÍ var skipuleggjendum hans tilkynnt að vegna pólitísks eðlis viðburðarins gæti hann ekki farið fram í Hátíðarsalnum. Þeim var þess í stað boðinn salur í Öskju, annarri byggingu HÍ. „Hátíðarsalurinn er ekki leigður út í pólitískum tilgangi“, segir Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, í samtali við Gímaldið.
Á vef HÍ kemur fram að bókanir á Hátíðarsal skuli vera skriflegar og með ósk um bókun skuli gefa ákveðnar upplýsingar, svo sem um umsækjanda/ábyrgðarmann og tilgang notkunar á salnum.
Þá segir í húsreglum Hátíðarsalar, sem einnig eru á vef skólans, að um hann gildi sú „meginregla að hann er fyrst og fremst ætlaður fyrir viðburði sem samrýmast þeirri fræða-, vísinda- og menningarstarfsemi sem fram fer innan skólans. Frávik frá þessu koma aðeins til álita ef um er að ræða viðurkennda eða opinbera aðila og viðburðurinn samrýmist eðli þeirrar starfsemi sem fram fer í Háskóla Íslands. Hátíðasalur er ekki leigður til einkaaðila eða frjálsra félagasamtaka.“

DV.is hóf umfjöllun um málið á fimmtudag með grein þar sem segir að skipuleggjendur fundarins hefðu fengið hátíðarsal HÍ á fölskum forsendum. Þar er haft eftir Silju Báru að HÍ hafi enga aðkomu að umræddum viðburði en Hátíðarsalurinn sé aðeins leigður út fyrir viðburði sem séu á vegum skólans eða tengist starfsemi hans beint. Þá segir hún að í umsókn um leigu á salnum hafi ekki komið fram að hann væri á vegum hreyfingarinnar Áfram Ísland, og hefði slík umsókn ekki verið samþykkt á grundvelli almennra sjónarmiða sem gilda um salarleiguna. Þá hafi skipuleggjendum verið boðinn annar salur fyrir viðburðinn.
Síðdegis á föstudag bjó Áfram Ísland til Facebook-viðburðinn „Ísland og ESB“ þar sem segir að fyrirlestur Baudenbacher fari fram í Hátíðarsal HÍ, þrátt fyrir að fram hafi komið í fjölmiðlum að rektor segi viðburðinn ekki fara fram í Hátíðarsal vegna pólitísks eðlis fundarins og hafi boðið annan sal til afnota.
Um svipað leyti birtist frétt á RUV þar sem Halldór Benjamín Þorbergsson, stjórnarformaður Áfram Ísland, segir viðburðinn ekki á þeirra vegum heldur sé lógó þeirra á auglýsingunni því samtökin séu að vekja athygli á ráðstefninni. Þá segist hann vona að málið leysist farsællega „og við fáum hátíðarsalinn.“


Hannes birti á Facebook-síðu sinni afrit af bréfi sem hann og Ragnar Árnason hafi sent háskólarektor þar sem hann meðal annars fjallar um aðstandendur fundarins: „Það er Rannsóknarsetur um stjórnmál og efnahagsmál í Félagsvísindastofnun, sem stendur að fundinum, ekki Áfram Ísland eða Almenna bókafélagið.“
Í viðburði á Facebook er hvorki rannsóknarsetrið né Almenna bókafélagið nefnt, aðeins Áfram Ísland. Hreyfingin er eigandi og greiðandi viðburðarauglýsingarinnar á samfélagsmiðlinum. Annarra aðstandenda viðburðarins er ekki getið.
Á laugardag vakti RUV síðan athygli á því að lögmannstofa Baudenbacher hefði greint frá því á vef sínum að Baudenbacher hefði þegið boð Áfram Ísland um að koma fram á viðburðinum.

Á sunnudag var Facebook-viðburði Áfram Ísland síðan breytt á þá vegu að viðburðurinn verði haldinn í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hotel við Austurvöll.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.