
– Eitthvað er að klikka hjá Áfram Ísland hreyfingunni því nei-fylgið haggast ekki samkvæmt nýrri könnun.
– Gamla fólkið er að verða ansi jákvætt fyrir aðildarviðræðum meðan tvær grímur renna á miðaldra konur og menn.
– Sjálfstæðisflokkurinn biður flokksfólk að „fylgja eftir“ vinum og vinnufélögum.
– Barátta já- og nei- hreyfinga er komin á fullt skrið, en er þjóðin orðin leið á ESB umræðunni?
– Kristrún Frostadóttir vill forðast mistök Davids Camerons í Brexit og heldur sig til hlés.

Í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins fer ritstjórnin yfir stöðu kosningabaráttunnar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Rætt er um nýjustu skoðanakönnunina, breytta taktík stjórnmálaflokkanna, fjármál og baráttuaðferðir já- og nei-hreyfinganna, og hvort þögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í umræðunni sé skynsamleg. Umræðunni stýrir stýrir Eyrún Magnúsdóttir og með henni eru Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir.
Aðalheiður fer yfir helstu tíðindi í nýrri könnun Maskínu sem gerð var fyrir DV í síðustu viku júlí. Hún sýnir að af þeim sem taka afstöðu ætla 53% að segja já og 47% nei. Þessi hlutföll hafa ekkert breyst frá síðustu DV könnun Maskínu sem gerð var í júní.
Þessi óbreytta staða kemur ritstjórninni á óvart, enda hefur nei-hliðin verið mun meira áberandi síðustu vikurnar. Regnhlífarsamtökum nei-hreyfinga undir slagorðinu Áfram Ísland var ýtt úr vör með miklum látum og á meðan Já hreyfingar lágu undir feldi í júlí tók Nei-fólk umræðuna yfir. Það virðist þó ekki hafa hreyft nálina neitt.
Undir yfirborðinu leynist þó talsverð hreyfing. Eldri kjósendur, 70 ára og eldri, mælast nú með meirihluta fyrir já í fyrsta sinn og yngsti hópurinn styrkir sig einnig í sessi sem jákvæður hópur. Á sama tíma dregst stuðningur meðal fólks á fimmtugsaldri saman um átta prósentustig, en það er mesta einstaka sveifla könnunarinnar.
Ritstjórnin ræðir líka mikinn stuðning kjósenda Vinstri grænna við áframhaldandi viðræður eða 93,3%. Þetta þykir athyglisvert í ljósi þess að ungliðar flokksins berjast fyrir nei með ungliðum Miðflokks og Sjálfstæðisflokks. Þá hafa frammámenn í flokknum gert sig gildandi á nei-hliðinni eins og Stefán Pálsson sem er mjög sýnilegur í baráttu Áfram Íslands.
Ungliðar Sósíalista taka einnig þátt í nei-hreyfingu unga fólksins á meðan 70 prósent stuðningsmanna flokksins eru já-megin. Meirihluti stuðningsmanna Flokks fólksins vill líka sjá samning samkvæmt könnuninni en flokkurinn sjálfur er andvígur aðild.
Helga Arnardóttir vakti athygli á að kosningabaráttan hefði í reynd staðið yfir frá því í maí og umræðan sjálf allt frá því í mars. Það verði áskorun fyrir bæði já- og nei-hreyfingarnar að halda dampi og ná til fólks alla leið til 29. ágúst, án þess að þreyta kjósendur svo mjög að þeir fái einfaldlega leið á málinu.
Aðalheiður tók undir að fólk væri farið að þreytast á umræðunni og velti því upp hvort já-hreyfingarnar, sem eyddu vorinu og stórum hluta júlí í undirbúning og fjáröflun fremur en að ná til kjósenda, væru að fara of seint af stað.
Þá ræðir ritstjórnin hvort möguleg þreyta og leiði muni hafa letjandi áhrif á kosningaþátttöku í haust.
Erla Hlynsdóttir lýsir nýjum aðferðum stjórnmálaflokka í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Sjálfstæðisflokkurinn kynnir nýtt baráttukerfi fyrir flokksfólki en það er hvatt til að skrá sig fyrir tveimur til þremur einstaklingum, til dæmis ættingjum, vinum eða vinnufélögum, og „fylgja þeim eftir“ fram að kosningum til að minna þá á að kjósa nei. Í póstinum er reiknað út að ef þúsund manns taki þátt geti það skilað þrjú til fimm þúsund persónulegum samtölum.
Viðreisn og Samfylkingin fara aðra leið og leita frekar að sjálfboðaliðum til að hringja í skráða flokksfélaga.
Eyrún benti á að orðalagið hjá Sjálfstæðisflokknum, að „fylgja fólki eftir“, sé nokkuð sérstakt og að það kalli fram hugmyndina um pólitískan eltihrelli. Ritstjórnin veltir fyrir sér hvort fólk verði jafn hrifið af því að fá kosningaáróður frá vinum og vandamönnum í fjölskylduboðum og við kaffivélina eins og af hefðbundnum símtölum frá flokkunum sjálfum en jafnframt að reynslan sýni að persónuleg samtöl skili flokkunum meiri árangri en auglýsingar.
Umræðan barst einnig að fjármögnun baráttunnar. Allt útlit er fyrir að Áfram Ísland, Regnhlíf nei-hreyfingarinnar, sé í sterkastri stöðu fjárhagslega.
Erla benti á að þar sem hámarksframlag einstaklings til stjórnmálaflokks er 550 þúsund krónur á ári séu flokkarnir á Já-hliðinni, Viðreisn og Samfylkingin, nú farnir að benda stuðningsfólki sínu á að þeir sem vilji leggja meira af mörkum geti í staðinn styrkt SJÁ eða Evrópuhreyfinguna beint, hreyfingar sem lúta ekki sömu reglum um fjárhagslegt gagnsæi og stjórnmálaflokkar og þurfa ekki að skila ársreikningi.
Aðalheiður fór yfir muninn á tveimur stærstu já-hreyfingunum. Evrópuhreyfingin lýsir sér sem „já-hreyfingin með stóru jái“ og segir fullum fetum að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið, á meðan SJÁ tekur ekki afstöðu til aðildar sjálfrar heldur leggur áherslu á að þjóðin fái að sjá samninginn áður en hún ákveður sig, nálgun sem höfðar frekar til óákveðnari kjósenda.
Þrátt fyrir að hreyfingarnar hafi rætt samstarf sín á milli síðastliðið vor var niðurstaðan að keyra hvor sína baráttu áfram sjálfstætt, fyrst og fremst vegna þessa skoðanamunar. Eina formlega samstarfið sem eftir stendur er sameiginleg já-kosningavaka á kjördag.
Ólíkar baráttuaðferðir endurspegla þennan mun. Evrópuhreyfingin leggur upp úr því að hitta fólk milliliðalaust, jafnvel með því að ganga í hús, á meðan SJÁ boðar til opinna funda.
Í þættinum var bent á að þessi ólíku form endurspegli ólík markmið hreyfinganna: opnir fundir henti vel hreyfingum sem vilja ná til óákveðinna og þeirra sem eru jákvæðir fyrir aðild en vilja sjá samning áður en þeir gera upp hug sinn um aðild. Aðferð Evrópuhreyfingarinnar sé betur til þess fallin að ná til nýs fólks með persónulegu samtali, enda líklegt að opnir fundir Evrópuhreyfingarinnar myndu aðeins draga að sér fólk sem þegar er búið að sannfæra.
Þátturinn endaði á umræðu um hlutverk Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í baráttunni. Helga rifjaði upp nýlegt viðtal við Kristrúnu í breska hlaðvarpinu The Rest Is Politics, þar sem hún hafi staðið sig vel að mati Helgu, en stjórnendur þáttarins, Rory Stewart og Alastair Campbell, hafi eftir á sett spurningarmerki við þá ákvörðun Kristrúnar að halda sig til hlés í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Aðalheiður gagnrýndi þessa afstöðu bresku þáttastjórnendanna og benti á að einmitt sú nálgun, að gera sig sjálfan að andliti baráttunnar, hafi verið mistök Davids Camerons í aðdraganda Brexit-kosningarinnar 2016.
Sú ákvörðun hafi mögulega átt þátt í bæði úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar og því að Cameron sagði af sér sem forsætisráðherra daginn eftir atkvæðagreiðsluna.
Að mati Aðalheiðar hafi Kristrún því líklega vegið og metið nálgun sína vandlega; að halda sig á hliðarlínunni þjóni bæði hagsmunum málstaðarins sjálfs og hennar eigin pólitísku hagsmunum, enda vilji hún ekki að framtíð ríkisstjórnarinnar velti á niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.
Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér eða á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.