
Mistök í kosningabaráttu breskra aðildarsinna voru fjölmörg í aðdraganda Brexit. Þeir áttu erfitt með að gangast við því að vera Evrópusinnar en stóðu líka frammi fyrir því að þurfa að verja óbreytt ástand. Staða íslenskra Evrópusinna er allt önnur. Þeir geta bæði lært af mistökum breskra aðildarsinna og nýtt sér stöðuna sem breskir útgöngusinnar voru í og geta verið afl breytinga ólíkt nei-sinnum sem neyðast til að verja óbreytt ástand.

Þessi grein birtist fyrst á vef Gímaldsins 24. júní 2026, í tilefni af því að tíu ár voru liðin frá Brexit atkvæðagreiðslunni.
Það er áratugur síðan Bretar ákváðu að ganga úr Evrópusambandinu. Á þessum tímamótum líta margir yfir farinn veg og meta áhrif ákvörðunarinnar. Þótt sú ákvörðun sem bíður íslenskra kjósenda í haust sé annars eðlis, geta Íslendingar ýmislegt lært af reynslu Breta. Efnahagsleg áhrif Brexit eru flestum ljós en það er ekki síður lærdómsríkt að rýna í aðferðir hinna stríðandi fylkinga fyrir tíu árum síðan nú þegar hinar íslensku Já- og Nei-hreyfingar eru að móta skilaboð sín í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar í haust. Það má ýmislegt læra af því hvernig breska útgöngufylkingin náði yfirhöndinni og hvar aðildarsinnar brugðust.
Breska útgönguhreyfingin, sem samanstóð af fólki úr mörgum flokkum, reisti herferð sína einkum á þremur stoðum: fullveldi, andúð á innflytjendum og villandi upplýsingum um kostnað Breta af ESB-aðild. Slagorðið „tökum aftur stjórnina“ (e. take back control) varð kjarni baráttu útgöngusinna og því var beitt á öll helstu málefni sem til umræðu voru. Slagorðið vísar til fullveldisrakanna og stjórnar á landamærunum sem útgönguhreyfingin setti á oddinn og er óneitanlega nokkuð hjákátlegt þegar litið er yfir síðasta áratug, sem einkennst hefur af algeru stjórnleysi í breskum stjórnmálum og krónískum vandamálum í málefnum innflytjenda og flóttafólks.
Eitt umdeildasta uppátæki útgöngusinna var yfirlýsing á rútunni sem flutti forystufólk hreyfingarinnar milli staða, en utan á henni stóð að Bretar sendu Evrópusambandinu 350 milljónir punda á viku, fé sem réttara væri að setja í heilbrigðiskerfið: Upphæðin nægir til að byggja nýtt, hóflega stórt sjúkrahús í hverri einustu viku. Breska hagstofan lýsti því yfir strax í apríl 2016, meðan kosningabaráttan var í fullum gangi, að talan væri í besta falli villandi, enda tæki hún hvorki tillit til endurgreiðslunnar sem Bretland hafði samið um né þeirra fjármuna sem rynnu til baka frá Brussel. Þrátt fyrir leiðréttinguna hélt hreyfingin tölunni áfram á lofti, og hún reyndist lífseig: enn árið 2018 trúðu 42% þeirra sem höfðu heyrt hana að hún væri rétt.
Innflytjendamálin komu svo til sögunnar þegar líða tók á baráttuna. Þar var líka ýmsum ósannindum flaggað. Því var meðal annars haldið fram að Tyrkland væri á hraðferð inn í sambandið og að því fylgdi stórfelld fjölgun innflytjenda. UKIP gekk lengst og birti myndband þar sem fullyrt var að Tyrkland myndi ganga í ESB árið 2020 og þá mætti búast við að 15 milljónir manna flyttust þaðan á fyrstu tíu árum aðildar. Sérfræðingar við London School of Economics hafa leitt líkur að því að Tyrklandsfullyrðingin hafi jafnvel ráðið úrslitum í atkvæðagreiðslunni um Brexit.

Aðildarhreyfingin, undir forystu Davids Cameron forsætisráðherra og Georges Osborne fjármálaráðherra, lagði hins vegar nær eingöngu áherslu á efnahagslega áhættu af útgöngu. Andstæðingarnir hæddust að þessu og kölluðu „áætlun óttans“ (e. Project Fear), hugtak sem fengið var að láni úr skosku sjálfstæðisbaráttunni 2014.
Erfitt er að leggja fullkomið mat á áhrif Brexit, enda hefur margt annað gengið á síðan Bretar gengu að kjörborðinu fyrir áratug: heimsfaraldur hefur geisað, stríð í Evrópu geisar enn og ekki er lengur hægt að treysta á hið sérstaka samband við Bandaríkin sem beitt hafa tollum í pólitískum tilgangi jafnt gegn vinum sínum jafnt sem óvinum.
Viðvaranir aðildarsinna:
Þótt erfitt sé að varpa fullkomnu ljósi á áhrif Brexit er ljóst að ýktasti hræðsluáróður aðildarsinna gekk ekki eftir. Tafarlaust efnahagslegt stórslys reið ekki yfir; útgangan reyndist langdregnari en spáð hafði verið, og raunveruleg útganga úr innri markaðinum kom ekki til fyrr en í ársbyrjun 2020.
Sá skaði sem varað var við hefur þó allur komið fram, þótt hann hafi verið lengur á leiðinni en spáð var. Greinendur eru sammála um að þjóðartekjur Breta væru nokkrum prósentum hærri ef þeir væru enn innan ESB og verg landsframleiðsla á mann er talin 6 til 8 prósentum lægri en hún hefði ella verið. Fjárfesting fyrirtækja er einnig mun minni en hún hefði líklega verið og telja greinendur að þar muni um 18 prósentum. Sterlingspundið hefur aldrei náð fyrra gengi, og hagfræðingar lýsa Brexit sem „stöðugum dragbít á hagkerfið“.
Loforð útgöngusinna:
Kosningaloforð útgöngusinna hafa ekki ræst, heldur þvert á móti. Efnahagslegi ábatinn lét aldrei á sér kræla; milljónirnar 350 hvorki spöruðust né runnu til heilbrigðiskerfisins, enda var talan uppspuni.
Fyrirheit um færri innflytjendur snerust beinlínis í andhverfu sína: Fjöldi aðfluttra hefur að jafnaði meira en tvöfaldast eftir útgönguna miðað við áratuginn á undan.
Það er engin tilviljun að einmitt þessi tvö loforð brugðust, því hvorugt byggði á áreiðanlegum greiningum heldur gengu þau þvert á móti gegn mati opinberra stofnana.
Breska þjóðin hefur líka fellt sinn dóm. Sex af hverjum tíu Bretum telja nú að Brexit hafi mistekist, og samkvæmt nýlegum könnunum YouGov segjast 56 prósent vilja ganga aftur í ESB. Breskir fjölmiðlar hafa undanfarið rætt við kjósendur sem kusu útgöngu fyrir áratug en lýsa nú biturð yfir ákvörðun sinni og reiði yfir því að hafa verið blekktir í aðdraganda Brexit.
Eftir stendur spurningin um fullveldið. Hversu vel hefur Bretum gengið að „taka aftur stjórnina“? Í innanríkismálum ríkir alger upplausn og í utanríkismálum á þetta fyrrverandi stórveldi í stökustu vandræðum með að finna stað sinn í heiminum.
Því má svo bæta við að þrátt fyrir spár útgöngusinna um að ESB yrði rústir einar í kjölfar Brexit, hefur hið gagnstæða gerst. Ekkert aðildarríki hefur fylgt í kjölfar Breta. Meira að segja skoðanasystkin Nigel Farage og Boris Johnson í öðrum Evrópuríkjum láta sér ekki detta í hug að leggja slíkt til heima fyrir. Brexit er ekki talin lausn, heldur víti til varnaðar, og biðröðin eftir inngöngu í Evrópusambandið hefur bara verið að lengjast.
Þótt kjósendur verji oft atkvæði sínu í þágu buddunnar, gekk treglega að vara þjóðina við neikvæðum efnahagsáhrifum þess að ganga úr ESB. Samkvæmt greiningum bresku kosningarannsóknarinnar (British Election Study), töldu aðeins 31% kjósenda að útganga hefði slæm áhrif á breskan efnahag. Yfir helmingur kjósenda trúði hins vegar að innflytjendum myndi fækka. Vonin um færri innflytjendur vó þannig þyngra en óttinn við neikvæð efnahagsáhrif. Við það bættist að von um breytingar dró fólk frekar á kjörstað en vilji til að verja óbreytt ástand.
Samkvæmt greiningu á bakgrunnsbreytum voru lítið menntaðir, eldri Bretar líklegri til að kjósa útgöngu og margir hafa viljað rekja tap aðildarsinna til óánægju og gremju verkafólks og lægri millistéttar í garð hinnar bresku valdastéttar.
Við bættist að áhugi á breytingum dró fólk frekar á kjörstað en löngun í óbreytt ástand, kjörsókn var hærri þar sem útganga varð ofan á, aðeins 16% Breta litu á sig sem evrópska, og lítið traust til þingmanna varð til þess að margir trúðu hreinlega ekki viðvörunum um efnahagslegan skaða. Bakgrunnsbreyturnar voru skýrar: kjósendur með grunnskólapróf eða minni menntun voru um 30% líklegri til að kjósa útgöngu, og stuðningurinn var mestur meðal eldri, minna menntaðra kjósenda í verkamannastörfum sem stóðu höllum fæti. Margir greinendur rekja úrslitin til óánægju og reiði verkafólks og lægri millistéttar í garð valdastéttarinnar. Þversögnin er sú að andstaðan við aðild var mest þar sem innflytjendur voru fæstir.

En af hverju gátu breskir aðildarsinnar ekki sannfært Breta? Þeim eru einkum eignuð þrenn mistök. Eftir á að hyggja var talið óheppilegt að David Cameron, sitjandi forsætisráðherra, leiddi baráttuna; flokkur hans var klofinn í afstöðu til aðildar, og hætt var við að kjósendur sneru atkvæðagreiðslunni upp afstöðu til ríkisstjórnarinnar frekar en til áframhaldandi aðildar Breta að ESB.
Í öðru lagi skorti jákvæð skilaboð í baráttuna. Í rýnivinnu sem hreyfingin sjálf lét vinna gátu óákveðnir kjósendur ekki nefnt einn einasta kost við aðild en þuldu rökin gegn henni umsvifalaust. Þá kom einnig í ljós að aðeins 16 prósent Breta litu á sig sem evrópska.
Í þriðja lagi kom ofnotkun hræðsluáróðurs í bakið á baráttunni. Kjósendur tóku að efast um þrálátar viðvaranir um slæm áhrif útgöngu fyrir efnahag landsins. Það hljómar undarlega en kjósendur efuðust ekki síður um viðvaranir aðildarsinna en fullyrðingar útgöngumanna.
Undirliggjandi vandi baráttunnar fólst í raun í því að aðildarsinnarnir treystu sér ekki til að taka heilshugar afstöðu með Evrópu. Það var ekki talið sigurstranglegt í Bretlandi að tala vel um Evrópu og Evrópusambandið en í staðinn lögð áhersla á að Bretar töpuðu fjárhagslega af útgöngu. Áframhaldandi aðild væri því meira eins og ill nauðsyn fremur en að Evrópusambandið væri beinlínis eftirsóknarverður félagsskapur. Sem dæmi gaf Jeremy Corbyn, formaður Verkamannaflokksins, sjálfum sér aðeins sjö af tíu í einkunn þegar hann var spurður hve mikill Evrópusinni hann væri.
Hvaða lærdóm geta Íslendingar dregið af reynslu Breta? Athyglisvert er að þótt fylkingarnar skipi sér í sömu sveitir, með og á móti ESB, hafa formerkin snúist við. Í Bretlandi var það útgöngufylkingin sem boðaði breytingar með ýmsum gylliboðum, en á Íslandi er það já-hreyfingin sem talar fyrir breytingum. Að sama skapi gegnir nei-hreyfingin hér að nokkru leyti sama hlutverki og hinir bresku aðildarsinnar: hún ver óbreytt ástand og er í raun hræðslubandalag íslensku baráttunnar.
Tilfinningarökin eru enn virkjuð, nú í báðum fylkingum. Nei-hreyfingin byggir að miklu leyti á sömu stefjum og útgöngusinnar í Bretlandi, um fullveldi, innflytjendur og mikilvægi þess að þjóðin ráði sjálf öllum sínum málum. Já-hreyfingin teflir á móti fram tilfinningarökum um mikilvægi sterkrar Evrópu á viðsjárverðum tímum og um að Ísland eigi heima í hópi líkt þenkjandi þjóða, en sækir að öðru leyti í áþreifanleg hagsmunamál á borð við gjaldmiðil, vexti og matarverð.
Fullveldisrök breskra útgöngusinna ættu að vera Íslendingum nokkurt umhugsunarefni. Útgöngusinnar lofuðu að „taka aftur stjórnina“, en tíu árum síðar stendur fullveldi Breta eiginlega veikara en nokkru sinni. Við þetta bætist sú kaldhæðnislega staðreynd að rússnesk áhrif á breskt lýðræði eru orðin veruleg en eftirlitsnefnd breska þingsins komst að því árið 2020 að slík afskipti væru orðin „hið nýja norm.“
Fyrir íslenska Evrópusinna felast mikil tækifæri í því að vera afl breytinga. Brexit reynslan sýnir að það er erfiðara að verja óbreytt ástand með hræðsluáróðri en bjóða upp á breytingar og bjartari framtíð.
Þá sýnir Brexit reynslan að þótt hreinar lygar geti reynst áhrifaríkar í snarpri kosningabaráttu getur skaðinn af slíkum aðferðum orðið svo mikill og langvinnur að bæði stjórnmálamönnum og kjósendum sjálfum ber skylda til að huga alvarlega að eigin ábyrgð og skyldu til að vanda sig betur þegar lýðræðið er annars vegar.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.