Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku

Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni og saga þorskastríðanna er þjóðarsaga. Hún geymir dýrmætan lærdóm fyrir smáríki í hörðum heimi.

Vald hinna veiku segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.

Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerðist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi.

Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Guðni Th. Jóhannesson er doktor í sagnfræði og var forseti Íslands árin 2016–2024. Hann gegnir nú stöðu prófessors í sagnfræði við Háskóla Íslands sem kennd er við Jón Sigurðsson. Guðni hóf rannsóknir sínar á sögu landhelgismálsins og þorskastríðanna undir lok síðustu aldar og fyrir fjórum árum gaf Sögufélag út fyrra verk hans um þau efni, Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins, 1961–1971. Árið 2006 kom einnig út stutt yfirlitsrit hans, Þorskastríðin þrjú. Saga landhelgismálsins, 1948‒1976.

Guðni hefur samið fjölmörg fræðirit og ævisögur sem hefur verið vel tekið. Hann hefur tvisvar verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlotið ýmsar aðrar viðurkenningar fyrir rannsóknir sínar.

Sögufélag  2026. ⎮  Innbundin, myndskreytt, 594 bls.  ⎮  Verð: 9.990,-

Í þessum kafla segir frá rás viðburða 24. maí 1973, nokkrum dögum eftir að breskir valdhafar ákváðu að senda herskip til að vernda togara innan 50 mílna fiskveiðilögsögunnar sem gekk í gildi 1. september 1972. Síðan þá höfðu þeir forðast að grípa til þess örþrifaráðs en varðskipsmenn trufluðu stöðugt veiðar, ekki síst með því að beita nýju leynivopni; klippum til að skera á togvíra landhelgisbrjótanna. Nú var þolinmæðin þrotin en Íslendingar brugðust illa við herskipaverndinni, eins og gefur að skilja. Á stöku stað er útskýringum bætt við innan hornklofa.

 

Óeirðir í landi, ólgusjór úti fyrir.
24. maí ‒ 1. júní 1973

 

24. maí 1973. Fimmtudagur

Ánægja skipstjóranna bresku er ekki órofa og varir ekki lengi. Senn slær í brýnu, þrátt fyrir yfirburði Breta í freigátum og fallbyssum.

Nú er 31 togari suður af Hvalbak og aflinn er tregur, þetta 5‒20 körfur í hali og lítið upp úr því að hafa. Á talstöðvarbylgjunni harma skipstjórar hlut sinn og vilja margir leita fiskjar á eigin ábyrgð í stað þess að lúta vilja sjóhersins. Um borð í Ægi heyrir Gylfi Geirsson [loftskeytamaður] þá bölva því að „fjandans Plymouth“ sé engu betri en „fjandans byssubátarnir“. Í óformlegri atkvæðagreiðslu upp úr ellefu segjast 14 vilja halda til „position KL“ en sjö telja skást að halda kyrru fyrir eða fara á „position DN“. Ekki er hægt að slá því föstu hvaða mið það eru en væntanlega er átt við Sléttugrunn og kannski staði undan Vestfjörðum. Á varðskipunum hlusta loftskeytamenn áfram á samskipti Breta eftir bestu getu. Hægt er að fylgjast með öllum rásum samtímis, bæði VHF-bylgjum sem draga aðeins 20–30 sjómílur og millibylgjum.

Í hópi hinna svekktu við Hvalbak er George Mussell, skipstjóri á Everton frá Grimsby. Tveimur árum fyrr hafði sá togari komist í sögubækurnar á þessum sömu slóðum eins og áður var nefnt, síðasti Bretinn sem gómaður var við landhelgisbrot fyrir útfærsluna í 50 mílur. Árin fyrir það stóra skref gerðist það reglulega að togari væri stöðvaður og færður til hafnar en nú myndi það auðvitað sæta tíðindum. Mussell ætlar að leita fiskjar hvar sem hann vill og hvað sem hver segir. Það er erfitt að kenna gömlum sjóhundi að sitja.

Fyrir hádegi eru ríkisstjórnarfundir í Reykjavík og Lundúnum. Á báðum stöðum er fiskveiðideilan á dagskrá. Ytra er margt annað til umræðu, meðal annars átök á vinnumarkaði sem valda ráðamönnum sífellt vandræðum, einhver málefni konungsfjölskyldunnar sem enn eru hulin leynd og loks afsagnir tveggja fyrirmenna vegna misgjörða sem ljóstrað var upp um. Forseti lávarðadeildarinnar varð að játa að hafa nýtt sér þjónustu vændiskvenna og myndir náðust af flugmálaráðherra reykjandi hass í rekkju með tveimur slíkum.

Menn verja ekki miklum tíma í fiskveiðimál í þessu andrúmslofti. Nánast til málamynda nefnir Alec Douglas-Home [utanríkisráðherra] að Norðmenn hafi boðist til að vera sáttasemjarar í deilunni en Bretar muni ekki sætta sig við gerðardóm og enn sé óljóst hvort Íslendingar fallist á milligöngu utanaðkomandi aðila. Einnig er upplýst um aðgerðir til að skýra rétt Breta og órétt Íslendinga sem muni skila sér í sanngjarnari fréttaflutningi.

Vart virðist vanþörf á. Þennan sama dag setur Peter Pooley [deildarstjóri í fiskimáladeild] saman minnisblað fyrir Joseph Godber [ráðherra landbúnaðar og útvegs] um afstöðu Jacks Jones sem hljóti að valda ugg og ama. Jones er enginn aukvisi, formaður TGWU, Landssambands almennra verkamanna. Nokkrum árum síðar var hann sagður valdamesti maður Bretlands, ekki að forsætisráðherranum undanskildum. Þótt héraðsformaðurinn Dave Shenton í Hull vilji ætíð láta hart mæta hörðu gegnir öðru máli um leiðtogann mikla. Pooley hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að Jones sé öskuillur vegna flotaverndarinnar. Hún sé ömurlegt dæmi um ofbeldi í anda nýlendustefnu og gagnist fyrst og fremst útgerðaraðlinum sem líti niður á hinn vinnandi mann eins og gerðist og gekk á Viktoríutímum.

Hér fæst því bæði staðfesting á því að Íslandsmál eru eiginlega aldrei efst í huga valdhafa ytra og sömuleiðis hinu að Bretar eru alls ekki einhuga í afstöðu sinni, þá sjaldan að hana ber á góma. Tryggð þeirra við málstaðinn er aldrei eins mikil og okkar Íslendinga. Það sést heldur betur þennan dag, í og við Stjórnarráðshúsið í Lækjargötu.

Ríkisstjórn Íslands kemur saman í Stjórnarráðshúsinu gamla. Landhelgismálið á allan hug ráðherranna, ólíkt því sem raunin er með starfsbræður þeirra ytra um sama leyti. Reyndar er eitt annað efni fyrst á dagskrá fundarins en ekki eru það einhver hneykslismál heldur togarakaup úti á landi. Útvegur er undirstaða alls á Íslandi.

Utandyra er nóg um að vera. Síðdegis verður útifundurinn mikli á Lækjartorgi sem boðaður var fyrr í vikunni. Svið er sett upp. Undir stjórn Bjarka Elíassonar yfirlögregluþjóns verður fjöldi lögreglumanna í miðborginni að stýra umferð og vera fólki innanhandar. Forsvarsmenn verkalýðsfélaga hafa skorað á almenning að mæta og atvinnurekendur verið fúsir til að veita fólki frí frá vinnu. Þá er búið að koma árabáti fyrir á túnblettinum fyrir framan Stjórnarráðshúsið. Það er Meira-Garðsbáturinn svonefndi sem Hannes Hafstein notaði á Dýrafirði árið 1899 þegar hann reri með öðrum að veiðiþjófunum á togaranum Royalist.

Á ríkisstjórnarfundinum fara menn yfir stöðuna og næstu skref í bardaganum við Breta. Engar ákvarðanir eru teknar en einhugurinn virðist alger. Í skeyti vestur um haf þennan dag hittir Frederick Irving [sendiherra Bandaríkjanna] naglann á höfuðið þegar hann segir að stjórnin hafi aldrei staðið eins vel að vígi. Vissulega gangi henni illa að glíma við verðbólguna og upplausnin innan Samtaka frjálslyndra og vinstri manna aukist með hverjum degi en yrði boðað til kosninga nú myndu Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag án efa auka fylgi sitt til muna.

Þannig tókst valdhöfum í Lundúnum ekki aðeins að sameina sundurlynda þjóð heldur líka að gera óvinsæla stjórn mikilsvirta og velmegandi, í það minnsta um stundarsakir. Það var ekki svo lítið.

Klukkan fimm eru yfir 25 þúsund manns komin saman á Lækjartorgi. Hafinn er fjölmennasti útifundur í sögu Íslands til þess tíma. Fleiri voru á Þingvöllum þegar þúsund ára afmælis Alþingis var minnst árið 1930 og þegar lýðveldi var stofnað á Lögbergi 14 árum síðar. Þar er þó ólíku saman að jafna.

Alþýðusamband Íslands stendur fyrir samkomunni en fulltrúar allra flokka á Alþingi flytja ávörp og staðfesta þannig einhug íslenskrar þjóðar. Fyrstur í ræðustól er Geir Hallgrímsson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hann mótmælir ofbeldi Breta, hvetur landsmenn samt til stillingar en veit að erlendir sendiherrar munu taka eftir þeim orðum hans að þegar herskip annars NATO-ríkis héldu á Íslandsmið hafi orðið „þau þáttaskil sem örlagarík kunna að verða lýðræðishugsjónum og þróun mála í vestrænum heimi“.

Benedikt Gröndal tekur til máls fyrir hönd Alþýðuflokksins, Jón Skaftason fyrir Framsóknarflokk og Ólafur Hannibalsson fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Síðastur á svið er Lúðvík Jósepsson [þingmaður Alþýðubandalagsins og sjávarútvegsráðherra 1956‒58 og 1971‒74]. „Láti NATO Bretum líðast að hafa herskipin á okkar lögsögusvæði þá getum við ekki heimilað NATO áfram afnot af okkar landi,“ segir hann skeleggur að vanda.

Auðvitað er blæbrigðamunur milli fulltrúa Alþýðubandalagsins og Geirs Hallgrímssonar. Samhljómurinn er samt sterkari. Rétt eins og aðrir ræðumenn uppsker Lúðvík dynjandi lófaklapp þegar hann lýkur máli sínu með þeirri herhvöt að nú skuli Íslendingar standa saman allir sem einn því að lokasigurinn sé í sjónmáli: „Sá dagur að síðustu bresku togararnir gefist hér upp við árangurslitlar veiðar, marghalastýfðir af varðskipum okkar og ósköp aumkunarlegir eftir þá útreið, er ekki langt undan. Þá munu herskip hennar hátignar drottningarinnar af Bretlandi einnig halda heim skömmustuleg eins og lúbarðir rakkar, eftir að hafa tapað stríði við vopnlausa smáþjóð.“

Í fundarlok er svo samþykkt ályktun gegn flotainnrás Breta. „Íslenska þjóðin mun aldrei semja undir valdbeitingu,“ segir þar og fólk hlýtur að hafa fyllst eldmóði og heilbrigðri ættjarðarást.

Upphaflega hafði verið áformað að afhenda John McKenzie [sendiherra Breta] ályktunina strax eftir viðburðinn en yfirmenn lögreglu óttuðust að einhverjir kynnu þá að efna til óspekta. Sendiherrann var hafður með í þeim ráðum að beðið yrði til morguns og vörður hafður við bústað hans þangað til.

Nú sést aftur á móti að hugur er kominn í þá heitustu í hópnum. Því er illa tekið þegar tilkynnt er á Lækjartorgi að daginn eftir muni sendiherra Bretlands taka við skilaboðum Íslendinga. Púað er og andmælt. „Förum upp á Laufásveg!“ hrópar einn. „Að breska sendiráðinu!“ kallar annar. Þangað streymir fólk í stríðum straumum. Lögregla býst til varnar. En enginn má við margnum.

Upp úr klukkan sex hafa um 60 lögreglumenn tekið sér stöðu yfir þveran Laufásveg, á mótum hans og Skothúsvegar. Þannig skyldi mannfjöldanum vörnuð leið að sendiherrabústað Breta rétt sunnar í götunni. Ekki veitir af. Hundruð hópast að, mikið til unglingar en einnig aðrir sem voru á útifundinum.

Enginn fer fyrir liðinu en æskublóminn hefur hátt. Nokkrum görpum tekst að smjúga í gegnum varnarmúr lögreglumanna. Þeir hopa og raða sér upp við steinvegginn fyrir framan bústaðinn. Þannig tekst að koma í veg fyrir að fólk haldi inn í garð og upp að húsinu.

Mótstaðan skapar múgæsingu. Einhver hrópar að nú skuli bara haldið að sendiráðsbyggingunni rétt ofar í götunni. Þangað streymir fjöldinn, verður á fjórða þúsund manns þegar mest er. Bjarki Elíasson skipar um 30 lögregluþjónum að fylgja fólkinu eftir en þeir ná ekki að hafa hemil á þeim ósvífnustu, mestmegnis táningum sem missa stjórn á sér. Hraunhellur og annað grjót er rifið upp í garði byggingarinnar, girðingar brotnar og öllu þessu er grýtt af miklum móð. Glerflöskur og egg eru líka tekin til handargagns. Þá finnast málningardósir í grenndinni svo að hvítmálað húsið verður senn útatað.

Hver rúðan á fætur annarri brotnar í Sturluhöllinni glæstu, fyrst að framan og svo að aftan, Bergstaðastrætis megin. Ætíð er fagnað og hrópað. „Eina rúðu fyrir hverja mílu!“ öskrar einn. Annar á staðnum rifjaði síðar upp heiftina sem ríkti. „Djöf… sem maður hataði Breta þessa daga,“ sagði sá. Enn annar mundi einmitt vel hvernig honum blöskraði „tryllingurinn“ sem blossaði upp og fleiri hafa tekið í svipaðan streng. Þetta eru skammarlegar aðfarir.

Innandyra fylgist John McKenzie með ósköpunum ásamt fjórum sendifulltrúum. Íslenska starfsliðið hafði verið sent heim. Fljótlega sjá Bretarnir að ekki er óhætt að vera í augsýn óeirðaseggjanna. Grjóti og glerbrotum rignir stöðugt inn í herbergi sem snúa að garði eða götu. Einn fimmmenninganna, Frank Martin, fær brotna flösku í höfuðið og blóðugt sár. Eftir það leita þeir allir skjóls í gluggalausri forstofu.

Í miðjum hamaganginum ákveða laganna verðir að ryðja völlinn. Þeim hefur fjölgað eftir því sem á líður, eru nær 90 á vettvangi. „Setjumst niður! Setjumst niður!“ heyrist þá hrópað. Kannski ungir róttæklingar meðal þeirra sem kalla þau boð, vanir að bregðast við hverjum vanda í mótmælum.

Á að nota táragas? Í skaranum eru börn, sum þeirra ekki í fylgd foreldra, og svo eru einhver hinna eldri með hvítvoðunga í barnavögnum í miðri hersingunni. Lögreglumenn byrja samt að stjaka fólki á brott en þröngt er í garðinum og börn byrja að gráta. „Það er ekki nokkur leið að eiga við þetta án þess að valda slysum,“ heyrist Óskar Ólason yfirlögregluþjónn segja, kunnur að liðlegheitum í sínum störfum. Í samráði við Bjarka Elíasson er ákveðið að ekki sé á það hættandi að beita einhvers konar valdi. Spellvirkin halda áfram.

Baka til skerst yfirvaldið þó í leikinn. Í flónsku sinni hafa nokkrir stráklingar vöðlað upp dagblöðum, kveikt í og fleygt inn um brotnar rúður. Dennis Fowler sendiráðsritari sér einn strangann strjúka gluggatjöld og lenda á miðju gólfi. Blessunarlega lognast eldurinn út af þar og utandyra ná lögreglumenn að binda enda á frekari íkveikjutilraunir. En það vita sendiráðsliðarnir ekki og eins og Fowler segir skömmu síðar var það „óskemmtileg tilhugsun að þurfa e.t.v. að yfirgefa húsið og flýja beint í flasið á þeim vitstola múg sem fyrir utan var“.

Ólætin vara í nær tvo tíma. Þá gerist lýðurinn lúinn. En skaðinn er skeður.

Ekki gerist það oft að Sir Alec Douglas-Home kalli fulltrúa erlends ríkis á sinn fund undir miðnætti. Hins vegar gerist það ekki heldur oft að sendiráð Bretlands sé nánast lagt í rúst. Klukkan korter yfir ellefu að kvöldi er Eiríkur Benedikz sendiráðunautur kominn í fastabústað utanríkisráðherra Bretlands við Carlton Gardens í miðborg Lundúna því að nú er Niels sendiherra fjarri góðu gamni. Eiríkur hóf störf í sendiráðinu í seinna stríði, ljúfur í lund og hafsjór af sögum, gat meðal annars lýst samfundum á öldurhúsum með Söru Churchill, rithöfundinum W.H. Auden og fleira mektarfólki.

Sá ljúfi Sir Alec er ekki mjúkur á manninn í þetta sinn. Hann mótmælir „mjög ákveðið“ árásinni á sendiráðið og starfslið þess, krefst viðunandi aðgerða til að tryggja öryggi þess og fullra skaðabóta fyrir þær skemmdir sem unnar voru. Samtalið eða eintalið verður ekki mikið lengra en í Reykjavík lætur John McKenzie andúð sína og furðu einnig í ljós. Í samtölum við íslenska embættismenn að kvöldi og næstu daga fordæmir hann andvaraleysi lögreglunnar og vesaldóm. Það eru hörð orð, ekki með öllu sanngjörn en svo sannarlega skiljanleg.

Satt að segja var þetta kvöld líklega lágpunktur landhelgismálsins af Íslands hálfu. Um það eru að minnsta kosti tveir forsetar lýðveldisins sammála. Að kvöldi dags skrifar Kristján Eldjárn í dagbók sína um farsælan útifund sem lauk með ósköpum. „Þetta er svívirðilegt og gerir ekki nema illt,“ skráir forseti hjá sér: „Það er merkilegt að menn skuli ekki skilja þetta. Ég hef áhyggjur af ofstopanum og gauraganginum í blessaðri þjóðinni.“

Aðrir taka í sama streng. Í forystugrein Vísis næsta dag er skrifað um „útrás aumingjanna“ en spjótum líka beint að yfirstjórn lögreglunnar. Eftir á að hyggja hefðu lögreglumenn mátt vera betur á verði þar. Hitt var þó rétt metið að hefðu þeir beitt hörku – táragasi og kylfum – hefðu margir getað troðist undir og mannskaði jafnvel orðið.

Íslenska ríkið sá um viðgerðir og greiddi um eina milljón króna vegna þess tjóns sem varð á sendiráðsbyggingunni. Það var dágóð summa, samsvaraði kaupverði þriggja nýlegra bifreiða af bresku gerðinni Vauxhall Viva. Ferðafrumkvöðlarnir Úlfar Jacobsen, Tómas Zoëga og fleiri í þeim geira urðu víst líka fyrir fjárhagstjóni því að fjöldi Breta hætti við Íslandsreisur vegna ólátanna, uggandi um öryggi sitt.

Sólarhringsgæslu við sendiráðið var haldið áfram uns yfir lauk en aðeins einu sinni virtist hennar þörf eins og síðar greinir. Að vísu var eitthvað um að ölvaðir Íslendingar kæmu að næturlagi, spörkuðu í steinvegginn við bygginguna og bölvuðu Bretum í sand og ösku.

Skemmdir og skandalar mega ekki yfirskyggja þann einhug sem birtist á Lækjartorgi þegar ríflega tíundi hver Íslendingur kom saman og krafðist þess að hvergi yrði gefið eftir í landhelgismálinu. Seint myndu nær sex milljónir Breta, sama hlutfall mannfjöldans ytra, mæta á útifund vegna fiskveiða við Íslandsstrendur. Einn þeirra ákveður þó þetta kvöld að láta til sín taka. Það hefði hann betur látið ógert.

 

[Þetta er kafli úr Vald hinna veiku eftir Guðna Th. Jóhannesson. Sögufélag gefur út, 2026.]

Síðast uppfært: 18. október, 2026
Deila grein:
Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link