Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu

Lestími: 16 mínútur

Vistforeldri sem mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra nefnir ferð á tónleika Kaleo sem dæmi um að au pair-kerfið virki vel. Á sama tíma biður Útlendingastofnun lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Verði frumvarpið að lögum munu au pair frá þrjátíu ríkjum áfram geta komið til Íslands án sérstaks dvalarleyfis.

Au pair-stúlka frá Filippseyjum fór á tónleika Kaleo á Þingvöllum í sumar. Það gerði önnur líka. Frásagnir af tónleikaferðum þeirra hafa verið settar fram á Facebook sem rök gegn nýju frumvarpi dómsmálaráðherra sem fjallar meðal annars um au pair utan EES.

María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása, skrifar að stúlkan sem býr hjá fjölskyldu hennar hafi ferðast um landið, hlaupið í Reykjavíkurmaraþoninu og farið á Kaleo. „Hún er ekki fórnarlamb,“ skrifar hún. Í athugasemd við færsluna segir annað vistforeldri að þeirra au pair hafi líka farið á Kaleo. Að fara á Kaleo-tónleikana á Þingvöllum virðist sett fram sem eins konar sönnunargagn í málinu.

Ég efast ekki um að þessum konum líði vel. En það að fara á tónleika segir okkur ekkert um þær sem ekki fara, þær sem vinna langt umfram leyfilegan tíma eða sofa í geymslu. Ráðherra sagði sjálf við Gímaldið í apríl 2026 að vistráðning, eins og au pair-dvöl heitir í lögum, færi „í mörgum tilvikum“ fram „með miklum sóma“. Góð reynsla einnar fjölskyldu segir okkur hins vegar ekkert um hvað gerist á heimili annarrar.

Eins og Gímaldið fjallaði um í mars 2026 sendi Útlendingastofnun að jafnaði tvær til þrjár beiðnir á ári til lögreglu um að kanna aðstæður vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Stofnunin sagði að ábendingar bærust oft ekki fyrr en vistinni væri lokið. Saga Kjartansdóttir hjá ASÍ benti á að fólk í þessari stöðu væri ólíklegt til að kvarta yfir fjölskyldunni sem það býr hjá og á dvöl sína undir. „Við erum ekki að sjá nema toppinn á ísjakanum,“ sagði hún.

Í frumvarpsdrögum dómsmálaráðherra er lagt til að dvalarleyfi vegna vistráðningar fyrir fólk utan EES verði fellt brott. Viðbrögðin hafa verið nokkuð hörð. Vistfjölskyldur hafa bæði skrifað umsagnir í samráðsgáttina sem og færslur á samfélagsmiðlum, og ráðherra hefur verið sökuð um fordóma og jafnvel rasisma.

Gímaldið fjallaði ítarlega um au pair-kerfið í þremur greinum síðastliðið vor, þar sem rætt var við fulltrúa ASÍ, Útlendingastofnunar og við dómsmálaráðherra. Í ljósi umræðunnar er ástæða til að rifja upp hvað þar kom fram.

„Eini munurinn er uppruni ungmennanna“

María Björk skrifar einnig að ef fyrirkomulagið væri hættulegt ætti það við um alla, því ungmenni frá EES megi áfram búa á sömu heimilum. „Eini munurinn er uppruni ungmennanna,“ skrifar hún.

Í athugasemd við færsluna skrifar kona nokkur að ef einhverjir fari illa með vistráðnar stúlkur sé það fólkið sem sé vandamálið, „ekki stelpurnar frá Filippseyjum“. Stúlkur frá EES lendi „væntanlega alveg jafnilla í vondum Íslendingum“.

Frumvarpið snýst þó ekki um Filippseyjar. Það nær til allra utan EES. María Björk segist sjálf hafa tekið á móti au pair frá Argentínu og Brasilíu, auk Filippseyja. Au pair frá þessum löndum falla öll undir breytinguna. Á árunum 2017 til 2024 fóru um 22 prósent leyfanna til annarra en Filippseyinga.

Gímaldið fjallaði 26. mars um áhyggjur Útlendingastofnunar af au pair-kerfinu og að stofnunin óskaði reglulega eftir lögreglu til að skoða aðstæður.

Útlendingastofnun lýsti vandanum fyrir Gímaldinu í mars 2026 út frá stöðu hins vistráðna, sem „er ungur að árum, talar ekki tungumál landsins og á hér alla jafna ekkert bakland“. Gagnrýnin er heldur ekki ný. Saga hjá ASÍ sagði að verkalýðshreyfingin hefði heldur ekki verið hrifin af kerfinu þegar vistráðnir komu einkum frá Þýskalandi og öðrum Evrópulöndum.

Það er alveg rétt að vandamálið eru fjölskyldurnar sem brjóta af sér, ekki konurnar. Enginn heldur öðru fram. Og vissulega getur þýsk stúlka lent á vondu heimili. Munurinn er hvað gerist í framhaldinu. Sú þýska getur pakkað niður, ráðið sig í aðra vinnu eða farið heim, en dvalarréttur hennar er óbreyttur. Kona utan EES sem fer frá fjölskyldunni á hins vegar á hættu að missa dvalarleyfið þar sem leyfið er tengt vistráðningu hjá tiltekinni fjölskyldu. Hjá fjölskyldunni sem hún býr, borðar og fær vasapeninga hjá.

Útlendingastofnun sagði við Gímaldið í vor að aðstöðumunurinn væri „óhjákvæmilega“ meiri þegar hinn vistráðni kæmi frá fátæku ríki og ætti mikið undir því að tolla í vistinni og fá góð meðmæli.

Hvað þetta getur þýtt sést á máli sem Gímaldið hefur einnig fjallað um. Ung filippseysk kona sem látin var gista í geymslu, með tjald í stað hurðar, kvartaði og fór af heimilinu. Útlendingastofnun afturkallaði þá dvalarleyfi hennar. Kærunefnd útlendingamála sneri ákvörðuninni við, en skilaboðin voru skýr: að fara frá vistfjölskyldunni getur þýtt missi á dvalarréttinum.

María Björk segir að ef vistráðnir vilji geti þeir skipt um fjölskyldu, „sem raunar er þegar hægt“. Á pappírnum kann það að vera rétt. Í raunveruleikanum er það mikil áhætta.

Hvíti bjargvætturinn

María Björk gengur lengra og segir það lykta „af hvítri forréttindablindu og af hvíta bjargvættinum“ að loka á ungt fólk vegna uppruna þess.

Þetta eru þung orð en þau standast ekki skoðun. Frumvarpið gerir vissulega greinarmun á fólki eftir því hvort það kemur frá EES eða utan þess, og ráðherra hefur nefnt Filippseyjar sérstaklega. En greinarmunurinn snýst um ólíka réttarstöðu, ekki um að konur frá tilteknum löndum séu óæskilegar hér. Au pair frá EES-ríki getur farið frá vistfjölskyldu og fengið aðra vinnu án þess að missa réttinn til að dvelja hér. Au pair utan EES er hins vegar háð vistfjölskyldunni um dvalarleyfið sjálft.

Áhyggjur af stöðu au pair utan EES koma heldur ekki frá ráðherra einni. Bæði ASÍ og Útlendingastofnun, sem afgreiðir leyfin og biður lögreglu að kanna aðstæður á heimilunum, hafa lýst yfir sínum áhyggjum.

Hvatinn að frumvarpinu virðist heldur ekki vera sá sem María Björk lýsir. Ráðherra sagði við Gímaldið í apríl 2026 að umræðan um útlendingamál snerist miklu meira um að útlendingar misnotuðu kerfið en um það hvort útlendingar væru þolendur brota. „Við viljum ekki vera land sem laðar til sín fólk í veikri stöðu og ekki er farið vel með það,“ sagði hún.

Sjá einnig: Au pair-kerfið til endurskoðunar hjá dómsmálaráðuneytinu

Ef rætt er um forréttindi er rétt að spyrja hver nýtur þeirra. Í núverandi kerfi fá íslenskar fjölskyldur barnagæslu og heimilisaðstoð gegn fæði, húsnæði og vasapeningum, að lágmarki 15 þúsund krónum á viku. Áhættan liggur hjá konunum, ekki fjölskyldunum.

Vernd sem felst í því að loka leið er hins vegar ekki sjálfkrafa vernd. Í sameiginlegri umsögn 87 foreldra í samráðsgáttinni er varað við því að þörfin fyrir heimilisaðstoð hverfi ekki heldur færist í óskráð fyrirkomulag. Það er raunveruleg hætta sem stjórnvöld þurfa að hafa í huga.

En hér skal ítreka að verði frumvarpið að lögum munu au pair frá EES- og EFTA-ríkjunum áfram geta komið hingað enda þurfa þau ekki sérstakt dvalarleyfi. Þessi ríki eru: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ítalía, Króatía, Kýpur, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Malta, Noregur, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.

„Au pair er menningarskipti, ekki atvinnusamband“

Þannig skilgreina lögin þetta, og það er rétt hjá Maríu Björk. Hugmyndin er að ungt fólk á aldrinum 18 til 25 ára búi hjá íslenskri fjölskyldu í allt að tvö ár, kynnist menningu og tungumáli og sinni léttum heimilisstörfum og barnagæslu. Í staðinn fær það fæði, húsnæði og vasapeninga. Dvalarleyfið er formlega námsmannaleyfi en ekki atvinnuleyfi. Spurningin er hvernig það er í framkvæmd.

Í umfjöllun Gímaldsins í mars kom fram að í lokuðum Facebook-hópi vistfjölskyldna væri auglýst eftir au pair annarra til að þrífa á öðrum heimilum. Dæmi voru líka um að tvær fjölskyldur deildu einni stúlku sem bjó á hvoru heimili aðra hvora viku. Saga hjá ASÍ sagði að fjölskyldur nýttu kerfið „til þess að leysa umönnunarvanda“. Hún benti einnig á að sumar au pair drýgðu tekjur sínar með því að þrífa hjá öðrum fjölskyldum, sem er svört og ólögleg vinna. Þá bar Saga kerfið saman við gamla vinnukonukerfið, þar sem konur fengu herbergi og smá pening fyrir heimilisstörf. „Ég sé ekkert mikinn mun þarna á,“ sagði hún.

Sjá einnig: Ungar konur notaðar sem ódýrt vinnuafl: Hætta á misneytingu í au pair-kerfinu

Ef markmiðið er menningarskipti er líka eftirtektarvert að vistfjölskyldum ber engin skylda til að greiða fyrir íslenskunám, og vasapeningarnir duga ekki fyrir því.

Í lokuðum Facebook-hópi vistfjölskyldna lýsti foreldri því að au pair fjölskyldunnar hafi unnið átta tíma á dag, „eins og barnið sé hjá dagforeldri“. Reglurnar heimila að hámarki fimm tíma vinnu á dag. Saga Kjartansdóttir hjá ASÍ deildi skjáskotinu með Gímaldinu í vor.


Samkvæmt umfjöllun Gímaldsins síðan í vor bendir Útlendingastofnun á að sífellt algengara sé að konurnar hefðu áður verið í vistráðningu annars staðar í Evrópu eða færu í aðra að dvölinni hér lokinni. Vistráðningin er þá ekki einstakt tímabil menningarskipta heldur hluti af lengra ferli. Þórhildur Ósk Hagalín, upplýsingafulltrúi stofnunarinnar, benti einnig á að sumar konurnar eigi börn á framfæri í heimalandinu. „Þetta vekur upp spurningar um hvort raunverulegur tilgangur dvalar þeirra hér á landi sé menningarskipti en í því sambandi þarf að hafa í huga að mánaðarleg lágmarksupphæð vasapeninga til vistráðinna einstaklinga á Íslandi er hærri en meðal mánaðarlaun á Filippseyjum,“ sagði hún við Gímaldið.

Gímaldið rifjaði einnig upp að DV hefði árið 2022 sagt frá því að au pair-stúlkur frá Filippseyjum sem koma hingað á vistráðningarsamningi hefðu greitt allt að 400 þúsund krónur til milliliðs fyrir að komast í samband við íslenskar fjölskyldur.

Í umsögn foreldranna 87 er vistráðningu lýst sem leið til að báðir foreldrar geti verið í fullri vinnu og til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Reglurnar heimila þó að hámarki fimm stunda vinnu á dag og alls þrjátíu á viku, eins og Gímaldið greindi frá í mars. Þær takmarkanir vekja spurningar um hversu vel vistráðning getur brúað umönnunarbilið sem foreldrarnir lýsa.

María Björk skrifar að filippseyskar au pair hafi orð á sér fyrir að vera „traustar og umhyggjusamar“ og séu því „eftirsóttar“. Þar er verið að lýsa góðum starfsmanni, ekki ungmenni í menningarskiptum. Og þar sem eitthvað er eftirsótt er eftirspurn. Saga hjá ASÍ lýsti henni í samtali við Gímaldið í mars 2026: vaxandi eftirspurn íslenskra fjölskyldna eftir ódýrri lausn á umönnunarvanda. Skjáskotin úr Facebook-hópnum gáfu góða mynd af því.

„Svarið er eftirlit, ekki bann“

Þetta er sterkasta röksemd gagnrýnenda og að hluta til rétt. Árið 2023 gerði Alþingi Útlendingastofnun skylt að fela sérstökum aðila eftirlit með vistráðningum, þar á meðal að taka út aðstæður á heimilum. Á Alþingi í febrúar 2024 var skýrt frá því að framkvæmdin krefðist kostnaðargreiningar og lagabreytingar um gjaldtöku. Tvö og hálft ár eru síðan og skyldunni hefur ekki verið framfylgt. Í umsögninni er það kallað „lýsing á vanrækslu“ að nota skort á eftirliti sem rök fyrir afnámi.

Foreldrarnir benda á að Noregur hafi gefið út að meðaltali 763 leyfi á ári en Ísland innan við hundrað, og segjast reiðubúnir að greiða gjald til að fjármagna eftirlit. Í drögunum segir að ekki sé raunhæft að fjármagna eftirlit „í ljósi umfangs leyfaflokksins og þess kostnaðar sem af því getur hlotist“, en gjaldtaka af vistfjölskyldum er þar ekki rædd.

Það er hins vegar annað mál hvort eftirlit dugi. María Björk leggur til spurningalista, hjálparsíma og fjarviðtöl. Allar þessar leiðir byggja á því að konan segi sjálf frá meðan hún býr enn á heimilinu. Útlendingastofnun segir að ábendingar berist oft ekki fyrr en vistinni er lokið, og ASÍ að fólk í þessari stöðu sé ólíklegt til að leggja fram kvartanir gegn fjölskyldunni.

Í umsögn foreldranna er gengið lengra. Þar er lagt til að fjölskyldur verði skimaðar fyrir fram, greiðslur verði rekjanlegar, rætt verði við vistráðna utan heimilis og fjölskyldur sem brjóta reglur verði útilokaðar, eins og gert er í Danmörku. Þær leiðir byggja ekki á því að konan kvarti. Samkvæmt umsögninni rak Noregur þó bæði au pair-miðstöð og kom upp útilokunarkerfi áður en leyfin voru afnumin.

„Við viljum ekki vera land sem laðar til sín fólk í veikri stöðu og ekki er farið vel með það,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra við Gímaldið í vor.

Jafnvel þegar ábendingar berast er eftirfylgnin vandkvæðum bundin. Útlendingastofnun sagði við Gímaldið í marsmánuði að biðtími eftir lögreglu væri oft langur og að í sumum tilvikum hefði ekki tekist að kanna aðstæður á heimili áður en dvalarleyfið rann út. Árið 2022 sagði Útlendingastofnun að lögregla yrði upplýst um mál kvennanna sem greitt höfðu milliliði fyrir að komast í samband við íslenskar fjölskyldur. Þegar Gímaldið spurði um afdrif þess í ár fengust engar upplýsingar.

Í norskri könnun sem Gímaldið fjallaði um kom fram að þriðjungur vistráðinna hafði unnið umfram leyfilegar þrjátíu stundir, fimmtungur meira en átta tíma á dag og ein af hverjum tíu alla daga vikunnar. Árið 2014 sýndi norska ríkisútvarpið heimildarmyndina Herskap og tenarar, eða Herrar og þjónar, um hvernig au pair frá Filippseyjum var þrælað út á norskum heimilum. Saga frá ASÍ sagði röksemd norskra yfirvalda hafa verið þá að þau gætu ekki tryggt öryggi vistráðinna inni á heimilum fólks. Í frumvarpsdrögunum segir að Norðmenn hafi áður hert skilyrði og eftirlit, án tilætlaðs árangurs. Þeir reyndu sambærilega leið og gagnrýnendur frumvarpsins leggja nú til, og hættu samt að gefa út dvalarleyfi til au pair utan EES.

Umsögnin bendir þó á atriði sem vert er að skoða. Danir, Svíar og Finnar héldu kerfinu og settu um það reglur, og þar mega vistráðnir skipta um fjölskyldu, eða fá svigrúm til þess, án þess að missa leyfið. Drögin skýra ekki hvers vegna sú leið er ekki talin fær hér.

„Hvar eru staðreyndirnar?“

Óskar Magnússon, fyrrverandi útgefandi Morgunblaðsins, tók undir færslu Maríu Bjarkar og sagði óþolandi að ætla að breyta lögum „vegna orðróms“. „Hvernig stjórnsýsla er það? Hvar eru staðreyndirnar?“ skrifaði hann.

Í drögunum eru ekki birtar tölur um staðfest brot. En þetta er ekki orðrómur. Kærunefnd útlendingamála kvað upp úrskurð í máli filippseysku konunnar sem var látin gista í geymslu. Útlendingastofnun biður lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna. Útlendingastofnun hefur sjálf lýst áhyggjum af aðstöðumuninum. „Sú kerfislæga hætta á misnotkun sem leiðir af þessum aðstöðumun hefur lengi verið áhyggjuefni þeirra sem koma að þessum málum,“ sagði Þórhildur við Gímaldið í mars 2026. Skjáskotin úr Facebook-hópi vistfjölskyldna eru til. Í skýrslu starfshóps dómsmálaráðuneytisins frá nóvember 2025 segir að skilyrði og eftirlit með vistráðningum hér séu „mun veikari en í löggjöf annarra norrænna ríkja“. Forseti ASÍ fundaði með ráðherra vegna vísbendinga um kerfisbundna misnotkun, eins og Gímaldið greindi frá.

Þegar ábendingar berast ekki fyrr en vist lýkur, eins og Útlendingastofnun segir að gerist oft, er varasamt að líta á fjölda staðfestra brota sem tæmandi mynd af vandanum.

„Bitnar á barnafjölskyldum“

Greta Salóme Stefánsdóttir söngkona, sem er meðal foreldranna sem standa að umsögninni, tók undir Facebook-færslu Maríu Bjarkar og kallaði frumvarpið „sorglegt útspil án alls samtals, gagna eða vilja til endurbóta sem bitnar helst á barnafjölskyldum og tækifærum þessara stúlkna“.

Samráð var þó haft, meðal annars við ASÍ og Útlendingastofnun, en ekki beint við vistfjölskyldur eða vistráðnar konur. Allir áttu þess hins vegar kost að senda umsagnir inn í samráðsgátt stjórnvalda. Á árunum 2017 til 2024 voru veitt 766 leyfi, innan við hundrað á ári, svo þetta snertir tiltölulega fáar fjölskyldur í stóra samhenginu. Umönnunarbilið milli fæðingarorlofs og leikskóla er hins vegar raunverulegt og bitnar helst á mæðrum. Í drögunum er hvorki metið hvernig fjölskyldur eiga að brúa það né hvort framboð er af annarri þjónustu, en það er varla hægt að reikna með slíku í frumvarpi frá ráðuneyti dómsmála um breytingar á lögum um útlendinga.

Lausnin á umönnunarbili íslenskra fjölskyldna getur hins vegar ekki falist í vinnu ungra kvenna utan kjarasamninga og stéttarfélaga. Saga hjá ASÍ benti á aðra leið í samtali við Gímaldið í vor: ef vilji er til að ungt fólk komi hingað að vinna má veita því atvinnuleyfi, greiða laun samkvæmt kjarasamningum og tryggja því rétt til að vera í stéttarfélagi.

Það sem eftir stendur

Bæði ráðherra og gagnrýnendur segjast vilja vernda þessar konur. Ágreiningurinn snýst um hvort hægt sé að laga með reglum þann aðstöðumun sem felst í því að búa, vinna og eiga dvalarrétt sinn undir sömu fjölskyldu. Reynsla Norðmanna bendir til að hertar reglur og aukið eftirlit dugi ekki til að tryggja öryggi þeirra.

Ferðin á Kaleo-tónleikana á Þingvöllum var sannarlega raunveruleg. En það var svefnplássið í geymslunni líka.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 17. október, 2026, 08:23

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link