
Í upphafi var þögnin.
Í marga mánuði var slökkt á heiminum – engin ljós, engar fréttir, ekkert net. Mannkyn stóð bjargarlaust andspænis nýjum veruleika: Súpergreind hafði tekið völdin.
Þegar kveikt er á öllu á ný stígur fram dularfull kona í Asíu. Hún er kölluð Frelsarinn af fylgjendum sínum og fremur röð kraftaverka sem gefa nýja von. Er hún dýrlingur, slátrari eða bara enn einn svikarinn?
Í skugga hennar tvinnast saman þrjú líf: herlæknir á Tælandi, tæknijöfur með lykilinn að Endalokunum í vasanum og blind stúlka í norskum firði.
Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Steinar Bragi hefur um árabil verið í fremstu röð íslenskra skáldsagnahöfunda og sögur hans hafa ratað til lesenda um allan heim. Hann hefur gefið út ljóðabækur með óbundnum ljóðum og prósaljóðum frá árinu 1998 en fyrsta skáldsaga hans, Turninn, kom út árið 2000 og í kjölfarið Áhyggjudúkkur (2002), Sólskinsfólkið (2004) og Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins (2006). Skáldsagan Konur (2008) var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs sem og Truflunin (2020). Nýjustu verk Steinars Braga eru Dáin heimsveldi (2022), Gólem (2024) og nú FRELSARINN, framtíðartryllir um guði og vélar – og það sem kemur á eftir.
Fuglinn 2026 ⎮ Innbundin, 516 bls. ⎮ Væntanleg 1. nóvember 2026
[1. kafli]
Úti við sjóndeildarhringinn risu glampandi hvítir tindar Bhagirathi-fjallanna. Skuggarnir frá þeim teygðu sig langt út yfir sandauðnina. Snjórinn í hlíðunum glampaði svo sterkt að Mahimu verkjaði í augun við að horfa þangað. Neðar tók við grá og líflaus urð sem jökullinn hafði sorfið úr fjallshlíðunum.
Sólin kom upp fyrir hálftíma en það breytti engu. Mahima hafði stöðvað bílinn nokkrum sinnum á leiðinni upp eftir og ákveðið að best væri að snúa við. Hún vissi ekki af hverju. Of stuttur svefn, eða bara þessi tvö hvítvínsglös sem hún drakk fyrir svefninn. Hún hafði komið þarna undanfarin fimm ár til að mæla mosann sem var fyrsti landneminn í leðjunni sem jökullinn skildi eftir sig. Fyrst var hún með Nabir, prófessornum sínum úr skólanum, en svo fór hún ein. Hingað til hafði henni fundist það betra.
Hún ók eftir slóðanum og GPS-ið sagði að hún væri bara klukkutíma frá jaðrinum. Þetta var ekki landslag fyrir manneskjur, það var einsleitt og kalt og grimmt, en líka svo fornt að Mahima átti stundum erfitt með að ná utan um það. Eyðimörk en líka eins og úthaf á sífelldri hreyfingu, þótt mennsk augu gætu ekki numið hana. Eitthvað sem hélst ekki við í kistunni sinni, fór á stjá og brakaði undan því.
Eitt varð að öðru. Líkingar.
Hún var ekki vön því að hugsa svona.
Eftir nokkrar mínútur hvarf slóðinn. Framundan varð jörðin stórgrýttari og sandurinn gljúpari. Fimmtán árum áður hafði jökulröndin náð hingað, lóðréttur veggur af sótugum klaka, en nú var hann tveimur kílómetrum norðar.
Í græjunum var rólegur jazz og hundurinn Eia svaf í aftursætinu, ljósgyllt Labrador-tík sem var eins árs og eilítið farin að róast eftir að hafa nagað húsgögn og spangólað og vanið sig á að sofa hvergi nema í rúminu hjá mömmu sinni.
Jökullinn gnæfði æ hærra yfir og glampaði svo sterkt á hann að Mahima setti upp sólgleraugun. Í staðinn varð erfiðara að komast hjá að sprengja dekkin á grjótinu sem birtist af og til upp úr auðninni.
Mest af leysingavatninu hafði runnið aðra leið. Mahima hafði fylgst með því síðasta vetur með hjálp gervihnattamynda sem skólinn var áskrifandi að. Landið sem birtist var fljótt að þorna þegar voraði, á yfirborðinu að minnsta kosti, og nóg til að bera lítinn jeppa.
Hún hafði annað augað á símanum og sá merkið lækka, þar til síðasta strikið var horfið.
Skömmu síðar stöðvaði hún bílinn hjá skilti merktu Gangotri-þjóðgarðinum. Orðin á skiltinu bönnuðu aðgang að svæðinu „vegna jarðfræðilegrar hættu og rannsóknarhagsmuna,“ og brotlegir yrðu sektaðir um helling af rúpíum. Mahima efaðist um að nokkur sem væri kominn alla leið uppeftir tæki mark á viðvöruninni, það var ekki eins og skólinn hefði efni á því að setja upp öryggismyndavélar þarna.
Hún steig út og dró ofan í sig loftið. Í logni var það ferskara en nokkurs staðar í heiminum en um leið og hreyfði vind rótaðist upp fínleg aska vegna þurrkanna sem höfðu geisað þarna allt of lengi. Þá gæti hún allt eins staðið á gatnamótum í miðborg Delhi. Hún reyndi að leiða hjá sér þögnina. – Hvenær hafði henni fundist svona djúp háfjallaþögn vera endurnærandi, eins og smyrsl á sálina? Það var hlægilegt. Þögnin var truflandi.
Eia ýlfraði í aftursætinu og starði á hana út um gluggann. Mahima opnaði og Eia stökk út og byrjaði að snuðra kringum bílinn eftir ummerkjum um aðra hunda, eins og fólk fór á netið að lesa statusa og hvað var nýjast í dauðastríði kapítalismans. En á þetta svæði hafði enginn hundur komið í tugþúsundir ára, aldrei sem sagt – af því að á þeim tíma voru hundar úlfar.
Mahima brosti með sjálfri sér og beið eftir að hundurinn lyki við að pissa. Þær voru ekki komnar að stikunni sem markaði jaðar svæðisins, samt fannst henni óþægilegt að horfa upp á þetta – kvikindið að pissa yfir þessa nýopnuðu bók jarðsögunnar. Áður en þær lögðu af stað hafði hún þvegið Eiu hátt og lágt og sérstaklega um þófana, og borið hana svo í fanginu út í bíl. Heimskuleg ákvörðun en hún gat bara ekki hugsað sér að vera alein þarna.
Slaka á fullkomnunaráráttunni, hugsaði hún eins og Nabir, mentorinn hennar í skólanum, minnti hana á af og til.
„Inn! Duuugleg,“ sagði hún við Eiu og opnaði dyrnar á bílnum. En Eia heyrði ekki í henni. Hún sneri í átt að jöklinum, hélt höfðinu lágt og urraði. „Hvað ertu að gera?“ Mahima kraup hjá henni og strauk henni yfir bakið. „Sérðu eitthvað?“ Hún hló lágt. „Er ég búin að smita þig af ruglinu í mér ...“
Hún fylgdi augnaráði hundsins yfir sandana og að jöklinum. Engin dýr voru sjáanleg þar en kannski fann Eia samt lyktina af þeim. „Takk fyrir að vernda mig. En nú þarf mamma að vinna.“ Hún tók um hausinn á Eiu og kyssti hana og fékk hana loks til að þegja.
„Inn núna. Komdu.“ Mahima hjálpaði hundinum að klöngrast inn í aftursætið, hagræddi teppinu fyrir hana og varaði sig á að hafa smugu á glugganum til að bíllinn hitnaði ekki of mikið. Þá fór hún í skottið til að tvítékka að hún væri með allt sem hún þarfnaðist í bakpokanum, þótt það væri í sjálfu sér ekki mikið. Hún burstaði fötin að utan og notaði límrúllu að auki til að hún færi ekki að bera með sér frjó eða fræ sem gætu breytt svæðinu.
Hún tók nýþvegna gönguskóna upp úr poka og klæddi sig í þá, drakk nokkra sopa af kaffi og athugaði skönnunargræjuna sem líktist handfanginu á tennisspaða.
Tilbúin.
Hún gekk fram fyrir bílinn. Jökullinn var ekki hvítur og hreinn eins og á póstkortunum, heldur skítugur og hrjúfur, þakinn möl og grjóti sem hann hafði rifið með sér á ferð sinni niður dalinn, þar til hann stoppaði og byrjaði að hopa. Mest af drullunni var neðst í hlíðunum, þar sem ísinn bráðnaði undan sandinum sem fauk upp á hann þegar blés og jók enn á bráðnunina. Sprungur skáru sig inn í hann eins og sár, sumar svo djúpar að þær hurfu ofan í blátt myrkur þar sem vatnið gutlaði langt undir yfirborðinu. Hér og þar glitti í stærri kletta sem gátu hafa verið umluktir klaka í þúsundir ára. Þetta var dauðvona dýr, risavaxið og stirt og hægfara, sem hopaði undan hitanum og skildi eftir sig slóð af eyðileggingu.
Jöklafræðingarnir höfðu rekið niður stikur við gömlu jökulröndina, og endurtóku það á hverju ári til að mæla hopið. Svo komu umhverfisfræðingar eins og hún og notuðu þær sem viðmið til að skrásetja hvað gerðist á svæðinu. Það var afar sjaldgæft að mosi, hvað þá plöntulíf, skyti rótum í jökulurð fyrr en nokkrum áratugum eftir að jökullinn var horfinn, en strax eftir tvö ár höfðu þau séð fyrstu mosaþyrpingarnar.
Hún kom að fyrstu stikunni, járnkubbi sem stóð nokkra sentimetra upp úr jörðinni og hefði aldrei fundist nema með GPS-rannsóknarappinu í símanum. Þar mældi Mahima út stefnuna að næstu stiku og lyfti skannanum sem myndi kortleggja lífræna efnið, mosaþyrpingar og alla einstaklinga innan þeirra, og taka af þeim þrívítt mót til að skoða í tölvu.
Daufur geisli frá skannanum rann yfir sandinn á undan henni. Líklega voru breiðurnar um þriðjungi stærri en árið áður. Flétturnar höfðu verið fyrstar, skærappelsínugular Xanthoria-breiður og svartar skófir sem höfðu nagað grjótið og undirbúið komu næstu kynslóða. Og nú var mosinn tekinn við; harðger Grimmia-mosi, sem festi rætur í smæstu sprungum á grjótinu og myndaði þétta, grágræna púða sem héldu í sér raka. Inn á milli voru skærari blettir af Syntrichia, litirnir undurfínlegir og ljómuðu við sólinni, í skarpri andstöðu við dökkt grjótið. Þetta voru smávaxnar hetjur, líf sem þraukaði þar sem ekkert annað gat lifað, og breyttu dauðu grjóti hægt og bítandi í jarðveg.
Þetta var svo mikið kraftaverk en um leið snerti það Mahimu bara alls ekki. Hún vildi ljúka því af að telja þessar keðjur af kolefni og vetni og koma sér svo burt. Hún var hrædd og hafði enga góða ástæðu til þess. Var það eitthvað sem hún sá útundan sér? Uppi á jöklinum? Úlfar? Hafði Eia séð það líka eða voru þær að missa vitið þarna, saman?
Hún tiplaði varlega yfir sandinn, hafði augun af og til á jöklinum en tók ekki eftir neinu óvenjulegu. Við næstu stiku fullvissaði hún sig um að skannið afritaðist á minniskubbinn, tók afrit af því á annan kubb og stakk honum inn á sig. Sólin færðist hærra á himininn, loftið hitnaði og hópur af álftum flaug yfir á leiðinni austur; Mahima heyrði þytinn frá vængjunum, og enn ofar dró flugvél línu yfir himininn.
Eftir því sem leið á gönguna varð hún rólegri. Jökullinn færðist nær og nokkrum metrum frá tíundu stikunni hófst svæðið þar sem mosinn hafði endað vorið áður. Mahima hreyfði sig sérstaklega gætilega þar; hvert skref gat drepið, eða að minnsta kosti tafið verulega, þúsundir lítilla mosavina. Nýjustu landnemarnir voru frískir að sjá en þannig séð í engu frábrugðnir eldri félögum sínum, þyrpingarnar voru smærri og vöxturinn eilítið rytjulegri en sama prinsippið var að verki í þeim öllum: hærra, dýpra, lengra! Fjölga sér og stækka!
Mahima skannaði línuna og setti stafrænt merki þar sem síðasta þyrpingin óx. Til að fullvissa sig um að engir græðlingar leyndust innar á sandinum gekk hún lengra inn á svæðið, en ekkert hafði skotið rótum þar. Svona nálægt jöklinum var jarðvegurinn ennþá of blautur og kaldur og snauður af næringarefnum.
Hún opnaði bakpokann og tók upp plastaða stiku, vandlega sótthreinsaða, og stakk henni í jaðarinn. Þá voru þær ellefu. Ef tempóið á svæðinu héldi sér – hraðinn jókst reyndar eftir því sem fleiri lífvænlegar þyrpingar voru í grennd – yrði mosinn kominn fimmtíu til hundrað metrum fram úr stikunni næsta vor. Á bakaleiðinni myndi hún setja upp AI-virkjuðu fjölrófsgleraugun; með útfjólubláu stillingunni urðu kítínskeljar smádýra ljómandi eins og blá neonskilti, jafnvel köldustu bjöllurnar. En hana langaði ekki strax til baka. Óttinn frá því fyrr um daginn var með öllu horfinn, og hún fann gamla lífsþorstann flæða um æðarnar. – Eflaust var það náttúran, smyrslið á hennar Delhitættu sál, og ástæðan fyrir að hún hafði valið sér þetta starf: blíðan og kyrrðin sem hún fann í náttúrunni, lífsmagnið sem öll tæknin í veröldinni myndi aldrei ná að jafna.
Og þá sá hún þá. Klettana sem risu upp úr jöklinum.
Hún sótti stafræna kíkinn, sem hún notaði stundum til að fylgjast með fuglum, og bar hann að augunum. Hún sneri fókushjólinu þar til myndin varð skýr. Veröldin þagnaði í kringum hana. Hún blés hægt frá sér og fann hjartsláttinn rjúka af stað.
Þetta voru ekki klettar. Og ekki sandsteinsmyndanir af völdum vinds eða vatns. Náttúran hatar beinar línur, eins og Nabir sagði í inngangskúrsunum sínum; jökullinn mölvar og slípar, en hann byggir ekki – minnisvarða? Legsteina?
Það sem hún sá voru þrír svartir drangar sem risu upp úr ísnum í um það bil hálfs kílómetra fjarlægð frá jaðri jökulsins. Þeir voru breiðir neðst en mjókkuðu uppávið og enduðu í píramíðalaga tindum, og sá í miðjunni var tæplega fjórðungi hærri en hinir. Hver þeirra hafði nokkrar hliðar, slípaðar og glampandi svartar eins og höggnar úr hrafntinnu eða basalti. Mahimu varð hugsað til ferðalags sem hún fór í með foreldrum sínum þegar hún var unglingur: til egypsku óbeliskanna í Róm, sem keisararnir höfðu stolið og flutt þangað.
Hún súmmaði nær og sá að drangarnir höfðu engar hliðar, heldur sveigðust mjúklega uppávið. Það leiddi hugann að hennar eigin menningu, Shikhara-turnunum, sem höfðu lífrænna yfirbragð en óbeliskarnir. Hún jók aðdráttinn þar til hann náði hámarki. Nálægt tindi dranganna voru tvær dekkri þverlínur og á milli þeirra röð af einhvers konar ristum. Mahima bjóst við að sjá sprungur eftir frostveðrun, eða óskaði þess, en í staðinn blasti við henni letur. Táknmál. Raðir af flóknum, geómetrískum formum; þríhyrningar sem vísuðu ýmist niður eða upp, og á milli þeirra smærri upphleyptar línur sem gátu allt eins verið straumrásir í tölvuflögu eins og skrautskrift.
Sem umhverfisfræðingur var hún vel læs á grös og mosa og fléttur; hún þekkti latnesku heitin á því öllu en kunni annars ekki forn tungumál. Samt var eins og eitthvað ljómaði í framheilanum, og hún hefði séð þetta allt áður. Ekki í bók eða á safni, tilfinningin var líkamleg, eins og hún væri að heyra lag sem hafði síðast verið sungið yfir henni í vöggunni, en bara orðin höfðu gleymst.
Sudarshana Chakra, hugsaði hún. Hjólið sem snýst. Tíminn? Henni fannst eins og táknin byrjuðu að hreyfast í kíkinum. Mundu. Þú veist hvað við erum, þú veist allt.
En hún vissi það ekki. Hún var bara Mahima og hendurnar skulfu of mikið í bili til að hún gæti notað kíkinn.
Hún gekk í stuttan hring um urðina og veifaði höndunum til að fá blóð út í fingurna. Lyfti svo kíkinum aftur og smellti af nokkrum myndum. – Sannanir, ef einhver héldi að hún hefði verið haldin ofskynjunum út af þunna loftinu þarna uppi.
Hún færði kíkinn neðar, að rótum drangans í miðjunni. Klaki og snjór höfðu runnið þangað, eins og slæða af andliti, en undir þeim glitti í sléttan, svartan flöt sem líktist vegg. Vinstra megin, þar sem enginn snjór skyggði á, voru línurnar skarpar og enduðu í fullkomnu níutíu gráðu horni.
Mannvirki.
Og fyrir miðju þess voru dyr. Mahima lét kíkinn síga, snöggt eins og hún væri hrædd um að eitthvað gæti horft til baka í gegnum linsuna. Dyrnar voru lokaðar.
Hana svimaði. Jörðin undir fótum hennar var gljúp og gaf eftir í hverju fótspori. Jökullinn var ekki lengur hrúga af klaka og snjó heldur hulstur utan um eitthvað sem átti ekki að vera til. Hún hallaði sér fram og lét blóðið renna til höfuðsins. Bretti upp á nýþvegnu útivistarbuxurnar sínar. Raulaði lag. Sneri baki í jökulinn og hugsaði að hún yrði að tilkynna fundinn. Hringja. Í hvern? Lögregluna? Fornleifafræðinga í skólanum?
Hún gat ekki hrist af sér gruninn um að einhver fylgdist með henni. Án þess að líta við gekk hún að bílnum, henti bakpokanum í farþegasætið og settist sjálf inn á eftir. Eia lamdi til skottinu og ýlfraði, þar til Mahima sussaði á hana. Hendurnar skulfu svo að hún átti bágt með að ræsa vélina. Þegar það tókst flýtti hún sér að snúa við og spólaði af stað svo að mölin dúndraðist upp í brettin.
Hún þorði ekki að líta í baksýnisspegilinn og ók allt of hratt, með annað augað á símanum. Þegar fyrsta strikið birtist stöðvaði hún bílinn og hringdi í Nabir. Hann svaraði eftir tvær hringingar og spurði hvort hún væri ekki komin uppeftir.
„Ég er að senda þér myndir,“ sagði hún án þess að heilsa. Upphalið tók langan tíma og á meðan útskýrði hún hvað hún hafði séð. Nákvæmlega. Vísindalega. Hún reyndi að leyna tilfinningunum í röddinni, óttanum. Fullkomnunaráráttunni. Hún tiltók tíma dags. Stöðu sólarinnar yfir jöklinum, stærðir, lögun táknanna, og nei, hún hafði ekki ímyndað sér táknin. Þau voru þarna. Í grjótinu. Þrír tindar og dyr á vegg. Níutíu gráðu horn.
Nabir þagði og leyfði henni að klára. Myndirnar skiluðu sér – tindarnir, nærmynd af táknunum, og dyrnar neðst fyrir miðju – og hann þagði áfram meðan hann skoðaði þær.
Að því loknu sagði hann: „Ekki deila þessu með neinum. Er það alveg skýrt?“ Sambandið var svo slæmt að hún heyrði bara brot af orðunum. Velti því fyrir sér hvort hann hefði heyrt allt sem hún sagði. Kannski bara nóg til að ákveða, í laumi, að hringja á geðsjúkrabíl til að sækja hana, voru þannig bílar til?
„Segi engum. Skilið.“ Hún hummaði og klemmdi saman varirnar til að hætta því.
„Vertu kyrr þar sem þú ert. Ég tilkynni þetta eftir réttum leiðum og kem svo.“ Hann sagðist ætla að útvega þyrlu til að sleppa við þennan tólf tíma akstur upp sneiðingana í fjöllunum.
„Einmitt. Þetta er þá ... mikilvægt?“
„Mér sýnist það. Já.“
Mahima sagðist myndu bíða og hann sleit samtalinu. Eftir nokkrar mínútur róaðist handskjálftinn. Hún lygndi aftur augunum og gerði létta hugleiðslu. Náði aftur stjórn á sér. Eia lá flöt í aftursætinu, með eyrun klemmd að vöngunum eins og þegar henni leiddist.
„Jæja, erum við orðnar góðar aftur?“ Eia dillaði rófunni og leit upp.
„Hvað finnst þér – er ég aumingi? Hver finnur svona dót og hleypur í burtu? ... Ekki ég, er það nokkuð? Ekki mamma.“ Hún klóraði Eiu um höfuðið og vissi hvað hún yrði að gera. Nabir yrði ekki kominn uppeftir fyrr en eftir þrjá, fjóra klukkutíma að minnsta kosti. Hann var á rannsóknarstöðinni í Dehradun, loftlínan var ekki löng, en eflaust bið eftir þyrlunni. Þau höfðu eitt sinn farið saman uppeftir með þyrlu en fjármögnunin leyfði það ekki lengur. Og eftir Þögnina gat hún ekki ímyndað sér hvernig hann ætlaði að útvega peninga fyrir því.
Þangað til var hún ein. Hún gæti setið í bílnum og snúið baki í mögulega stærsta fornleifafund mannkynssögunnar, eða snúið við og haldið áfram að rannsaka. Þótt hún væri ekki beinlínis með þjálfun fyrir mannvirkin komin undan jökli, gæti hún skrásett ýmislegt með kíkinum sínum og hver veit, með skannanum. Kringum dyrnar til dæmis. Og ef eitthvað væri fyrir innan þær.
Til hvers voru dyr ef þær lágu ekki að neinu?
Hún sneri við bílnum, ók sömu leið til baka og lagði á sama stað og áður. Eftir að hafa drepið á vélinni sat hún kyrr í smástund, mokaði í sig kasjúhnetum úr poka og tuggði hratt og vélrænt. Hún fann ekkert bragð, vildi bara orkuna – til að halda sér rólegri. Hún skrúfaði niður rúðu og notaði kíkinn til að staðfesta að drangarnir væru enn þarna. Táknin. Dyrnar.
Ekkert horfði á móti. „Hystería,“ sagði hún við sjálfa sig og lauk við hnetupokann. „Ímyndun.“ Þetta í jöklinum var grjót, kannski nokkrir málmar, en dauð efni fyrir því. Nabir var hvergi nærri, en þegar hann kæmi (á geðveikisþyrlunni til að fara með hana á hælið?) myndi hann taka stjórnina og eflaust eigna sér fundinn. Hún kunni vel við hann en svona voru prófessorar.
Hún greip bakpokann og fór út. Sólin var lægra á himninum en áður og loftið örlítið kaldara. Eia gelti inni í bílnum, ekki káta geltinu sínu heldur blönduðu ýlfri. Kannski þurfti hún að pissa en Mahima hafði ekki tíma til að standa í því.
Hún gekk af stað. Kortéri síðar birtist ellefta og ysta stikan. Eftir það voru engin fótspor, bara urðin sem gaf lítillega eftir með hverju skrefi, blanda af ís, leðju og möl. Mahima tók stefnuna á drangann í miðjunni. Eftir því sem hún nálgaðist breyttust hlutföllin í umhverfinu, drangarnir stækkuðu miðað við jökulinn og skáru sig æ betur úr, eins og þeir hefðu aldrei tilheyrt þessu umhverfi.
Beint framundan var veggurinn og dyrnar urðu greinilegri fyrir honum miðjum. – Inngangur að því sem var undir dröngunum og sást ekki enn fyrir ísnum? Eða forn fjallakofi sem hafði staðið af sér klakatennurnar og var þarna af tilviljun, undir þessum táknum sem voru í raun ekkert nema rispur. Drangarnir gnæfðu svo hátt yfir að hún greindi ekki lengur táknin. Mahima hallaði sér aftur til að sjá betur en missti þá jafnvægið í augnablik. Hún greip um höfuðið með báðum höndum, einsog til að stilla sig af, og hlátur vall upp í henni. Þetta var hlægilegt og ómögulegt. Allt saman.
„Hver byggði ykkur?“ muldraði hún og fannst röddin ekki tilheyra henni sjálfri lengur.
Hún kom að dyrunum og virti þær fyrir sér úr nokkurra metra fjarlægð. Hæðin á þeim var eflaust fjórir metrar og breiddin álíka mikil. Engin handföng voru greinanleg, engar lamir, bara þráðbein og skörp lína sem lá niður miðjuna og skildi að tvo svarta hlemma. Þeir féllu svo þétt hvor að öðrum að hnífsblað kæmist ekki á milli. Yfirborðið var slétt og matt, og leit út fyrir að gleypa í sig ljósið í kring. Eins og inngangur að grafhýsi, eða fangelsi fyrir eitthvað sem mátti aldrei sleppa út.
Mahima færði sig nær og skoðaði tákn sem var grafið í miðjuna, þar sem hlemmarnir mættust. – Hringur. Inni í honum voru tvö form sem vöfðust hvort um annað, og minntu á yin/yang, en eitthvað sagði Mahimu að þetta væri eldra. Formin voru ekki mjúk eins og dropar, heldur hreistruð, minntu á tvær slöngur sem eltu skottið hvor á annarri en engin höfuð voru sjáanleg. Risturnar voru djúpar og skarpar, og slöngurnar samsettar úr þúsund litlum liðum sem féllu hver inn í annan af óskiljanlegri nákvæmni. Mahima hugsaði um Ananta Shesha, slönguna sem Vishnu hvíldi á í eilífðinni, Ida og Pingala, orkustraumana sem liðuðust upp eftir hryggnum, og Ouroboros, tákn eilífðarinnar, en uppfært í eitthvað enn annað. Þetta var allt á hreyfingu.
Hún teygði fram höndina og snerti dyrnar. Var það skynsamlegt? Nei. En hún gat ekki hamið sig. Hún strauk fingrunum yfir kalt hreistrið og hrökk við þegar það hreyfðist. Lína dýpkaði í miðjum dyrunum og Mahima hopaði undan. Hún horfði á dyrnar opnast hægt innávið og leggjast að veggjum sitt hvorum megin. Það gerðist svo hljóðlaust að henni fannst eins og þær hefðu aldrei verið þarna.
Fyrir innan opnaðist langur og dimmur gangur. Veggirnir voru sléttir og svo fullkomlega samhverfir að Mahimu svimaði við að horfa inn eftir þeim, eins og hún tæmdist inn í myrkrið við endann á þeim.
Lágur hvinur heyrðist fyrir aftan hana. Hún sneri sér við og pírði augun upp í himininn, þar sem þyrla nálgaðist. Hljóðin hækkuðu og urðu að taktföstum slætti sem skar í eyrun. Hún lagði lófana yfir þau og mundi skyndilega eftir símtalinu.
„Nabir!“ kallaði hún og veifaði í átt að þyrlunni, sem lækkaði flugið að urðinni fyrir framan tindana. Mahima færði sig fjær dyrunum og reyndi að skýla augunum fyrir rykinu sem sópaðist til hennar þegar þyrlan lenti. Hún leit öðruvísi út en sú sem þau höfðu flogið með áður. Þessi var svört, straumlínulöguð og leit út fyrir að kosta heilan helling.
Um leið og hún lenti opnuðust hliðardyr og hópur manna stökk út á sandinn. Þeir voru klæddir í hlífðarbúninga, með hjálma og tæknibúnað sem huldi andlitin. Þeir dreifðu sér og nálguðust Mahimu hratt úr tveimur áttum og lyftu byssunum. Rauðir geislar hreyfðust yfir bringuna á henni.
Þyrluspaðarnir voru hættir að hreyfast. Maður sem stóð við þyrluna lyfti gjallarhorni og skipaði Mahimu á hörkulegri ensku að láta lófana oná höfuðið. „GERÐU ÞAÐ NÚNA!“ öskraði hann og hún hlýddi. Næst átti hún að fara niður á hnén og maðurinn sagðist hafa leyfi til að drepa hana ef hún hlýddi ekki. Hún lamaðist í augnablik, öskrin urðu hærri og nú líka frá hermönnunum sem voru bara nokkra metra frá henni.
Ég er umhverfis- og grasafræðingur, hugsaði hún.
„Niður á hnén! Niður!“ öskraði hermaðurinn næst henni, með hörðum, amerískum hreim. Hún rétt hafði tíma til að halla sér fram áður en hún var snúin niður á jörðina. Neðri vörin og hakan rispuðust á mölinni og hún fann blóð renna niður hálsinn. Hendurnar voru bundnar saman fyrir aftan bak með einhverju sem skarst inn í úlnliðina. Hún æjaði og var hífð á fætur.
„Ég heiti Mahima,“ stamaði hún og ávarpaði hermanninn næst sér, þeir voru fimm eða sex talsins. „Ég var að vinna hérna. Fyrir skólann. Nabir veit hver ég er.“ Sársauki blossaði upp í öxlunum, höfuðið kengbeygðist næstum alla leið að jörðinni og einhver gekk þannig með hana yfir sandinn.
Hún byrjaði að gráta, hrópaði á Nabir og reyndi að snúa höfðinu til að sjá þyrluna. „Hvar er Nabir?“ spurði hún engan sérstakan og var leidd í átt að bílnum sínum sem leit út eins og barnaleikfang í samanburði við þyrluna. Drunur heyrðust frá himninum og hún sá skugga hreyfast yfir jörðina. Fleiri þyrlur. Þegar slaknaði á takinu leit hún til hliðar og sá tvær risavaxnar flutningaþyrlur, með tvo þyrla hvor, lenda á urðinni fjær jöklinum. Þær voru svartar og engin merki á þeim. Engir fánar. En mennirnir höfðu talað við hana á ensku og hún heyrði skipanirnar í talstöðvunum þeirra: hraða og hrokafulla amerísku sem myndi eflaust ekki leiða til neins góðs.
Hummer-jeppi birtist innan úr annarri þyrlunni og ók yfir sandinn. Mahima var lögð á magann í sandinn og skipað að hreyfa sig ekki. Teppi var breitt yfir hana, annaðhvort til að fela hana eða halda á henni hita. Þannig lá hún í tíu mínútur eða hálftíma. Titringur barst frá jörðinni þegar fleiri tæki óku yfir hana, og högg þegar eitthvað var rekið á kaf í hana. Eyðileggjandi svæðið hennar og Nabirs, rannsóknarsvæðið fyrir litlu flétturnar og mosana sem myndu eflaust öll vera troðin á kaf og drepin áður en dagurinn væri úti. Hún skildi ekki hvað var að gerast.
Fleiri þyrlur á himninum. Fleiri högg.
Teppið var fjarlægt og í staðinn kom poki yfir höfuðið. Hún var hreyfð til, átti erfitt með að anda og öskraði á hjálp. Pokinn var tekinn af henni og þá sat hún inni í tjaldi, umkringd grænum veggjum. Borð og tveir stólar voru í tjaldinu, hún sat í öðrum þeirra. Hermaður losaði um hendurnar, snipp snipp og stakk plastsnúrum inná jakkann sinn. Án þess að segja nokkuð lagði hann bolla og tebrúsa á borðið fyrir framan hana, og fór svo út og lokaði tjaldinu á eftir sér. Gegnum efnið sá hún skuggann af honum þar sem hann tók sér stöðu við innganginn. Til að hún kæmist ekki út.
Tíminn leið. Hún drakk teið sem var bragðlaust og volgt. Nuddaði úlnliðina sem voru enn aumir. Gekk í nokkra hringi um tjaldið og reyndi enn einu sinni að róa sig. Hugsaði um Eiu og hvað þeir hefðu gert við hana, þessir ómerktu, grimmu menn.
Innganginum að tjaldinu var svipt frá og hávaxinn, ljóshærður maður steig inn fyrir. Mahima bjóst við öðrum hermanni en þessi var öðruvísi. Hann var í dökkum jakkafötum og snyrtilegur og í hreinum skóm.
Hann settist ekki heldur stóð bara yfir henni og brosti dauflega. „Ég biðst innilega afsökunar ef þeir voru harðhentir við þig.“ Röddin var vingjanleg; sykraða útgáfan af amerísku. „Þetta eru staðlaðir verkferlar sem þeir fylgja, ekkert persónulegt.“
„Hvar er hundurinn minn?“
„Hann er í góðu yfirlæti. Þú hittir hann bráðum.“
„Hvað eruð þið að gera?“ Mahima reyndi að skrúfa niður í örvæntingunni í röddinni. „Eða ég meina, hvað fann ég? Undir jöklinum?“ Maðurinn brosti en sagði ekki neitt. „Og hver sagði ykkur frá því? Var það Nabir? Ég vil tala við hann.“
„Þú færð að vita þetta allt saman seinna,“ sagði hann en hún var ekki viss um að hún tryði honum. „Núna þarftu bara að komast heim. Hvíla þig. Þetta mun skýrast.“
„Ég var rétt nýkomin hingað,“ sagði hún og var óðamála. „Ég sá ekki neitt. Ef þið eruð að hugsa þannig ... þá veit ég ekkert.“
„Engar áhyggjur,“ sagði hann stuttaralega, gekk að tjalddyrunum og gaf til kynna að hún ætti að koma með. „Ég ætla að fara með þig að bílnum þínum.“
Hún steig út á undan – og kom á götu. Lítill bær var risinn á sandinum, með götur og tjöld í beinum röðum, öll ómerkt og litu eins út. Hermenn gengu á milli þeirra með kassa og snúrur og vopn. Enginn leit á hana.
„Hérna,“ sagði maðurinn og tók undir olnbogann á henni, gekk með hana fyrir horn og út á milli tveggja tjalda í jaðri búðanna.
Á aðra hönd sá hún röð af Hummer-jeppum. Þeim hafði verið lagt í hálfhring fyrir framan jökulinn og sneru að honum. Dyrnar sem hún hafði opnað sáust ekki lengur. Risastórt grátt tjald hafði verið strengt fyrir þær og veggurinn sást ekki heldur. – Húsið, anddyrið, hvað sem það kallaðist. Þeir höfðu tekið yfir svæðið en voru líka að þurrka það út. Fela það fyrir heiminum.
Þau gengu fyrir horn og inn á sandinn. Mahima sá stiku í jörðinni, þá fjórðu eða fimmtu, og skimaði eftir bílnum. Þar sem honum var lagt áður, stóð dularfullur grár kassi. Þeir höfðu tjaldað yfir bílinn hennar. Pakkað honum inn.
Þá loksins vissi hún það. Hún var ekkert á leiðinni heim. Hún sneri sér snöggt við til að spyrja hvar Eia væri, af öllum hlutum, en þagnaði þegar hún sá byssuna. Hún horfði beint inn í hlaupið. Byssan var mjó og svört en hólkur var framan á hlaupinu.
Hljóðdeyfir. Hún hafði aldrei séð byssu nema í sjónvarpinu en samt vissi hún að þetta var hljóðdeyfir. Og það var síðasta orðið sem fór í gegnum huga hennar í lífinu, það af öllum.
Hún heyrði aldrei hljóðið; kannski var það eins og frá tappa sem er kippt úr flösku, eða þegar eldspýtu er sleppt oní skál fulla af gasi. Hún fann ekki sársaukann heldur, datt bara aftur fyrir sig í sandinn og lá þar hreyfingarlaus. Maðurinn í jakkafötunum steig til hliðar og setti byssuna í hulstrið sitt undir holhöndinni. Tveir hermenn krupu við hlið Mahimu og breiddu úr svörtum poka. Þá lyftu þeir henni upp í pokann, renndu upp og báru hana inn í tjaldið næst þeim.
„Tilbúnir. Alpha-teymi í stöðu,“ heyrðist í talstöðinni. Maðurinn í jakkafötunum lyfti henni að vörunum, sagði ekkert en klikkaði tvisvar á sendihnappinn til staðfestingar. – Jaðarinn tryggður. Hann stakk talstöðinni í vasann og gekk fyrir endann á tjaldbúðunum.
Viðbúnaðurinn var meiri en hann hafði búist við. Um það bil hundrað metrum frá innganginum hafði verið sett upp LRAD-tæki, hljóðvopn, og skáhallt í hina áttina var stærri pallur þar sem settar höfðu verið upp M134 Minigun-vélbyssur. Hlaupin sex stóðu undan gráu tjaldi sem lágmarkaði áhættu á að gervihnettir sæju nokkuð merkilegt, þótt sumir af þeim kínversku og rússnesku væru eflaust byrjaðir að safna upplýsingum af svæðinu. Ef eitthvað birtist út um þessar dyr inn í fjallið myndi LRAD sprengja hljóðhimnurnar og valda innvortis blæð-ingum á sekúndubroti. Maðurinn í jakkafötunum vissi ekki hvort gert væri ráð fyrir því beinlínis, en enginn komst upp í efstu lög ameríska hersins nema með því að búast við sturluðu morðæði frá óvinum sínum, eða bara hinu óþekkta.
Næsta merki var gefið og þá bökkuðu jepparnir hratt í burtu frá dyrunum og staðnæmdust lárétt út frá stærri vopnunum. Árásarsvæðið byrjaði í rúmri þrjú hundruð metra fjarlægð og endaði, í bili að minnsta kosti, við dyrnar sjálfar.
Um leið og svæðið opnaðist óku tveir aðrir Hummer-jeppar hvor úr sinni áttinni að innganginum. Þeir héldu sig nálægt jöklinum, úr skotlínu, ef eitthvað beið fyrir innan dyrnar.
Hversu skrýtið var þetta? Allt saman, hugsaði maðurinn í jakkafötunum.
Þrír menn stigu út úr hvorum jeppa, fjær fjallinu. Hreyfingar þeirra voru ólíkar hinum hermönnunum, mýkri en samt á einhvern hátt ákveðnari. Þeir voru í kolsvörtum göllum sem báru engin einkennismerki, engin nöfn eða fána. Efnin sem þeir klæddust höfðu verið þróuð á áratugum, merkt þúsund TOP SECRET stimplum djúpt inni í grámanum í DARPA til að vernda líf þeirra, eins og allt hitt sem þeir báru utan á sér. Andlitin voru falin á bak við Ops-Core hjálma með fjórum linsum: GPNVG-18 nætursjónaukum sem í bili voru spenntir upp á ennið; fyrir vitunum höfðu þeir lokaðar öndunargrímur með innbyggðum síum og súrefnisblöndu. Ef það var smit þarna inni, gas eða lofttæmi – hver veit? – voru þeir varðir fyrir því öllu.
Liðsforinginn, Jackson, staðnæmdist skammt frá tjöldunum sem höfðu verið sett upp til að hylja innganginn. „Athuga þéttni,“ sagði Jackson í talstöðvarkerfið og átti við búnaðinn sem einangraði þá frá umhverfinu. Hann lagði fingur yfir inntaksopið á hjálminum, sem lagðist þéttar að andlitinu. Jackson renndi fingrum yfir samskeyti hanskanna við ermarnar, stígvélanna við buxurnar, grímunnar við lambhúshettuna, og allt var það gott. „Drífum í þessu,“ sagði Kowalski. „Grænt,“ sagði Rodriguez. „Pumpaður,“ sagði Davis. „Tilbúinn,“ sagði Chen og „Get ekki beðið,“ sagði Bennett, sá stærsti af þeim. Hann var aftastur og bar þyngstu græjurnar.
Jackson gaf merki með hendinni og Kowalski og Rodriguez gengu að tjöldunum fyrir innganginum og drógu þau til hliðar. Chen og Davis lyftu byssunum, fóru fyrstir inn og hinir eltu. Dyrnar inn í fjallið stóðu opnar og þar fyrir handan var gangur. Enginn þeirra talaði og geislarnir fremst á byssunum lýstu upp myrkrið. Hreyfingar þeirra höfðu verið samhæfðar á mörg þúsund æfingum og hundruðum ólíkra svi smynda frá því þeir voru rétt um tvítugt. Chen lyfti hnefanum og hinir fyrir aftan hann staðnæmdust. Eftir fyrstu fjörutíu metrana var gangurinn ekki lengur beinn heldur sveigði til vinstri og hallaði lítillega uppímóti.
„Flóðvarnahönnun,“ hvíslaði Rodriguez í kerfið. „Eða sveigjan gæti verið vörn gegn árás utan frá.“ Hann tók mælingu á loftinu. Það var þurrt og dauðhreinsað, engin mygla eða raki. Sama gassamsetning og í andrúmsloftinu.
Jackson gaf merki um að halda áfram. Gangurinn varð aftur beinn og þeir fylgdu honum í tæpa áttatíu metra. Þá opnaðist hann inn í stærra rými þar sem geislarnir hurfu út í myrkrið.
„Varnarstaða,“ sagði Jackson lágt og þeir runnu út úr ganginum og kvísluðust í tvær áttir, krupu í vörn og miðuðu vopnunum inn í myrkrið meðan þeir aftari færðu sig fram fyrir. Annars var engin hreyfing þarna inni. Bennett kveikti á ljóskastara sem lýsti upp veggina. Við nánari skoðun stóðu þeir í öðrum enda rýmis sem minnti á brautarpall á neðanjarðarlestarstöð. Gólfið var grár, sléttur steinn en þar sem teinarnir eða farartækin hefðu átt að vera, sást ekkert. Pallurinn lá að svörtu hyldýpi sem opnaðist undir vegginn fjær þeim og breiddi úr sér inn undir fjallið.
Jackson færði sig varlega að brúninni og gægðist fram af. Hann sá engan botn. „Kowalski, blys,“ sagði hann og Kowalski tók upp rautt efnablys og braut það í miðju. Ljósið varpaði rauðum bjarma á veggina áður en hann fleygði því fram af brúninni. Það sveif fimmtíu fet, hundrað og varð að litlum, rauðum depli á stærð við eldflugu. Og svo hvarf það.
„Djúpt,“ sagði Kowalski, kraup við brúnina og hafði augun á Jackson.
„Þetta er meira en þúsund fet,“ sagði Jackson. „Að minnsta kosti.“
„Jack – þarna,“ sagði Davis og benti byssunni sinni út með pallinum. Jackson fylgdi geislanum að svolitlu skarði í brúninni, þar sem tröppur höfðu verið skornar út í vegginn. Þær enduðu í mjóu einstigi. Breiddin á því var varla meiri en eitt eða tvö fet, og ekkert handrið. Bara mjó rák sem hlykkjaðist niður í myrkrið.
„Einn í einu. Haldið bili,“ sagði Jackson. Hann sneri sér að hópnum.
„Niður með linsurnar.“ Allir sex lögðu nætursjónaukana að augunum. Heimurinn varð grænn og smæstu ójöfnur urðu skarpari; samt sáust engar á pallinum undir þeim eða á veggjunum.
„Á eftir mér.“ Jackson steig fram af pallinum og út á tröppurnar. Hann fetaði sig varlega niður þær og kom að einstiginu. Þar skrúfaði hann niður í ljósinu, svo að það rétt nægði til að lýsa upp það sem var framundan. Til að rúmast betur á stígnum skáskaut hann hægri öxlinni á undan sér, þeirri sem var nær veggnum. Það hafði hvarflað að honum að halda stöðunni á pallinum og senda einhvern til baka að sækja fallhlífar. Þeir voru óbærilega varnarlausir þarna á stígnum og auðvelt fyrir hvern sem er að nýta sér það. Ein lítil skammbyssa, rétt staðsett, gæti nægt. Eitt lítið grjót – kastað að ofan? Frá hlið? Nema það var enginn þarna inni. Það var óhugsandi.
Það hefði verið skynsamlegt að bíða – en eitthvað annað togaði sterkar. Líklega hafði hann ekki oft fundið fyrir því á sínum ferli, en þannig var það núna. Hann var forvitinn, og mögulega hræddari en hann var vanur.
Eftir kortérslanga göngu niður eftir stígnum gaf hann merki um að hvíla. Hann kraup og hallaði sér að veggnum. Á litlum skjá við ermina sá hann stöður allra fyrir aftan sig.
„Áfram,“ sagði hann eftir mínútu og þeir hreyfðust dýpra niður í myrkrið, sex búnt af vöðvum sem voru líka eins og kettir eða leðurblökur eða draugar, klemmdir utan í veggi fjallsins.
Þeir gengu restina af stígnum í þögn. Hallinn minnkaði og myrkrið breyttist. Jackson greindi daufa birtu framundan, ekki ljósgeisla heldur útsmurðan bjarma, eins og mánaskin í yfirborði vatns. Hann sá ekki hvaðan það kom og var yfir höfuð ekki viss hvort hann væri að ímynda sér það, eða hvort ljóstíran frá byssunni endurkastaðist einhvers staðar frá.
Stígurinn endaði. Jackson steig út á jafnsléttu og kraup við vegginn skammt frá. Hann hækkaði í ljósinu og beindi því út eftir gólfinu, sem var dökkgrátt og sléttara en nokkuð sem hann hafði séð og virtist ekki enda neins staðar.
Hitastigið var nokkrar gráður undir frostmarki.
Hinir komu niður á eftir honum og dreifðu sér í varnarstöðu með stíginn fyrir aftan sig – ef þeir þyrftu að hörfa. Eins og það væri raunhæf flóttaleið.
„Rodriguez, skann,“ hvíslaði Jackson, fannst samt eins og hann greindi vott af bergmáli. Rodriguez dró upp smáan LIDARskanna sem sendi út milljónir geislaleiftra til að teikna upp rýmið í þrívídd. Hann horfði á skjáinn í nokkrar sekúndur og virtist ringlaður. Jackson kraup við hliðina á honum.
„Svæðið framundan er hringlaga,“ sagði Rodriguez. „Það er ótrúlegt en mælingarnar sýna fullkomna hringlögun.“
„Hver er vegalengdin?“
„Herra, radíus er 540 metrar ... Við erum að tala um nokkra fótboltavelli.“
„Dreifið úr ykkur,“ sagði Jackson. Þeir skrúfuðu næstum alveg niður í ljósunum, og tóku stefnuna inn að miðju. Gólfið var enn jafn slétt – það var einslags fullkomnun, eins og að stíga inn í dómkirkju, hugsaði Jackson með sjálfum sér. Fægt basalt líklega, en stamt – hann fann hvernig skósólarnir gripu þétt um gólfið.
Þeir hreyfðu sig hratt og hljóðlaust yfir gólfið og staðnæmdust í dreifðri stöðu rétt utan við miðjuna. Þá loksins leyfði Jackson sér að líta upp: í bjarmann sem hann hafði tekið eftir áður. Yfir höfðum þeirra sveigðist hvelfing sem náði hátt upp í fjallið. Steinefni á veggjunum glömpuðu í myrkrinu með köldu, bláhvítu skini, eins og snjókorn sem svifu niður úr himninum og drógu á eftir sér línur af ljósi. Og stundum var eins og þær rynnu saman í tákn, fígúrur, sem hugurinn reyndi sitt besta til að vinna úr.
„Eru þetta ... form?“ spurði Kowalski lágt.
„Einbeitum okkur,“ sagði Jackson en fann ennþá fyrir þessari undrun. Á sínum yngri árum fór hann stundum með konunni sinni upp í fjöllin í Colorado, þau höfðu haft áhuga á klifri og klettum og að baða sig nakin í vötnum ef enginn var nálægt. Ljósin minntu hann á Willemite eða Scheelite sem hann hafði séð á náttúrufræðisafninu í Denver, en birtan var sterkari. Meira lifandi. Það var fegurð þarna inni – það hljómaði eins og brandari – sem hann var ekki vanur úr neinni af þessum hernaðaraðgerðum. Hún tróð sér inn undir brynjuna. Og hann og félagar hans voru ekkert nema brynjur, var það?
„Herra, það er opnun á veggnum hinum megin í salnum. Klukkan eitt,“ sagði Rodriguez og benti á LIDAR-skjáinn. „Annað rými þar fyrir handan. Stærra.“
Jackson gaf enn eitt merkið og þeir röðuðu sér upp á nýtt, með stefnuna á „útganginn“. Nokkrum mínútum síðar komu þeir að göngum sem voru víð og stutt. Loftið bogadregið, hlutföllin nákvæm og jöfn eins og áður. Þeir breyttu um stöðu til að fara inn um göngin og út um þau aftur, og stigu þá inn í næstu hvelfingu.
Davis blístraði lágt og Kowalski muldraði eitthvað um guð. Þeir héldu enn stöðunni úr öllum þessum æfingum sínum, en tóku ekki lengur eftir umhverfinu. Bara loftinu fyrir ofan þá. Það var eins og þeir stæðu inni í miðju fjallinu, nema hvað það hafði verið tæmt að innan. Hvelfingin yfir þeim var að minnsta kosti helmingi stærri en sú á undan.
„Það er holt að innan. Fjallið,“ hvíslaði Bennett svo lágt að það heyrðist varla.
„Einbeiting,“ sagði Jackson.
Fyrir miðju hvelfingarinnar var keila sem teygði sig enn hærra upp í loft og endaði í því sem utan frá hafði minnt á píramíða. Nema þarna neðanfrá var formið hringlaga og bjarmaði svo skært, eins og úr gulli, en var samt nógu gegnsætt til að ljós virtist streyma í gegnum það. Jackson giskaði á að þeir horfðu upp undir miðjutindinn.
Hann pírði augun einsog að sólinni, nema allt í kringum hana voru iðandi, lifandi ljós úr enn sjaldgæfari steinefnum – sem fundust alveg áreiðanlega ekki í Denver, var það? Sum voru grænleit eins og norðurljós, önnur rauð og appelsínugul og bleik, og aftur þessi ískaldi blámi nema skærari. Og mýkri. Deplar runnu saman í línur og þær svignuðu og streymdu ýmist inn í sólina eða mynduðu þessi form sem kannski voru líka tákn.
Jackson fann fyrir svima, neyddi sig til að horfa niður í gólfið en ruglingsleg slitur héldu áfram að renna í gegnum hugann – um allt sem hann þekkti ekki; vedísk hjól, vagna og eldingar og snáka; Vishnu og stjörnurnar og hermetískar bókrollur í dimmum hellum. Um sveigju lífsins upp úr moldinni til sólarinnar, og stjarnanna eftir sporbaugum sínum, allt með sömu sveigjunni.
Hann greip um inntakið á hjálminum, sem færðist æ fastar að andlitinu. Þar til hann sleppti, sogaði ofan í sig súrefnið og fann betur fyrir sjálfum sér.
„Alpha eitt. Að miðju. Núna,“ sagði Jackson og gekk fyrstur inn í hvelfinguna. Hinir dreifðu úr sér fyrir aftan og allt var eins og það átti að vera.
Gólfið hallaði lítillega upp á við að miðju hvelfingarinnar. Ofarlega í brekkunni kraup Jackson til að ná betur andanum, slaka á fyrir síðasta spölinn. Rodriguez kraup hjá honum og sagði eitthvað um vegalengdir. Þeir héldu áfram. Birtan jókst eftir því sem þeir stigu lengra inn í ljósið frá tindinum. Hún líktist dagsbirtu núna, síaðri í gegnum ský eða þeirri sem kemur frá jöklum. Heimurinn fyrir utan var eins og draumur, af því að mögulega voru skilningarvitin brengluð af stærðunum þarna inni, þögninni.
„Hlutur – klukkan tólf. Gæti verið lífvera,“ sagði Rodriguez og var enn við hlið Jacksons, þótt hann ætti ekki að vera það. Efst í brekkunni varð gólfið aftur slétt. Eins og altari. Og fyrir miðju þess lá einhver.
Kona.
Hún lá flöt á gólfinu, fótleggirnir þétt saman en hendur krosslagðar yfir ofanverðan magann. Yfirbragðið var kalt, næstum eins og hún væri hluti af gólfinu. Jackson hugsaði um styttu en þær lágu yfirleitt ekki á bakinu. Umhverfis konuna voru fleiri af þessum bláu, hvítu steinefnum, sem settu hann sem snöggvast úr jafnvægi. Þau bylgjuðust út frá henni eins og gárur á vatni, samt voru þau kyrr.
Hann leiddi þau hjá sér, stóð yfir konunni og einbeitti sér að því sem hún raunverulega var. Líkaminn var í venjulegri stærð. Í hærri kantinum mögulega. Hún var kraftaleg um handleggina og lærin, og herðarnar stæltar eins og á sumum konunum í hernum, eða íþróttakonum. Samt voru línurnar mjúkar og kvenlegar. Sítt, svart hár var fléttað í eina þykka fléttu sem teygði sig yfir vinstra brjóstið og endaði skammt ofan við nafla. Á milli fótanna mótaði fyrir dökku hári sem teygði sig út á nára. Húðin var föl og næstum samlit gólfinu. Kringum hálsinn voru húðflúr, einhvers konar rúmfræðileg munstur sem minntu á táknin utan á tindunum sjálfum, þótt hann hefði bara virt þau fyrir sér í fáeinar sekúndur.
„Herra. Vopn,“ sagði Rodriguez og benti, eins og Jackson sæi það ekki sjálfur. Í höndunum hélt konan á löngum, sveigðum hníf. Blaðið var svart, minnti á hrafntinnu en eggin glampaði eins og demantur.
Ma’akhelet, hugsaði Jackson án þess að vita hvað orðið þýddi. Kannski hafði hann rekið augun í það einhvern tímann; í Denver eða á safni í Írak. Það var allt skráð.
Neðst á skeftinu var tákn.
Ha-Shochet. Slátrarinn. Sá sem endaði líf til að næra annað.
Konan var sofandi. Fingurnir héldu svo fast um skeftið að Jackson vissi að hann gæti aldrei losað þá. Ekki heldur Davis, Chen, Rodriguez eða Kowalski. Ekki einu sinni Bennett. Enda var það ekki þeirra hlutverk. Þeir áttu að tryggja svæðið og þá tækju við sérfræðingar af öðru tagi.
Hann kraup við hlið konunnar og horfði í andlitið. Hún var dáin en samt sofandi. Og bráðum myndi hún vakna.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.