
Spjótin standa á íslenskunni úr mörgum og ólíkum áttum. Og það er langt í frá sjálfgefið að örmál sem íslenska lifi af. Breyttar venjur sem hafa áhrif á tungumálið okkar hafa líka áhrif á samfélagið og stjórnmálin.

Eldri kona röltir út í bakarí, sama bakaríið og þau hjónin hafa verslað við í gegnum árin. Í afgreiðslunni er strákur sem talar frumstæða ensku. Konan fer hjá sér þegar hún getur ekki gert sig skiljanlega, hún veigrar sér við að tala ensku sem hún hefur lítið notað í lífinu, hvað þá fyrir framan aðra, en reynir að benda á vínarbrauðið sem hún ætlar að kaupa. Fátið verður til þess að hún fer heim með snúð og óþægindi. Upplifir jafnvel niðurlægingu.
Það að upplifa niðurlægingu getur dregið fram okkar verstu hliðar. Niðurlægð finnum við fyrir þörf til að berjast fyrir tilverurétti okkar, af örvæntingu frekar en rökvísi. Til að bjarga okkur. Á hinni alræmdu ensku merki hugtakið „humiliation populism“ þá tegund af lýðskrumi sem er pólitísk aðferð og nýtir niðurlægingu til að virkja stuðningsfólk. Slíkir popúlistar spila inn á kenndir á borð við skömm, missi og smættun til að ramma inn hið „hreina fólk“ sem fórnarlömb spilltrar elítu, erlendra jafnt sem innlendra óvina og gleymdrar fortíðar. Þeir lofa að endurheimta reisn þeirra og þjóðarstolt, oft með því að áfellast aðra hópa, og tala fyrir því að endurheimta óljósa gullaldartíð.
Kona þessi kveikir á útvarpinu og heyrir þar lýðskrumara segja: „Augljóst og alvarlegt útlendingavandamál … “ Í næstu kosningum kýs konan manninn í útvarpinu, enda virðist annað stjórnmálafólk ekki spegla veruleika hennar. Samt er það ekki þessi kona sem hefur hæst. Hún segir jafnvel segir ekki neitt þegar talið berst að svokölluðu „útlendingavandamáli“ – heldur sjá aðrir um það, á öðrum forsendum.
Orðið þjóð getur verið snúið í umræðu sem þessari. Það er jú orð sem lýðskrumarar ofnota við hvert tækifæri, um leið og óhjákvæmilegt er að nota það þegar fjallað er um tungumál þessarar tilteknu þjóðar. Einmitt þess vegna er ekki sama hvernig það er gert – því þjóðin er við öll sem kjósum að búa á þessu landi, sama hvenær við byrjuðum að læra íslensku. Að sama skapi hefur lítið upp á sig að fordæma þau sem vilja tala íslensku á Íslandi. Í umræðu samfélagsins ber á því að gagnrýni á almenna þjónustu á ensku sé túlkuð sem útlendingaandúð. Þegar fólk kvartar undan því að vera afgreitt á ensku eða því að fólk í þjónustustörfum hafi ekki skilið það. En getur verið að með því að afgreiða gagnrýnina á þeim forsendum sé horft í ranga átt?
Að einmitt það að reyna að þagga niður í henni á áðurnefndum forsendum geti kynt undir útlendingaandúð?
Þrátt fyrir að enskukunnátta teljist vera almennt góð á Íslandi má ætla að margir rótgrónir Íslendingar hafi ekki vanist því að nota ensku dags daglega; fólk sem horfir á textaðar bíómyndir og hefur ekki lagt það í vana sinn að lesa bækur eða fjölmiðla á ensku. Sumt hvað hefur jafnvel fyrst á allra síðustu árum vanist því að hafa persónuleg samskipti við fólk frá öðrum löndum.
Bara síðan um aldamótin, þá sérstaklega síðasta áratug, hefur málumhverfið – umhverfið sem hefur áhrif á málið og mótar það – snarbreyst vegna ólíkra áhrifavalda. Nú er svo komið að Íslendingar sem tala ekki nógu góða ensku eru ekki bara í vandræðum heldur líka Íslendingar sem ekki eru nægilega læsir á íslensku.

Spjótin standa á íslenskunni úr mörgum og ólíkum áttum. Og það er langt í frá sjálfgefið að örmál sem íslenska lifi af; „Sagt er að íslenska og færeyska séu langminnstu tungumálin sem notuð eru á öllum sviðum í nútíma tæknivæddu þjóðfélagi,“ segir Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrum prófessor í íslensku við Háskóla Íslands, í meðfylgjandi viðtali.
Æ oftar heyrum við fréttir um hluti af ólíkum toga sem ógna málinu; utanaðkomandi ógnir, bæði tækni- og samfélagsbreytingar. Tæknibreytingar á borð við tæki sem tala á ensku, snjalltæki og tölvuleikir á ensku – nefnir Eiríkur í viðtalinu. Og síðan samfélagsbreytingar eins og fjölgun erlends vinnuafls, túrisma „og í raun og veru hnattvæðingin“ – breytt viðhorf ungu kynslóðarinnar til íslensku.
Í fréttum er oft fjallað um eitthvað eitt sértækt sem ógnar málinu. Um leið verður æ brýnna að horfa á heildarmyndina, þau margþættu áhrif sem breyttar venjur hafa á tungumálið. Þá geta þessar breytingar líka haft umtalsverð áhrif á samfélagið og stjórnmálin, nokkuð sem minna er rætt um.
Hætta er á að fólk sem er ekki nógu burðugt í íslensku – hvort sem um er að ræða börn sem búa ekki yfir nægum lesskilningi eða fólk sem hingað flytur að utan – öðlist ekki tilskilin lýðræðisleg verkfæri til að vera læst á samfélagið og geta tjáð sig sem skyldi. Ungmenni, sem búa ekki yfir góðum lesskilningi, geta jafnvel orðið berskjölduð fyrir einföldu orðfæri lýðskrums. Rétt eins og það er hætta á því að fólk verði ginnkeypt fyrir lýðskrumi, jafnvel þjóðernisöfgum, ef það finnur til vanmáttar við að geta ekki talað íslensku í nærumhverfi sínu.

Íslenskufræðingurinn og útgefandinn Páll Valsson segir í viðtali hér: „Við lifum í gjörbreyttum heimi. En lýðskrumarar fatta þetta. Hugsa: Hey, þarna er færi, og finna sér þá sökudólga sem henta þeim. Á meðan sofa bæði akademían og almenningur á verðinum. Stjórnvöld verða að setja miklu meiri kraft í þetta en sumt stjórnmálafólk er hrætt við að fá á sig stimpilinn þjóðernissinni. Aftur á móti er einmitt þessi þróun ein skýringin á uppgangi hægri öfgaflokka. Þjóðernisflokkar stíla inn á svona vanmátt. Og það er ein skýringin á því að láglaunafólk um alla Evrópu snýr sér að þeim.“
Þegar fræðingarnir tveir, Eiríkur og Páll, voru spurðir hvort verið geti að vaxandi enskuvæðing ýti undir öfga þjóðernishyggju eða útlendingaandúð svöruðu þeir:
Eiríkur: „Já, það er enginn vafi. Fólk er oft pirrað að fá ekki afgreiðslu á íslensku. Það er eðlilegt að fólk sé pirrað yfir því. Stundum tekur það beinlínis pirringinn út á fólkinu sem er að afgreiða það. En það fólk hefur væntanlega verið ráðið í það starf án þess að væru gerðar nokkrar kröfur um tungumálið.“
Þá sagði hann líka: „Og stundum sér maður fólk skrifa eitthvað á þessa leið á samfélagsmiðla: Ja, hérna, ég var að reyna að tala íslensku á þessum stað og fékk bara einhvern dónaskap. Og það getur vel verið að svo sé. Eða þá að fólk segir: Ég kom og ávarpaði afgreiðslumanninn á íslensku og hann sagði bara strax: English, please! Og Íslendingar eru auðvitað ekki eins nándar nærri góðir í ensku og þeir halda. Margt eldra fólk treystir sér bara ekki í þetta.“

Páll svarar á þessa leið: „Þarna er fólk líka í hættu á að verða fórnarlömb popúlisma. Þetta er ein skýringin á uppgangi hans – eða lýðhyggju. Maður mætir eldra fólki og það veltir fyrir sér: Bíddu, ég hef búið í þessu landi í 70 ár og ég vil ekki þurfa að tala ensku til þess að geta keypt mér brauð.“
Eins segir Páll okkur þurfa að hjálpa fólki að læra íslensku. „Langflestir sem hér setjast að vilja læra málið. Ég hef hitt fjölda fólks sem hefur gert Ísland að heimili sínu og er alltaf að reyna að læra íslensku. Nemendur mínir frá Svíþjóð komu hingað sem skiptinemar til að efla sig í íslensku, en þau kvörtuðu yfir því að Íslendingar fóru alltaf að tala ensku við þau. Þau sögðu: Ég reyni að tala íslensku en það er strax skipt yfir í ensku.“
Orð Jean-Christophe, fransks þýðanda íslenskra bóka sem hefur kennt íslensku við háskóla í Frakklandi, ríma við þessi orð. Hann kom ungur til Íslands og starfaði meðal annars við afgreiðslu í 10/11 og á Kaffibarnum. Í dag segir hann í meðfylgjandi viðtali: „Oft er fólk að vinna til dæmis á kaffihúsum og hefur kannski hvorki tíma né peninga til að læra íslensku eftir tíu tíma vakt.“

Sjálfur var hann nemandi í Háskóla Íslands: „ … Þegar ég reyndi að tala íslensku var mér stundum svarað á ensku eða átti erfitt með að tjá mig. Það getur líka verið pínu niðurdrepandi. Svo ég myndi ekki dæma fólk fyrir að læra ekki íslensku eða þora ekki að tala hana, sérstaklega í þessum svolítið stressandi störfum þar sem maður þarf að hugsa um margt annað.“
Af þessum orðum að dæma stöndum við ekki andspænis útlendingavandamáli heldur öllu frekar „Íslendingavandamáli,” – líkt og Páll orðar það í viðtalinu. En það er margt í mörgu og aðspurður hvort fólk geti starfað við þjónustu í Frakklandi án þess að tala frönsku,” svarar Jean-Christophe: „Það væri nauðsynlegt að læra frönsku. Ég held að það sé ekki hægt að vinna í Frakklandi og tala ekki frönsku. Ekki í þjónustustörfum. Það er mjög erfitt að búa í Frakklandi almennt án þess að tala frönsku. Á móti kemur að það þykir ólíkt hagkvæmara að læra frönsku en íslensku sem svo fáir tala.
Við þurfum að vera duglegri að tala íslensku við fólk í þessum sporum. En Páll nefnir líka ákveðna klemmu: „Svo eru menn sem tala sig upp í ástríðu fyrir landi, þjóð og tungu. Og þá æpa aðrir: Bíddu, bíddu þessi er þjóðernissinni! Fólk hefur uppi allskonar tal um þetta og ruglar saman hugtökum. Það er munur á ættjarðarást og þjóðernishyggju. Ættjarðarást er bara það að þykja vænt um land sitt, þjóð og tungu og er fallegt. Þú ert hins vegar þjóðernissinni þegar þú segir: Mitt tungumál er miklu merkilegra en þitt og mín saga er merkilegri en þín. Það er ofstæki sem við viljum ekki. En íslenskan er okkar mál sem erum alin upp við og við verðum að hugsa um það því það gerir það enginn annar. Ég lít á það sem skyldu okkar sem erum fædd á þessu landi.“
Veruleikinn er sá að enskan er komin til að vera og hann er líka sá að flæði innflytjenda á ekki eftir að hætta í núverandi skipulagi alþjóðasamfélagsins, sama hvað stjórnmálafólk segir þá og þegar. Fólksflutningar eru staðreynd lífsins, fólk flytur stöðugt á milli landa og nú stefnir flæðið til þróaðra iðnríkja, á borð Evrópulönd og Bandaríkin. Áður fyrr beindist straumurinn frá Evrópu til Bandaríkjanna og nýlendanna í Afríku og Asíu. Ekki má gleyma umtalsverðum fólksflutningum innan Evrópusambandsins sem er stór hluti af heildarmyndinni, eins og til dæmis hér á Íslandi.
Forsendurnar fyrir þessari þróun geta stjórnmálamenn ekki auðveldlega breytt, án þess að fara á svig við alþjóðasamfélagið og loka sig af eða rústa hagkerfi sínu. Þess utan þurfum við hreinlega á fleiru fólki að halda til að halda við vexti og atvinnulífi miðað við núverandi skipan hagkerfis okkar, svo eitthvað sé upptalið. Við þurfum hins vegar að horfast í augu við breytta veröld og spyrja okkur: Hvernig ætlum við að búa í haginn fyrir fólk sem hingað kemur? Og um leið vernda íslenskuna.

Nokkuð sem bæði bætir líf fólks og auðgar samfélagið. Því ef við gerum það ekki blasa við svo stórtæk vandamál að þau geta á endanum orðið óyfirstíganleg. Breytingar á málumhverfi okkar eru ekki einungis til marks um að íslenskan eigi undir högg að sækja heldur lýsa þær einnig upp heilmiklar breytingar á samfélagi okkar.
Líkt og íslenskufræðingarnir vara við í viðtölunum virðist nú vera hætta á að við útilokum innflytjendur frá lýðræðislegri þátttöku. Útkoman getur þá orðið sú að hér myndist einangruð samfélög. „Þetta gæti komið í bakið á okkur að þarna sé fólk sem er vinnur fyrir okkur og er á lágu kaupi, valdalaust og ekkert að skipta sér af því sem við erum að gera.“ segir Eiríkur. Þessi orð hans lýsa upp ábyrgð bæði stjórnvalda og almennings.
Hann bendir líka á að það geti komið í bakið á okkur sem samfélagi að fólk vinni fyrir okkur á lágu kaupi, valdalaust og ekkert að skipta sér af því sem við erum að gera. „Það er þægilegt í bili. Stundum veltir maður því fyrir sér hvort að sumir atvinnurekendur kæri sig ekki um að starfsfólkið læri íslensku því að þá gæti það áttað sig betur á réttindum sínum.“ Nokkuð sem tendrar spurninguna: Hvað geta stjórnvöld gert til að hjálpa atvinnurekendum við að styrkja starfsfólk sitt í þessum efnum?
Jafnframt segir Eiríkur: „Í ljós hefur komið að þátttaka innflytjenda í kosningum – þar sem þeir hafa þó rétt til að kjósa – er mjög lítil. Í raun og veru getur þetta ekki farið vel. Ef þessi þróun heldur svona áfram. Einmitt þetta hættir á að til verði tvær þjóðir í landinu.“
Öllu máli skiptir hvernig við tölum um breytt málumhverfi í þessu dauðafæri fyrir lýðskrumara til að eigna sér baráttuna fyrir íslenskunni á vanhugsuðum forsendum. Hér vantar tilfinnanlega bæði sýn og heildræna stefnu þessari í baráttu því tungumálið er þannig í eðli sínu að hún er samtímis barátta fyrir heilbrigðri virkni lýðræðisins. En hún er líka samfléttuð við umfangsmiklar samfélagsbreytingar. Nokkuð sem stjórnmálamenn virðast upp til hópa ekki hafa áttað sig á – miðað við ýmsar ákvarðanir þeirra – og um leið skort á ákvörðunum.
Nýlega mátti jú lesa frétt á RÚV þar sem Eiríkur sagði það forkastanlegt að stjórnvöld ætluðu að skerða greiðslur til íslenskukennslu fyrir útlendinga þegar full þörf væri á að gefa í og efla hana.
Liðurinn Íslenskukennsla fyrir útlendinga lækkar þannig úr 564 milljónum í 361 milljón. Tímabundið aukaframlag upp á 250 milljónir til eflingar íslenskukennslu fyrir útlendinga fellur þannig niður á næsta ári. Eins er 150 milljóna króna lækkun á framlagi til inngildingar innflytjenda og flóttafólks – nokkuð sem, að mati hans, bitnar meðal annars á íslenskukennslu.
Á sama tíma og Eiríkur gagnrýndi skertar greiðslur til íslenskukennslu útlendinga skrifaði hann á síðu sína, hi.is/eiríkur, á vef Háskóla Íslands: „Liðurinn „Miðstöð íslenskra bókmennta“ hækkar vissulega um 50 milljónir, en liðurinn „Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku“ lækkar um fjórar og hálfa milljón og „Bókasafnssjóður höfunda“ lækkar um hálfa aðra milljón – raunlækkun er vitanlega talsvert meiri. Fátt skiptir meira máli fyrir íslenskuna en öflug bókaútgáfa á íslensku, og til að bækur séu gefnar út þarf að skrifa þær. Lækkun á þessum liðum er atlaga að íslenskunni.”

Nýlega var frétt á mbl.is um konu sem fór á bókasafn og sá þar hillu með ungmennabókum sem allar voru á ensku. Sá veruleiki lýsir upp hvernig það er ekki aðeins hætta á að innflytjendur setjist lýðræðislega veiklaðir að borðinu heldur gildir það sama um ungt fólk, börn og unglinga. Skemmst er að minnast þess þegar tröllreið fréttum árið 2022 að 47% drengja getur ekki lesið sér til gagns samkvæmt PISA mælingum 2022 við útskrift úr 10. bekk. Þá ber að hafa í huga að móðurmálsfærni í einu tungumáli er forsenda fyrir svo mörgu.
Páll tekur í svipaðan streng þegar hann segir að nú virðist vera farið í þveröfuga átt við það æskilega: „Til dæmis Bókasafnssjóður skorinn niður, einmitt þegar þarf að gefa heldur betur í. Börn og ungmenni sem lesa ekki eru að fara svo mikils á mis. Það er svo mikilvægt að kynna þeim þennan undraheim bókanna. Ímyndunaraflið og þá hugarveröld sem bækur efla og skerpa. Bækur stuðla líka að valdeflingu og sköpun. Maður ímyndar sér að bóklestur skapi betri og öflugri samfélagsþegna og stuðli þar með að betra samfélagi. Ekki veitir af. En 70 prósent stelpna og 60 prósent stráka í öðrum bekk í grunnskóla eru læs. Þýðir það að um þriðjungur drengja í öðrum bekk séu ólæsir?“ – þar með vísar hann í niðurstöðu Lesmáls 2025, prófs sem sýnir fram á að tæp 68 prósent skólabarna í 2. bekk í Reykjavík búa yfir því sem kallað er aldurssvarandi hæfni í lestri.
Ekki verður um það deilt að lesskilningur er undirstaða þess að við fúnkerum sem skyldi í lýðræðislegu samfélagi og séu minna útsett fyrir tækifærispólitík. Skilgreining OECD á hugtakinu lesskilningur er hæfileiki til að skilja, nýta sér, ígrunda og ástunda lestur á texta í þeim tilgangi að ná markmiðum sínum, þroska þekkingu sína og hæfileika, og taka þátt í samfélaginu (OECD, 2019).
Fyrr í mánuðinum var haldið málþing í tengslum við evrópskt máltæknisamstarf sem Ísland tekur þátt í. Eiríkur sat málþingið og segir þar hafa verið fjallað um úttektir sem gerðar eru reglulega á stöðu Evrópumála gagnvart tækninni. Fyrsta úttektin hafi verið gerð árið 2012 og í ljós hafi komið að íslenskan staðið einna verst á þessu sviði: „Ég held jafnvel að sú skýrsla hafi átt sinn þátt í að ýta við stjórnvöldum sem sáu þarna svart á hvítu að íslenskan stóð mjög illa á þessu sviði.“
Hann segir að það hafi tekið nokkur ár að koma hreyfingu á málið: „Á endanum skipaði menntamálaráðherra nefnd til að koma með tillögu um aðgerðir.” Sú nefnd skilaði áliti árið 2017 og lagði fram ítarlega aðgerðaáætlun til fimm ára. „Í ráðherratíð Lilju Alfreðsdóttur var svo tryggt fjármagn til þessarar áætlunar og henni hrint í framkvæmd á árunum 2019-2022. Við framkvæmdina náðist gott samstarf milli ríkisins, háskóla, rannsóknastofnana, fyrirtækja og félagasamtaka og til urðu ýmis gögn og hugbúnaður sem leiða til þess að staðan á þessu sviði er nú allt önnur en áður.“
En hver er staðan í dag?
Af hverju stöndum við ríkisstjórnina að því að skera niður bæði Bókasafnssjóð og í íslenskukennslu fyrir útlendinga? Og af hverju er engin heildræn stefna í þessum málum?
Getur verið að ráðamenn geri sér lítt grein fyrir þeim samfélagslegu umbreytingum sem fylgja versnandi stöðu málsins? Að þau hafi ekki hugsað út í þær lýðræðislegu hættur sem hér eru nefndar?
Eitthvað bendir til þess að símalínu vanti á milli stjórnmálafólks og fræðinga í akademíunni. Eða kannski vantar hlustun valdhafa – og meðvitund um að tungumálið heldur saman samfélaginu og menningu þess.
Kannski þarf að stjórnmálavæða íslenskuna frekar – en þá á réttum forsendum. Hættan er alltaf til staðar að staða tungumálsins sé notuð sem yfirvarp til að kynda undir útlendingaandúð. En ef ráðamenn geta ekki staðið með tungumálinu, því valdatæki sem það er fyrir fólk, standa þeir þá með samfélaginu? Í hvers forsvari eru ráðamenn þá – þegar hlutverk þeirra er að gæta að lýðræðislegum styrk almennings og samfélaginu sem þeim er treyst fyrir? Líkt og Páll orðar það: „Ef tungumálið hverfur þá erum við auðvitað algjörir aumingjar, ef við látum það gerast á okkar vakt.“

„Tungumálið mótar alla hugsun okkar, það mótar orðin, myndmálið og blæbrigðin sem þarf til að lýsa innri reynslu á nákvæman og merkingarbæran hátt – án þess mætti segja að við séum í hættu á að missa öll tengsl við okkar innra líf.“ Þessi orð eru Brynju Þorgeirsdóttur, lektors við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands sem rannsakar tjáningu tilfinninga í Íslendingasögunum og er einnig hér í viðtali.
Orðin eru okkar til að ná utan um blæbrigði tilfinninga okkar og greina veruleikann. Samt er hætta á því að ólíkir hópar innan samfélagsins skorti valdatækið að skilja og lesa tungumálið svo það nýtist þeim nægilega – og það í skugga aukins lýðskrums, bæði hér á landi og í umheiminum. Fólk sem hingað flytur og svo börn og unglingar. Þannig myndast ekki aðeins hætta á rofi á milli þeirra sem tala íslensku og hinna heldur líka á milli eldri og yngri Íslendinga.
Aðspurð um hvort fólk eftir hundrað ár geti átt erfitt með að skilja það sem við skrifum á íslensku í dag segir Brynja: „Ég hef satt að segja miklar áhyggjur af áhrifum enskunnar á íslenskuna; ef ensk áhrif halda áfram að aukast og íslenskan veikist enn meira í daglegu máli og menningu gæti málþróunin orðið svo hröð að fólk eftir hundrað ár ætti erfitt með að skilja nútímaíslensku. Þó finnst mér annað enn meira aðkallandi, og það er að við sjáum sóma okkar í að bjóða upp á nægilegt framboð á íslenskukennslu fyrir þau sem hafa annað móðurmál en kjósa að flytja hingað til lands.“
Íslenskan er tungumál tilfinninga okkar sem köllum hana móðurmál. En ef upplifun fólks er sú að það geti ekki tjáð sig lengur á tungu tilfinninga sinna í heimalandi sínu án þess að það þyki óæskilegt – þá getur verið stutt í að niðurlæging skyggi svo á rökvísina með þeim afleiðingum að sumir leiti í skjóls í lýðskrumi.
Þannig skapast hugsanlega þríþætt hætta hvað varðar lýðræðislega virkni. Í fyrsta lagi lýtur hættan að því fólki sem hefur á nokkrum árum orðið óöruggt í enskuvæðingu málumhverfis síns. Í öðru lagi að ungu fólki sem fer út í lífið án grundvallar lesskilnings og er þannig útsettari en ella. Og í þriðja lagi að fólki sem hingað flytur en fær ekki helsta verkfærið til að geta verið lýðræðislega virkir þátttakendur og gæta þannig að réttindum sínum – auk þess vera útmálað sem einhvers konar Grýla.
Staða tungumálsins getur leitt til rofs á milli hópa innan samfélagsins jafnt sem rofs á milli kynslóða. Íslenska er valdatæki barna og ungmenna jafnt sem eldra fólks til að tjá sitt innra líf. Rétt eins og hún er tunga þeirra sem hingað flytja til að búa heimili – svo þau geti sem best auðgað líf sitt og um leið samfélagið. Tungumálið styrkir okkur öll í vitund þeirrar sambúðar sem kennir sig við íslensku.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.