Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Fimmtudagur 29. október 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
☕️ Góðan dag. Hrina uppsagna hjá hinu opinbera gegnur nú yfir landið og mælist misjafnlega fyrir. Við förum oft eins og köttur í kringum heitan graut þegar við ræðum saman um ríki og sveitarfélög sem vinnuveitendur, því ágreiningurinn er hugmyndafræðilegur. Á hið opinbera að haga sér eins og hvert annað fyrirtæki og hugsa fyrst og fremst um eigin rekstur eða á það einnig að vera ábyrgur vinnuveitandi sem gengur á undan með góðu fordæmi í erfiðu árferði?

⚠️ 🌧️ 💨 Austan 13-20 m/s, hvassast suðvestantil. Rigning, en úrkomuminna norðanlands. Snýst í sunnan 5-13 m/s kringum hádegi og styttir víða upp, fyrst suðvestanlands, en áfram dálítil væta suðaustan- og austanlands. Bætir í úrkomu þar í kvöld, en skúrir vestanlands. Hiti 6 til 12 stig.

Gul viðvörun er í gildi á öllu Faxaflóasvæðinu vegna roks og rigningar. Fólk sem ferðast á bílum sem taka á sig mikinn vind er varað við því að vindhviður við fjöll gætu náð 30 metrum á sekúndu.

Fjölda stjórnenda takmörk sett í borginni

Stjórnenda- og milljstjórnendastöður hjá Reykjavíkurborg, svokölluð miðlæg starfsemi, eiga framvegis að sveiflast í föstu hlutfalli við heildarfjölda stöðugilda. Alls eru nú 650 stöðugildi skilgreind sem miðlæg stjórnsýsla hjá borginni. Stöðugildum hjá borginni hefur fjölgað um 3,3% á síðustu fimm árum, en borgarbúum hefur á sama tíma fjölgað um 8,4%. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í Reykjavík hefur nú fækkað um alls 130 stöðugildi hjá borginni í þremur uppsagnahrinum. Fækkunin er að mestu í miðlægri starfsemi, eins og það hefur verið orðað í tilkynningum frá borginni. Fjallað er um málið á vef Gímaldsins í dag.

Gímaldið

Íslensk losun margföld á flestum sviðum

Ísland kemur vel út úr samanburði í losun gróðurhúsaloftegunda þegar kemur að raforkuframleiðslu og húshitun en við stöndumst illa samanburð á öðrum sviðum. Losun á mann frá vegasamgöngum er rúmlega 40 prósentum meiri hér en á meginlandi Evrópu, tvöfalt meiri vegna landbúnaðar, rúmlega þrefalt meiri vegna úrgangs og margfalt meiri vegna landnotkunar, fiskiskipa og málmframleiðslu. Þetta kom fram í erindi sérfræðinga frá Umhverfis- og orkustofnun og loftslagsráðuneytinu á Loftslagsdeginum í Hörpu í gær. Ástæða þess að Íslendingar losa meira í landbúnaði er ekki eingöngu sú að hér sé framleitt meira af kinda- og nautakjöti heldur losa íslensk dýr meira en dýrin á meginlandinu. Sem leiðir til úrbóta nefndu þau sjálfbært eldsneyti á vélar og markvissari áburðarnotkun. Þá kom fram að í sumum tilvikum megi skýra muninn með fámenni en einnig af seinagangi við að taka upp nýjar aðferðir. Sem dæmi megi nefna hve seint Íslendingar hafi byrjað að skilja lífrænan úrgang frá öðru sorpi.

Vísir

Á þröskuldinum

„Hvers konar þröskuldar og mæri virka sem segull á yfirnáttúruna, þar sem við erum stödd á mótum tveggja staða eða svæða, hvort sem er í eiginlegri eða óeiginlegri merkingu. Þetta gildir jafnt um árstíðirnar, gang sólar og tungls á himinhvolfinu, mannsævina og mörk á jörðu eins og krossgötur og landamerki milli jarða, líka flæðarmálið þar sem haf og land mætast. Og jafnvel einnig þegar við virðumst dáin en erum þó á lífi: sofandi og svifin inn í heim draumanna. Á öllum þessum landamærum höfum við aðgang að hinum heiminum og hann að okkur sömuleiðis.“

Í Vetrarbókinni rýnir Vilborg Davíðsdóttir í sagnaheim fyrri alda, þjóðtrú og þjóðhætti, í leit að því hvað kom formæðrum okkar og -feðrum, keltneskum og norrænum, að gagni í glímunni við langan og strangan íslenskan vetur. Hægt er að lesa kafla úr bókinni á vef Gímaldsins, en Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Gímaldið

Fjölgun í lögreglu ófjármögnuð

Fjölga á lögreglumönnum um 50 á ári til ársins 2031 samkvæmt nýrri löggæsluáætlun sem kynnt var í gær. Fjármagn hefur ekki verið tryggt fyrir þeirri fjölgun umfram þann milljarð sem settur var í fjölgun lögreglumanna í fyrra. Þar er dregin upp dökk mynd af skipulagðri brotastarfsemi sem hafi „tekið stakkaskiptum til verri vegar á fáum árum“. Brotahópum, bæði innlendum og erlendum, hafi fjölgað; þeir hafi alþjóðleg tengsl, stundi margs konar brot og nýti dulkóðuð samskipti og sérfræðiþjónustu til að dylja slóð sína og þvætta ágóðann. Ógnin felist ekki lengur aðeins í hefðbundnum afbrotum heldur í fótfestu í löglegri atvinnustarfsemi, sem veiki efnahagskerfið og samkeppnisstöðu þeirra sem fara að lögum. Þá segir í áætluninni að hlutverk lögreglu í þjóðaröryggismálum hafi aukist vegna breytts öryggisumhverfis, meðal annars njósna, undirróðurs og áhrifaherferða.

Stjórnarráðið, RÚV

Umar Kremlev með vini sínum og velgjörðarmanni, Vladimir Putin.

Þriggja daga þjóðarsorg á Spáni

Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir á Spáni eftir lestarslys nærri bænum Urda í Toledo-héraði í gær. Að minnsta kosti 68 létust og 80 slösuðust í slysinu sem varð þegar hraðlest ók aftan á kyrrstæða lest. Rannsókn beinist meðal annars að fyrirmælum sem lestarstjórum voru gefin eftir að bilun kom upp í tölvubúnaði. Í janúar á þessu ári fórust 46 í lestarslysi á sömu leið, frá Madríd til Sevilla. Réttur mánuður er til þingkosninga á Spáni. Leiðtogi popúlistaflokksins Vox kennir aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar og langvarandi innviðaskuld um, nú þegar réttur mánuður er til þingkosninga í landinu.

Politico, Guardian, BBC

EES best fyrir lítil og auðug ríki

Ákvörðun Íslendinga um að halda ekki áfram viðræðum um aðild að ESB er staðfesting á gildi EES-samningsins, sagði Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, í viðtali við vefmiðilinn Rapporteur í gær. Hann svaraði meðal annars spurningum um áhyggjur af því í Brussel að samningurinn sé í rauninni of góður og komi í veg fyrir að ríki sjái sér hag af fullri aðild. Eide hafnaði því en viðurkenndi að samstarfið væri ekki alltaf auðvelt og vísaði meðal annars til ágreinings um tolla á járnblendi í fyrra. EES-ríkin innleiði um 800 ESB-gerðir á ári, fjórfalt fleiri en í upphafi, án þess að hafa raunveruleg áhrif á efni þeirra. Þess vegna telur hann EES ekki henta Úkraínu og öðrum stærri ríkjum. Samningurinn henti best fyrir lítil, auðug ríki á jaðrinum.

Rapporteur

Í stuttu máli:

  • Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir hafa selt flutningafyrirtækið Samskip til spænska skipafélagsins Boluda Shipping. Kaupverðið er trúnaðarmál.
  • Sautján starfsmenn missa vinnuna hjá Sorpu samkvæmt ákvörðun fyrirtækisins sem er í eigu sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins, í gær. Um er að ræða sjö prósent af starfsmannafjölda Sorpu. Um hagræðingaraðgerð er að ræða sem sparar um tvö hundruð milljónir króna á ári.
  • Meðalniðurgreiðsla á farmiða í innanlandsflugi gegnum Loftbrú var 9242 krónur árið 2025 samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. (RÚV)
  • Fangelsin hafa að undanförnu gripið til þess ráðs að nýta einangrunarklefa til að hýsa fanga vegna plássleysis í fangelsum. Nýting fangelsisrýma er í algeru hámarki. (RÚV)
  • Seðlabanki Bandaríkjanna ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 3,75 til 4%. Ákvörðunin kemur stuttu fyrir þingkosningar í landinu og er talin líkleg til að fara í taugarnar á Bandaríkjaforseta. (RÚV)
  • Færri treysta vísindum nú en fyrir fimm árum, samkvæmt Wellcome Global Monitor. Samkvæmt nýjustu könnun treysta 72 prósent svarenda vísindum að einhverju eða miklu leyti samanborið við 80 prósent árið 2020. Könnunin náði til 140.000 manns í 140 löndum. (Nature Briefing, Wellcome Global Monitor)
  • Flávio Bolsonaro lenti í Miami í gær þar sem hann hefur fengið landvistarleyfi ásamt fjölskyldu sinni. Í opnu bréfi sem hann birti í gær kallar hann sig hinn sanna forseta Brasilíu. Hann breytti svo bréfinu nokkru síðar og kallaði sig í staðinn sannan leiðtoga landsins.
  • Utanríkisráðherra Noregs segir Norðmenn reiðubúna til að aðstoða stríðsglæpadómstólinn í Haag, sem starfar í skugga þvingunaraðgerða frá Bandaríkjunum. Í viðtali við Politico sagði hann viðræður um efnislegan stuðning við dómstólinn í gangi meðal Íslendinga, Þjóðverja, Hollendinga og fleiri líkt þenkjandi ríkja.
  • Ráðstefna um nánara samband Evrópusambandsins og Kanada er hafin í Montreal. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, segir aukaatriði hvaða hugtak verði notað um nánara samband, en fjölmörg aðildarríki ESB höfnuðu því í aðdraganda ráðstefnunnar að hugtakið aukaaðild verði notað.

RÚV, Politico, Guardian, Foreign Policy, Rapporteur, CNN

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Fjöldi stjórnenda sveiflist með heildarfjölda stöðugilda

Stjórnendastöður hjá Reykjavíkurborg, svokölluð miðlæg starfsemi, eiga framvegis að sveiflast í föstu hlutfalli við heildarfjölda stöðugilda. Alls eru nú 650 stöðugildi skilgreind sem miðlæg stjórnsýsla hjá borginni. Stöðugildum hjá borginni hefur fjölgað um 3,3% á síðustu fimm árum, en borgarbúum hefur á sama tíma fjölgað um 8,4%.
Fjöldi stjórnenda sveiflist með heildarfjölda stöðugilda
Þýðing komandi kosninga fyrir völd Donalds Trump

Þýðing komandi kosninga fyrir völd Donalds Trump

Bandaríkjaforsetar sem ekki njóta meirihluta þingsins hafa oftar en ekki snúið sér nær alfarið að utanríkismálum. Demókratar vonast til að ná meirihluta í báðum þingdeildum í kosningunum á þriðjudag. Hvaða þýðingu hefði það fyrir forsetatíð Trumps og hverjar eru líkurnar? Gímaldið fer yfir stöðuna á bandaríkjaþingi og valdsvið meirihluta þingsins gagnvart forseta.

Það sást á hjartalínuritinu að ég var að skrifa

Eftir Draumalandið var Andri Snær Magnason gjörsamlega útbrunninn og gat ekki hugsað sér að tala aftur um virkjanir. Síðan hefur bók hans Um tímann og vatnið, og samnefnd heimildarmynd, farið sigurför um heiminn og gert hann að einum áhrifamesta talsmanni náttúruverndar. Hann segir vísindin stærri en tungumálið, að sögur ná betur til fólks en gögn og nú þurfi að vekja nýja kynslóð.
Það sást á hjartalínuritinu að ég var að skrifa

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email