|
|
|
|
Gímaldið heilsar 25. ágúst 2026
|
|
|
|
|
Kosningabaráttan fyrir laugardaginn færist í aukana og nú má segja að það sé varla þverfótað á samfélagsmiðlum fyrir auglýsingum frá fylkingum. Við hjá Gímaldinu reynum að halda yfirvegun okkar og fókus þrátt fyrir hávaðann. Teljum reyndar yfirvegun besta vopnið gegn óreiðunni sem gjarnan einkennir umræðuna.
|
Við bendum ykkur í dag á nýjan þátt í hlaðvarpi Gímaldsins:
|
|
Hvað segja Norðmenn um íslensku þjóðaratkvæðagreiðsluna?
|
|
Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur bjó um árabil í Noregi og hefur fylgst grannt með pólitíkinni þar í landi og samtalinu um Evrópumálin. Umræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi fer ekki endilega fram á kaffistofum í Noregi svona almennt. Hins vegar setur stjórnkerfið, einkum norska utanríkisráðuneytið, sig í stellingar fyrir niðurstöðuna. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Herdísi um stöðuna í Noregi og það hvaða áhrif niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar hér á landi gæti haft á Norðmenn.
|
Meðal þess sem rætt er í þættinum:
|
- Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Noregs vilja ganga í Evrópusambandið, en frumkvæði að samtali um það yrði að koma frá grasrót Verkamannaflokksins
- Evrópumálin hafa legið í láginni undanfarin ár en merki eru um að aukinn áhugi sé að myndast
- Tollar á járnblendi hreyfðu við umræðu um stöðu EES-samningsins
- Segi Íslendingar já í þjóðaratkvæðagreiðslu verður það klárlega innspýting og innblástur fyrir Norðmenn að fara inn í samtalið um framtíð EES og mögulega aðild að ESB
- Í fyrsta skiptið síðan 1994 eru fleiri kjörnir fulltrúar opnir fyrir aðild og skoðanakannanir sýna breytingu meðal almennings
- Verkamannaflokkurinn, flokkur forsætisráðherra, er klofinn í afstöðu til aðildar en Høyre, systurflokkur Sjálfstæðisflokksins, er yfirlýstur Evrópuflokkur
- Noregur situr ekki við borðið þegar stærstu ákvarðanir um varnarmál eru teknar og það ergir stjórnmálamenn sem vilja meira vægi Norðmanna í þeim ákvörðunum, vægi sem ekki fæst með EES
- Áhrifaleysi EES-samningsins hefur töluvert verið rætt í Noregi og sú staða sem upp gæti komið ef Noregur situr eftir í EES, bara með Lichtenstein – sem er á stærð við Kópavo
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
Vertu með!
Engir smelludólgar, engar upphrópanir. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn.
|
Vertu með! Áskriftir halda okkur í loftinu. Ef þú ert ekki enn með áskrift þá bendum við á að þa er einfalt að gerast áskrifandi.
|
|
Þinn stuðningur gerir okkur kleift að verja tíma í vandaða og sjálfstæða umfjöllun.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|