|
|
|
|
Miðvikudagur 9. september 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld. Stjórnin kynnti í gær áherslur sínar fyrir komandi vetur. Þar fer mest fyrir aðgerðum sem styðja eiga við markmið um hallalaus fjárlög með nýjum skatti á ferðaþjónustu og hækkun bankaskatts. Áhersla á einföldun stjórnsýslunnar heldur áfram með sameiningu stofnana og frekari aðgerðir í orkumálum eru áformaðar. Þá leggur stjórnin mikla áherslu á að standa vörð um EES-samninginn með lögfestingu Bókunar 35.
|
|
|
|
☁️🌧️ Suðlæg átt í dag, yfirleitt á bilinu 5-13 m/s. Dálítil rigning eða súld, en bætir í úrkomu síðdegis. Að mestu þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast norðaustantil.
|
|
|
|
|
Af andlegu ástandi flokkanna
|
|
Andlegt ástand stjórnmálaflokkanna er ærið misjafnt við upphaf haustþings. Flokkur forsætisráðherra kemur best undan sumri og Miðflokksmenn una líka glaðir við sitt. Það gera þingmenn Sjálfstæðisflokksins líka en í grasrótinni eru skiptar skoðanir um hvernig fara eigi með sigurinn í ágúst. Hluti flokksfólks óttast að of mikil sigurgleði geti þrengt að flokknum sem þurfi að fiska í Já-hópnum vilji hann stækka. Viðreisn þarf að endurskilgreina sig eftir tapið en heimildarmenn Gímaldsins innan Sjálfstæðisflokksins vara við að afskrifa flokkinn; frjálslyndur hægri flokkur án ESB-áherslu gæti reynst skæður keppinautur. Titringur og óeining ríkir innan Framsóknar og Inga Sæland þarf að hafa auga með þingliði sínu en þar er stjórnarandstaðan líklegust til að reyna fyrir sér til að gera stjórninni skráveifur. Rýnt er í andlegt ástand flokkana á vef Gímaldsins í dag í greiningu fyrir áskrifendur.
|
|
|
|
|
|
Afburðanemendum fækkar enn á Íslandi og aldrei hafa færri náð þeim grunnhæfniviðmiðum sem OECD miðar við í PISA könnuninni, sem lögð var fyrir tíunda bekk í fyrra og birt í gær. Um 28 prósent nemenda í íslenskum skólum náðu ekki grunnhæfni á neinu þeirra grunnhæfnisviða sem könnunin tók til: lesskilningi, stærðfræði og vísindum. Fyrir tíu árum náðu 78 prósent nemenda hérlendis grunnhæfni í lesskilningi en nú eru þeir aðeins 56 prósent. „Niðurstaðan kom mér ekkert á óvart en auðvitað verður maður dapur,“ sagði Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í samtali við Gímaldið eftir fund með blaðamönnum í Safnahúsinu í gær. Þar kynnti Inga aðgerðir sem ráðist verður í vegna stöðunnar. Þær fela meðal annars í sér stóraukna áherslu á grunnfærni í kjarnagreinum, endurskoðun námskrár og aukinn faglegan stuðning við skóla landsins með áherslu á að huga að nemendum af erlendum uppruna.
|
|
|
|
|
|
|
Yfir eitt þúsund flugferðum var aflýst í Bretlandi í gær eftir að tæknibilun kom upp í flugumsjónarkerfi fyrirtækisins NATS. Hátt í 200 flugferðum hefur verið aflýst til og frá Bretlandi í dag, langflestum um Heathrow-flugvöll í London, og búist er við áframhaldandi töfum næsta sólarhringinn. Yfirvöld hafa enn ekkert gefið upp um orsakir bilunarinnar.
|
Euronews
|
|
|
|
|
Tólf ríki herða að Ísrael
|
|
Ísland er meðal tólf ríkja, þar á meðal Bretlands, Kanada, Frakklands og hinna Norðurlandanna, sem sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í gær um hertari viðskiptaþvinganir gegn ólöglegum landtökubyggðum Ísraela á Vesturbakkanum og stuðning við tveggja ríkja lausn. Bretland reið á vaðið með innflutningsbanni á vörur frá landtökubyggðum og Ed Miliband utanríkisráðherra sagði landtökumenn beita Palestínumenn þjóðernishreinsunum.
|
RÚV, BBC, Stjórnarráðið
|
|
|
|
|
|
Fimm írönsk olíuflutningaskip voru eyðilögð í árás bandaríska hersins í gær, fjögur í Ómanflóa og eitt við Kharkeyju. Íranar svöruðu með eldflaugaárás á bandaríska herstöð í Jórdaníu í nótt en jórdanski herinn skaut niður átján eldflaugar á leið að stöðinni. Íransher segist jafnframt hafa gert árásir á tíu skip í Persaflóa, þar af tvö bandarísk herskip og átta olíuflutningaskip. Olíuverð hefur þegar hækkað vegna þessara nýjustu vendinga og stefnir nú í hundrað dollara á tunnuna.
|
Euronews, NRK, Vísir
|
|
|
|
|
|
Rússar gerðu loftárás á Kyiv í nótt þar sem að minnsta kosti fimm létust og önnur rússnesk drónaárás varð óbreyttum borgurum að bana við landamærastöð við Moldóvu. Vladímír Pútín og Donald Trump áttu klukkutíma símafund í gær. Að sögn aðstoðarmanns Pútíns fullvissaði forsetinn Trump um að hann hefði engin fjandsamleg áform gagnvart Evrópu. Selenskí Úkraínuforseti er í Ósló ásamt eiginkonu sinni vegna útfarar Haraldar Noregskonungs sem fram fer í dag. Hann fundaði í gærkvöldi með Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs.
|
Copenhagen Post, Euronews, NRK
|
|
|
|
|
Vandræði kanslarans aukast enn
|
|
Sósíaldemókratar í samsteypustjórn Friedrich Merz kanslara Þýskalands hafa snúið baki við umbótum sem flokkarnir höfðu þegar samið um, þremur dögum eftir að Kristilegir demókratar, flokkur kanslarans, galt afhroð fyrir Alternative für Deutschland í Saxlandi-Anhalt. Donald Trump Bandaríkjaforseti fagnaði sigri AfD á Truth Social og sagði þýska kjósendur hafa fengið nóg af hræðilegum innflytjendalögum. Þúsundir mótmæltu AfD í Berlín og Köln um helgina. Inn í þessa stöðu gekk António Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, sem hitti Merz í gær til að kanna svigrúm til málamiðlunar um fjárhagsáætlun ESB fyrir tímabilið 2028-2034, í aðdraganda leiðtogafundar sem haldinn verður um málið 15. október.
|
Politico, NRK
|
|
|
|
|
Vučić rýfur þing í Serbíu
|
|
Aleksandar Vučić, forseti Serbíu, tilkynnti í gær að þingkosningar verði haldnar 25. október, þótt rúmt ár sé eftir af kjörtímabilinu, en kjósa átti ekki fyrr en í desember 2027. Vučić undirritar í dag tilskipun um að rjúfa þingið og boðar þá formlega til kosninganna. Mikil mótmæli hafa verið í landinu síðan í nóvember 2024 og kröfur um afsögn forsetans og þingkosningar hafa orðið stöðugt háværari.
|
RÚV
|
|
|
|
|
OpenAI leysir Navier-Stokes
|
|
OpenAI segist hafa leyst Navier-Stokes jöfnurnar, eitt af sjö þekktustu vandamálum stærðfræðinnar sem Clay-stofnunin heitir milljón dala verðlaunum fyrir. OpenAI beitti um tíu þúsund gervigreindarþjörkum óútgefins líkans á þrautina og fann sönnun um að jöfnurnar, sem lýsa flæði vökva og gass, geti undir vissum kringumstæðum brotnað upp. Það tók þjarkana 88 klukkustundir að leysa þrautina.
|
Semafor
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|