|
|
|
|
Miðvikudagur 16. september 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Framkvæmdagleði einkennir fréttabréf dagsins. Í gær var fyrsta vindorkuver landsins sett í gang, áform kynnt um gagnaver á Bakka og nýr skáli í Þórsmörk er í smíðum. Úrsúla von der Leyen flytur sjöttu stefnuræðu sína í Evrópuþinginu í dag og leiðtogar Skotlands, Wales og Norður-Írlands vilja ganga í Evrópusambandið. Bandaríkjamenn undirbúa risavaxna vopnasölu til Ísrael.
|
|
|
|
🌧️ Suðaustan 10-18 m/s og rigning, hvassast suðvestantil. Sums staðar talsverð rigning um tíma, einkum sunnan- og vestanlands. Snýst í sunnan og suðvestan 3-8 og dregur úr vætu á sunnan- og vestanverðu landinu er líður á daginn.
|
|
|
|
|
Ekkert skjól fyrir hermenn
|
|
Úkraínskir karlmenn fá ekki dvalarleyfi hér á landi nema þeir hafi lokið herskyldu, verði frumvarp á teikniborði dómsmálaráðherra að lögum. Breytingin er í samræmi við beiðni úkraínskra stjórnvalda, sem hafa átt erfitt með að manna herdeildir, og fylgir fordæmi bæði Evrópusambandsins og Noregs. Um sjö þúsund Úkraínumenn hafa fengið alþjóðlega vernd á Íslandi frá innrás Rússa, framan af aðallega konur og börn. Ráðuneytið merkir nú aukinn fjölda stakra karlmanna í hópi umsækjenda, sömu þróun og sést hefur á öðrum Norðurlöndum. Þorbjörg segir mikilvægt að íslensk löggjöf fylgi öðrum Evrópuríkjum og að breytingin hafi engin áhrif á þá sem þegar hafa dvalarleyfi. Frumvarpið verður lagt fram síðar í mánuðinum.
|
RÚV
|
|
|
|
|
|
Til stendur að reisa eitt stærsta gagnaver landsins á iðnaðarsvæðinu Bakka við Húsavík. Verkefnið var kynnt á skipulagsfundi Norðurþings í gær en Askar Capital eiga í viðræðum við mögulegan viðskiptavin; bandarískt stórfyrirtæki á sviði gervigreindar. Verkefnið er talið kosta um 120 milljarða króna og gagnaverið á að bjóða upp á 100 MW vinnslugetu. Samtal er þegar hafið við Landsvirkjun um raforkuna. Fyrirhugað er að framkvæmdir hefjist á fyrsta ársfjórðungi 2027.
|
Visir
|
|
|
|
|
|
Fyrsta vindorkuver Íslands var gangsett á Vaðöldu í gær. Í verinu snúast fjórtán vindmyllur en þeim mun fjölga um helming og verða 28 í lok næsta árs. Áætlað er að verið verði komið í fullan rekstur fyrir árslok 2027 og framleiði þá 440 gígavattstundir árlega. Kostnaðurinn við verið er rúmlega 20 milljarðar króna. Vindorka og vatnsafl vinna vel saman, að sögn Ásbjargar Kristinsdóttur hjá Landsvirkjun, þar sem miðlunarlón geti sparað vatn á meðan vindur blæs. Ný lög um vindorkunýtingu voru samþykkt á síðasta þingi og er markmið stjórnvalda að afmarka öflun vindorku við fá vel valin svæði svo hún gangi ekki á óbyggð víðerni.
|
RÚV, Mbl
|
|
|
|
|
|
Skagfjörðsskáli í Langadal í Þórsmörk hefur mátt finna fyrir sleggjunni undanfarna daga. Verið er að rífa skálann, sem byggður var af Ferðafélagi Íslands árið 1954, og byggja nýjan á grunni hans. Í febrúar var gengið frá lóðarleigusamningum milli Ferðafélagsins, Rangárþings eystra og forsætisráðuneytisins um lóðir í Langadal, Húsadal og Emstrum. Nýr skáli verður í sama útliti og sá gamli en skipulag hefur verið uppfært auk þess sem útsýni verður meira. Nýi skálinn verður fluttur á svæðið í einingum á næstunni og á skálinn að vera tilbúinn fyrir ferðasumarið 2027.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Alls höfðu 19 af 38 grunnskólum í Reykjavík lokið ráðningum í byrjun september, samkvæmt minnisblaði sem lagt var fram á fundi skóla- og frístundaráðs á mánudag. Alls starfa að jafnaði um 3.000 manns í um 2.500 stöðugildum í grunnskólum borgarinnar en ómönnuð stöðugildi eru alls 22,4. Á sama tíma í fyrra átti eftir að ráða í 46,9 stöðugildi þannig að staða ráðninga er betri en í fyrra.
|
Reykjavíkurborg
|
|
|
|
|
|
Ræðu Von der Leyen er beðið með eftirvæntingu.
|
Von der Leyen flytur stefnuræðu í dag
|
Ursula von der Leyen flytur í dag sína sjöttu stefnuræðu sem forseti framkvæmdastjórnar ESB. Ræðunnar hefur verið beðið með eftirvæntingu en Von der Leyen þarf að þræða þröngan stíg milli pólitískra blokka Evrópuþingsins; hægri armsins sem vill einfaldara regluverk og hert landamæraeftirlit, og vinstri armsins sem krefst afstöðu gegn hægriöfgaflokkum. Viðræður um nánara samband milli ESB og Kanada hafa staðið yfir og verður Mark Carney forsætisráðherra Kanada viðstaddur ræðu Von der Leyen í Evrópuþinginu í dag.
|
Politico, The Economist
|
|
|
|
|
Vilja í ESB og hóta klofningi
|
|
Leiðtogar Skotlands, Wales og Norður-Írlands hafa varað Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, við því að stjórnarskrárbreytingar séu í kortunum og að framtíð landanna þriggja liggi innan Evrópusambandsins. Þetta var rætt á fundi leiðtoganna á fundi í Cardiff í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem sjálfstæðis- eða sameiningarsinnar leiða öll löndin þrjú samtímis. Burnham hafnaði fyrr í mánuðinum hugmyndum um nýja þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands.
|
Foreign Policy
|
|
|
|
|
Stór vopnasala til Ísraels
|
|
Ríkisstjórn Trump undirbýr nú 2,8 milljarða dollara samning um sölu vopna til Ísrael. Samningurinn er að stærstum hluta aðstoð við Ísrael og vopnin kostuð af Bandaríkjamönnum sjálfum. Samþykki Bandaríkjaþing samninginn fengi Ísrael um 40.000 öflugar sprengjur (Mk-84 og BLU-117) með hrikalegan eyðingarmátt. Þetta yrði ein umfangsmesta vopnasending Bandaríkjanna í seinni tíð.
|
New York Times, Guardian
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|