|
|
|
|
Föstudagur 23. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Stundum færa svör okkur fátt annað en fleiri spurningar. Þrátt fyrir vænt viðtal á besta tíma þá náðist ekki að færa áhorfendum Kastljóss viðhlítandi skýringu á brotthvarfi forstjóra Landsvirkjunar úr því ábyrgðarhlutverki. Hörður vísar í að mistök verði þegar fólk fer ekki eftir leikreglum. Hvaða leikreglum var ekki fylgt? Hver fylgdi þeim ekki? Þá talar hann sérstaklega um að stjórnarhættir snúist til að mynda um hvar ákvarðanir eru teknar og „hverjir eru boðaðir á fundi“. Voru haldnir fundir sem Hörður var ekki boðaður á? Um hvað snerust þeir fundir? Ljóst má vera að Hörður taldi að völd og ábyrgð færu ekki saman. Forstjóri Landsvirkjunar ber gríðarlega ábyrgð og þarf að hafa umboð til að stýra í takt við þá ábyrgð. Hörður bendir réttilega á í viðtalinu að Landsvirkjun höndli með fjöregg þjóðarinnar. Því þarf þjóðin, eigandi fyrirtækisins, enn að kalla eftir frekari skýringum.
|
|
|
|
🌥️ 🌨️ ❄️ Suðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og stöku skúrir eða slydduél, en bjart með köflum á Norðurlandi. Norðlægari á morgun og skúrir eða slydduél, en úrkomulítið á Suður- og Vesturlandi. Hiti 1 til 7 stig að deginum, en víða vægt frost í nótt.
|
|
|
|
|
|
„Þetta snýst um form,“ sagði Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, í viðtali í Kastljósi í gærkvöldi og bætti við „en þegar þú situr í stöðu eins og ég þá lærir maður að það skiptir rosalega miklu máli. Við getum farið yfir sögu alls konar mistaka sem hafa verið gerð í íslensku samfélagi og annars staðar. Þetta er oft og iðulega vegna þess að fólk fer ekki alveg eftir leikreglum. Það þurfa að vera rammar í kringum fyrirtæki, sérstaklega fyrirtæki eins og Landsvirkjun.“ Hörður talaði um ágreining við stjórn um stjórnarhætti í viðtalinu. Hann talaði líka um ábyrgð, breytta ramma, nauðsyn þess að hafa skýrt umboð og um leikreglur. „Til þess að geta fengið góðar niðurstöður, bæði í rekstri og að stýra áætlun fyrirtækisins, þá þarf að vera mjög skýrt umboð og skýrt hvar ábyrgðin liggur svo góð niðurstaða fáist.“ Hörður sagði að ástæður þess að hann lét af störfum snerust um stjórnarhætti, um form en ekki málefni. Hann sagði forstjóra fyrirtækis á borð við Landsvirkjun þurfa að hafa skýrt umboð en einnig að verklag þurfi að vera skýrt. Hörður nefndi sérstaklega verkaskiptingu milli aðila og hverjir eru boðaðir á fundi. Benti hann á að Landsvirkjun höndlar með fjöregg þjóðarinnar, súrefni Íslands, og því sé ákaflega nauðsynlegt að traust ríki milli stjórnar og forstjóra. Tilfinning Harðar var að það ríkti ekki lengur traust, og því ákvað hann að víkja. „Það sem breyttist er hvernig fólk vinnur, hver er verkaskipting milli aðila, hverjir eru boðaðir á fundi og hvar ákvarðanir eru teknar,“ sagði Hörður.
|
Gímaldið, RÚV
|
|
|
|
|
Inga styður ekki tillögu um afturköllun
|
|
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, mun ekki styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að umsókn Íslands um aðild að ESB verði dregin til baka. Þetta kom fram í svari Ingu við fyrirspurn Jens Garðars Helgasonar í óundirbúnum fyrirspurnartíma í gær. Inga hefur sjálf ítrekað lagt fram tillögu þessa efnis frá því hún settist fyrst á þing og í svari sínu í gær sagðist Inga telja það „eðlilegasta hlut í heimi“ að draga umsókn Íslands til baka. Hún muni þó ekki styðja slíka tillögu núna. „Nú er ég hér í ríkisstjórn með tveimur öðrum flokkum og við höfum í engu sett þetta á okkar stefnuskrá,“ sagði Inga.
|
Gímaldið, Alþingi
|
|
|
|
|
Norðurlöndin ráða ráðum sínum
|
|
Engir þingfundir verða á Alþingi í næstu viku þegar stjórnmálaleiðtogar Norðurlanda koma saman í Helsinki á 78. þingi Norðurlandaráðs. Af Íslands hálfu taka sjö alþingismenn auk ráðherra úr ríkisstjórninni þátt í þinginu, sem verður sett í finnska þinghúsinu síðdegis á þriðjudag. Yfirskrift þingsins er almennt öryggi á Norðurlöndum. Ræða á nánara samstarf ríkjanna í utanríkis-, öryggis- og varnarmálum, almannavörnum og heilbrigðisöryggi. Þá er búist við að Helsinki-sáttmálinn, sem verið hefur grundvöllur norræns samstarfs frá 1962, verði til umræðu. Hann hefur ekki verið uppfærður í 30 ár. Nefnd á vegum norrænu samstarfsráðherranna hefur unnið að tillögum um að Færeyjar, Grænland og Álandseyjar fái jafna aðild að Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni. Nefndin var skipuð í mars og þá var stefnt að því að tillögur hennar kæmu til umræðu á þinginu.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Finnar brjálaðir við Google
|
|
Google hefur beðið Finna afsökunar eftir að 250 þúsund tré voru felld í skóglendi í Norður-Finnlandi án leyfis til að rýma fyrir gagnaveri. Framkvæmdir hafa verið stöðvaðar tímabundið þar sem umhverfismati var ekki lokið. Reiði ríkir meðal almennings og rúmlega 93 þúsund manns hafa skrifað undir kröfu um strangari reglur og bætur til nærsamfélaga. Að sögn Guardian stefnir í að gagnaverin verði kosningamál í Finnlandi í apríl en þar eru 145 ný gagnaver á ýmsum stigum undirbúnings. Auk stöðugleika í landinu og nægs landrýmis gerir svalt loftslagið landið sérstaklega eftirsóknarvert fyrir gagnaver vegna sparnaðar í orkukostnaði. Aðstæður á Íslandi eru um margt svipaðar, fyrir utan viðhorfin, en hér keppast sveitarfélög um gagnaver. Nokkur gagnaver eru í Reykjanesbæ og önnur á Akureyri, í Reykjavík, Hafnarfirði og á Blönduósi. Stækkanir eru fram undan í mörgum þeirra. Þá eru Ölfus, Norðurþing, Dalvíkurbyggð og Akranes öll í viðræðum um ný gagnaver.
|
Guardian, RÚV
|
|
|
|
|
|
Hundruð þúsunda söfnuðust saman í miðborg Belgrad í gær á síðasta kosningafundi stúdentahreyfingarinnar sem reynir að fella framboð forsetans Aleksandar Vučić og Serbneska framfaraflokksins í þingkosningum á sunnudag. Hreyfingin er sprottin af langvarandi og fjölmennum mótmælum í landinu sem hófust eftir að steinsteypt skyggni á lestarstöðinni í Novi Sad hrundi í nóvember 2024 og varð 16 manns að bana. Stúdentalistinn samanstendur af 250 frambjóðendum úr röðum háskólafólks, listafólks og bænda en hver og einn frambjóðandi var staðfestur til framboðs á borgarafundi. Kjörorð framboðsins er „Serbía eða mafía“ og vísar til ásakana um tengsl flokks Vučić við skipulagða glæpastarfsemi. Stúdentar hafa hins vegar forðast umdeild utanríkismál í aðdraganda kosninganna, eins og ESB, Rússland og Kosovo. Kannanir benda til tvísýnna kosninga á sunnudaginn og upp úr gæti soðið að þeim loknum, sama hvernig fer.
|
Guardian, Foreign Policy, Rapporteur, Politico
|
|
|
|
|
Um mútusjóð Jareds Kushner
|
|
|
Bandaríska tímaritið Vanity Fair birti í gær kafla úr væntanlegri bók Matthew Cole, Princes and Thieves: Jared Kushner and Mohamed bin Zayed’s Secret Plot to Remake the Middle East. Þar er því lýst hvernig rússneska leyniþjónustan GRU og síðar sú hollenska (MIVD) hafa haft Jared Kushner, tengdason Bandaríkjaforseta til rannsóknar árum saman, með aðstoð rússnesks njósnara. Var meðal annars brotist inn í síma Kushners og skjáskot tekin af öllu sem fram fór þegar hann notaði símann á árunum eftir 2017. Í ljós kom að Kushner tók við milljörðum dollara frá Saudi-arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum, í gegnum forsetann Mohamed bin Zayed og prinsinn Mohamed bin Salman. Mun stór hluti fjárins hafa farið í gegnum ísraelska seðlabankann og þurfti Netanyahu forsætisráðherra að samþykkja allar millifærslur af þeim reikningi, oftast inn á leynilega reikninga Kushners á Kýpur. Samkvæmt rannsóknum höfundar notaði Kushner féð meðal annars til að greiða málaliðum og leigumorðingja en einnig til að auðgast persónulega. Í staðinn á Kushner að hafa gengið erinda þeirra Zayed og Salmans og tryggt þeim aðgang að Hvíta húsinu. Kushner hefur harðneitað öllum ásökunum höfundar.
|
Vanity Fair, Gímaldið
|
|
|
|
|
ICEYE og Nokia þjónusti Úkraínu
|
|
Finnsku tæknifyrirtækin ICEYE og Nokia undirrituðu í gær viljayfirlýsingu við varnarmálaráðuneyti Úkraínu um samstarf á sviði gervihnattasamskipta. Markmiðið er að styrkja varnargetu Úkraínu, einkum með því að byggja upp gervihnattanet sem landið hefur sjálft stjórn á. Yfirlýsingin var kynnt í heimsókn Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, til Úkraínu. Fyrr í mánuðinum kynntu fyrirtækin samstarf sín á milli um örugg og öflug gervihnattasamskipti á lágri sporbraut fyrir stjórnvöld, allt frá varnar- og landamæragæslu til almannavarna. Kerfin byggja á evrópskri tækni og ríkin sem kaupa þau eiga sjálf gervihnettina, jarðstöðvarnar og búnaðinn. „Úkraína þarf örugg, sjálfstæð og afkastamikil gervihnattasamskipti sem hún stjórnar sjálf,“ segir Rafal Modrzewski, forstjóri og annar stofnenda ICEYE, sem hefur stutt Úkraínu frá 2022. Óhætt er að fullyrða að Úkraína hafi ástæðu til að leita annarra leiða því fyrr í mánuðinum var hægt á virkni Starlink og hernaðarútgáfu þess, Starshield, í Úkraínu. Þótt þjónustan hafi verið endurreist vekur atvikið spurningar um hvort Úkraína geti treyst fyllilega á hana.
|
Gímaldið, ICEYE
|
|
|
|
|
- Síðari umferð forsetakosninga í Brasilíu fer fram á sunnudaginn. Samkvæmt könnunum er hnífjafnt milli þeirra Flávio Bolsonaro og Lula da Silva forseta.
- Forsetakosningar fara líka fram í Búlgaríu um helgina. Ólíklegt er að aðra umferð þurfi þar og er sitjandi forseti, Iliana Jovova, talin sigurstrangleg.
- Emmanuel Macron Frakklandsforseti hyggst banna öll mótmæli í landinu sem verkalýðsfélög standa ekki fyrir, í viðleitni til að lægja öldur eftir óeirðir síðustu daga.
- Rúmlega 3.600 mótmælafundir voru haldnir víða um Evrópu fyrstu nítján daga októbermánaðar, samkvæmt samantekt ACLED, samtaka sem halda utan um gögn um átök og mótmæli um allan heim.
- Tilraunir með bólusetningu gegn ebólu geta hafist í næstu viku í Kongó, þar sem 9.500 hafa sýkst og 4.600 látist, en veiran hefur nú borist til Nígeríu og Kenía.
- Vikulangt verkfall vöruflutningabílstjóra á Ítalíu hefur valdið matar- og eldsneytisskorti í suðurhluta landsins. Meloni forsætisráðherra hefur nú náð samningum við bílstjórana.
- Hiti varð yfir 50.000 manns að bana í borgum og bæjum Evrópu í sumar, samkvæmt nýju mati vísindamanna.
Reuters, Sofia Globe, BTA, Rio Times, Foreign Policy, Guardian
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Steinar Bragi: Frelsarinn
|
Í marga mánuði var slökkt á heiminum – engin ljós, engar fréttir, ekkert net. Mannkyn stóð bjargarlaust andspænis nýjum veruleika: Súpergreind hafði tekið völdin.
|
Þegar kveikt er á öllu á ný stígur fram dularfull kona í Asíu. Hún er kölluð Frelsarinn af fylgjendum sínum og fremur röð kraftaverka sem gefa nýja von. Er hún dýrlingur, slátrari eða bara enn einn svikarinn?
|
|
Í skugga hennar tvinnast saman þrjú líf: herlæknir á Tælandi, tæknijöfur með lykilinn að Endalokunum í vasanum og blind stúlka í norskum firði.
|
|
|
|
|
|
|
|
Frelsi óbreytta þingmannsins: Jón Gnarr og Dagur B. Eggertsson fóru ólíkar leiðir
|
|
Jón Gnarr hefði getað nýtt sér frelsi óbreytts stjórnarþingmanns innan þingflokks Viðreisnar, á svipaðan hátt og Dagur B. Eggertsson hefur gert innan Samfylkingarinnar. Þetta segir Aðalheiður Ámundadóttir, stjórnmálaskýrandi Gímaldsins, um úrsögn Jóns úr þingflokknum í nýjum hlaðvarpsþætti. Fjallað er um brotthvarf Jóns, áhrifin á Viðreisn og einnig rætt um skref sem verið er að stíga í því að minnka áhrif verðtryggingar á fasteignalánamarkaði.
|
|
|
|
|
|
|
|
Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku
|
Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni og saga þorskastríðanna er þjóðarsaga. Hún geymir dýrmætan lærdóm fyrir smáríki í hörðum heimi.
|
Vald hinna veiku segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.
|
|
Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerðist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi.
|
|
|
|
|
|
|
|
Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu
|
|
Vistforeldri sem mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra nefnir ferð á tónleika Kaleo sem dæmi um að au pair-kerfið virki vel. Á sama tíma biður Útlendingastofnun lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Verði frumvarpið að lögum munu au pair frá þrjátíu ríkjum áfram geta komið til Íslands án sérstaks dvalarleyfis.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|
|